Feykir - 21.04.2011, Blaðsíða 2
2 Feykir 16/2011
Feykir.is
Hafðu samband - Síminn er 455 7176
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir – gudny@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 861 9842
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur: Karl Jónsson
Áskriftarverð: 317 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 350 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Feykir
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Hinir landsþekktu
hagyrðingar þeir Árni Jóns,
Páll Þórðar, Einar Kolbeins
og síðast en ekki síst
nýliðinn Þórður Pálsson,
takast á með kviðlingum
og kvikindisskap í Ósbæ,
Þverbraut 1 Blönduósi,
miðvikudagskvöldið. 20.
apríl nk. kl. 20:30 undir
styrkri stjórn Gísla
Geirssonar.
Hermann og Elín sjá um
harmonikkuspil og
dansmennt að kveðskap
loknum. Miðaverð kr. 2.000.
Stjórn H.U.H.
Austur Húnavatnss.
Hagyrðinga-
kvöld síðasta
vetrardag
Nú eru páskarnir
framundan með tilheyrandi
frídögum.
Fréttablaðið Feykir kemur
því ekki út í næstu viku en að
sjálfsögðu verður hægt að
fylgjast með fréttum af
Norðurlandi vestra á netinu,
nefnilega á Feykir.is
Feykir kemur næst út
fimmtudaginn 5. maí.
Páskafrí
Feykir í fríi
FNV
Jón tilkynnir
starfslok
Jón F. Hjartarson skóla-
meistari Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra frá
stofnun skólans tilkynnti á
dögunum starfsfólki sínu að
hann hygðist hætta störfum
á komandi hausti.
Jón hefur alla tíð unnið
mikið og gott brautryðjanda-
starf í uppbyggingu skólans og
skilar til þeirra er við taka
metnaðarfullri menntastofnun
sem sinnir hlutverki sínu með
miklum sóma.
Þá má geta þess í tilefni
tímamóta Feykis að Jón var
einn af stofnendum þess ágæta
blaðs á sínum tíma.
Kaupfélag Skagfirðinga
2,4 milljarða
hagnaður hjá KS
Aðalfundur Kaupfélags
Skagfirðinga var haldinn s.l.
laugardag á Sauðárkróki.
Hagnaður var af rekstri
samstæðunnar á síðasta ári
sem nam rúmum 2,4
milljörðum króna en velta
samstæðunnar fór úr 21,8
milljarði í 25,7 milljarða.
Veltufé frá rekstri nam
tæpum 3,5 milljörðum sem er
um 400 milljónum meira en
árið á undan. Fram kom á
fundinum að áhersla hafi verið
lögð á það síðasta árið að lækka
skuldir samstæðunnar og
lækkuðu þær um 5 milljarða á
árinu. Meðalfjöldi starfsmanna
samstæðunnar var 727 starfs-
menn á síðasta ári.
Fram kom á fundinum að
sú óvissa sem uppi er um fram-
tíðarfyrirkomulag sjávarútvegs
á Íslandi virkar verulega
neikvætt á starfsemi félagsins
og hamlar allri þróun hjá þeim
hluta samstæðunnar. Mjólkur-
framleiðsla og úrvinnsla hélt
áfram að styrkjast á síðasta ári í
héraðinu og útflutningur á
dilkakjöti hefur aldrei verið
eins áhugaverður og um þessar
mundir. Því má ætla að sé rétt á
spilum haldið muni Skaga-
fjörður geta styrkt sig enn
frekar sem öflugt framleiðslu-
hérað í matvælaframleiðslu.
LEIÐARI
Varnarbarátta svæðis
Á þeim fjórum og hálfu ári sem ég hef verið ritstjóri Feykis
hef ég leiðinlega oft orðið vör við að Norðurland vestra er
ekki til í markaðsáætlunum banka og stórfyrirtækja á
Íslandi.
Ótrúlega oft hef ég hringt í fyrirtæki þegar ég hef séð að þau
hafa verið að auglýsa í öðrum héraðsfréttablöðum og boðið
þeim auglýsingu. Svörin eru alltaf á sömu leið. „Nei, við
ættum ekki að auglýsa sérstaklega á Norðurlandi vestra.“ Af
hverju svæðið okkar verður alltaf útundan skil ég ekki og
hef oft látið fara meira í taugarnar á mér en heilbrigt getur
talist. Á síðustu tveimur árum hefur síðan þessi tilhneiging
að sleppa Norðurlandi vestra færst yfir í ríkisbatteríið.
