Feykir


Feykir - 07.02.2013, Blaðsíða 11

Feykir - 07.02.2013, Blaðsíða 11
05/2013 Feykir 11 FE Y K IL EG A F Lo tt a a FÞ r Ey In g a r H o r n Ið Já , r ey nd u þi g vi ð þe tt a! Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina má kúra fram að hádegi um helgina. Tilvitnun vikunnar Ef þú heldur að öllum sé sama hvort að þú sért til, þá skaltu prófa að sleppa því að borga af bílnum nokkrum sinnum. – Earl Wilson Ótrúlegt en kannski satt Sudoku Þúsundir blóðsuga eru notaðar í bráðatilvikum á hverju ári. Þær eru helst notaðar til að örva blóðflæði til ágræddra líkamshluta svo sem fingur og tær, eða eftir umfangsmiklar húðágræðslur vegna brunasára. Ótrúlegt en kannski satt var þessi læknisaðferð vel þekkt fyrir daga frelsarans. Svanbarði guðmundhallur gröfumaður var draumatengdasonur hverrar móður. En Svanbarði var góðmenni og gat ekki hugsað sér giftast, hann gat bara ekki gert öllum hinum það. Því gróf hann einungis eigin gröf. Hinrik Már Jónsson Örlaga örsögur Guðmundur JónSSon -Já, ég ætla á þorrablót hjá Kormáki á Hvammstanga. Benedikt AxelSSon -Já, í Víðihlíð. lAurA Ann HowSer oG GunnAr leifSSon -Við fórum á þorrablót hjá hestamannafélaginu Þyt. Það var mjög skemmtilegt, fyrir fólk á öllum aldri. Guðrún HelGA mAGnúSdóttir -Já, ég fer í Ásbyrgi þann 16. febrúar. Krossgáta Feykir spyr... Ferðu á þorrablót? [Spurt á Hvammstanga] Hjaltadalinn. Ég keyri á bæina og safna mjólkinni úr mjólkurtönkunum og þegar bíllinn er orðinn fullur keyri ég í mjólkursamlagið og losa bílinn. Stundum þarf ég að fara 2-3 ferðir, fer allt eftir mjólkurmagni. Miðað við mjólkurmagnið núna á þessum árstíma þá er ég að safna um 130.000 lítrum á viku. Þegar búið er að losa bílinn eftir síðustu ferð þarf ég að setja þvott á tankinn og þrífa bílinn einnig að utan. Það má segja að þetta sé svona venjulegur vinnudagur hjá mér. Hvað er gert í kaffitímum? -Ég tek kaffi- tíma þegar ég kem í bæinn til að losa bílinn og þá skellir maður í sig brauðsneið og kakóglasi. Hvernig eyðir þú hádegishléinu? -Ef ófærð eða hálka tefur mann ekki þá er ég yfirleitt kominn heim í kringum hádegið og fæ mér að borða heima. Hvað er best við starfið? -Vinnutíminn, vera kominn snemma heim og geta átt daginn með fjölskyldunni. Ef þú þyrftir að skipta um starf hvað gætir þú hugsað þér að gera? Þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni. (Sérstaklega vinna við að leita að ísbjörnum). Eitthvað minnisstætt úr vinnunni sem þú vilt deila með lesendum? -Maður hefur lent í að fá margar fuglategundir framan á bílinn þegar maður er á keyrslu en ætli sé ekki minnistæðast þegar ég fékk gæs í framrúðuna. Það kom ansi góður smellur en þó slapp rúðan þrátt fyrir þetta dúndur. Svo hafa nokkur umferðaróhöpp átt sér stað beint fyrir framan nefið á manni ef svo má segja, útafkeyrslur, keyrt á skilti og aðilar misst „dót“ af sleðakerrunum hjá sér. En það hefur nú ekkert alvarlegt komið fyrir sem betur fer. Þórður Ingi Pálmarsson Fékk gæs í framrúðuna Þórður Ingi Pálmarsson á Sauðár- króki hóf störf sem mjólkurbílstjóri hjá Mjólkursamlagi Kaupfélags Skagfirð- inga í desember árið 2007. Áður starfaði hann við pípulagnir hjá KÞ lögnum á Sauðárkróki en gæti vel hugsað sér að gerast þyrluflugmaður ef tækifæri gefst. Þórður fer snemma á ról því venjulegur vinnudagur hjá honum hefst á bilinu kl. 4:00-6:00 á morgnana, eftir því hvaða vikudagur er. Þórður svarar hér nokkrum spurningum um það hvað hann gerir frá morgni til kvölds og við byrjum á því að forvitnast um hvað hann fær sér í morgunmat. -Það er nú ekki mikið um morgunmat í þessari vinnu... maður er nú kannski ekki mjög svangur á nóttunni þegar vinnudagur byrjar. Maður grípur kókómjólk eða litla súrmjólk og sötrar í bílnum á leið á fyrsta bæ! Hvernig myndir þú lýsa venjulegum vinnudegi hjá þér? -Vakna á bilinu kl. 4:00-6:00, mæti niður í Samlag og byrja á því að taka til mjólkurpantanir frá bændum. Legg síðan af stað í sveitina, en ég keyri á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum í Blönduhlíðina og Hegranesið en á þriðjudögum og fimmtu- dögum fer ég í Hjaltadalinn. Annan hvern laugardag tek ég svo Fljótin og FRÁ MORGNI TIL KVÖLDS UMSJÓN palli@feykir.is Hver ekur eins og ljón? Þórður við mjólkurbílinn.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.