Feykir - 22.12.2010, Síða 24
Segja má að um áramót líði karlmanninum vel þar
sem hann fær útrás fyrir sinni fábreytilegu þörf;
éta, sofa, fikta og láta fjölskylduna stjana við sig.
Feykir sendi nokkrum Norðlendingum póst og
forvitnaðist um þeirra áramót.
Áramótin mín
Hvernig eru hefðbundin
áramót hjá þér? -Nú þau
eru líkt og hjá flestum
í faðmi fjölskyldu og
ættingja, nú í ár verður
engin breyting á nema
tengdafjölskyldan bætist
í hópinn, þannig það
verður þétt setið hjá
okkur hjónum.
Strengir þú
áramótaheit? -Hef nú
ekki verið að eyða púðri
í það, hét mér fyrir
tveimur árum að ná
sáttum við vigtina en
þær samningaviðræður
runnu út í sandinn.
Kaupir þú flugelda? -Hef gert það
undanfarin ár, þó aðallega terturnar, en var svo
rækilega skotinn niður af nágrönnunum í fyrra að
ég held ég láti þeim þetta að mestu eftir í ár.
Einhver góð áramótasaga? -Þær eru nú nokkrar
til frá því í æsku en tel ekki rétt að þær líti dagsins
ljós á prenti, oft má saltkjöt liggja eins og sagt er.
Hvað sérðu fyrir þér í áramótamatinn?
-Matseðillinn hefur nú
ekki verið endanlega
ákveðinn, þó stefnir í
hamborgarahrygg og
kalkún.
Hvað var það
skemmtilegasta sem
gerðist á árinu?
-Tvímælalaust er við
konan mín giftum okkur
í lok ágúst.
Hvernig heldur þú að
nýtt ár verði? -Þjóð-
félagslega séð held ég að
árið verði ekki átakalaust
en persónulega hlakka ég
mjög til ársins, við eigum
von á barni í byrjun apríl
svo það er ekki annað hægt
en brosa framan í komandi ár.
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri í lok
árs? -Er ekki rétt að vera með smá háð og þakka
útrásarvíkingum fyrir sinn þátt í að endurvekja
gömlu gildin hjá þjóðinni, finnst fólk hafa vaknað
af værum blundi og áttað sig á hvað gerði okkur
að hamingjusamri þjóð.
Hrannar Haraldsson framkvæmdastjóri og hestasveinn á Hvammstanga...
...var rækilega skotinn niður
af nágrönnunum í fyrra
Hvernig eru hefðbundin áramót hjá þér? -Vikan
fyrir áramótin snýst mikið um flugeldasöluna og
einnig uppsetningu á
flugeldasýningu sem
við í Björgunarfélaginu
Blöndu erum með
ásamt áramóta-
brennu að kvöldi
g a m l á r s d a g s .
Gamlársdagur hjá
mér fer aðallega í
lokasamsetningu
flugeldasýningar.
Við byrjum svo um
átta leytið að koma
sýningu á staðinn
og ljúka við að
tengja rafmagn
á hvellhettur og
síðan er brenna
og sýning kl: 20.30
um kvöldið, þegar
sýningu er lokið þarf að þrífa allt dótið og sinna
öðrum frágangi og reynt að komast heim fyrir
áramótaskaup, (missi nú alltaf af byrjuninni).
Að þessu loknu er reynt að slappa af hjá
vinum og fjölskyldu eitthvað fram yfir miðnætti.
Nýársdagur fer yfirleitt í langþráða hvíld.
Strengir þú áramótaheit? -Nei ekki lengur, gat
aldrei staðið við þau.
Kaupir þú flugelda? -Já alltaf eitthvað. Að
sjálfsögðu kaupi ég af minni björgunarsveit,
ég hef mest gaman
af kraftmiklum og
skrautlegum tertum,
ætli ég fari ekki með
svona tuttugu til þrjátíu
þúsund í flugeldakaup.
Einhver góð áramóta-
saga? -Man ekki eftir
neinni í augnablikinu
Hvað sérðu fyrir þér í
áramótamatinn? -Et allt
sem að kjafti kemur,
alltaf gott að gúffa í sig
feitu lambi. Heh..
Hvað var það skemmti-
legasta sem gerðist á
árinu? -Allir hlutir eru
misjafnlega skemmtilegir
en það skemmtilegasta
var að fá heilbrigt og
skemmtilegt barnabarn í
heiminn.
Hvernig heldur þú að nýtt ár verði? -Yndislegt.
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri í lok árs?
- Ég óska lesendum Feykis og landsmönnum
öllum gleðilegs árs og friðar, og farið varlega
með flugeldana um áramótin, sem þið kaupið
vonandi af björgunarsveitunum.
Jón Jóhannsson björgunarsveitarmaður á Blönduósi...
