Feykir - 20.04.2016, Blaðsíða 2
2 15/2016
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Auglýsingasöfnun: Sigríður Garðarsdóttir – siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tbl með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. & 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Feykir lengi lifi!
Við á Norðurlandi vestra státum af einu elsta héraðsfréttablaði
landsins en þann 10. apríl síðastliðinn voru 35 ár síðan fyrsta
tölublað Feykis leit dagsins ljós. Óslitið síðan hafa verið fluttar
fréttir og frásagnir af mannlífi landshlutans. Það hefur verið
gaman að rýna í gömul
Feykisblöð undanfarna
daga og rekast á kunnugleg
andlit á ýmsum aldurs-
stigum, í eldri árgöngun-
um má sjá ýmis tilbrigði
tískunnar - túberaða toppa
eða sítt að aftan - en í þeim
yngri hafa kannski bæst
við nokkur grá hár. Ég
rakst líka á eina mynd af
nýfæddum dreng á fæð-
ingastofunni fyrir um 15
árum sem sat svo fyrir á forsíðu Fermingablaðs Feykis í fyrra.
Fyrir mitt leyti þá er það einmitt viðmót barna við Feyki sem mér
þykir einna vænst um í þessu starfi og dásamlegt þegar ég mæti
einhversstaðar með myndavélina og heyri útundan mér: „Feykir er
kominn!!“ Þetta er einmitt fjársjóðurinn sem Feykir er, auk þess að
vera fjölmiðill sem vekur forvitni og ánægju á líðandi stundu þá
heldur hann utan um og varðveitir sögu fólksins á svæðinu.
Þær hafa verið margar skemmtilegar stundirnar við mín störf hjá
Feyki, eftirminnilegir viðmælendur og ekki síst samstarfsfólkið þar
sem alltaf hefur verið góður andi og stutt í glensið. Til dæmis á
meðfylgjandi mynd þar sem við Palli, sem þá var ritstjóri, pósum á
bolludaginn og Óli Arnar myndaði af mikilli snilli og setti á fésið.
Myndin vakti mikla kátínu og þá orti sr. Hjálmar Jónsson, einn
stofnenda blaðsins, svo eftirminnilega:
Sauðkrækingar brauðin baka
og bollur sínar alla vega.
Páll og Berglind bæði taka
bolludaginn alvarlega.
Ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki heyrt um Feyki áður en ég
kynntist mínum manni en ég er tengdadóttir Skagafjarðar, eins og
það kallast, og kem hingað norður úr borginni. En ég minnist þess,
áður en við fluttum hingað norður, þegar við heimsóttum tengdó -
að ég varð fljótlega vör við hvaða sess Feykir skipaði þar. Blöðunum
var aldrei hent og brottfluttu systkinin kepptust um að fá að vera
fyrst til að lesa blaðið. Ótal samskonar sögur hef ég fengið að heyra
af öðrum heimilum síðan ég byrjaði hjá Feyki, að blöðunum er
safnað saman, jafnvel í sumum tilfellum bundin inn, þau ganga
mann af manni og eru lesin í ræmur. Svona sögur hlýja manni um
hjartarætur. Þær segja manni að ekki bara sé fólki annt um blaðið
heldur er því annt um samfélagið sitt.
Fyrir þetta afmælisblað stefndum við saman stofnendum blaðs-
ins og fengum við Kristín samstarfskona mín að hlusta á sögur
nokkurra stofnendanna, og er sumum sögunum gerð skil á opnu
blaðsins. Það að stofna héraðsfréttablað var ekki auðveld fæðing,
þetta var hark og hörkuvinna, en allt vel þess virði að mér heyrðist,
þar sem blaðið lifir enn í dag. Útgáfustarfsemi hefur átt undir högg
að sækja um land allt undanfarin ár, sérstaklega eftir „bankahrunið“
svokallaða og fór Feykir ekki varhluta af því. En það er ánægjulegt að
segja frá því að undanfarna mánuði höfum við fundið fyrir auknum
byr og áskrifendum hefur farið fjölgandi.
Að halda úti blaði er ekki gert í gróðravon en með stuðningi
samfélagsins og áskrifendanna dafnar blaðið.
Feykir lengi lifi - húrra, húrra, húrra!
Berglind Þorsteinsdóttir, ritstjóri
Fáðu þér áskrift! Einungis 2.120 kr. fyrir fjögur blöð á mánuði,
stútfull af efni frá Norðurlandi vestra. Áskriftarsími er 455 7171,
einnig hægt að gerast áskrifandi inn á feykir.is eða senda beiðni á feykir@feykir.is
Brakandi ferskur
Feykir í 35 ár
Fáðu ferskan og flottan Feyki inn um bréfalúgunaí hverri viku
Þú gerist áskrifandi í þrjá mánuði
og færð 1 mánuð frían.
