Feykir


Feykir - 27.04.2016, Blaðsíða 2

Feykir - 27.04.2016, Blaðsíða 2
2 16/2016 Einn er sá fugl sem getið er um í Hávamálum og herjar gjarnan á fólk eftir drykkjuskap. Sá kallast óminnishegri. Ef ég man rétt var hann þó einkum skæður þeim sem sátu lengi við drykkju og voru þar af leiðandi í lélegu dagsformi næsta dag. En nú virðist sem þessi sami fugl hafa orðið samferða frændum sínum farfuglunum, sem koma í hópum til lands- ins á þessum árstíma. Virðist hann einkum herja á þá sem fóru á eyðslufyllerí í kringum hið títt nefnda ár 2007 og er sem sú víma hafi ekki runnið af þeim ennþá. Reyndar rann all harkalega af flestum okkar daginn sem Geir bað Guð að blessa Ísland, enda höfðum við nú kannski ekki tekið jafn mikið á því í „fylleríinu“ eins og þeir sem ennþá eru að jafna sig. Það er sennilega þess vegna sem við almúginn höfum ekki fundið neitt aflandsfélag sem við mundum ekki eftir. Og trúið mér, meðan aðrir hafi legið undir feldi og íhugað forsetafram- boð, hef ég rótað í skúffum og skápum og leitað að týndum fjármunum. Uppskeran er reyndar tæplega erfiðisins virði því allt sem ég hef haft upp úr krafsinu er þúsundkall í jakkavasa eftir síðasta djamm. Að ógleymdum – já eða löngu gleymdum - hlutabréfum sem skólabróðir minn frá fjölbrautaskólaárunum prangaði einhvern tímann inn á mig fyrir fimmþúsund kall. Hefur sá hinn sami líklega fundið upp Nígeríusvindlið, svo langt er orðið síðan. En nafn hans er mér því miður gleymt og hef ég þó reynt að fletta honum upp í heimavistarbókinni, í því skyni að benda kollega mínum, Jóhannesi Kr. Kristjánssyni á kauða. Svona þegar hann verður búinn að blaða í gegnum Panamaskjölin. Það hefur jafnvel hvarflað að mér að fljúga til Tortólu og leita þar. Því er nefnilega þannig háttað á mínu heimili að ef ég týni einhverju þá er fáum öðrum en mér sjálfri treystandi til að leita að því á árangursríkan hátt. Sem er mjög óheppilegt því ég týni gjarnan og gleymi hlutum. Því væri afar praktískt að geta úthýst slíkum verkefnum. Þannig helst mér afar illa á eyrna- lokkum, bíllyklum, farsímum, vettlingum og öðrum fyrirferðar- minni staðalbúnaði. Veskið mitt minnir helst á svarthol, því það sem fer einu sinni þar ofan í finnst yfirleitt ekki aftur. Heilu yfirhafnirnar hafa jafnvel týnst úr minni eigu. En peningum hef ég sjaldan týnt, enda skipta þeir yfirleitt um eigendur mjög fljótlega eftir hver mánaðarmót. Með öðrum orðum eru þeir gjarnari á að tortímast en að tortólast. Ég á því ekki von að „Cashljósinu“ verði beint að mér eða mínum, að minnsta kosti ekki vegna aflandsfjár. Eigur mínar hef ég heldur ekki geymt í skattaskjóli, en ég lagði einu sinni bílnum mínum í Sörlaskjóli. Skyldi það teljast með? Kristín Sigurrós Einarsdóttir, blaðamaður Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199 Blaðamenn: Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164 Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum LEIÐARI Óminnishegrinn Vonast er til að nýr hópur hefji nám næsta haust Nemendur í Fisktækninámi við FNV lokaverkefni Mánudaginn 25. apríl kynntu nemendur í Fisktækninámi við FNV lokaverkefni sín í rekstrar- hagfræði þar sem nemendur nýttu sér m.a. kunnáttu úr öðrum áföngum námsins. Nemendur hafa stundað nám í áfanganum á yfirstandandi vorönn undir dyggri leiðsögn Helga Freys Margeirssonar. Námið er samstarfsverkefni FNV, Farskólans, Fistækniskóla Íslands og Fisk Seafood en þetta er í fyrsta skipti sem þetta nám er í boði í umsjón þessara aðila. Vonast er til að nýr hópur hefji nám næsta haust. /FB-síða FNV