Feykir


Feykir - 21.11.2013, Blaðsíða 5

Feykir - 21.11.2013, Blaðsíða 5
44/2013 Feykir 5 Fátt er skemmtilegra en að slíta sig frá amstri hversdags- ins (og misleiðinlegri sjónvarpsdagskrá) eina kvöldstund og hlæja í leikhúsi. Undirrituð skellti sér á frumsýningu á „Sorrý ég svaf hjá systur þinni,“ í uppsetningu leikfélags NFNV og leikstjórn Guðbrands Ægis Ásbjörnssonar. Skemmst er frá að segja að sýningin var hverrar krónu virði og gaman að sjá hversu vel allt small saman. Sjálf er ég ein af þeim sem hef gaman af „gelgjumyndum“ og höfðaði þetta verk, sem er skrifað af ungmennum um vandamál unglingsáranna, ágætlega til mín. Í stuttu máli fjallar verkið um systkini sem flytjast á mölina og gæti gerst hvort heldur sem er í nútíma eða fyrir fáeinum áratugum. Þau kljást við hefðbundin vandamál ungl- ingsáranna en lenda hvort í sínum vinahópnum, þar sem mismunandi lögmál ráða ríkjum. Auk töffaranna og „gothanna“ má líka finna nördahóp í skólanum og fjallar verkið einkum um samskipti þessara ólíku hópa og unglingsástir, auk þess sem fjölskylda systkinanna kemur við sögu. Sagan sem slík er nokkuð sannfærandi og hefur verið staðfærð í skagfirskt umhverfi, auk þess sem manni skilst að orðbragðið hafi verið snurfusað svo hæfði betur öllum aldurshópum. Að mínu mati geta allir aldurshópar haft gaman af. Leikstjóranum, sem er reynslubolti á sínu sviði, hefur lánast vel að ná því besta út úr hverjum og einum og á það ekki síst við um aukahlutverkin, sem buðu mörg hver upp á skemmtilega karaktera. Þó erfitt sé að velja úr þá má ég til með að nefna sérstaklega Iðunni Helgadóttur í hlutverki ljóskunnar Höllu, Jóndísi Ingu Hinriksdóttur í hlutverki ömmunnar, Stellu Dröfn Bjarnadóttur í hlutverki Höllu, Inga Svein Jóhannsson í hlutverki Sindra „goth“ og Elínu Önnu Olsen í hlutverki nördsins Dagbjartar. Í aðal- hlutverkunum fjórum gæti ég trúað um vant fólk að ræða, sem skilaði sínu með prýði. Margir fleiri sýndu frábæra takta og kæmi mér ekki á óvart þó við ættum eftir að sjá margt af þessu unga fólki oftar á sviði. Það var líka sérstaklega ánægjulegt að langflestir voru mjög skýrmæltir og töluðu á hæfilegum hraða. Svona til að setja sig í stellingar gagnrýnandans, þá var kannski helst að manni væri farið að blöskra einhæft og kolvetnaríkt matarræði fjöl- skyldunnar, en kannski var það partur af gríninu. Þá truflar það mig dálítið þegar leikarar eru ekki í skóm, en það kann að eiga sér einhverjar skýringar líka. Það sem uppúr stóð var sú löngun að vera orðin átján aftur og taka þátt í sýningunni, sem minnti á gamla og góða tíma í Bifröst með leikklúbbi NFNV. Það er einmitt ánægjulegt að aftur skuli vera kosið að setja upp sýningar í Bifröst og var það að skilja á leikstjóra að það kæmi sér vel fyrir skipulag skólastarfsins, auk þess sem í Bifröst er góð aðstaða og allt til staðar. Óneitanlega er leik- hússtemmingin þar meiri heldur en á sal skólans. Hönnun leikmyndar og lýsing var einnig í höndum leikstjórans og þar tókst vel til að gera einfalda og hlutlausa leikmynd sem auðvelt var að skipta á milli, enda um mörg stutt atriði, -og eiginlega sketsa á köflum- að ræða. Lýsingin þjónaði vel sínu hlutverki og létt tónlist þar sem textarnir tengdust atriðunum komu líka ágætlega út og héldu stemm- ingunni á meðan skiptingar fóru fram. Vinna hljóð-, ljósa- og sviðsmanna virtist líka ganga snuðrulaust fyrir sig, sem er sérlega mikilvægt þegar um tíðar skiptingar er að ræða. Það er líka ástæða til að hrósa fyrir búninga, leikmuni, hár og förðun, allt var þetta sannfærandi og hæfði tíman- um og persónunum vel. Sömuleiðis tókst vel til með ljósmyndir, leiksskrá og veggspjald, allt skiptir þetta máli í heildarmyndinni. Það er líka gaman að geta sagt frá því að allt er