Feykir - 27.04.2016, Blaðsíða 3
16/2016 3
afhendir Sumardísinni veldis-
sprota, sem var loftnetsstöng af
bíl,“ útskýrir Lilla og hlær. Þegar
í Félagsheimilið er komið eru
einnig flutt skemmtiatriði og
spilað bingó. Þá býður Lands-
bankinn upp á sumarkaffi,
vöfflur og kakó og segir Lilla
hátíðarhöldin hafa verið með
þessu sniði í þrjú ár. „Þetta situr
svip sinn á bæinn. Við fengum
gott veður þetta árið en ef við
höfum verið í hríðargargi þá
höfum við bara farið lítinn
hring um bæinn. En það er
alltaf stoppað fyrir utan
sjúkrahúsið og sungið fyrir
vistfólkið þar Nú er vetur úr bæ,
og Nú er sumar, gleðjist gumar,“
segir hún.
Lilla segir að yfirleitt séu nýir
aðilar í hlutverkum Veturs
konungs og Sumardísarinnar ár
hvert. Í dag séu það yfirleitt
nemendur úr 10. bekk sem fari
með þau hlutverk. Fyrstu
bekkingar eru svo með skikkjur,
stelpurnar rauðar og strákarnir
bláar, og fylgja Vetri konungi og
Sumardísinni á vagninum.
Fánaberar eru svo 10 til 11 ára
krakkar.
Lilla segist oft hitta fólk sem
komið er yfir miðjan aldur sem
minnist þess að hafa verið í
einhverjum af þessum hlut-
verkum. Það er sannarlega
ánægjulegt að haldið skuli í þess
hefð á Hvammstanga, sem
líklegt verður að telja að sé
einstök á landsvísu. „Ég er nú
komin á níræðisaldur og geri nú
lítið annað en sjá um að krakk-
arnir séu klædd. Ég tek við föt-
unum, geymi þau frá ári til árs
og afhendi þau svo aftur, eins og
þau eiga að vera, straujuð og
fín,“ segir Lilla að lokum.
Vetur konungur afhendir
Sumardísinni veldissprota
Sumardagurinn fyrsti á Hvammstanga
„Það voru hérna læknishjón og
ljósmóðir sem voru mjög
áhugasöm um að fegra í
kringum sjúkrahúsið og ég gekk
í lið með þessum tveimur
konum, Huldu Tryggvadóttur
og Magneu Guðnadóttur, og við
saumuðum búningana,“ segir
Lilla aðspurð um upphafið að
þessum sérstöku hátíðarhöldum
á Hvammstanga, sem fyrst var
efnt til árið 1957.
„Fyrst voru Vetur konungur
og Sumardísin á hestum, hún á
rauðum hesti og hann á hvítum.
Í seinni tíð hafa Vetur konungur
og Sumardísin farið fyrir
skrúðgöngunni á vagni sem
dreginn er ýmist af bíl eða
traktor,“ segir hún ennfremur.
Búningarnir hafa hins vegar
verið þeir sömu öll árin og segir
Lilla að þá endast vel, enda ekki
notaðir nema einu sinni á ári.
„Fyrstu fötin á Vetri konungi
voru bara hveitipokar en svo
fékk hann nú nýrri föt seinna,
það er það eina sem hefur
breyst.“
Ágóðinn af skemmtununum
rann lengi vel til þess að fegra
kringum sjúkrahúsið og þar
voru settar niður plöntur sem
skiptu hundruðum, að sögn
Lillu. Fyrstu árin var oft sett upp
leikrit í tengslum við hátíðar-
höldin. Þau breyttust svo með
tíð og tíma og í nokkur ár fékk
Kvenfélagið hátíðarhöldin í
sínar hendur og einnig For-
eldrafélag Grunnskóla
Hvammstanga, Leikflokkurinn
Hvammstanga, Ungmenna-
félagið Kormákur og upp-
skeruhópur Kormáks.
Lilla hefur enn í dag umsjón
með hátíðarhöldunum og nýtur
styrks frá sveitarfélaginu til að
standa straum af kostnaði við
Félagsheimilið, en aðgangur að
hátíðinni er ókeypis svo ekki er
lengur um neinn ágóða að
ræða.
