Feykir


Feykir - 21.04.2011, Qupperneq 7

Feykir - 21.04.2011, Qupperneq 7
16/2011 Feykir 7 þegar kemur að útvarpi? „Ég hlusta aðallega á Rás 2 hlustaði svo mikið á hana í trésmiðjunni að ég var farinn að kunna öll lögin utan að.“ Nú má segja að Bróðir Svartúlfs sé kannski ekki alveg inni á þessari línu sem þú hefur verð að lýsa. Hvað kom til að þú gekkst til lið við þá? „Það var nú svolítið skrítið. Mér var boðið að koma sem gítarleikari í það band. Á þessum tíma var ég ekki eins gömul sál og ég er í dag, ég held að ég eldist um 20 ár á hverju ári, það er sálin í mér. Þetta var því voða spennandi enda kannski ekki heldur eins og aðrar hljómsveitir heldur blanda af rappi og rokki og lögin frekar melódísk þannig að þetta var ekki alveg út úr kú fyrir mig þó svo að tónlistin hafi verið þung á köflum. En við reyndum að hafa hljómagang og metnað í því sem við vorum að gera.,“ svarar Fúsi en á sama tíma var hann einnig í hljómsveit sem bar nafnið Fúsaleg Helgi. „Þegar sú hljómsveit vorum við Helgi Sæmundur, (Guðmundsson, innskot blaðamanns) bara tveir og þarna vissi ég ekkert hvar ég vildi vera í tónlist. Við byrjuðum því í einhverjum kántrý, blús bræðingi. Fúsaleg Helgi er enn starfandi en minna en áður þar sem Helgi er fyrir sunnan. Það eru allir voða rólegir eitthvað.“ Enn ein samsetningin hjá Fúsa er síðan Fúsi og Vordísin en þá treður hann upp með Sigurlaugu Vordísi söngkonu frá Sauðárkróki. „Við Silla tókum þátt í John Lennon cover lagakeppni á Rás 2 og náðum þar í topp listann en unnum því miður ekki þar sem við vorum með langbestu útgáfuna. Við þurf- um ekki að ræða það neitt,“ útskýrir Fúsi og glottir. „Ég hef verið að spila með Sillu aðeins, bæði að trúbadorast og eins höfum við spilað á alls kyns uppákomum,“ bætir hann við. Samhliða öllu sem nú þegar hefur verið talið upp er Fúsi einnig í undirbúningshópi fyrir tónlistar-hátíðina Gæruna sem nú verður haldin í annað sinn þriðju helgina í ágúst. „Ég held að hátíðin í ár verði alveg suddalega góð. Við erum aðeins byrjuð að bóka hljómsveitir og skipuleggja en við munum leggja meira í hátíðina í ár en í fyrra. Sennilega verður eitthvað af stærri böndum og frægari enda hátíðin að festa sig í sessi.“ Hvað með stúdíóið hvernig gengur að reka stúdíó á Króknum? „Heyrðu, það gengur alveg lúmskt vel og oft það mikið að gera að ég er ekki komin heim fyrr en á nóttunni. Það fóru sjö lög í gegnum mig og í Dægurlagakeppnina þar sem ég aðstoðaði við upptökur á demóum. Þá eru þeir Andri Már eða Joe Dúbíus og Gísli Þór Ólafsson að taka upp hjá mér sólóplötur sínar. Það verður spennandi þegar þær koma út sem verður vonandi bara núna í sumar.“ Nærðu að lifa á þessu? „Nei, ekki eins og er. Þegar ég fer að fá borgað, það er þegar plöturnar koma út þá kemur þetta. Maður er kannski að vinna lengi að einhverjum verkum áður en maður fer að sjá fyrir þau einhverja peninga.“ Hvernig saltar þú þá grautinn? „Ég tek vaktir í Húsi frítímans. Bæði þegar eldri borgarar koma þá helli ég upp á kaffi og svona ýmislegt sem til fellur og eins þegar æringjarnir koma. Það fer aðeins meiri orka í krakkana en þetta er ofsalega gaman.“ Þegar ég spyr Fúsa út í önnur áhugamál en tónlistina verður lítið um svör. Eitt sinn var það mótorkross en hann segist hafa selt hjólið fyrir hitt áhugamálið tónlistina. „Ef það er ekki tónlistin þá er gaman að skreppa suður, fara fínt út að borða og skreppa í bíó. Nú eða skella sér á góða tónleika. Ég er ekki mikill djammari í mér og finnst djammvæðingin hundleiðinleg. Það er þessi stemning að fara alltaf á sama staðinn og dansa við sömu tónlistina. Fer heldur suður á tónleika nú það sjaldan sem eru tónleikar hér er ég líka fyrstur á staðinn. Ég nenni ekki þessu sukki og brjóta rúður-djammi, er einfaldlega of rólegur fyrir það, segir hinn efnilegi Fúsi að lokum. Blaðamaður mótmælir að lokum að Fúsi hafi lítið afrekað en bætir við að líklega höfum við ekki séð