þetta unnið af nem- endum sjálfum, undir dyggri stjórn leikstjóra. Stundum er fjölmiðlaum- fjöllun á þann veg að æska landsins sé á vonarvöl og framtíðin því lítilfjörleg að því er virðist. Kvöldstund með skagfirskum og húnvetnskum ungmennum, sem hafa kosið að verja tíma sínum í upp- byggilegt menningarstarf, blæs manni hins vegar bjartsýni í brjóst. Kristín Sigurrós Einarsdóttir Skemmtileg kvöldstund Leikhópur NFNV :: Sorrý, ég svaf hjá systur þinni ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/sport Körfubolti karla :: Hamar - Tindastóll 73-94 Enn einn öruggur sigur Tindastólsmenn léku við Hamar í Hveragerði í 1. deild karla í körfubolta sl. fimmtu- dag og fóru glaðbeittir heim á Krók með stigin tvö. Lokatölur 73-94. Stigahæstur í liði Tindastóls var Antoine Proctor með 21 stig en hann hirti einnig níu varnarfráköst. Ellefu af stigum Proctors voru af vítalínunni. Þá var Flake öflugur með 20 stig og 11 fráköst og Helgi Margeirs var með 19 stig. Tindastóll gerði 32 stig úr vítum í 42 tilraunum en heimamenn fengu aðeins 20 víti og skoruðu úr 14. Stigahæstur heimamanna í Hamri var Danero Thomas sem gerði 25 stig Stig Tindastóls: Proctor 21, Flake 20, Helgi Margeirs 19, Helgi Viggós 13, Pétur 9, Sigurður 5, Páll 3 og Ingvi Rafn og Ingimar 2 hvor. Næsti leikur Stólanna verður háður á morgun er þeir mæta ÍA í Síkinu og hefst leikurinn kl. 19:15. /ÓAB Sigruðu í fjórum greinum Átjándu Silfurleikar ÍR voru haldnir í Laugardalshöllinni í Reykjavík laugardaginn 16. nóvember sl. og var metþátttaka. Leikarnir eru haldnir árlega til heiðurs Vilhjálmi Einarssyni og silfurverðlaunum hans í þrístökki á Ólympíuleik- unum 1956. Alls kepptu nú 772 börn og unglingar, 17 ára og yngri, frá 29 félögum og samböndum, víðsvegar að af landinu. Á heimasíðu Tindastóls segir að árangur Skagfirðinga hafi verið glæsileikur á leik- unum en þar unnust sigrar í fjórum greinum en alls stigu þeir tólf sinnum á verð- launapall. Fríða Ísabel Friðriksdóttir (15) sigraði í þrístökki og 60m grindahlaupi, varð í 2. sæti í 60m og 3. sæti í 200m. Þorgerður Bettína Friðriks- dóttir (16-17) sigraði í 60m grindahlaupi, varð í 2. sæti í 60m og 3. sæti í 200m. Guðný Rúna Vésteinsdóttir (11) sigraði í kúluvarpi. Sveinbjörn Óli Svavarsson (16-17) varð í 2. sæti í 60m grindahlaupi og 3. sæti í 60m. Vésteinn Karl Vésteinsson (14) varð í 2. sæti í kúluvarpi. Ragna Vigdís Vésteinsdóttir (16-17) varð í 3. sæti í hástökki. /PF Skagfirðingar góðir á Silfurleikum ÍR í frjálsíþróttum Körfubolti kvenna :: Stjarnan - Tindastóll 62-70 Fyrstar til að leggja Stjörnuna Stúlkurnar í Tindastóli urðu sl. laugardag fyrsta liðið í 1. deild kvenna til þess að vinna sigur á Stjörnunni. Liðin áttust við í Ásgarði í Garðabæ þar sem Tindastóll fór með 62-70 sigur af hólmi eftir æsispennandi og dramatískan leik. Stjarnan hafði yfirhöndina framan af leik og komst í 31-20 í 2. leikhluta en Tindastóll skoraði sjö síðustu stig hálf- leiksins og minnkaði muninn í eitt stig, 33-32. Spilandi þjálfari Tindastóls- liðsins, Tashawna Higgins, tók yfir í seinni hálfleiknum þar sem hún var með 20 stig, 8 fráköst og 9 stolna. Endaði með fernu; gerði 32 stig, tók 14 fráköst, stal 13 boltum og fiskaði 10 villur og geri aðrir betur. Linda Þórdís Róbertsdóttir var frábær í fyrri hálfeik og endaði leikinn með 12 stig og 10 fráköst og þá áttu Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir (10 stig) og Bríet Lilja Sigurðardóttir (11 stig, 5 fráköst og 5 stoðs.) fínan leik. Með sigrinum komst lið Tindastóls í fjórða sæti 1. deildar en stelpurnar hafa leikið fimm leiki, sigrað í þremur en tapað tveimur. /ÓAB Tashawna Higgins var með 32 stig og 14 fráköst gegn Stjörnunni.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.