Eftir þrjá mánuði hringir þú og lætur vita ef þú vilt hætta.
Afmælisáskriftar-
tilboð
Feykir er eitt af elstu starfandi svæðisfréttablöðum
landsins í dag en það kom fyrst út árið 1981.
Blaðið kemur út vikulega.
Feykir er stútfullur af fréttum, viðtölum
og allskonar bráðhollri afþreyingu sem
gefur öllum Norðvestlendingum
nær og fjær hressandi innspýtingu
í dagsins önn.
Landstólpinn kom í hlut Álftagerðis-
bræðra og Stefáns Gíslasonar
Ársfundur Byggðastofnunar síðastliðinn föstudag
Ársfundur Byggðastofnunar
var haldinn í Miðgarði sl.
föstudag. Á fundinum var
m.a. tilkynnt um nýja stjórn
Byggðastofnunar, Landstólp-
inn afhentur, veittir styrkir úr
byggðarannsóknasjóði og
kynntar niðurstöður verkefna
í byggðaáætlun.
Áskoranir og aðgerðir í
byggðamálum voru megininn-
takið í ræðu sem Gunnar Bragi
Sveinsson sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra flutti á
fundinum. Einnig flutti Herdís
Á. Sæmundardóttir, formaður
stjórnar Byggðastofnunar ræðu
þar sem fram kom að gefin hefði
verið heimild til að hefja bygg-
ingu húss fyrir starfsemi stofn-
unarinnar á Sauðárkróki.
Á fundinum fór Julien Grun-
felder, sérfræðingur hjá Nord-
regio, yfir skýrslu sem kom út í
febrúar sl. og fjallaði meðal
annars um sérstöðu Íslands
samanborið við hin norrænu
löndin.
Nýja stjórn Byggðastofnunar
skipa þau Herdís Á. Sæmundar-
dóttir formaður, Einar E. Ein-
arsson varaformaður, Valdimar
Hafsteinsson, Ásthildur Sturlu-
dóttir, Karl Björnsson, Oddný
María Gunnarsdóttir og Sig-
ríður Jóhannesdóttir.
Kynnt voru þrjú verkefni í
byggðaáætlun. Var þar um að
ræða niðurstöður þjónustu-
könnunar á Norðurlandi vestra,
greiningarvinnu Nordregio og
Byggðastofnunar um aðgengi að
heilbrigðisþjónustu á Íslandi og
gögn Hagstofu Íslands um þró-
un atvinnutekna eftir atvinnu-
Anna Lea Gestsdóttir, Ingibjörg Sigfúsdóttir og Sigríður Þorgrímsdóttir. Þær Anna
Lea og Sigríður hafa veg og vanda af verkefninu Landstólpinn en Ingibjörg tók við
viðurkenningunni fyrir hönd Álftagerðisbræðra og Stefáns Gíslasonar. MYND: BYGGÐAST.
greinum og landsvæðum 2008-
2015.
Þá var úthlutun úr Byggða-
rannsóknasjóði kynnt á fund-
inum. Sjóðurinn var stofnaður
haustið 2014 og er fjármagnaður
af fjárlagalið byggðaáætlunar og
með framlagi frá Byggðastofn-
un. Til úthlutunar eru 10 mill-
jónir króna. Auglýst var eftir
umsóknum í sjóðinn í lok janúar
og umsóknarfrestur rann út
þann 6. mars. Alls bárust 15
umsóknir, samtals að upphæð
48,4 milljónir króna. Umsókn-
irnar voru afar fjölbreyttar og
uppfylltu flestar skilyrði sjóðsins.
Svæðisbundin áhrif íslenskra
háskóla, hagnýtt gildi framtíðar-
fræða við byggðaþróun, fjarbúar
og fasteignamarkaður á lands-
byggðunum og vinnusóknar-
mynstur og vinnusóknarsvæði á
Norðurlandi eru þau verkefni
sem stjórn Byggðarannsókna-
sjóðs ákvað að styrkja árið 2016.
Nánar má lesa um verkefnin á
heimasíðu Byggðastofnunar.
Einnig var samfélagsviður-
kenning Byggðastofnunar, Land-
stólpinn, afhent í sjötta sinn.
Að venju bárust fjölmargar
tilnefningar víðsvegar að af
landinu. Viðurkenningin kom að
þessu sinni í hlut Álfta-
gerðisbræðra og Stefáns Gísla-
sonar, listræns stjórnanda þeirra.
/KSE