Feykir - 07.02.2013, Page 3
05/2013 Feykir 3
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hafðu samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
FNV fær góða gjöf
Eykur notagildi
hátæknivélar Vaxtarsamningur Norðurlands vestra
óskar eftir umsóknum um styrki
Umsóknarfrestur er til kl. 17:00 föstudaginn 1. mars 2013
Sækja skal um með rafrænum hætti á eyðublöðum
sem fást á vefsíðunni http://www.ssnv.is
Á vefsíðunni liggja frammi úthlutunarreglur og nánari upplýsingar.
Einnig er velkomið að hafa samband með vefpósti á netfangið
kata@ssnv.is eða hringja í Katrínu Maríu í síma 455 6119.
Áherslur Vaxtarsamnings Norðurlands vestra 2011 – 2013 lúta einkum að uppbyggingu
samstarfs og framgangi rannsókna og vöruþróunar á eftirfarandi sviðum:
• Ferðaþjónustu og menningartengdum verkefnum.
• Auðlindalíftækni og uppbyggingu þekkingarsetra.
• Matvælum
• Sameiginlegum verkefnum sem unnin eru með öðrum vaxtarsamningum í
landinu og/eða verkefnum innan þeirra.
Að auki er horft sérstaklega til verkefna sem:
• Vel eru til þess fallin að stuðla að fjölbreyttari atvinnutækifærum fyrir konur og
ungt fólk á svæðinu.
• Stuðla að nýtingu auðlinda svæðisins til atvinnusköpunar á Norðurlandi vestra.
• Stuðla að virðisaukningu á sviði matvælaframleiðslu.
Verkefnin sem styrkt verða þurfa að fela í sér eflingu starfsemi viðkomandi aðila og vera til þess
fallin að fjölga störfum á Norðurlandi vestra og/eða auka þekkingu innan svæðisins.
Verkefnin skulu unnin í samstarfi þriggja eða fleiri aðila. Skilgreina skal hlutverk og framlag hvers
samstarfsaðila.
Markmið, framtíðarsýn, framvinda og árangursmat verkefnanna skal vera vel skilgreint.
Reikningshald vegna verkefnisins þarf að vera aðskilið öðrum rekstri umsækjenda.
Stuðningur við verkefnið getur verið allt að 50% af áætluðum heildarkostnaði þess.
Gerður er sérstakur verksamningur um framkvæmd verkefna sem hljóta stuðning, þar er nánar
kveðið á um framvindu, greiðslur og tímasetningar.
Ekki er heimilt að veita styrki til fjárfestinga í fyrirtækjum eða til reksturs fyrirtækja eða opinberra
stofnana, auk þess sem stofnkostnaður er ekki styrkhæfur.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel úthlutunarreglur og önnur gögn
varðandi samninginn. Umsóknin og fylgiskjöl hennar skulu vera á íslensku.
Skagfirðingar í Útsvari
Sigruðu Hornfirðinga
Skagfirðingar sigruðu Útsvarið gegn liði Hornfirðinga sl.
föstudag eftir æsispennandi þátt en úrslitin réðust ekki fyrr
en á lokaspurningunni.
Lið Skagafjarðar sigraði með þriggja stiga mun og var
lokastaðan 53-50. Skagfirðingar eru því komnir áfram í átta liða
úrslit og mæta næst Snæfellsbæ. /BÞ
Málmiðnadeild FNV hefur
borist góð gjöf frá
Skagafjarðarveitum sem
eykur notkunarmöguleika
CNC fræsivélarinnar til
mikillar munar til hverskonar
smíði. Gjöfin er patróna ofan
á 4. og 5. ásinn en í hana er
smíðastykki fest.
Að sögn Geirs Eyjólfssonar
kennara er nú loksins hægt að
nota alla möguleika vélarinnar
sem er ein af nýrri vélum
hátæknisetursins.
-Þessi gjöf hefur komið sér
afskaplega vel og gott að vita af
svona velvilja fyrirtækja í
bænum, segir Geir. Á
myndinni er Gunnar Björn
Rögnvaldsson frá SKV á milli
kennaranna Björns Sighvatz,
og Geirs Eyjólfssonar. /PF
Lið Skagfirðinga í Útsvari. Guðný Zoëga, Guðrún Rögnvaldardóttir og Sveinn Margeirsson.
Skjáskot af Rúv.is.
Gjöfin mun koma sér vel í kennslu Hátæknimenntasetursins.
Höfum hafið flug á ný
Þökkum
góðar móttökur
EYJAFLUG
Sauðárkrókur – Reykjavík
Mánudaga kl. 09:00
Þriðjudaga kl. 09:00 og 18:15
Fimmtudaga kl. 09:00 og 18:15
Föstudaga kl. 18:15
Sunnudaga kl. 18:15
Reykjavík – Sauðárkrókur
Mánudaga kl. 07:45
Þriðjudaga kl. 07:45 og 17:00
Fimmtudaga kl. 07:45 og 17:00
Föstudaga kl. 17:00
Sunnudaga kl. 17:00
ÁÆTLUNARFLUG EYJAFLUGS ER SEM HÉR SEGIR:
www.eyjaflug.is