Feykir


Feykir - 21.11.2013, Blaðsíða 6

Feykir - 21.11.2013, Blaðsíða 6
6 Feykir 44/2013 ( ÍÞRÓTTAGARPUR ) palli@feykir.is Björg Eva Steinþórsdóttir Frábær árangur á fyrsta bikarmótinu Björg Eva Steinþórsdóttir á Sauðárkróki keppti á sínu fyrsta móti í Módelfitness fyrir skömmu og náði þeim glæsilega árangri að landa 4. sætinu í sínum aldursflokki. Björg Eva segist ótrúlega sátt með árangurinn sérstaklega þar sem undirbúningurinn hafi ekki verið langur en hún ákvað að taka þátt rétt áður en niðurskurður hófst svo þetta fór fram úr björtustu vonum hjá henni. Björg Eva er fædd árið 1995 dóttir Höllu Tomma og Steinþórs Steinþórssonar Blöndhlíðings. Björg Eva er Íþróttagarpur Feykis. Íþróttagrein -Módelfitness – eða Bikinifitness eins og það er kallað úti. Íþróttafélag/félög: -Keppi nú reyndar bara sem einstaklingur, en alþjóðasambandið sem ég keppi innan er IFBB Helstu íþróttaafrek: -4. sæti á mínu fyrsta bikarmóti. Skemmtilegasta augnablikið: -Þegar ég fékk að heyra að ég hefði náð í top 6 á bikarmótinu. Neyðarlegasta atvikið: -Þau eru svo mörg. Nýlega bankaði ég upp á hjá manni sem keypti af mér klósettpappír í fjáröflun, hann kom til dyra - að sjálfsögðu með öll börnin sín með sér - og ég var varla búin að kveðja þegar ég flaug á hausinn á tröppunum hjá honum. Just my luck! Einhver sérviska eða hjátrú? -Ég trúi á það að liðnir ástvinir passi upp á okkur, ætli það flokkist ekki undir hjátrú. Svo er alveg bókað mál að það er búálfur heima sem felur dótið mitt! Uppáhalds íþróttamaður? -Úff.. held ég verði að segja bæði Nathalia Melo og Ashley Kaltwasser. Ef þú mættir velja þér andstæðing, hver myndi það vera og í hvaða grein mynduð þið spreyta ykkur? -Væri til í að taka Ísak, kærastann minn, í Sing Star. Hvernig myndir þú lýsa þeirri rimmu? -Það væri allavega ekki leiðinlegt að fylgjast með því! Helsta afrek fyrir utan íþróttirnar? -Þegar ég og nokkrar aðrar stelpur unnum Bodypaint á busaárinu, það var gott móment. Lífsmottó: -Memento mori... Erfitt að útskýra það á íslensku en þýðir í rauninni: mundu að við erum dauðleg. Helsta fyrirmynd í lífinu: -Vá, ég gæti nefnt svo ótrúlega marga ... í sportinu væri það líklega Margrét Edda Gnarr sem er fyrsti IFBB atvinnumaður okkar Íslendinga. Svo er alveg rosalega mikið af duglegu og sterku fólki í kring um mig sem hefur barist við erfiða sjúkdóma, andlega og líkamlega. Sum þeirra unnu, önnur ekki. Ég dáist að þessu fólki. Ætli ég verði ekki að nefna elsku vinkonu mína hana Hörpu Lind, hún er alveg klárlega ein af þeim. Hvað er verið að gera þessa dagana? -Ég er bara svona að starta rútínunni aftur eftir mót, og svo bara nóg að gera í skóla og vinnu. Hvað er framundan? -Massa prófin í desember og byrja í uppbyggingu ... já og hver veit nema ég byrji svo í janúar í niðurskurði fyrir Íslandsmótið um páskana. Mynd: Raggi H. ljósmyndun „Tækni og verkmenntun er það sem vantar á Íslandi nú þegar og í vaxandi mæli í framtíðinni.“ „Framboð á iðnmenntun er ekki fullnægjandi í skólakerfinu“. Fullyrðingar sem þessar heyrast gjarnan þegar rætt er um framhaldsmenntun á Íslandi. Einnig er mikið rætt um brottfall eða brotthvarf úr framhaldskólum og er það einnig tengt nokkuð við iðn- og verknám og talið að brottfallið sé ekki hvað minnst í þeim greinum. Mikill áhugi er á að breyta stöðu iðn- og verknáms og skapa því þann sess að útskrifuðum nemendum með starfsréttindi í hinum ýmsu greinum megi fjölga frá því sem nú er. Á undanförnum árum hafa verið gerðar athuganir, haldnar ráðstefnur og fundir, kynntar skýrslur og skipaðar nefndir til þess að vinna bráðan bug að því að leysa þetta mál. Stjórnmálamenn taka vart til máls um menntun öðruvísi en að