Feykir - 24.11.2011, Blaðsíða 3
2 01 1 3
STENDUR MEÐ ÞÉR
STAPI, l ífeyrissjóður - Strandgötu 3 - 600 Akureyri - Egilsbraut 25 - 740 Neskaupstað - Sími: 460 4500 - www.stapi.is
SJÓÐFÉLAGAYFIRLIT STAPA LÍFEYRISSJÓÐS
ER KOMIÐ ÚT
Nú ættu allir greiðandi sjóðfélagar Stapa lífeyrissjóðs að hafa fengið
sjóðfélagayfirlit sent heim. Mikilvægt er að sjóðfélagar beri saman
útsent yfirlit og launaseðla.
Launþegi sem ekki hefur fengið yfirlit en telur að vinnuveitandi hafi
átt að skila til sjóðsins er bent á að hafa samband við starfsfólk
sjóðsins.
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar Ábyrgðarsjóðs launa við gjaldþrot,
skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins ganga úr skugga um
skil vinnuveitenda til lífeyrissjóðsins. Ef upplýsingar um iðgjöld vantar á
yfirlitið er mikilvægt að launþegi tilkynni það til lífeyrissjóðsins, með
framlagningu launaseðla innan 60 daga frá útsendingu yfirlits. Komi ekki fram
athugasemd frá launþega, er lífeyrissjóðurinn einungis ábyrgur fyrir réttindum
sem þessi iðgjöld skapa, að því marki sem þau fást greidd.
Björn Jóhann Björnsson safnaði saman
skemmtisögum af Skagfirðingum sem nú eru
að koma út á bók og segir hann hér frá tilurð
bókarinnar.
-Guðjón Ingi Eiríksson hjá Bókaútgáfunni Hólum
kom að máli við mig í lok síðasta árs og spurði hvort
ég vildi taka að mér að safna saman skemmtisögum
af Skagfirðingum. Guðjón hefur verið ötull við
útgáfu á gamansögum af ýmsu tagi og m.a. með
staðbundnum sögum eins og af Eyjamönnum og
Norðfirðingum. Hann hafði gengið með þá hugmynd
í maganum í nokkur ár að koma með gamansögur
af Skagfirðingum, eða allt frá því að Hólar gáfu út
Skagfirsk skemmtiljóð í samantekt Bjarna Stefáns
Konráðssonar frá Frostastöðum. Þær bækur komu út
í þremur bindum og gáfu ekki aðeins vel til kynna
hversu hagyrtir Skagfirðingar eru heldur ekki hvað
síst þeir eru skemmtilegir. Sagnahefðin er mikil á
svæðinu og Skagfirðingar hafa haft gaman af því að
segja sögur hver um annan. Þeir hafa aldrei verið
þekktir fyrir að taka sig hátíðlega og verið hæfilega
kærulausir í leik og starfi. Eins og þegar komið var
eitt sinn til Frigga gamla á Svaðastöðum og sagt að
smurolían væri búin á dráttarvélinni sem var verið að
slóðardraga á. Þá sagði Friggi bara: Þetta er allt í lagi,
við bætum bara duglega á hana næst!
Leitaði uppi þá menn
sem ég vissi að lumuðu
á góðum sögum
-Ég ákvað semsagt að slá til og byrjaði á að skoða
hvað væri til af svona sögum í rituðum heimildum.
Komst fljótt að því að þær hafa víða verið skráðar
hér og þar, og undraðist eiginlega að svona bók hafi
ekki áður verið tekin saman, miðað við efniviðinn.
Síðan fór ég að sjálfsögðu á stúfana og leitaði uppi þá
menn sem ég vissi að lumuðu á góðum sögum. Sá
listi lengdist alltaf og er ekki enn tæmdur. Þessi bók
er vonandi bara sú fyrsta af fleirum því af nægu er
að taka og söfnunin ekki nánda nærri búin. Þarna
Björn Jóhann Björnsson tók saman Skagfirskar skemmtisögur
Allt til gamans gert
Björn Jóhann léttur í lund.
vantar ennþá fjölmargar góðar sögur og ég veit t.d.
um margar eldri sögur, sem alls ekki eru síðri en
af síðari tíma Skagfirðingum, m.a. sögur af Marka-
Leifa, Myllu-Kobba, Ólafi á Starrastöðum, sr. Páli á
Knappstöðum, Ísleifi Gíslasyni, Gvendi snemmbæra,
Óskari Þorleifssyni og þannig mætti lengi telja.
Við val á sögum sem enduðu í bókinni reyndi
ég að hafa blöndu úr áður rituðum heimildum og
sögum sem ekki hafa áður komist á prent, eftir því
sem best er vitað. Ég vona líka að þessi bók kveiki
hugmyndir og ábendingar um fleiri sögur sem ég tek
glaður við. Ef svo ólíklega vill til að mér hafi takist
að móðga einhvern með sögum í bókinni er sá hinn
sami hér með beðinn innilegrar afsökunar. Allt er
þetta til gamans gert og góð saga má heldur aldrei
gjalda sannleikans, eins og einhvers staðar stendur.
Ég vil líka þakka öllum þeim sem aðstoðuðu við
sagnasöfnunina og veittu hollráð og ábendingar.
Góð skemmtisaga er auðvitað best sögð í
munnmælum í góðra manna hópi en með bókinni
er líka komið tæki fyrir þá sem vilja slá um sig á
mannfögnuðum. Bókin er þó ekki síður tekin saman
til að varðveita heimildir sem hætt er við að glatist
með hverjum þeim sagnamanni sem fellur frá.
Meðalaldurinn á sagnamannalistanum er hár og
vissara að bíða ekki of lengi að tæma hann. Það er
ekki endilega tryggt að sögurnar gangi mann fram af
manni. /PF