Feykir - 22.12.2010, Blaðsíða 14
14 Feykir 48/2010
Í heildina
litið gott ár
Við byrjum á að rýna í veðurfar
fyrir árið 2011, því veðrið spilar
svo stórt hlutverk í lífi okkar
hér á norðurslóðum.
Upp úr áramótum verður
rysjótt veður en án stórvirða.
Síðari hluti Þorra verður
hvassviðra- og umhleypinga-
samur. Góa grimm á köflum.
Einmánuður úrkomu og um-
hleypingasamur. Með Hörpu
og hækkandi sól fremur þurrt,
en kalt. Skerpla boðar hlýindi
og hagstætt sauðburð-arveður,
gróður í góðu meðallagi.
Sumarið misjafnt að gæð-
um. Síðari hluti júní kaldur en
þurr. Júlí sólríkur. Ágúst vot-
viðrasamur, en hauststillur
seint í september og fram í
október. Síðan votviðri og
kalsamt og því miður virðist
veturinn ganga fyrr í garð en
undanfarin ár.
VÖLVUSPÁ – SPÁKONUARFS Á SKAGASTRÖND 2011
Veðurfar
Það verður áfram einhver óróleiki og jörð skelfur á
nokkrum stöðum en þó aðallega á suðvesturhorni
landsins einkum fyrri hluta árs og fram á vorið.
Ekki mun þó vera um stóra skjálfta að ræða og
litlar líkur á eldgosi. Katla heldur allavega alveg ró
sinni þetta árið.
Náttúruhamfarir
Feykir fékk spákonurnar sem tengjast Spákonuarfi á Skagaströnd
til þess að rýna í spil, rúnir og hvað það er sem notað er til
spádóma en útkoman var völvuspá ársins 2011 en árið mun
samkvæmt spám verða í heildina litið betra en búist hafði verið
við. Þó sjá spákonurnar stjórnarslit, smáskjálfta og slæmt gengi í
handbolta og Eurovision. Nýr borgarstjóri, heimakær forseti, fyrsta
mál hins sérstaka fer fyrir dóm og svona mætti áfram telja.
En við skulum gefa spákonunum orðið.
Það verður velgengi í ferðaþjónustunni og aukning
gesta sem sækja landið heim enda Ísland ákjós-
anlegur áfangastaður fyrir erlenda ferðamenn.
Landinn verður þokkalega duglegur að ferðast
innanlands. Það á líka við á okkar land-svæði
allavega yfir hásumarið en dregur úr undir haust.
Þó verður enn mjög fjölsótt í norðlenskar réttir.
Hrossapestin er í rénun, en þó mun hún valda
vandkvæðum áfram hjá hestamönnum og hestum
þeirra ef ekki er varlega farið. Enn þarf að gæta að
smitleiðum, ef Landsmót hestamanna á að verða
veglegt.
Ferðasumar
MYND / HELGI ALFREÐSSON
Ekki getum við lofað góðu gengi í Eurovision, kannski stefnir í
16. sætið, en eins og allir vita skiptir mestu máli að vera með.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta verður í eldlínunni á HM nú
í byrjun árs í Svíþjóð og verða gerðar miklar væntingar til liðsins.
En eins og svo oft áður eru það of miklar væntingar, enda er
krafan nú orðin um gullið eftir silfur og brons á síðustu
stórmótum. En ekki sýnist okkur gullið vera í hendi og frekar lágt
risið á okkar mönnum. Minnum samt þjóðina á að við verðum
að standa við bakið á strákunum okkar í blíðu og stríðu.
Eurovision / Handbolti
Það lítur út fyrir að áfram muni hrikta í stoðum kirkjunnar ekki
síst eftir að sannleiksnefnd hennar hefur farið ofan í saumana á
„biskupsmálinu“ svokallaða. Biskup Íslands á örðuga daga og
mun þurfa að taka erfiðar ákvarðanir og líklega draga sig í hlé
innan tíðar. Áður en langt um líður, mun kona setjast í
biskupsstól. Önnur trúfélög verða líka mikið í brennidepli
sérstaklega um mitt sumar og sjáum við Krossinn sterkt í því
samhengi, þar verður uppgjör og ekki sjáanlegt að Gunnar snúi
afur til starfa.
Kirkjan og trúmál
Atvinnuleysi verður á svipuðum nótum
áfram og eykst frekar í byrjun árs, en fer
þó heldur minnkandi er líður á haustið.
Þrátt fyrir að flestir kjarasamningar séu
lausir nú um áramót er ekki sýnilegt að
samningar verði hinum almenna launa-
manni að miklu gagni og togstreita og
erfiðleikar verða kringum kjaramálin.
Greinileg merki eru um að undirbúnings-
vinna fyrir álver hefjist í sumar, trúlega á
Bakka við Húsavík.
Aflabrögð til sjávar verða þokkaleg fram undir vor, en sumarið
mun valda vonbrigðum. Haustið verður aftur á móti aflasælt.
Atvinnumál
Menningin mun blómstra sem aldrei fyrr á þessu ári, greinilegt að það er mikil gerjun í gangi um allt
land hjá fólki á öllum aldri. Lítil sprotafyrirtæki í þessum geira munu að skila ótrúlega miklu fyrir land
og þjóð. Við sjáum hönnuði, kvikmyndagerðarmenn og tónlistarfólk fá viðurkenningar á erlendurm
vetvangi og hefja útrás sem aldrei fyrr. Tónlistarhúsið Harpan verðu tekin í notkun með stæl og virðist
sem sumir muni geta gleymt, alla vega um sinn, hvað dýrðin hafi kostað þjóðina og tekið þátt í
gleðinni. Samt mun einhvern skugga bera á, þar sem ekki verða allir sáttir innan menningar-„elítunnar“
með þá starfsemi sem fær þar inni.
Menningin
Stjórnlagaþing mun leggja fram drög að nýrri stjórnarskrá, en það
tekur tímann sinn, því ekki verður sú eining innan þingsins sem menn
vonuðust til og töluðu fyrir. En það er ekki nóg, því ekki verður annað
séð en að þessi nýju drög muni svo sitja föst í meðferð Alþingis og
komast ekki í gagnið á næstunni. Hvorki gengur né rekur í Evrópu-
sambands-aðildarviðræðum og virðist málið heldur ekki brenna á
þjóðinni og með vorinu kemur eitthvað uppá sem veldur stífni milli
samningsaðila og allar viðræður fara á frost.
Þrátt fyrir að nýr samingur um Iceave hafi litið dagsins ljós er þetta
Iceave mál langt frá því að vera í höfn og verður karpað um málið enn
á ný í þinginu og ekki loku fyrir það skotið að þjóðin fái að kjósa enn
og aftur þar sem okkur sýnist að forsetinn ætli að halda í fyrri hefðir
varðandi þetta mál.
Stjórnlagaþing /
Evrópusamband / Icesave
MYND frá ÓSKARI PÁLI