Feykir - 10.12.2015, Side 4
4 47/2015
Sjávarútvegsráðherra
ríkisstjórnar Framsóknar- og
Sjálfstæðisflokks hefur
boðað gríðarlega skerðingu
á byggðakvóta hjá smábáta-
sjómönnum í Skagafirði.
Kúttað hefur verið algerlega
á byggðakvótann á Sauðár-
króki og hann skertur á
Hofsósi. Byggðakvótinn
hefur verið mikilvægur liður í
því fyrir sjómenn að byggja
upp heilsársstarf, þ.e.
byggðakvótinn hefur nýst
ásamt grásleppu- og
strandveiðum.
Áætla má að skerðingin sé um
30 milljóna króna tekjumissi
fyrir sjávarútveginn í Skagafirði.
Í rauninni gerir þetta að verkum
að rekstur smábáta er í upp-
námi og sjómenn þurfa þá
væntanlega að leita annarrar
atvinnu.
Enginn þingmaður Norð-
vesturkjördæmisins hefur látið
sig málið varða og er skorað hér
með á þá, að þeir taki málið
upp við sjávarútvegsráðherra.
Reyndar er það svo að eini
þingmaður ríkisstjórnarflokk-
anna sem hefur tjáð sig eitthvað
um atvinnumál á Norðurlandi
vestra er Ásmundur Einar
Daðason. Í síðasta tölublaði
Feykis var mikil upphleypt
fyrirsögn um tugir milljóna og
fjölda starfa sem Ásmundur
Einar sagði að væru á leið í
Norðurland vestra. Allt var
talið þó óljóst, þar sem einhver
trúnaður ríkir enn um
fjárveitingarnar og fyrirsögnin
því heldur mikil miðað við rýrt
innihald.
Því miður þá lítur út fyrir að
sú upphæð sem áætlað er að
renni tímabundið til Skaga-
fjarðar verði lægri, en það
fjárhagslega högg sem veitt
verður ef byggðakvótinn verður
endanlega sleginn af.
Útgerð smábáta hefur verið í
sókn í Skagafirði og það er
vægast sagt undarlegt að
stjórnvöld séu að bregða fæti
fyrir jákvæða þróun og skyn-
samlega nýtingu á nálægum
fiskimiðum.
Sigurjón Þórðarson
K – listanum, Skagafirði
Steinar Skarphéðinsson
Drangey Smábátafélag
Skagafjarðar
AÐSENT SIGURJÓN ÞÓRÐARSON OG STEINAR SKARPHÉÐINSSON SKRIFA
Hagsmunir SkagfirðingaFjárlög 2016 –
Sókn í byggðamálum
Meirihluti fjáralagnefndar Al-
þingis hefur afgreitt frá sér
ýmsar breytingatillögur við
fjárlagafrumvarp ársins 2016
en önnur umræða fjárlaga fer
fram nú í vikunni.
Það er ánægjulegt að þær
breytingatillögur sem lagðar eru
fram skuli
m a r g a r
hverjar snúa
að byggða-
málum. Það
er stefna
núverandi
ríkisstjórnar
að efla
landsbyggð-
ina og þessar tillögur eru hluti af
því. Þessar tillögur snúa m.a. að
ljósleiðaravæðingu, háskólum á
landsbyggðinni, heilbrigðis-
stofnunum og dvalarheimilum á
landsbyggðinni, flugvöllum á
landsbyggðinni, löndunarhöfn-
um og samgöngum í dreifbýli.
Jafnframt eru margar tillögur
sem snúa sérstaklega að Norður-
landi vestra og eru m.a. tengdar
átaki um eflingu byggðar í lands-
hlutanum.
Það er hægt að
snúa vörn í sókn!
Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar skipaði á
síðasta ári sérstaka nefnd til að
fara yfir sóknarmöguleika á
Norðurlandi vestra og koma
með tillögur sem miða að því að
snúa við neikvæðri byggðaþróun
í landshlutanum. Lagt var upp
með það að þessi nefnd gæti
orðið fyrirmynd fyrir önnur
landsvæði sem glíma við sam-
bærileg vandamál.
