Feykir - 25.06.2015, Blaðsíða 2
2 24/2015
„Þú ert nú bara aldrei heima hjá
þér“ er athugasemd sem ég heyri
oft um sjálfa mig og raunar ýmsa
aðra, gjarnan í miklum vand-
lætingartón. Það er sem sagt ekki
dyggð að vera mikið á ferð og
flugi. Ekki veit ég hvort þetta er
arfleifð af því þegar konurnar
áttu að vera heima og „bak við“
eldavélina, en núna 100 árum
eftir að konur fengu kosningarétt
og jafnréttisbaráttan hófst fyrir
alvöru vona ég að svo sé ekki. Eða
var kannski framboð Vigdísar á
sínum tíma umdeilt meðal annars af því konur áttu að vera
heima hjá sér?
Nú ætla ég ekki að kasta rýrð á þá sem eru heimakærir og þurfa
hvorki að ferðast vinnu sinnar vegna, né eiga ættingja á fjarlægum
slóðum, hvað þá heldur að þeir líti á ferðalög sem skemmtilegt
áhugamál. Það er svo misjafnt hvað veitir okkur ánægju. Sjálf var ég
til dæmis afskaplega heimakært barn en þegar fram liðu stundir
gerðist ég forvitin um að sjá meira af heiminum heldur en
heimahagana kæru, þó þeir toguðu alltaf í líka og geri enn. Lengi
vel freistuðu utanlandsferðir ekki en eftir þá fyrstu varð ekki eftir
snúið og hvert tækifæri notað til að gerast „sigldur“ eins og sagt var
hér áður fyrr.
Sama vandlætingartón notuðu margir þegar ég fór að ferðast um
landið með börnin mín, það þótti ekki nógu gott uppeldi. Ég hélt
þeim ferðum hins vegar áfram í þeirri góðu trú að það gerði
börnunum gott að kynnast ömmum sínum og öfum í fjarlægum
landshlutum, auk þess sem máltækið segir að heimskt sé heimaalið
barnið. Þau kvörtuðu alla vega ekki og búa að því í dag að hafa séð
töluvert af landinu sínu góða og þekkja það betur en margir á
þeirra aldri. Það er líka ótrúlegt hvað situr eftir af minningum
jafnvel frá 2-3 ára aldri, þó í dag sé aldurinn þannig að ferðalög
með mömmu og pabba eru ekki alveg efst á óskalistanum.
Í þeirri trú held ég áfram ferðalögum mínum, hvort sem er til vina
og ættingja, til að taka viðtöl við forvitnilegt fólk, til að sýna
ferðamönnum nýjar slóðir eða uppgötva sjálf nýjar slóðir. Næst
skal ferðinni heitið á Hamingjudaga á Hólmavík. Heimska ku vera
kennd við það að fara aldrei að heiman og sjá því ekki nema það
sem er í nánasta umhverfi, líkt og segir í fimmta erindi Hávamála:
Vits er þörf
þeim er víða ratar.
Dælt er heima hvað.
Að augabragði verður
sá er ekki kann
og með snotrum situr.
Góða ferðahelgi!
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Þóra Kristín Þórarinsdóttir – thora@nyprent.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Að vera heimskur eða
heimakær?
Hanna Dóra
ráðin skólastjóri
Varmahlíðarskóla
Skagafjörður
Hanna Dóra Björnsdóttir
hefur verið ráðin í stöðu
skólastjóra Varmahlíð-
arskóla en sex umsóknir
bárust um stöðuna. Greint
er frá þessu á vef Svf.
Skagafjarðar.
Hanna Dóra er grunn-
skólakennari og með meist-
arapróf í uppeldis- og sál-
fræðiráðgjöf auk náms í
menntunarfræðum með
áherslu á stjórnun mennta-
stofnana. Hún hefur auk þess
víðtæka reynslu úr skólastarfi
og sem uppeldis- og sál-
fræðiráðgjafi. /BÞ
„Midnight
Sun Burnout“
Samþykkt að auglýsa félagsheimilið til leigu
Listasýning í Kvenna-
skólanum á Blönduósi
Blönduós
Á laugardaginn verður
sýningin Midnight Sun
Burnout í Kvennaskólanum
á Blönduósi. Sýningin sem
er um hvernig útlendingar
bregðast við miðnætursól á
Íslandi verður opin kl 15 til
18 á laugardaginn.
