Feykir - 21.04.2011, Page 3
16/2011 Feykir 3
Vestur Húnavatnssýsla
Sæluostar fyrir páska
Sæluostar úr sveitinni
verða til sölu fyrir páska en
þeir eru framleiddir af
vinkonunum Stellu Jórunni
A. Levy og Sæunni Vigdísi
Sigvaldadóttur í Vestur-
Húnavatnssýslu.
–Þetta er enn að þróast hjá
okkur og erum við ekki orðnar
stórar í ostaheimum ennþá,
enda byrjuðum við í fyrravor í
rólegheitum og af forvitni ef svo
má að orði komast, segir Stella.
Hér er á ferðinni svokallaður
ferskostur og búinn til í 5
bragðtegundum: hreinn ostur;
piparostur; sólþurrkaðir tómat-
ar og óreganó; graslauksostur;
hvítlaukur og basil.
Þeir sem hafa áhuga á að fá
sér heimagerðan eðalost geta
haft samband í síma 823 52 57
eða á netfangið stellajorunn@
gmail.com .
Blönduós
Hestamenn ósáttir
við auknar álögur
Hestaeigendafélagið á
Blönduósi afhenti í gær
bæjarráði ályktun þar sem
félagið harmar að
bæjaryfirvöld á Blönduósi
skuli hafa séð sig knúinn
til að fara að úrskurði
yfirfasteignamatsnefndar
vegna álagningar
fasteignagjalda 2011.
Heppilegra hefði verið að
málið hefði verið kynnt og
hesthúsaeigendur getað
undirbúið sig fyrir þessa
breytingu.
Í ályktun frá félaginu segir
jafnframt að þessi breyting
komi á sama tíma og sorpgjald
hafi hækkað um næstum 50%
og landleiga hækkað um 10%.
Mótmæla hestamenn þessum
stórauknu álögum og skora á
bæjaryfirvöld að hverfa frá
þessum auknu álögum eða
draga úr þeim með
einhverjum hætti og benda á
að ekki hafa öll sveitarfélög
talið sér skylt að innleiða
þessar breytingar strax
Þá voru bæjaryfirvöld hvött
til þess að undirbúa nú þegar
að hrinda í framkvæmd á
sumri komandi það mat á
landi sem lofað var af
bæjarstjórn þann 27.05.2008.
Allir eru sammála um að
óeðlilegt sé að greiða sama
fermetraverð fyrir ræktað
land annars vegar og örfoka
mel eða moldarflag hins
vegar.
Var bæjarstjóra falið að vinna
að undirbúningi mats á
beitarhólfum í sveitarfélaginu.
Afgreiðslu annarra atriða í
ályktun var frestað til næsta
fundar.
Norðurland vestra
Verður eitt lög-
regluumdæmi
Lagt hefur verið fram á
Alþingi nýtt frumvarp um
breytingu á lögreglulögum
þar sem lagt er til að
lögregluumdæmin verði 8 í
stað 15 eins og nú er.
Ráðherra verður þó heimilt
að fela sýslumönnum að fara
með daglega lögreglustjórn í
umboði lögreglustjóra á til-
teknum svæðum af tilliti til
sérstakra aðstæðna í einstök-
um landshlutum, sem gera
það að verkum að heppilegt
kann að þykja að halda í það
fyrirkomulag að dagleg verk-
stjórn lögreglu sé í höndum
viðkomandi sýslumanns.
Með þeirri tillögu sem hér
er lögð til felst að fallið hefur
verið frá því að sameina alla
lögregluna á Íslandi í eina
stofnun, eins og áður var stefnt
að en markmiðið er þó að
lögreglan vinni í auknum mæli
saman sem ein heild.
Landið skiptist í átta lög-
regluumdæmi og verður
Norðurland vestra eitt þeirra
átta.
Umdæmi lögreglustjóra
verða ákveðin með reglugerð
að höfðu samráði við Samband
íslenskra sveitarfélaga og fara
lögreglustjórar með stjórn
lögregluliðs, hver í sínu
umdæmi. Þeir annast daglega
stjórn og rekstur lögreglunnar
í umdæminu og bera ábyrgð á
framkvæmd lögreglustarfa
innan þess. Lögreglustjórar
fara með yfirstjórn leitar- og
björgunaraðgerða í landi en
um björgun sem heyrir undir
skipulag almannavarna gilda
sérstök lög. Ráðherra setur
reglur um samstarf lögreglu
og björgunarsveita.
