Feykir - 29.08.2013, Blaðsíða 8
8 Feykir 32/2013
„Við getum lært svo margt
af ykkur í Skagafirði“
Simonetta Melinelli frá Ítalíu kynnti sér
atvinnuúrræði fyrir ungt fólk
Auk þess að vera kennari starfar
Simonetta við miðstöð starfs-
náms (Vocational Training
Department) sem skipuleggur
ólaunað starfsnám á sumrin.
Sextíu sveitarfélög með saman-
lagt 325 þúsund íbúa standa að
miðstöðinni. Sjálf kemur hún
frá bænum Viterbo sem er
frekar stór bær með um 60
þúsund íbúa. Þar er mikið
atvinnuleysi, einkum meðal
ungs fólks. Ásamt þessum
störfum hefur Simonetta verið
tileinki sér góð vinnubrögð.
Það gefur þeim líka tækifæri til
að öðlast nýja færni og þjálfa þá
færni sem fyrir er,“ segir
Simonetta.
Á tveimur og hálfri viku
hefur Simonetta skoðað margt
en þrátt fyrir að yfirferðin væri
mikil telja hún og Þorvaldur að
tíminn hafi nægt til að skoða
og kynna sér innviði sveitar-
félags af þeirri stærðargráðu
sem Skagafjörður er. Útlit er
fyrir að í framhaldinu verði
umtalsverð tengsl milli Sauðár-
króks og Viterbo. Simonetta sér
ýmsa aðra möguleika á
samstarfsverkefnum og nefnir
m.a. barokktónlist, en slíkar
tónlistarhátíðir eru haldnar
árlega á Hólum í Hjaltadal og
einnig á hennar heimaslóðum.
Eru þau Þorvaldur sammála
um að möguleikarnir og hug-
myndirnar séu óteljandi.
Í ferðinni hefur Simonetta
fengið margar hugmyndir um
hvernig sveitarfélög í hennar
heimalandi geta eflt þjónustu á
ýmsum sviðum, ekki síst
þjónustu við fatlaða, börn og
eldri borgara. „Við þurfum
alltaf að reyna að gera betur við
okkur viðkvæmustu borgara,“
segir hún. Einnig vakti
Farskólinn, sem er miðstöð
símenntunar á Norðurlandi
vestra, athygli hennar. Aðgang
að námi á heimaslóð segir hún
ekki eins góðan eins og hér,
fólk þurfi oftast að flytja
búferlum til að sækja nám við
hæfi. Þá kynnti hún sér
sjálfsmatskerfið Gæðagreinar,
sem er að skoskri fyrirmynd og
er notað í skólastarfi grunn-
skólanna í Skagafirði. FAB-
LAB vakti líka áhuga
Simonettu, en hún segir ný-
sköpunarmiðstöðvar finnast
annars staðar á Ítalíu en ekki í
sínu heimahéraði. Hún nefnir
líka sérstaklega áhrifamátt
kvenna, og telur íslenskar
konur mjög virkar í atvinnulífi
og karlmennina viljuga til að
taka á sig skyldur sem snúa að
heimili og börnum. Auk þess
að hrífast af því sem verið var
að skoða naut Simonetta
landsins og náttúrunnar, fjall-
anna, hveranna og siglinganna
sem hún fór í.
Öllu þessu mun Simonetta
reyna að koma á framfæri við
ráðamenn í sínum heimabæ
með myndbandi sem hún
hefur unnið að í ferðinni og
segir að margt megi læra af því
hvernig hlutirnir eru gerðir í
Skagafirði. Myndbandið verð-
ur einnig aðgengilegt fyrir
Skagfirðinga og aðra áhuga-
sama gegnum heimasíðu
sveitarfélagsins. Aðspurð segir
Simonetta alltaf erfitt að
innleiða nýjar hugmyndir,
maður verði að trúa á þær og
og halda þeim til streitu og það
ætlar hún að gera með ýmsum
aðferðum, svo sem ráðstefnu,
viðtölum, skýrslum og fleiru.
Þannig vonast hún til að vekja
alla vega áhuga einhverra sem
hafa áhrif og segist vön því
gegnum kennslustarfið að fá
aðra til að hlusta á það sem hún
hefur að segja. Áformuð er
ráðstefna á Ítalíu í september,
þar sem ýmsir fulltrúar vinnu-
málastofnana og sveitarfélaga
og aðrir sem koma að atvinnu-
málum ungs fólks munu sitja
og þangað munu 1-2 fulltrúar
frá Skagafirði fara og taka þátt.