Sameina á stofnanir okkar undir Norðurland eystra og helst
fella landssvæðið okkar undir eitt Norðurland þar sem öllu
verður stjórnað frá Akureyri. Samtök sveitarfélaga og
sveitastjórnir hafa eytt ómældri orku í að berjast fyrir
tilverurétti okkar. Orku sem ætti að vera eytt í önnur
verkefni. Nú síðast kom auglýsing frá Vinnumálastofnun
þar sem ekki var minnst á Norðurland vestra sérstaklega og
eftir að hafa hringt á milli staða þar sem enginn skildi neitt
og landafræðikunnátta var greinilega af skornum skammti,
kom í ljós að um mannleg mistök var að ræða. Mistök
gerum við öll en að segja að ekki hafi verið ætlunin að særa
sjálfsmynd íbúa á Norðurlandi vestra eru orð sem eru ekki
sæmandi.
Ég skora á þig íbúi á Norðurlandi vestra núverandi og eða
fyrrverandi að leggja þitt af mörkum og halda nafni svæðis
okkar á lofti. Gerum við það ekki sjálf, ef við berjumst ekki
fyrir landssvæðinu okkar er ljóst að innan fárra ára verður
ekkert Norðurland vestra til þess að berjast fyrir.
Stöndum saman!
Gleðilega páska
Guðný Jóhannesdóttir
ritstjóri
Líkt og undanfarin ár verður
haldið kirkjukvöld í
Sauðárkrókskirkju fyrsta
mánudag í Sæluviku, þar
sem boðið verður upp á
fjölbreytta dagskrá, allt frá
íslenskum söngperlum til
dægurlaga.
Einsöngvari verður hin
frábæra söngkona Helga Rós
Indriðadóttir og ræðumaður
kvöldsins, sjónvarpsmaður-
inn og tengdasonur Skaga-
fjarðar, Gísli Einarsson.
Undirleikari verður Bryndís
Magnúsdóttir, sem hefur
spilað undir hjá kórnum á
þessu kvöldi undanfarin ár en
Rögnvaldur Valbergsson
stjórnar kórnum og aldrei að
vita nema hann grípi í
nikkuna.
Dagskrá hefst kl. 20:30 og
kostar kr. 1500 inn.
Kirkjukvöld
Sauðárkrókskirkju
Stemning í
kirkjunni
Sauðárkrókur
Áforma byggingu
hótels á Króknum
Faxatorg ehf. hefur lagt inn
umsókn hjá bygginga- og
skipulagsnefnd
Sveitarfélagsins
Skagafjarðar um lóð fyrir
60 herbergja heilsárshótel
á Sauðárkróki.
Binda aðstandendur Faxa-
torgs vonir við að geta hafið
jarðvinnu í haust, bygginga-
framkvæmdir vorið 2012 og
hótelið verði opnað sumarið
2013.
Var umsóknin tekin fyrir í
nefndinni í gær og samþykkt að
setja í gang deiliskipulagsvinnu
á svæðinu með hugmyndir
Faxatorgs að leiðarljósi. Svæðið
sem um ræðir er á milli
Sundlaugar Sauðárkróks og
Safnahúss Skagfirðinga, þar
sem nú er tjaldstæði á vegum
sveitarfélagsins.
Menningarráð Norðurlands vestra
Samningur um
32,3 milljónir á ári
Menningarsamningar,
samningar um menningarmál
og menningartengda
ferðaþjónstu, til þriggja ára á
milli ríkisins og sambanda
sveitarfélaga um allt land
voru undirritaðir í síðustu
viku.
Samningarnir fela í sér að
árlega verður 250,7 m.kr. varið
til menningarmála og menn-
ingartengdrar ferðaþjónustu
um allt land. Þar með er
stuðningi ríkisins beint í einn
farveg í því skyni að efla slíkt
starf um landið allt og gera
það sýnilegt.
Mennta- og menningar-
málaráðherra og iðnaðar-
ráðherra undirrituðu samn-
ingana fyrir hönd ríkisins.
Samningarnir, sem eru sjö
talsins, eru gerðir við Samband
sveitafélaga á Norðurlandi
Eystra, Austurlandi, Suður-
landi, Suðurnesjum, Vestur-
landi, Vestfjörðum og
Norðurlandi vestra.
Heildarframlag til Norður-
lands vestra nemur árlega 32,3
m.kr. Fulltrúar í menningarráði
2010-2012; Björg Baldurs-
dóttir, Sveitarfélaginu Skaga-
firði, formaður, Guðný
Kjartansdóttir, Sveitarfélaginu
Skagafirði, Ragnar Smári
Helgason, Húnaþingi vestra ,
Þóra Sverrisdóttir, Húnavatns-
hreppi, A-Hún., Bjarni
Jónsson, fulltrúi SSNV