Lög þessi öðlast gildi 1.
janúar 2012. Ákvæði til
bráðabirgða öðlast þó þegar
gildi.
Tekið til kostanna 30. apríl
Stórsýning í Reiðhöllinni
Stórsýningin Tekið til
kostanna verður haldin
laugardaginn 30. apríl nk. og
hefur verið auglýst eftir
gæðingum, kynbótahrossum,
mjög fljótum skeiðhestum
eða góðri hugmynd að
sýningaratriðum. Á
heimasíðu reiðhallarinnar
Svaðastaða eru þeir sem
hafa áhuga á að taka þátt í
sýningunni beðnir að hafa
samband við Eyþór í síma:
8425240 eða Elvar
Einarsson í síma: 8938140.
Tekið er fram að einungis
koma til greina úrvals góð
hross og er fólk hvatt til þess
að taka þessari bón vel því
samtaka verður gerð flott og
góð sýning.
Norðurland vestra
Ekki til í nýrri
auglýsingaherferð
Velferðarráðuneytis
Um helgina fór af stað
auglýsingaherferð Vinnumála-
stofnunar og Velferðarráðu-
neytis þar sem auglýst eru til
umsóknar sérstök átaks-
verkefni fyrir atvinnuleitendur
svo og námsfólk fyrir sumarið
2011. Athygli vekur að í
herferðinni eru landssvæðin
tilgreind hvert fyrir sér nema
hvað Norðurland vestra sem
ekki er til í nýrri herferð.
Auglýst eru störf á Höfuð-
borgarsvæði, Reykjanesi,
Vesturlandi, Vestfjörðum,
Norðurlandi eystra, Aust-
fjörðum og Suðurlandi. Þegar
blaðamaður fór að skoða
málið frekar kom í ljós að störf
voru í boði á Norðurlandi
vestra en auglýsingar þess
efnis fóru undir Norðurland
eystra. Spurning hvort 20:20
áætlunin sé nú þegar farin af
stað hjá Vinnumálastofnun
eða hvað? „Nei, þetta var engin
árás á sjálfsmynd íbúa á
Norðurlandi vestra heldur
bara mannleg mistök,“ segir
Gissur Pétursson hjá Vinnu-
málastofnun.
Feykir bauð Gissuri að
koma leiðréttri auglýsingu á
framfæri í Feyki en það boð
var afþakkað.
Eyþór Jónasson reiðhallarstjóri
segir að mörg atriði séu þegar
komin á dagskrána og það
stefni í góða og fjölbreytta
sýningu.
-Reiðkennarabraut Hóla-
skóla verður með sína dagskrá
á laugardeginum en hún er
mjög metnaðarfull og fróðleg
og kynbótasýning verður á
föstudeginum og yfirlitssýning
á laugardagsmorgninum, segir
Eyþór.
Sveitarfélagið óskar eftir samstarfsaðilum
VIT 16-18 ára
Frístundasvið Skagafjarðar
auglýsir á heimasíðu
sveitarfélagsins eftir
fyrirtækjum sem vilja vera
samstarfsaðilar í atvinnu-
átaki 16-18 ára í sumar.
Í átakinu felst að fyrirtæki
ráða til sín ungmenni á þessum
aldri í a.m.k. 6 tíma vinnu á
dag að lágmarki í 6 vikur.
Fyrirtækjum er greiddur 50%
launakostnaðarins. Ungmenn-
in þurfa að sýna fram á að þau
hafi sótt um starf annarsstaðar
en verið synjað. Einnig þurfa
þau að sækja um að komast í
verkefnið.
Umsóknareyðublöð er að
finna á www.husfritimans.is
Nánari upplýsingar veitir
Stefán Arnar yfirmaður
Vinnuskólans.
Mynd: Sveinn Brynjar
Mynd: Norðanátt.is