„Þegar komið er í félags-
heimilið fer mannskapurinn
upp á svið og Vetur konungur
Sumardagurinn fyrsti var haldinn hátíðlegur á Hvammstanga sl. fimmtudag með
hefðbundnum hætti. Vel viðraði til skrúðgöngu en það eru Sumardísin og Vetur
konungur sem leiða skrúðgönguna á Hvammstanga, samkvæmt 60 ára gamalli
hefð. Af því tilefni sló blaðamaður Feykis á þráðinn til Ingibjargar Pálsdóttur
(Lillu), sem hefur umsjón með hátíðarhöldunum og er ein þriggja kvenna sem
saumuðu búninga sem notaðir hafa verið við þau frá upphafi.
UMFJÖLLUN
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Frá hátíðarhöldunum á Hvammstanga.
MYNDIR: NORÐANÁTT.IS
Feykir.is
Smá í Feyki :: Síminn er 455 7171
smáAUGLÝSINGAR
Kvígur til sölu
Burðartími ágúst – nóvember.
Upplýsingar í síma 661 8818.
Þann 25. apríl var stór stund
hjá hinu nýstofnaða hesta-
mannafélagi Skagfirðingi.
Formaður þess, Guðmundur
Sveinsson, og sveitarstjóri
Skagafjarðar, Ásta Pálmadóttir,
undirrituðu samning um upp-
byggingu og viðhald reiðvega í
sveitarfélaginu. Samningurinn
er til fimm ára og leggur
sveitarfélagið til 3.500.000 kr. á
ári alls 17.500.000 kr.
Skagfirðingur þakkar sveit-
arfélaginu rausnarlegan stuðn-
ing. /Fréttatilkynning
Samningur til fimm ára
Uppbygging og viðhald reiðvega
Landssambandsfundur
Soroptimistasambands
Íslands fór fram í Menningar-
húsinu Miðgarði um sl. helgi.
Konur hvaðanæva af landinu
fylltu húsið en fundurinn var
með eindæmum fjölmennur,
þangað komu um 220 konur.
Helgin hófst með móttöku í
Kakalaskála í Kringlumýri á
föstudagskvöld. Þar tóku til
máls Agnar Gunnarsson odd-
viti Akrahrepps, Sigríður
Svavarsdóttir forseti sveitar-
stjórnar Svf. Skagafjarðar og
fleiri. Systurnar Ragnhildur
Sigurlaug (9 ára) og Sigurbjörg
Svandís (6 ára) Guttormsdætur
frá Grænumýri í Blönduhlíð
heill-uðu konurnar uppúr
skónum með söng sínum.
Landssambandsfundurinn
var settur að morgni laugar-
dags og stóð til kl. 16. Á milli
hefðbundinna fundarstarfa
tók Kvennaskórinn Sóldís
nokkur lög og dr. Hólmfríður
Sveinsdóttir framkvæmda-
stjóri Iceprotein hf. sagði frá
starfseminni sem vakti mikla
hrifningu.
Um kvöldið var hátíðar-
kvöldverður þar sem Gunnar
Rögnvaldsson, Sigvaldi og
Sóla skemmtu og stýrðu
fjöldasöng yfir borðhaldi. Um
kvöldið hélt Geirmundur
Valtýsson uppi stuðinu fram
eftir kvöldi. Konurnar lýstu
mikilli ánægju með glæsilegar
mót-tökur og héldu glaðar
heim á leið í blíðskaparveðri á
sunnudag.
Soroptimistar eru alþjóða-
samtök fyrir vinnandi konur í
öllum störfum. Markmið
Soroptimista er stuðla að
heimsmynd þar sem konur og
stúlkur ná í sameiningu fram
því besta sem völ er á, bæði
sem einstaklingar og sem
hópur, og þar sem þær geta
látið drauma sína rætast og til
jafns við aðra skapað sterk og
friðsöm samfélög um allan
heim. /BÞ
220 konur funduðu
í Miðgarði
Fjölmennur Landssambandsfundur Soroptimista
Fanney Ísfold Karlsdóttir, sjúkraþjálfari á HSN Sauðárkróki, stýrði hreyfingu
gesta á milli dagskrárliða á fundinum. MYND: BÞ