Feykir - 21.04.2011, Síða 11
16/2011 Feykir 11
Hátíðaruppskriftir
Uppskrift að
góðri veislu
svo látið liggja í blöndunni í
sólarhring undir léttu fargi. Þá
eru kryddjurtirnar stroknar
af og kjötið skorið í þunnar
sneiðar.
AÐALRÉTTUR
Fyllt lambalæri
á grillið
Hráefni:
1 lambalæri, um 2,2 kg
100 gr. fetaostur, grófmulinn
10-12 sólþurrkaðir tómatar,
saxaðir
3 msk. furuhnetur
3 msk. rautt pestó
2-3 hvítlauksgeirar,
saxaðir smátt
10-15 basilíkublöð, söxuð
1 tsk. rósmarín, ferskt,
saxað (má sleppa)
Pipar, nýmalaður
Salt
Úrbeinið lærið að hluta en
skiljið leggjarbeinið eftir.
Blandið saman fetaosti,
tómötum, furuhnetum, pestói,
hvítlauk, kryddjurtum, pipar
og dálitlu salti í skál og fyllið
holrúmið með blöndunni.
Lokið vel fyrir með grillpinnum
(ef notaðir eru tréteinar er
best að brjóta það sem út úr
stendur af áður en lambið fer
á grillið svo þeir brenni ekki).
Kryddið lærið vel að utan með
pipar og salti. Hitið grillið vel
og hafið það lokað á meðan.
Slökkvið síðan á öðrum/
einum brennaranum. Ef notað
er kolagrill, ýtið þá kolunum
til hliðar í miðjunni og setjið
álbakka þar. Leggið lærið
á grindina þar sem enginn
eldur er undir, lokið grillinu
og grillið lærið við meðalhita í
um eina klukkustund, eða eftir
smekk. Grilltíminn fer líka eftir
því hve mikill hiti er á grillinu
og hann lengist ef hvasst er í
veðri eða ef það er opnað oft,
þá verður hitatapið svo mikið.
Snúið lærinu þó einu sinni eða
tvisvar ef grillið er aðeins með
tvo brennara og hitinn því ekki
jafn. Takið lærið af grillinu
þegar það er tilbúið og látið það
standa í a.m.k. 15-20 mínútur
áður en það er skorið.
EFTIRRÉTTUR
Ananasfrómas
Hráefni:
4 egg
2 1/2 dl. flórsykur
4 dl. rjómi
450 gr. niðursoðinn ananas
(ein hálfdós)
Safi úr einni sítrónu,
frekar stórri
1 1/2 dl. ananassafi
8 matarlímsblöð
Aðferð:
Eggin og flórsykur þeytt saman
þangað til þau verða að léttri
ljósri froðu. Rjóminn þeyttur
sér. Matarlímsblöðin lögð í
bleyti í kalt vatn þangað til þau
mýkjast og þá er vatnið kreist
úr þeim. Ananassafinn settur
í skál, út í hann fer matarlímið
og skálin sett í vatnsbað í pott
og látið leysast upp við vægan
hita þangað til það er alveg
kekkjalaus. Þarf að hræra
vel í á meðan. Eggjahræru
og rjóma blandað saman og
matarlíminu hellt í einni bunu
og hrært saman við um leið.
Sítrónusafanum er að lokum
bætt út í og hrært vel. Að
síðustu er smátt brytjuðum
ananas bætt út í. Frómasinum
hellt í fallega skál, filma breidd
yfir og geymdur í kæliskáp í
ca. 6-8 klst. Ágætt er að skilja
eftir 2-3 ananassneiðar til að
skreyta frómasinn með áður
en hann er borinn fram eins er
fallegt að skreyta með smávegis
af þeyttum rjóma.
Verði ykkur að góðu!
Nú fer í hönd páskahátíð
og samkvæmt venju
kristinna manna fyrr á
öldum mátti fyrst neyta
kjötmetis á páskadag eftir
að hafa fastað í 40 daga
eða allt frá öskudegi.
Í tilefni hátíðarinnar
verður hér boðið upp á
uppskrift að góðri veislu.
Uppskriftirnar eru fengnar
frá Lambakjöt.vefir.net;
Uppskriftum Nönnu og
Leiðbeiningamiðstöð
heimilanna.
FORRÉTTUR
Grafið lambakjöt
með blóðbergi
Íslenskt lambakjöt er á
meðal þeirra kjöttegunda
sem spennandi er að verka
í 1-2 sólarhringa með salti
og kryddjurtum og borða
síðan hrátt, skorið í örþunnar
sneiðar. Hér er meðal annars
notað blóðberg á kjötið.
Hráefni:
500 gr. lambahryggvöðvi
(file)
1 kg. gróft salt
2 msk. sykur
2 hnefar blóðberg
Vænt knippi af graslauk
Nokkrar greinar af fersku
timjani eða esdragon
1 msk. piparkorn, grófsteytt
Aðferð:
Allar himnur og fita skorin af
hryggvöðvanum. Salti og sykri
blandað saman, hluta af því
dreift á fat, kjötið lagt ofan á og
afganginum af saltinu dreift
jafnt yfir. Eftir um 3 klst. er
saltið strokið af kjötinu og því
e.t.v. brugðið örsnöggt undir
rennandi kalt vatn til að skola af
því. Kryddjurtirnar saxaðar og
blandað saman við piparinn.
