Feykir - 14.04.2011, Page 5
15/2011 Feykir 5
Íþróttafréttir Feykis ( MITT LIÐ )
Nafn: Jóhann Helgason.
Heimili: Kaplaskjólsvegur 93, 107
Reykjavík.
Starf: Rafvirki.
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í
enska boltanum og af hverju? Það
mun vera Arsenal sem ég byrjaði
að halda með þegar ég var 7 ára
þegar þeir unnu Evrópukeppni
bikarhafa.
Hefur þú einhvern tímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar á
umræddu liði? Já það hefur komið
fyrir að menn séu eitthvað að rífa
sig, aðallega United-menn og svo
Liverpool-menn, en það heyrist nú
eitthvað minna í þeim núna, maður
er mest í því að hughreysta þá um
þessar mundir.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar? Það er Thierry Henry
sem stendur upp úr í því vali þó svo
að Nigel Winterburn sé stutt á eftir
honum. Henry var ótrúlega góður
þegar hann spilaði með Arsenal og
erfitt að hrífast ekki af honum.
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu? Ég skammast mín fyrir að
þurfa að svara þessu neitandi,
en eini leikurinn sem ég hef farið
á í ensku var á Anfield árið 2008
í fimmtugs afmælisferð Munda
tengdapabba. Ég hlýt nú að fá plús
í kladdann fyrir það.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu? Já ég á náttúrulega búning
og svo trefil, húfu, glös, könnu og
sitthvað fleira.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi
við liðið? Mér tókst nú að bjarga
Óskari bróður af villigötum en hann
byrjaði að halda með Liverpool,
einhver vitleysa sem hann hafði
eftir pabba. En hins vegar þurfti
Sigrún systir enga hjálp og er
hörð stuðningskona Arsenal á
meðan mamma er frekar hlutlaus í
þessum málum. Hins vegar er Örnu
ekki viðbjargandi frekar en pabba
og tengdapabba og hreinlega allri
fjölskyldunni í Ártúni 5,
það þýðir ekkert að
reyna tala þau til.
Hefur þú einhvern
tímann skipt um
uppáhalds félag?
Nei það mun aldrei
koma til greina.
Uppáhalds máls-
háttur? Góð
sending á lélegan
leikmann er léleg sending.
Einhver góð saga úr boltanum?
Já þær eru nokkrar, en ég man
þó sérstaklega eftir því þegar við
vorum að spila leik á Akureyri á
einu undirbúningstímabilinu. Við
vorum í hörkusókn sem endaði
með því að mér tókst að koma
boltanum í netið, en þegar ég
sný mér við sé ég allt í einu
Alla (Arnarson), oft kallaður Alli
sæti, koma á móti mér svoleiðis
trítilóðan af fögnuði og stökk hann
á mig með þeim afleiðingum að
hnéð á honum rakst á kaf í lærið
á mér þannig að ég var frá vegna
meiðsla í 2-3 vikur og missti af
næsta leik. Ég hef ekki skorað neitt
sérstaklega mikið eftir þetta atvik
og hvet ég leikmenn Tindastóls,
og í raun alla knattspyrnumenn
yfir höfuð, að horfa eftir því hvar
Aðalsteinn er staðsettur áður en
þeir setja knöttinn í netið, annars
gæti farið illa.
Hver er langbesti knattspyrnu-
maður Staðarhrepps allra
tíma? Þeir voru víst svo margir í
landsliðsklassa í Melsgilinu í gamla
daga að það er vonlaust að gera
upp á milli þeirra.
Einhver góður hrekkur sem þú
hefur framkvæmt eða orðið fyrir?
Enginn sem ég man eftir enda er
ég mikið prúðmenni.
Spurning frá Stefáni Árnasyni.
-Eru þið með spádómsbelju
þarna á Reynistað? Og ef svo er
hverjum spáir hún titlinum?
Svar... Já þær hafa nú verið nokkrar
í gegnum tíðina og gríðarlega
spádómsvísar en því miður spáði
hún Branda Man. United titlinum í
ár. Það er því bara að bíða og vona
að Arsenal rétti úr kútnum og taki
þetta, annars verða hamborgarar í
matinn á næstunni.