Stefán Vagn Stefánsson, odd-
viti Framsóknarflokksins í
Skagafirði, var formaður nefnd-
arinnar en hún var skipuð full-
trúum bæði úr V- og A-Húna-
vatnssýslu. Undirritaður hefur
fengið tækifæri til að starfa með
Stefáni Vagni, bæði þegar ég var
starfandi aðstoðarmaður for-
sætisráðherra og gegnum störf
mín sem nefndarmaður í Fjár-
laganefnd Alþingis. Að öðrum
ólöstuðum þá á hann sérstakt
hrós skilið fyrir sína vinnu og
það hefur verið gaman að starfa
með honum að þessum málum.
Hann hefur sýnt mikla forystu-
hæfileika, leitt starfið af krafti og
sú vinna sem hann hefur lagt
fram er ómetanleg fyrir svæðið í
heild.
Meirihluti fjárlaganefndar
leggur til að fjármagn verði sett í
mörg verkefni á Norðurlandi
vestra og snerta tillögurnar m.a.
Hólaskóla - Háskólann á Hólum,
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra, Selasetrið á Hvamms-
tanga, Kvennaskólann á Blöndu-
ósi, Iðnaðaruppbyggingu í landi
Hafursstaða, Efling Minjastofn-
unar, stofnun atvinnu- og
Nýsköpunarsjóðs, efling þróun-
arseturs á Blönduósi o.fl.
Þessu til viðbótar eru nokkur
stærri verkefni á landsvísu sem
meirihluti fjárlaganefndar leggur
til að settir verði fjármunir í.
AÐSENT ÁSMUNDUR EINAR DAÐASON SKRIFAR
Kraftur í ljósleiðaravæðinguna.
Ríkisstjórnin setti af stað mjög
metnaðarfulla áætlun sem miðar
að því að ljósleiðaravæða allar
sveitir landsins. Fjárlaganefnd
tók á síðasta ári forystu í þessu
máli með því að veita 300
milljónum til hringtengingar á
ljósleiðara og til undirbúnings. Á
þessu ári er lagt til að veitt verði
500 milljónum í viðbót í þetta
mikilvæga verkefni.
Dvalarheimili og heilbrigðis-
stofnanir. Á síðasta ári ákvað
fjárlaganefnd að setja upp pott
sem dvalarheimili á landsbyggð-
inni gætu sótt aukafjárveitingar
til. Þessi pottur er stækkaður á
þessu ári úr 50 milljónum í 75
milljónir. Jafnframt var ákveðið
að auka við fjárveitingar heil-
brigðisstofnana á landsbyggð-
inni og setja upp pott að upphæð
100 milljónir.
Auknar byggðaáherslur
til framtíðar
Þessi skref sem stigin eru í
byggðamálum eru jákvæð en
þau þurfa að vera fyrirboði
breyttrar grunnstefnu. Það er
von mín að nýtt frumvarp um
gerð fjárlaga, sem nú liggur fyrir
Alþingi, boði breytingar í
þessum málum. Á því frumvarpi
voru samþykktar veigamiklar
breytingartillögur frá undir-
rituðum sem fela það m.a. í sér
að fjárlagafrumvörp framtíðar-
innar fari í byggðamat hjá
Byggðastofnun áður en þau eru
lögð fram á Alþingi. Þetta er
mikilvæg breyting sem gerir það
að verkum að byggðamál verða
að vera til hliðsjónar þegar ríkis-
stjórn setur saman fjárlaga-
frumvörp komandi ára.
Til að Ísland standi undir
velferð íbúanna verður landið að
vera sem mest í byggð. Til að afla
tekna af ferðamennsku og
náttúruauðlindum, svo dæmi
séu tekin, verður byggðin að
vera traust sem víðast um landið.
Þau skref sem nú eru stigin verða
vonandi til að þess að snúa vörn
í sókn í þessum málum.
Ásmundur Einar Daðason
Formaður þingflokks
Framsóknarflokksins og
nefndarmaður í Fjárlaganefnd
Alþingis.
