Feykir


Feykir - 14.04.2011, Page 4

Feykir - 14.04.2011, Page 4
4 Feykir 15/2011 Skagfirskt hveiti slær í gegn Líflegt á höfninni á þriðjudag Skagfirska hveitið, sem selt er til fjáröflunar fyrir ferð unglinga úr frjálsíþróttadeild Tindastóls á Gautaborgarleikana í sumar, fæst nú í hentugum sérsaumuðum geymslupokum. Sauðárkróksbakarí er farið að baka úr því líka. Þeir sem vilja prófa að baka úr hveitinu frá Stóru-Ökrum og styrkja um leið þetta bráðefnilega unga íþróttafólk úr Skagafirði geta nálgast poka hjá Herdísi í Kompunni á afgreiðslutíma verslunarinnar, virka daga milli kl. 13 – 18. Pokinn kostar 1900 kr. og inniheldur 2 kg af hveiti, en síðan er hægt að kaupa áfyllingar á pokann. Allur ágóði rennur í ferðasjóð frjálsíþróttakrakkanna. Hveitið slær í gegn því nú býður Sauðárkróksbakarí upp á úrvals brauð bakað upp úr þessu skagfirska hveiti og eru allir hvattir til að prófa tandurhreina skagfirska framleiðslu. –Þetta verður ekki meira spennandi, að fá hveitið beint af akrinum, segir Róbert bakari en tilraunir hafa staðið yfir að undanförnu með baksturinn og hefur tekist vel til. Skagfirska hveitið, sem selt er til fjáröflunar fyrir ferð unglinga úr frjálsíþróttadeild Tindastóls á Gautaborgarleikana í sumar, fæst nú í hentugum sérsaumuðum geymslupokum. Sauðárkróksbakarí er farið að baka úr því líka. Það var mikið um að vera við Sauðárkrókshöfnina á þriðjudagsmorgun en þá lágu þar þrír togarar, rækjuveiðiskip og flutningaskip og var unnið hröðum höndum við að landa og þjónusta þau á sem bestan hátt. Flutningaskipið Laxfoss kom í gær með um 2000 tonn af svokölluðum Skeljungsáburði sem Eymundur bóndi og athafnamaður frá Bændaþjónustunni í Saurbæ höndlar með. Örvar HU-2 landar nú þorski sem fer í vinnslu hjá Fisk Seafood og Málmeyjan kom með um 15 þúsund kassa af frystum fiskafurðum, mest ufsa eða um 5800 kassa, 4100 kassa af karfa, 2700 kassa af þorski, 1600 af ýsu og smotterí af öðru. Í morgun kom Klakkur að landi með sinn mesta rækjufarm á árinu eða um 35 tonn og Grímsnesið úr Grindavík kom með 107 kör eða um 20 tonn af rækju. Rækjuna sækja bátarnir norður af landinu og fer hún í vinnslu hjá rækjuvinnslunni Dögun á Sauðárkróki. Líflegt við höfnina. Fremst er Grímsnesið þá Örvar, Málmey, Klakkur og loks Laxfoss. Við Syðri-bryggju liggur Röstin en hún hefur ekki verið notuð til rækjuveiða síðan árið 2007. Ný jarða- og ábuðarlög Skagafjörður Skagafjörður Til eflinga sveita Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur lagt fram til almennra athugasemda drög að frumvarpi til nýrra jarða- og ábúðarlaga þar sem horft er til fæðuöryggis, skynsam- legrar landnýtingar, eflingar búsetu í sveitum og mögu- leika til nýliðunar í land- búnaði. Umrætt frumvarp sem er breyting á jarðalögum nr. 81/2004 og ábúðarlögum nr. 80/2004 hefur nú verið birt á vef sjávarútvegs- og land- búnaðarráðuneytis. Það hefur jafnframt verið sent hags- munaaðilum til umsagnar. Frestur til athugasemda og umsagna við frumvarpið er til 27. apríl. Forsaga frumvarps þessa er að vinnuhópur um endurskoðun jarða- og ábúðarlaga var upphaflega skipaður með bréfi sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, dags. 21. ágúst 2009. Í erindisbréfi sem tekur meðal annars mið af samstarfsyfirlýs- ingu ríkisstjórnarflokkanna og skýrslu nefndar um land- notkun sem skilaði af sér áliti í febrúar 2010 er vísað til þess að þörf sé á að skerpa á skynsamlegri landnýtingu með tilliti til fæðuöryggis þjóðarinnar og eflingu búsetu í sveitum landsins. Óskað er umsagnar á frumvarpi þessu, svo sem ábendingar eða athugasemdir um efni frumvarpsins. Frestur til að skila umsögnum er til 27. apríl 2011. Athugasemdir skulu sendar bréflega á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið eða netfang ráðuneytisins: postur@slr.is Vísnakeppni Safna- húss Skagfirðinga Safnahús Skagfirðinga stendur fyrir vísnakeppni nú í aðdraganda Sæluviku Skagfirðinga. Fyrsta vísnakeppni Safnahússins var haldin árið 1975 að frumkvæði Magnúsar Bjarnasonar kennara og minningarsjóðs hans. Keppnin verður með sama sniði og undanfar- in ár og er tvíþætt. Annars vegar eru hag- yrðingar beðnir að botna fyrriparta en hins vegar yrkja vísu um ákveðið viðfangsefni. Nú á síðustu og verstu tímum eru kærkomin hverskonar heilræði og ráðleggingar. Því skal viðfangsefnið að þessu sinni vera Heilræði. Síðan skal kljást við eftirtalda fyrriparta: Ef ég mínu kvæði í kross kannski bráðum vendi. Hugsun öll er horfin brott, hausinn virkar lítið. Síðan koma tveir fyrripartar með innrími þar sem viðfangsefnið eru úrslit nýafstaðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu. Og til að gefa báðum fylkingum jafna möguleika þurfa þeir að vera tveir: Ef að þjóðin ekki lætur ólög bjóða sér að þola Hefðum betur hörðum kostum játað, höfnun setur oss í mikinn vanda. Verðlaun eru í boði Sparisjóðs Sauðárkróks: 20.000 fyrir besta botninn og 20.000 fyrir bestu vísuna. Vísur og botnar verða að hafa borist Safnahúsi Skagfirðinga, Faxatorgi, 550 Sauðárkróki fyrir föstudaginn 29. apríl n.k. Nauðsynlegt er að vísurnar séu merktar dulnefni en rétt nafn og símanúmer fylgi með í lokuðu umslagi. Einnig er hægt að senda vísur og botna í tölvupósti á netfangið: skjalasafn@skagafjordur.is og verður þá viðkomandi höfundi gefið dulnefni áður en vísunar fara til dómnefndar. Menning

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.