Feykir


Feykir - 19.05.2011, Page 6

Feykir - 19.05.2011, Page 6
6 Feykir 19/2011 Dagný Stefánsdóttir ætlaði að eyða vetrinum við tamningar ásamt sambýlismanni sínum samhliða því að stunda nám við byggingariðnfræði. Örlögin tóku hins vegar völdin þann 6. janúar sl. er móðir hennar Jónína Friðriksdóttir í Laugarmýri lenti í alvarlegu bílslysi. Dagný ákvað að taka við rekstrinum á fyrirtæki móður sinnar á meðan hún næði heilsu. Plöntusalan í Laugarmýri mun því hefjast í næstu viku en það u.þ.b. á sama tíma og fyrra. Feykir kíkti í kaffisopa til Dagnýjar fyrr í vikunni. Þrátt fyrir að snjóað hafi á Króknum var sól og blíða þegar blaðamaður renndi í hlaðið að Laugarmýri. Gróðurhúsin stóðu opin og alls staðar mátti sjá plöntur sem bíða nýrra eigenda og litirnir, vá maður! Dagný var að brasa við sínar uppáhalds plöntur, kryddjurtirnar, þegar blaðamann bar að garði en þáði að taka stutta hvíld svo viðtalið gæti farið fram. Við setjumst inn í eldhús foreldra Dagnýjar en þau Dagný og Róbert Logi sambýlismaður hennar Krókinn. Þegar þangað var komið þá var búið að flytja mömmu niður á flugvöll og náðum við bara í raun rétt aðeins sjá hana áður en henni var flogið suður. Vegna veðurs reyndist þetta eina flugið sem fór í loftið þann dag. Við fórum því aftur heim en bræður mínir tóku á móti henni í Reykjavík þar sem hún gekkst síðar undir nokkrar aðgerðir," rifjar Dagný upp. Á meðan Jónína barðist fyrir lífi sínu í Reykjavík börðust Dagný og fjölskylda heima í Laugarmýri við veðráttuna en mikill snjór hafði lagst ofan á gróðurhúsin sem voru að sligast undan þyngslunum. „Maður fór bara út og mokaði snjó í nokkra daga. Veðurfarslega séð hefur veturinn verið erfiður. Fyrst var það snjórinn og síðan mikið hvassviðri svo það var allt við það að takast á loft. Það hefur því gengið á ýmsu," segir Dagný og hlær. Kunni lítið til verka Dagný er ekki að væla yfir ástandinu en játar að veturinn sé búinn að vera erfiður enda hafi hún lítið kunnað til verka þegar hún fékk garðyrkjustöðina í fangið. „Þó svo að ég hafi alist hér upp og unnið við ýmis störf á garðyrkjustöðinni hjá mömmu yfir sumartímann kunni ég ekki nema brota brot af því sem þarf að kunna svo ég hef fengið nokkra hjálp frá vinum og ættingjum. Fljótlega eftir slysið kom að því það þurfti að byrja að sá fyrir sumarblómum, klára að panta fræ og margt fleira. Mamma hefur alltaf unnið mikið í félagi við hana Sædísi, vinkonu sína, í Gleym Mér Ey í Borgarfirði. Sædís hefur reynst mér vel og hef ég mikið sótt ráð til hennar. Eins hafa þær pantað saman stjúpufræin svo ég gat stuðst við lista frá henni með litbrigðum og fjölda hvað stjúpuna varðar en síðan þurfti ég bara að spinna þetta einhvern veginn," segir Dagný og hlær. Á fingri Dagnýjar er hringur sem móðir hennar bar alltaf í húsunum og hún setti á fingur sér eftir að hún fékk eigur móður sinnar eftir slysið. Blaðamaður er þess fullviss að hringurinn hafi eitthvað hjálpað við sáningu og annað, í það minnsta eru plönturnar ekki síður fallegar en áður og allt eins og það á að vera. „Ég hafði nú ekki hugsað mér að vinna við þetta hér enda á allt annarri línu en hins vegar er garðyrkjan mun skemmtilegri eftir að maður fer að rækta sjálfur og pæla í þessum hlutum svolítið dýpra. Hins vegar er þetta svakalega mikil vinna og í raun helmingi meiri vinna en ég hafði gert mér grein fyrir áður. Bara eitt lítið dæmi; þegar kom að því að eitra og ég opnaði eiturskápinn. Mér féllust eiginlega bara hendur enda nöfnin flest á latínu og ég kunni ekkert með þetta að fara. Þá var bara að hringja í garðyrkjuráðunaut og finna út úr þessu öllu saman. Þannig hefur vinnan svolítið verið sl. mánuði ég er alltaf að finna eitthvað út úr hlutunum. Áburðagjöf, pappírsvinna, pantanir og fleira ég kunni bara ekkert á þetta. „Núna er ég meira að segja að reyna koma heimasíðu fyrir garðyrkjustöðina á koppinn." Alltaf nóg að gera „Síðan komu konur úr sveit- inni og aðstoðuðu mig við að prikla og fleira“. Einnig á Dagný von á góðum liðsauka en það ætlar ung kona að koma til hennar í verknám. „Ekki það að ég geti mikið kennt henni en stöðin hefur leyfi til að taka nema svo ég er alla vega komin með verknema," segir Dagný brosandi. Hvað síðan framundan er eftir sumarið segist Dagný ekki Húsasmiður í tíma- bundinni plönturækt Dagný Stefánsdóttir í Feykisviðtali Kryddjurtir í ræktun. fluttu heim í Laugarmýri, til Stefáns föður hennar, daginn sem slysið varð. „Við vorum nýlega flutt í Gýgjarhól þar sem við ætluðum að vera í vetur en ég get varla sagt að ég hafi komið þangað inn síðan þarna í byrjun janúar," útskýrir Dagný sem í samráði við bræður sína ákvað að halda merkjum móður sinnar á lofti á meðan hún næði sér. "Við vildum gefa henni tækifæri á að ákveða sjálf hvað hún vill gera með framhaldið. Það er nóg að missa heilsuna á einni svipstundu þó svo að fyrirtækið færi ekki líka." Jónína, móðir Dagnýjar, slasaðist eins og áður segir alvarlega í bílslysi í byrjun janúar. En hún lenti í árekstri við skólabifreið á Strandveginum á Sauðár- króki. Við áreksturinn marg- kjálkabrotnaði Jónína, fékk alvarlega áverka á ósæð rétt við hjarta og talsverður áverki var á lifur og rifbeinum. Þá hefur háð henni þónokkur áverki á kvið sem hún fékk í slysinu auk þess sem hún lærbrotnaði og skarst illa í andliti. „Ég á erfitt með að segja sjálf hvernig mamma slasaðist enda man ég þetta ekki allt, það má segja að þessi tími renni saman í eitt fyrir mér. Mömmu var haldið sofandi í þrjár vikur og það er óhætt að segja að þetta hafi verið tvísýnt." Dagný var stödd heima þegar slysið varð. „Það var brjálað veður þennan dag og það tók okkur pabba einn og hálfan tíma að komast á Svo fallegt.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.