Mikilvægar aðgerðir í byggðar-
málum á Norðurlandi vestra
Þann 9. maí skipaði ríkisstjórn Íslands að
sérstök landshlutanefnd yrði stofnuð fyrir
Norðurlandi vestra með það að markmiði
að efla byggðarþróun,
fjölga atvinnutæki-
færum og efla fjár-
festingu á svæðinu.
Jafnframt skuli
nefndin horfa til
þeirra tækifæra sem
liggja í því hvernig
efla megi opinbera
þjónustu á svæðinu en
hún hefur dregist verulega saman á
undanförnum árum. Nefndin var undir
forsætisráðuneytinu og hafði samráð við
starfshóp Stjórnarráðsins um byggðamál
sem að starfsmaður Byggðastofnunar
vann með nefndinni.
Nefndin hélt tíu bókaða fundi og
fundaði m.a. með öllum sveitarstjórnum
á svæðinu með það að markmiði að fá
hugmyndir að verkefnum sem efla
myndu landshlutan. Var um að ræða ný
verkefni, flutt verkefni og eflingu á
verkefnum sem fyrir eru á svæðinu.
Niðurstaða nefndarinnar voru 25
verkefni sem lagt var til að ríkisstjórnin
samþykkti sem lið í byggðaraðgerð fyrir
Norðurland vestra.
Nú liggur fyrir í fjárlögum og
fjárlaganefnd fjármögnun á mörgum af
þeim verkefnum sem Norðvesturnefnin
lagði til og ber því að fagna. Þó ríkisstjórn-
in eigi eftir að samþykkja formlega
tillögurnar er ljóst að búið er að tryggja
fjármagn í stóran hluta þeirra. Það er ljóst
að um verulega innspýtingu inn í
AÐSENT STEFÁN VAGN STEFÁNSSON SKRIFAR
atvinnulífið á Norðurlandi vestra er að
ræða og sennilega einhverja þá mestu í
áraraðir. Málflutningur okkar í nefndinni
hefur verið á þá vegu að nauðsynlegt sé
að vinna til baka þau opinberu störf sem
horfið hafa úr landshlutanum frá 2008.
Að mínu mati er þetta stórt skref í þá átt.
Mörg orð hafa verið látin falla um
vinnu nefndarinnar og hafa menn haft
misjafnar skoðanir á störfum hennar. Er
það ekki ætlun mín hér að fara að
nafngreina einstaka menn og þræta við
þá á síðum Feykis heldur tel ég að það sé
vænlegra til árangurs fyrir Norðurland
vestra að menn, sérstaklega þeir sem hafa
verið kosnir til að gæta hagsmuna
svæðisins, standi saman um verkefni til
eflingar svæðisins í stað þess að tala það
niður. Fjölgun starfa á Norðurlandi vestra
getur ekki verið annað en jákvæð fyrir
landshlutann.
Nú er þessum mikilvæga áfanga að
ljúka og ríkisstjórnin mun væntanlega
opinbera tillögurnar á næstu dögum. Það
er mikilvægt fyrir okkur sem búum á
Norðurlandi vestra að halda áfram í
þeirri baráttu að efla samfélögin okkar og
vinna að fjölgun atvinnutækifæra.
Ég vill nota þetta tækifæri og þakka
þeim fjölmörgu sem þátt tóku í störfum
nefndarinnar en sérstaklega vill ég þakka
því ágæta fólki sem skipað var í nefndina
en það voru auk undirritaðs Sigríður
Svavarsdóttir forseti sveitarstjórnar í
Skagafirði, Valgarð Hilmarsson forseti
bæjarstjórnar á Blönduósi, Unnur
Valborg Hilmarsdóttir oddviti í Húna-
þingi vestra, Héðinn Unnsteinsson
sérfræðingur hjá Forsætisráðuneytinu,
Guðmundur Guðmundsson sérfræð-
ingur hjá Byggða-stofnun og Ásmundur
Einar Daðason alþingismaður.
Stefán Vagn Stefánsson
formaður landshlutanefndar
fyrir Norðurland vestra