Listakonurnar sem taka
þátt eru: Helen O´Shea frá
Írlandi, Soojin Kang frá
Kóreu, Cornelia Theimer
Gardella frá Þýskalandi og
Bandaríkjunum, Emelie
Rygfelt Wilander frá SvíÞjóð
og Melody Laglína Skógar-
hneta frá Ástralíu. Lista-
konurnar vinna meðal annars
með vefnað, þæfingu, gjörn-
ing og litla hluti. Allir eru
boðnir velkomnir á sýn-
inguna. /KSE
Byggðarráð Blönduósbæjar
samþykkti á síðasta fundi
sínum, þann 16. júní sl., að
auglýsa félagsheimilið á
Bjarni Maronsson afhendir Önnu P. Þórðardóttur styrk vegna útgáfu bókarinnar
„Lífsins skák“, sem er ævisaga hennar sjálfrar. MYND: BÞ
26 fengu fjárstuðning
Menningarsjóður KS úthlutar styrkjum
Þann 18. júní var úthlutað
styrkjum úr Menningarsjóði
KS. Að þessu sinni hlutu 26
aðilar styrki til ýmissa menn-
ingartengdra verkefna.
Við úthlutunina sagði Þórólfur
Gíslason kaupfélagsstjóri í máli
sínu að það væru forréttindi fyrir
fyrirtækið að geta orðið að liði í
sínu samfélagi og þakkaði um
leið fyrir það þróttmikla starf
sem unnið er í héraðinu og að
miklum hluta er unnið í
sjálfboðastarfi.
Eftirtaldir hlutu styrki: Leik-
félag Sauðárkróks, Leikfélag
Hofsóss, Guðbrandsstofnun og
Svf. Skagafjörður til að gera
minnismerki um Hannes
Pétursson skáld. Páll Sigurðsson
fékk viðurkenningu fyrir störf
sem höfundur Árbóka FÍ um
Skagafjörð. Við afhendinguna
sagðist Páll ánægður að hafa
tekið að sér skrifin. „Það gleður
mig að skrif mín hafi þýðingu
fyrir Skag-firðinga. Héraðið er
mér afskaplega kært,“ sagði Páll í
þakkarorðum sínum.
Skrautmen til að taka þátt í
markaðssýningu í New York,
Frímúrarastúkan Mælifell til að
koma upp lyftu í húsnæði
félagsins, Barrokksmiðja Hóla-
stiftis, styrkur vegna útgáfu bók-
arinnar „Lífsins skák“ um Önnu
P. Þórðardóttur, Félagið á
Sturlungaslóð og Tónlistarhá-
tíðin Drangey Music Festival.
Fjárstuðningur við störf Topp-
hesta ehf. sem hefur rekið reið-
skóla í yfir 30 ár, viðbótar-
fjárstuðningur við Kiwanis-
klúbbinn Drangey vegna fjár-
öflunar til kaupa á spegl-
unartæki fyrir HSN. Fjárstuðn-
ingur við frjálsíþróttamanninn
Jóhann Björn Sigurbjörnsson,
Lummudaga í Skagafirði, sýn-
inguna „Manstu gamla daga“ á
vegum Félags harmóniku-
unnenda í Skagafirði, Kakala-
skála, Samgönguminjasafn
Skagafjarðar, Kvæðamannafél-
agið Gná og verkefni Héraðs-
skjalasafns Skagfirðinga, „Úr
tímans ranni“, þar sem tekin
verða upp viðtöl við Skagfirðinga
sem komnir eru á efri ár.
Skagfirska kvikmyndaakadem-
ían hlaut einnig styrk, sem og
Hrossaræktarsamband Skaga-
fjarðar, „Þjóðleikur“ leiklistar-
verkefni Varmahlíðarskóla, Ár-
skóla og FNV, menningarhátíðin
„Listaflóð á vígaslóð“, tón-
leikarnir „Frá Aravísum til
Alladíns“ og loks fjárstuðningur
til áframhaldandi uppbyggingar
á skíðasvæðinu Tindastóli.
Viggó Jónsson staðarhaldari
þakkaði fyrir styrkveitinguna
sagðist vonast til að geta hafist
handa við næsta áfanga
uppbyggingarinnar sem er
skíðaskáli. /BÞ
Blönduósi til leigu fyrir
áhugasaman rekstraraðila.
Frá þessu er greint í
fundargerð byggðaráðs /KSE
Endurheimt Brimnesskóga í Skagafirði
Unnið að gróðursetningu
Nýlega gróðursetti Sumar-
vinnuhópur Landsvirkjunar
Blöndustöð 2000 kynbættar
birkiplöntur í gróðurreit til
endurheimtunar Brimnes-
skóga í grennd við ána
Kolku í Skagafirði.
Landsvirkjun hefur um
árabil lagt verkefninu lið
undir heitinu „Margar
hendur vinna létt verk“. Alls
unnu fimmtán manns að
gróðursetningu og áburðar-
gjöf í þessum áfanga.
Birkiplönturnar eru ættaðar
úr Geirmundarhólaskógi í
Skagafirði. Skagafjörður á
landið sem er um 23 ha en
áhugahópur um endurheimt
Brimnesskóga annast fram-
kvæmdir. /Fréttatilk.
Glaðbeittur sumarvinnuhópur Landsvirkjunar
Blöndustöð.