Hvern viltu sjá svara þessum
spurningum? Ég held að það sé
best að leyfa Aðalsteini Arnarsyni
að spreyta sig á þessu.
Hvaða spurningu
viltu lauma að við-
komandi? Hversu
oft hefur fjölskyldan
í Lerkihlíð 1 samtals
fengið rauða spjaldið
á knattspyrnu-
vellinum?
Góð sending á
lélegan leikmann er
léleg sending
Karfa
Dagskrá körfuboltabúða
Tindastóls að verða klár
Á heimasíðu
körfuknattleiksdeildar
Tindastóls kemur fram að nú
fari að líða að því að dagskrá
körfuboltabúða félagsins
verði birt. Þá segir að um
leið og það gerist og
upplýsingar um kostnað
verði komnar á hreint verið
farið að taka á móti
formlegum skráningum.
Körfubolti
Tveggja stiga
tap fyrir KR
Þeir iðkendur sem þegar hafa
skráð sig þurfa ekki að skrá sig
aftur. Á heimasíðunni segir;
„Aðeins er eftir að hnýta örfáa
lausa enda varðandi
körfuboltabúðirnar í sumar.
Dagskráin er í fullri vinnslu og
lítur hún dagsins ljós innan
nokkurra daga. Innsetning
upplýsinga um búðirnar er í
fullum gangi og send verður út
tilkynning um leið og byrjað
verður að taka á móti
skráningum.
Þeir heimakrakkar sem þegar
hafa forskráð sig, þurfa ekki að
skrá sig aftur.
Mikið af fyrirspurnum hefur
borist frá aðkomufélögum og
einstaklingum og ljóst að ásókn
verður í körfuboltabúðirnar.“
Knattspyrna : Tindastóll/Hvöt
Styrkti stöðu sína á toppnum
Sl. föstudag lék Tindastóll/
Hvöt við Magna í Lengju-
bikarnum. Leikurinn fór fram
í Boganum á Akureyri. Eftir
að Tindastóll/Hvöt hafði lent
undir í leiknum þá spýttu
drengirnir í lófana og sigruðu
með tveimur mörkum gegn
einu. Þetta var býsna
mikilvægur leikur þar sem
síðasti leikur tapaðist á móti
Hamri. Ef liðið ætlaði sér
sigur í riðlinum varð þessi
leikur að vinnast.
Nokkrir mikilvægir leikmenn
voru fjarri góðu gamni en
hópurinn er stór og ekkert
vandamál var að stilla upp
liði. Það voru líka ungir
leikmenn sem skoruðu bæði
mörk okkar en Hilmar
Kárason sem hefur verið
iðinn við kolann í
undanförnum leikjum
skoraði fyrra markið og
Gunnar Stefán Pétursson
skoraði svo sigurmarkið.
Byrjunarlið okkar var þannig
skipað: Gísli Eyland, Arnar
Skúli, Bjarki, Böddi,
Hallgrímur, Árni Einar,
Donni, Atli, Ingvi Hrannar,
Arnar Sig og Hilmar Kára.
Lið Tindastóls Hvatar var
betra liðið í þessum leik og
sigurinn verðskuldaður.
Nú er einn leikur eftir í þessu
móti og er hann á móti sterku
liði KV. Sá leikur verður á KR
velli nk. sunnudag kl. 16:00.
Drengjaflokkur Tindastóls í
körfubolta lauk keppni sinni
á Íslandsmótinu í síðustu
viku þegar strákarnir töpuðu
fyrir KR-ingum með tveggja
stiga mun 82-80 í
úrslitakeppninni.
KR-ingar unnu B-riðilinn en
okkar strákar urðu í 4. sæti
A-riðils. Að sögn Borce þjálfara
var liðið að spila vel, en þó hafi
vörnin verið hálf gloppótt á
köflum.
Strákarnir fengu tækifæri til að
sigra leikinn þegar Pálmi Geir
átti þriggja stiga skot þegar fáar
sekúndur voru eftir en skotið
geigaði. Ingvi náði frákastinu en
hans skot geigaði einnig.
Pálmi, Guðmundur, Einar, Ingvi
og Tobbi voru allir að spila vel.
Innkoma Gumma styrkir liðið
mikið en hann hefur verið frá
vegna meiðsla í hnjám.