Feykir - 24.11.2011, Blaðsíða 20
2 01 12 0
Skyrterta
að hætti Elsu Eggertsdóttur
Jólaávaxtakaka
að hætti Báru Garðarsdóttur
250 gr. sykur
250 gr. smjörlíki
1 tsk. vanilludropar
4 egg
280 gr. hveiti
1 tsk. lyftiduft
100 gr. súkkulaði (rifið)
70 gr. hrámarsípan
100 gr. hnetur
200 gr. kokkteilber
100 gr. þurrkaðir ávextir
Heilar möndlur til skrauts
Hrærið saman sykur og smjörlíki ásamt
vanilludropum, setjið þá eggin eitt í einu og
hrærið vel á milli. Setjið hveiti og lyftiduft
og vinnið vel saman. Takið allt annað sem
á fara í kökuna og blandið öllu saman í
skál, setjið eina matsk. af hveiti saman við
og hrærið, síðan er því blandað varlega
saman við deigið. Sett í lausbotna form
(22-25 cm í þvermál). Raðið möndlunum
ofan á til skrauts. Bakað við 170°C í ca. 90
mín.
Gott er að bleyta í kökunni með koníaki
þrisvar sinnum á þriggja daga fresti.
Pakkið kökunni vel inn og geymið. Kakan
er mjög góð eftir ca. 3-4 vikur.
LU kex
500 gr. vanilluskyr
250 ml. rjómi
1 krukka kirsuberjasósa
LU kex sett í botninn á
kringlóttu kökuformi,
vanilluskyr og rjómi þeytt
saman og sett ofan á kexið.
Síðan er kirsuberjasósu
hellt yfir.
Blúnduterta
að hætti Guðlaugar Sigurðardóttur
225 gr. smjör
8 msk. sykur
3 dl. haframjöl
3 dl. hveiti
Krem:
2¼ dl. kaffirjómi
1½ dl. sykur
1½ msk. smjör
1½ msk. síróp
1½ msk. kakó
4½ dl. rjómi þeyttur
Möndluspænir eða saxaðar
hnetur
Hrærið smjör og sykur þar
til það verður létt og ljóst.
Blandið haframjöli og hveiti
saman við. Breiðið deigið
út í tvo kringlótta botna,
um það bil 28 cm, á plötu
klædda bökunarpappír.
Bakið við 200°C í um það
bil 10 mín. Kælið og losið
varlega af pappírnum.
Blandið öllu saman sem í
kremið á að fara í pott. Látið
krauma við hægan hita í
um það bil 25 mín. eða þar
til það fer að þykkna. Látið
kremið kólna án þess að
storkna. Breiðið það yfir
annan botninn eða báða
eftir smekk. Látið standa til
næsta dags. Leggið botnana
saman með rjóma. Dreifið
möndlum eða hnetum yfir.
Líka er hægt að nota ávexti
í rjómann á milli botnanna
ef vill og skreyta kökuna líka
að ofan með rjóma.
Vanilluís
að hætti Aðalheiðar Jónsdóttur
6 eggjarauður
100 gr. sykur
5 dl. rjómi
1 msk. vanillusykur eða
vanilludropar
Eggjarauður og sykur er
unnið vel saman. Þeyttum
rjómanum er blandað
rólega saman við ásamt
vanillusykrinum. Frystið og
berið fram með súkkulaði-
sósu og ávöxtum.
Heit rúlluterta
að hætti óru ormóðsdóttur
1 askja beikonostur
4 msk. majónes
½ paprika
1/3 blaðlaukur
(hvíti hlutinn)
¼ dós ananaskurl
(allt innihaldið)
100 gr. sveppir
6 sneiðar skinka
Salt
Pipar
Köd og grill – krydd
Paprika, blaðlaukur,
sveppir og skinka brytjuð
niður. Hrært saman við
beikonostinn, majónesið og
ananasinn. Kryddað að vild.
Sett inn í rúllutertubrauð.
3 msk. majónes smurt utan
á tertuna, 1 msk. Season-All
kryddi dreift yfir, 8 sneiðum
af osti raðað ofan á tertuna.
Bakið í 30 mín. við 150°C.
Rúgbrauðsterta
að hætti Guðlaugar Sigurðardóttur
4 egg
200 gr. sykur
140 gr. rifið rúgbrauð
60 gr. hveiti
1½ tsk. ger
1 msk. kakó
Fylling:
3 epli
1-2 bananar
Sítrónusafi
2½ dl. rjómi
Egg og sykur þeytt ljóst og
létt. Rifið rúgbrauð, hveiti,
ger og kakó sett varlega
saman við. Bakað við 180°
í 10-15 mín.
Botnarnir kældir.
Í kremið eru eplin rifin
niður, bananinn stappaður
og sítrónusafinn settur í.
Þetta er sett saman við
þeytta rjómann og sett á
milli botnanna. Rjómi 2
1/2 dl settur ofan á tertuna,
skreytt með After Eight
plötum sem skornar eru
horn í horn.
Einnig má nota hindber
saman við rjómann á
milli botnanna og ofan á
kökuna. Látið standa í kæli
yfir nótt.