mæla með því að iðn- og verknámi verði gert hærra undir höfði. Lítið gerist og lítið þokast. Staðreyndirnar tala sínu máli, útskrifuðum nemum fjölgar lítt og brotthvarf frá námi heldur áfram. Fleiri nefndir eru settar í málið og fleiri fundnir haldnir. Menn takast á um skýringar þar sem sumir væna ríkisvaldið og sveitarfélög um að tíma Hörður Ríkharðsson á Blönduósi skrifar Hugleiðing um iðn-, verk- og tæknimenntun ÁSKORENDAPENNINN UMSJÓN kristin@feykir.is aldrei að kosta því til sem það raunverulega kostar að skapa aðstöðu og forsendur fyrir nútímalegt og gott iðn-, verk- og tækninám. Sumir segja að það nám sem er í boði sé úrelt, staðnað, veki ekki áhuga hjá ungu fólki og fylgi ekki tækni og verklagsbreytingum sem orðið hafa í iðngreinum. Enn aðrir segja að störf sem þessi veki einfaldlega ekki áhuga ungs fólks, unga fólkið hafi meiri áhuga á ýmsu sem tengist bóklegu námi eða menningar- og listageiranum frekar en iðngreinum. Líklegt er að allar þessar skýringar eigi við að einhverju leyti en ég ætla að leyfa mér að bæta við skýringaflóruna eða kannski frekar hnykkja á einu atriði. Íslenskt samfélag í heild sinni er afar bóknámssinnað samfélag. Alltof oft styðjum við þá ímynd að „helstu“ bóknámsskólar landsins séu leiðandi menntastofnanir „bestu skólarnir“ og þar fari fram „besta námið“ og þess vegna hlýtur að leiða af sjálfu sér að þeir sem þangað komast séu svo heppnir að eiga síðan kost á besta háskólanáminu, bestu störfunum og besta lífinu. Við höfum tilhneigingu til að líta á aðra skóla sem síðri, annað nám en bóknámið sem síðra nám. Svo hart keppast grunnskólanemar og foreldrar þeirra við að komast í þessa skóla að þeir þurfa vart að líta við nokkrum nemanda með undir 8 í einkunn úr grunnskóla. Það sem þessir skólar eiga m.a. sammerkt er að þar er varla nokkru sinni lyft verkfæri við nám né nokkur hlutur smíðaður, byggður, rafsoðinn, sniðinn, saumaður, teiknaður eða hannaður. Þetta er alls ekki þessum skólum að kenna né nokkurn hlut við þá að sakast í einu eða neinu. Þessi staða er að stórum hluta vegna viðhorfa okkar þegnanna. Við öll, þegnar þessa lands, hvort heldur sem foreldrar, kjósendur, launþegar, skattgreiðendur eða í hvaða öðru hlutverki sem við kjósum að líta á okkur verðum að skoða okkar eigin viðhorf í þessu máli. Við verðum að skapa viðhorfsbreytingu með því að tala jákvætt um gildi iðn og verknáms. Við verðum að halda því á lofti að góð verkþekking er grundvallaratriði öflugs atvinnulífs og hluti af menningu hvers samfélags. Allir verða að vera með- vitaðir um að verkmenntun lokar engum dyrum á bóknám og ýmsir verk- fræðingar og hönnuðir skapa sér sess vegna þess að þeir standa styrkum fótum í verklegri hefð. Tökum höndum saman hvar sem við komum saman; á foreldrafundum, íþróttamótum, fermingar- veislum, vinnustöðum og hvar sem er í samfélaginu og tölum jákvætt um iðn,verk og tæknimenntun og breytum viðhorfum. - - - - - Ég skora á Ásdísi Ýr Arnardóttur, umsjónarmann dreifnáms á Blönduósi að lyfta penna næst. Fagnar 80 ára afmæli Hestamannafélagið Léttfeti varð 80 ára þann 13. apríl síðastliðinn og ætlar í tilefni af því að bjóða til afmælisfagnaðar næstkomandi laugardagskvöld í Tjarnarbæ. Að sögn Sigfúsar Snorrasonar formanns skemmtinefndar verður boðið upp á kaffi og kökur og létta dagskrá og hvetur hann félagsmenn til að fjölmenna og skemmta sér saman. Húsið opnar 19:30 en dagskrá hefst kl. 20:00. Fréttablaðið Feykir óskar Léttafetamönnum hjartanlega til hamingju með áfangann og mun hér eftir sem hingað til fylgjast af áhuga með afrekum þeirra á sviði hestaíþróttanna. /PF Hestamannafélagið Léttfeti

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.