Fylgjst með kynningum á lokaverkefnum. MYND: FB SÍÐA FNV Blöndubrú lagfærð í sumar Blönduós Vegagerðin stefnir að úrbótum á Blöndubrú í sumar þar sem tekin verður steypt stétt sunnan megin af brúnni og brúargólfið verður malbikað. Þá þarf að breikka veginn sitt hvoru megin við brúnna. Frá þessu er sagt á vefsíðu Blönduósbæjar. Rætt var um áformaðar lagfæringar á brúnni á fundi sem fulltrúar Blönduósbæjar áttu með svæðisstjóra Vegagerðarinnar. Einnig var rætt um lausagöngu búfjár með þjóðvegi 1 og úrbætur í þeim efnum. Vegagerðin mun í sumar taka út girðingar meðfram þjóðvegi 1 og koma með tillögur til úrbóta í kjölfarið. /KSE Karlatöltið komið til að vera Karlatölt Norðurlands Karlatölt Norðurlands fór fram á Hvammstanga á laugardaginn. „Var það samróma álit allra að mótið hefði verið hið glæsilegasta og sé algjör- lega komið til þess að vera um ókomna tíð,“ segir á heimasíðu Hestamanna- félagsins Þyts. Það voru Elvar Logi Friðriksson og Táta frá Grafarkoti sem báru sigur úr býtum. „Í höllinni var góð stemming og skemmtu allir sér vel við að fylgjast með flottum körlum á glæsilegum hestum. Þulurinn sá um að halda stemmingunni léttri og var almenn ánægja með dómarana. Ekki leiðinlegt að slíta vetrinum með svona skemmtilegu kvöldi,“ segir enn fremur í frétt á heimasíðunni. Nánari úrslit má finna á feyki.is undir Hestar. /KSE Fullt á frumsýningu Fullkomið brúðkaup Í Sæluviku sýnir Leikfélag Sauðárkróks gamanleikinn Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon. Frumsýnt var fyrir fullu húsi sl. sunnudagskvöld, á opnunardegi Sæluviku, og veltist salurinn um af hlátri. Drepfyndinn og róman- tískur gamanleikur, hraður, fullur af misskilningi, framhjá- höldum og ást. Leikritið segir frá ungu fólki sem er að glíma við ástina, verða ástfangið, hætta að vera ástfangið og að verða ástfangið af þeim sem þau mega ekki vera ástfangin af. Brúðkaupsdagurinn er runninn upp. Brúðguminn vaknar með konu sér við hlið. Hann hefur aldrei séð hana fyrr. /BÞ Fjögur sveitarfélög fá styrk til ljósleiðaravæðingar Norðurland vestra Fulltrúar fjarskiptasjóðs, nokkurra sveitarfélaga og innanríkisráðherra skrifuðu í síðustu viku undir samninga um styrki fjarskiptasjóðs fyrir uppbyggingu ljósleiðara í sveitarfélögunum til að efla fjarskiptasamband í dreifðum byggðum sem markaðurinn sinnir ekki. Alls fá 14 sveitarfélög styrki að þessu sinni til að tengja um 900 staði með ljósleiðara og um 200 staði með ídráttarröri fyrir ljósleiðara. Meðal þeirra eru Húnavatnshreppur, Sveitarfél- agið Skagafjörður, Húnaþing vestra og Blönduósbær. Innanríkisráðherra sagði við þetta tækifæri að uppbygging fjarskiptakerfa utan markaðs- svæða, og þá einkum ljósleiðara í dreifbýli, væri eitt af mark- miðum stjórnvalda sem fram koma í stefnuyfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar. Undirbúningur þessa verkefnis hefði staðið yfir í nokkur misseri og nú hæfist átakið af krafti. Ljósleiðara- væðing tryggi íbúum í dreifbýli öflugan netaðgang, styrki þróun byggðanna, efli atvinnulíf og geri þau betur í stakk búin til að rækja hlutverk sitt. Styrkupphæðir til hvers og eins sveitarfélags eru mjög misháar, allt frá rúmum fjórum milljónum króna og upp í yfir 100 milljónir og markast af fjölda staða sem tengja á og umfangi verkefnisins. Gert er ráð fyrir að vinna við tengingarnar fari fljótlega af stað enda hafa sveitarfélögin þegar undirbúið verkið að nokkru leyti. /KSE Frá verðlaunaafhendingu í Karlatölti Norðurlands. MYND: ÞYTUR

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.