Simonetta fylgdi ungmenn-
um sem voru að aðstoða við
Sumar-T.Í.M. í störfum sínum.
Hreifst hún mjög af fjölbreyttu
framboði námskeiða þar sem
ungmenni aðstoða yngri
krakka og þjálfa um leið eigin
færni og jafnvel spreyta sig á
því sem þau langar að starfa við
í framtíðinni. Einnig fannst
henni til fyrirmyndar að láta
þau spreyta sig á störfum með
leikskólabörnum, öldruðum
og fötluðum.
Það sem Simonetta telur að
íslenskir unglingar gætu helst
lært af ítölskum jafnöldrum
sínum er að vera opnari og
kynnast auðveldlega öðru fólki.
Telur hún að það gætu orðið
eins konar hliðaráhrif af
verkefninu. „Ef til vill er það
karaktereinkenni hjá okkur, við
erum mjög félagslynd og opin
og sýnum auðveldlega tilfinn-
ingar. Unglingunum sem ég
hitti hér fannst ég stundum
barnaleg þegar ég sýndi
hrifningu mína og tilfinningar
á því sem við vorum að gera.
Þegar maður er ánægður með
eitthvað á maður að láta alla
vita af því,“ segir Simonetta.
Simonetta útskýrir að
Europe 20/20 séu ung-
mennaskipti sem felist í að
fara á milli landa og læra af
menn-ingu annarra, að víkka
út hugann eins og hún orðar
það, en Stretch the mind var
einmitt nafnið sem María
Björk valdi á samstarfs-
verkefnið á sínum tíma.
Áhersla er á að öðlast nýjan
fróðleik úr ólíkri menningu.
„Því ólíkara sem fólk er, því
meira geturðu lært af því. Það
er kannski erfiðara, af því þið
deilið ekki sama uppruna, en
það getur að sama skapi verið
mjög áhugavert,“ sagði
Simonetta að lokum. /KSE
Simonetta Melinelli, kennari frá Ítalíu, heimsótti nýlega sveitarfélagið
Skagafjörð í því skyni að kynna sér hvernig staðið er að atvinnu-
úrræðum fyrir ungt fólk á aldrinum 13-20 ára. Einnig kynnti hún sér
fleiri svið í starfsemi sveitarfélagsins, svo sem öldrunarþjónustu og
þjónustu við fatlaða. Simonetta segir margt mega læra af
heimsókninni og að á þessum sviðum standi Skagafjörður hennar
heimabæ, Viterbo á Norður-Ítalíu, mun framar. Blaðamaður hitti
Simonettu og Þorvald Gröndal hjá Húsi frítímans daginn áður en
Simonetta sneri aftur heim, uppfull af hugmyndum sem hún hefur
áhuga á að innleiða þegar heim er komið.
Sumar-TÍM var meðal þess sem Simonetta kynntist í heimsókn sinni.
verkefnastjóri og tekið þátt í
ýmsum evrópskum verkefnum.
Heimsókn Simonettu er hluti af
verkefni innan Evrópu unga
fólksins. Hún segir forsöguna
vera þá að hún og María Björk
Ingvadóttir, sviðsstjóri hjá
sveitarfélaginu, hafi hist á
ráðstefnu á vegum Youth in
Action á Írlandi í september
2012. Simonetta hreifst af
atvinnuúrræðum fyrir ungt
fólk sem María Björk sagði frá á
ráðstefnunni, en þar kom fram
að hér væru um 98% ungs fólks
í launuðum störfum yfir
sumarið. Fannst henni sú
reynsla sem María Björk
greindi frá vera mikilvæg og
góð leið til að kenna ungu fólki
að vinna og öðlast nýja færni og
virka hvetjandi fyrir þau.
„Mér fannst það áhugavert
og hafa mikið forvarnargildi að
sveitarfélagið skuli útvega ung-
mennum vinnu. Ef þau eru
atvinnulaus eru þau mikið ein
heima og fara að láta sér leiðast
á daginn. Þá er meiri hætta á að
þau leiðist út í óreglu. Það að
hafa vinnu eykur líka sjálfstraust
þeirra og gefur þeim ákveðna
von til framtíðar. Því fyrr sem
þau kynnast því að vinna í
hefðbundnu vinnuumhverfi,
því meiri líkur eru á að þau
Þorvaldur Gröndal forstöðumaður Húss frítímans og Simonetta Melinelli.