Núið inn í kjötið og það er
30
Fyrsta útskrift frá Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki.
Feykir á þrítugasta aldursárinu
Hleypir skeiði hörðu
halur yfir ísa
og mannafla frá fyrirhuguðum
hvítagullsnámum á austur-
strönd Grænlands vegna þess
hversu hentug lega staðarins
m.t.t. flugsamgangna og
hafnaraðstöðu er og var. Við-
ræður fóru fram milli Önnu
Kristínar Gunnarsdóttur þ.v.
bæjarfulltrúa Sauðárkróks
og Jonatans Mosfelds fyrrv.
formanns grænlensku lands-
stjórnarinnar og þeirrar nefndar
sem sá um námuvinnslu
á Grænlandi. Rannsóknir
gullnáms á Grænlandi lofaði
góðu og auk hvítagullsins var
um tvo aðra verðmæta málma
að ræða. Reiknað var með að
allt að 300 manna vöktum í
námuvinnslunni og gert var
ráð fyrir því að þeir yrðu fluttir
ásamt vistum hálfsmánaðarlega
en einnig var reiknað með
þörf fyrir varahlutalager hér
á landi og þátti Sauðárkrókur
henta verkefninu. Þá var óvíst
hvort mögulegt væri að koma
upp vatnsaflsvirkjun fyrir
vinnsluna á Grænlandi og þá
var næsta skref að leita eftir
vinnslumöguleikum hér á
landi. Ekki hefur orðið af því
að Sauðárkrókur yrði miðdepill
gullæðis á Grænlandi en ýmis
fyriræki hafa reynt fyrir sér í
þeim geira og fundið námur
góðmálma þar.
Fyrir 30 árum
„Hleypir skeiði hörðu halur
yfir ísa“ er skáldleg fyrirsögn
á frétt um fyrstu ískappreiðar
á Sauðárkróki sem fram fóru
sunnudaginn 29. mars 1981á
Tjarnartjörn.
Keppt var í 150 og 200
metra skeiði og opnu tölti og
má segja að Lyfting Ingimars
Ingimarssonar á Skörðugili hafi
staðið upp úr því hún sigraði
bæði í 200 m skeiðinu á tímanum
21,3 sek og töltinu með 83 stig.
Í 150 m skeiði sigraði Bliki,
Lúðvíks Ásmundssonar en
knapi var Magni Ásmundsson
og rann hann vegalengdina á
18,3 sek. í niðurlagi fréttarinnar
segir: „Þetta fyrsta mót fór vel
fram, enda þótt hestar væru
ekki í sem bestri þjálfun. T.d.
var Perla frá Reykjum tekin úr
haga og járnuð aðeins rúmri
viku fyrir mótið. Þó hefði
mótið mátt ganga fljótar fyrir
sig, ekki síst dómarnir. Veðrið
var eins gott og á verður kosið
og voru áhorfendur margir.“
Þess má geta að Perla, Steindórs
Árnasonar, varð í öðru sæti í
150 m skeiðinu en knapi var
Ingimar Pálsson.
Í upphafi síðasta árs hófum
við hér á Feyki að rifja upp
gamlar fréttir úr blaðinu
vegna 30 ára afmælis
blaðsins. Nú hefur Feykir
náð að fullu þrítugsaldrinum
en fyrsta tölublaðið kom út
þann 10. apríl 1981. Þessi
upprifjun hefur mælst vel
fyrir hjá lesendum og ætlum
við að verða við áskorun um
að halda henni áfram og
stikla á fréttum sem birst
hafa fyrir 10, 20 og 30 árum
í okkar ágæta blaði.
Feykir fyrir 10 árum
Vinnsla kalkþörunga
könnuð við Borðeyri
Einn af þeim möguleikum sem
talinn var til atvinnusköpunar
í Húnaþingi vestra er nýting
kalkþörunga í Hrútafirði en
fyrir réttum 10 árum átti að
rannsaka kalkþörungaset frá
Borðeyri og út í fjarðarmynni
beggja vegna fjarðar; þykkt
setlaga og áætlað magn auk
þess sem efnasamsetning yrði
skoðuð. Til verefnisins var varið
um fjórum milljónum króna
þetta árið og fékk Húnaþing
vestra styrk af fjárlögum ríkisins.
Kalkþörungar eru unnir á
fáum stöðum í heiminum og
er kalkefnið úr þeim notað í
dýrafóður og í matvælaiðnaði,
s.s. við síun. Verkefnið varði í
nokkur ár en lá svo niðri um
tíma þangað til franskt fyrirtæki
hóf að kanna sömu möguleika
árið 2010.
Fyrir 20 árum
Verður Sauðárkrókur
umskipunarstaður fyrir
gullnám á Grænlandi?
Svona var spurt fyrir 20 árum en
til tals kom að Sauðárkrókur yrði
umskipunarstaður fyrir varning