...fer með tuttugu til þrjátíu
þúsund í flugeldakaup
Hvernig eru hefðbundin áramót hjá þér?
-Hefðbundinn gamlársdagur byrjar á að
klára að tengja flug-
eldasýninguna fyrir
kvöldið. Skotist í mat
kl. 18:00, mætt aftur
eftir að hafa rennt niður
steikinni, til að allt
sé á réttum tíma fyrir
sýningu. Eftir sýningu
er glápt á skaupið og
svo er brunað út til að
gera klárt fyrir sýningu á
miðnætti.
Strengir þú áramóta-
heit? -Já, fyrir mörgum
árum strengdi ég þess
heit að strengja ekki
áramótaheit og hef staðið
við það!
Kaupir þú flugelda? -Já,
ég kaupi flugelda ásamt
fleirum af björgunarsveitinni og því er skotið
upp í sameiningu á miðnætti. Þar sem við
erum með sýningarleyfi þá eru tívolíbombur í
uppáhaldi.
Einhver góð áramótasaga? -Fyrstu áramótin
hjá tengdó þegar ég fékk mér rjóma úr
rjómasprautu (þessar
með gashylkinu) í
súkkulaðibollann og
vísaði sprautunni eitt-
hvað á ská og skaut
öllu úr bollanum
framan á mig og yfir
borðið.
Hvað sérðu fyrir þér
í áramótamatinn?
-Léttreyktur lamba-
hryggur og ís með
skaupinu. Eftir
miðnætti er ekta
heitt súkkulaði
og meðlæti hjá
tengdó.
Hvað var það
skemmtilegasta
sem gerðist á
árinu? -Fór í ferðalag á hálendið, fyrir utan
árlegt SofÉt!
Hvernig heldur þú að nýtt ár verði? -Harla
gott.
Haraldur Ingólfsson áramótasprengjusérfræðingur á Sauðárkróki...
...skaut öllu úr
bollanum framan á sig
Hvernig eru hefðbundin áramót hjá þér? -Hjá
mér er borðaður góður matur með fjölskyldunni
og örlítið skotið upp af flugeldum fyrir börnin.
Strengir þú áramótaheit? -Stundum, ekkert
venjubundið hjá mér.
Kaupir þú flugelda? -Já, kaupi nokkra flugelda
af björgunarsveitinni.
Einhver góð áramótasaga? Sem betur fer
hafa ekki verið neinar hrakfarir hjá okkur
nema þá kannski þegar Rökkvi frændi minn
sendi Laugu á Ábæ og fjölskyldu flugeldana
yfir götuna. Gleðin er alltaf mikil þó ég muni nú
fáar sögur. Mér detta þá helst í hug áramótin
sem við bjuggum í Tyrklandi en komum heim í
frí. Ég ákvað að safna skeggi í fyrsta skipti eins
og sannur Tyrki og til að sjokkera fjölskylduna
enn frekar þá litaði ég
það kolsvart. Það vakti mikla lukku en vegna
fjölda áskorana ætlaði ég að raka það af áður
en farið var á „barinn“ um áramótin. Þegar ég
var búin að raka yfirvaraskeggið öðru megin þá
ákvað ég að skilja restina af því eftir og rakaði
helminginn af hökunni líka og annan vangann.
Þetta vakti lukku á mínu heimili og áskoranir
héldu áfram og nú var ég beðinn um að fara
svona útlítandi út á lífið. Ég lét til leiðast en
þar sem ég er ekki þekktur fyrir að láta eins
og fífl (Það er Sverrir bróðir sem sér um það)
þá létu allir sem þeir sæju ekkert athugavert
við mig og það minntist ekki kjaftur á skeggið
á mér... kannski allir hafi haldið að þetta væri
tyrknesk tíska.
Hvað sérðu fyrir þér í áramótamatinn? -Við
fjölskyldan erum yfirleitt með kalkún
um áramótin. Mismunandi eftirréttir en
Créme brulée er eftirlæti.
Hvað var það skemmtilegasta sem
gerðist á árinu? -Eignaðist lítinn engil
sem heitir Kári Rafnar.
Hvernig heldur þú að nýtt ár verði?
-Það verður væntanlega mjög
áhugavert ár fyrir margar sakir, mikið
að gerast í þjóðfélaginu og vonandi á
jákvæðum nótum fyrir Íslendinga.
Eitthvað sem þú vilt koma á
framfæri í lok árs? -Ég óska öllum
sveitungum mínum gleðilegra jóla og
farsæls nýárs.
Frá vinstri: Eiríkur, Eyjólfur og Sverrir.
Eyjólfur Sverrisson Króksari og landsliðsþjálfari U21...
...eignaðist lítinn engil sem
heitir Kári Rafnar
24 Feykir 48/2010