neitt frá honum enn þá miðað við það sem eftir á að koma. Hér er rísandi stjarna á ferð. ( TÖLVUPÓSTURINN ) Sæluvika Skagfirðinga er framundan en eins og venja er til er vikan hlaðin stórglæsilegum menningarviðburðum og uppákomum. Fyrir hönd Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur Guðrún Brynleifsdóttir borðið hitann og þungann af undirbúningi Sæluviku. Feykir sendi Guðrúnu línu og forvitnaðist um dagskrá og einstaka viðburði. Vika hlaðin stórglæsi- legum viðburðum og uppákomum Jæja Guðrún. Enn ein Sæluvikan fram undan. Hvernig gengur að ná þessu öllu saman? „Undirbúningur að Sæluvikunni hefur gengið vel. Dagskráin er hlaðin skemmtilegum viðburðum, bæði stórum sem smáum. Viðburðirnir sem eru minni um sig setja ekki síður mikinn svip á dagskrána og sýna að menning og listir eiga alls staðar heima.“ Hvers konar viðburðir eru þetta? „Dagskrá Sæluvikunnar er fjölbreytt að vanda og sýnir glögglega hversu blómlegt menningarlífið er í Skagafirði. Söngurinn skipar veglegan sess, auk leiksýninga, myndlistarsýninga og ljósmyndasýninga. Síðan má nefna opið hús í Gallerí Lafleur, menningardagskrá í sundlaug Sauðárkróks, flóamark- að, forsæluball, opinn dag hjá Skotfélaginu Ósmann, stórsýninguna „Tekið til kostanna“ í reiðhöllinni Svaðastöðum, opið hús í Maddömukoti, félagsvist, hátíðarhöld 1. maí, kvikmyndasýningar, sumarsælu- kaffi eldri borgara, dag harmónikunnar, opna listasmiðju og tónleika í Aðalgötu 26, tónleika Skagfirska Kammerkórsins, lista- hátíð barnanna, útistemningu við Sauðárkróksbakarí, prjóna- kvöld í Kompunni, kaffiklúbb Skagafjarðar, tónleika tónlistar- klúbbs FNV og vortónleika Tónlistarskóla Skagafjarðar, sundlaugarpartí, unglingaball, Molduxamót, afmæliskaffi hjá Skotfélaginu Ósmann, fiskiveislu, Æskuna og hestinn, kynningu á Sahaja-jóga í Gallerí Lafleur og dansleiki. Þá má nefna að Óperudraugurinn verður sýndur í Menningarhúsinu Miðgarði. Einnig verða Sönglög í Sæluviku í Miðgarði og hið árlega kóramót Rökkurkórsins og Karlakórsins Heimis. Kirkjukvöldið verður á sínum stað í Sauðárkrókskirkju á mánudagskvöldinu í Sæluviku. Þá verður dægurlagakeppnin sem mörgum er að góðu kunn endurvakin í ár, og mun hún fara fram í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Sæluvikudagskránni mun verða dreift á öll heimili í Skagafirði en þeir sem vilja nálgast rafræna dagskrá er bent á að skoða heimasíðuna www.saeluvika.is.“ Þetta eru heilmargir viðburðir. Hefur þú tölu á því hvað þeir eru margir? „Það eru um það bil 50 viðburðir á dagskránni þetta árið og nokkrir þeirra eru í boði oft í Sæluviku.“ Hvar verður setning Sæluvik- unnar? „Setning Sæluviku Skagfirðinga fer að þessu sinni fram í Safnahúsinu á Sauðárkróki kl. 13.00, sunnudaginn 1. maí. Við það tilefni verða opnaðar tvær ljósmyndasýningar, þ.e. „Fegurð fjarðar“ og „Ljós og náttúra Skagafjarðar“, auk þess sem úrslit í vísnakeppni í Sæluviku verða kynnt. Þórólfur Stefánsson mun flytja nokkur lög og í lok setningar mun hann halda tónleika.“ Kostar inn á alla viðburði eða er frítt á einhverja? „Það kostar ekki inn á alla viðburðina en í flestum tilvikum kemur fram í auglýsingunni hvort það sé tekinn aðgangseyrir.“ Hvaða þýðingu myndir þú segja að Menningarráð Norðurlands vestra og styrkir frá því hafi fyrir viðburð eins og Sæluviku? „Ég tel að styrkir frá Menningarráði Norðurlands vestra hafi mikla þýðingu fyrir Sæluviku. Það að fá styrk gefur mörgum skemmtilegum hugmyndum tækifæri á að verða að veruleika. Þessi stuðningur getur haft úrslitaáhrif fyrir fjölbreytileika viðburða sem haldnir eru í Sæluviku.“ Eitthvað að lokum? „Ég hvet alla til að skoða heimasíðu Sæluvikunnar www.saeluvika.is. Þar eru upplýsingar um alla viðburði sem verða í boði í Sæluviku. Svo er bara um að gera að skella sér á sem flesta viðburði og taka þátt í fjölbreyttu menningar- og listastarfi Skagfirðinga.“

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.