Feykir - 04.04.2012, Blaðsíða 8
Opið laugardag frá kl. 10-16
Gleðilega páska Gleðilega páskaGleðil ga páskaGleðilega páskaGleðilega páska
Gleðilega páska
...allt fyrir páskana.
Aldarafmæli USAH
Kaka og
keppni
Föstudaginn 30. mars varð
Ungmennasamband Austur-
Húnvetninga hundrað ára
og af því tilefni var blásið til
veislu í Íþróttamiðstöðinni
á Blönduósi daginn eftir, á
laugardeginum.
Margt var á dagskrá þar sem
aðildarfélögin kynntu starfsemi
sína, héldu mót og saga sam-
bandsins var sögð í fjölda
mynda frá gamalli tíð. Nú felst
starfsemi sambandsins aðallega
í því að vera regnhlífarsamtök
fyrir aðildarfélögin sem eru tíu
talsins og starfa í hinum ýmsu
íþróttagreinum.
Blaðamaður Feykis var á
staðnum og fangaði stemning-
una með myndavélinni. /PF
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is
14
TBL
4. apríl 2012 32. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Aldís Embla sigurvegari í ljóðasamkeppninni. Klifurveggurinn var vinsæll meðal unga fólksins.
Að sjálfsögðu var afmælisterta skorin niður handa gestum.
Svo var tekið á því í sundlauginni.
Eitthvað forvitnilegt er hér á skjánum.
Það var vel þegið að fá tertu og Svala.
Þessir tveir heiðursmenn voru ekki að bíða eftir að
komast í klifurvegginn.