Feykir - 20.04.2016, Page 10
10 15/20160
FJÖLBRAUTASKÓLI NORÐURLANDS VESTRA
Á SAUÐÁRKRÓKI
FÉL-2015 Félagsvísindabraut. Áhersla á samfélagsgreinar.
FJÖ-2015 Fjölgreinabraut. Áhersla á sérgreinar er í höndum nemanda.
HAG-2015 Hagfræðibraut. Áhersla á viðskipta- og hagfræðigreinar.
HES-2015 Hestabraut. Áhersla á sérgreinar hestamennsku.
ÍÞT-2015 Íþrótta- og tómstundabraut. Áhersla á íþróttir og uppeldisgreinar.
NÁT-2015 Náttúruvísindabraut. Áhersla á stærðfræði og raungreinar.
NÝT-2015 Nýsköpunar- og tæknibraut. Áhersla á skapandi greinar og listir.
GR. Grunndeild rafiðna,
GBM. Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina,
MG. Málmiðngreinar, fyrri hluti.
NÝT-2015 Nýsköpunar- og tæknibraut. Áhersla á skapandi greinar og listir.
KVT-2016 Kvikmyndatækni. Áhersla á sérgreinar kvikmyndagerðar.
BV8. Bifvélavirkjun *
HG. Hársnyrtiiðn *
HÚ8. Húsasmíði, verknámsbraut
HS8. Húsgagnasmíði *
RK9. Rafvirkjun
VS8. Vélvirkjun
VVA. Vélstjórnarbraut - A
VVB. Vélstjórnarbraut - B
FIT-2015 Fisktækni. Áhersla á sérgreinar fisktækni.
HEL-2016 Hestaliðabraut. Áhersla á sérgreinar hestamennsku.
MN. Meistaranámsbraut fyrir iðnsveina.
PLB-2016 Plastbátasmíði. Áhersla á sérgreinar trefjaplastsmíði.
PLT-2016 Plasttækni. Áhersla á sérgreinar trefjaplastsmíði.
SJ. Sjúkraliðabraut. *
SLÁ-2016 Slátraranám. Áhersla á sérgreinar slátrunar.
Smáskipa- Réttindi til skipstjórnar upp að 12 metrum.
nám
*Námsbrautir sem kenndar eru þegar eftirspurn er fyrir hendi.
Stúdentsbrautir:
Grunndeildir:
Framhaldsskólabrautir:
Iðnbrautir:
Starfsnámsbrautir: Námsframboð
Sími: 455 8000 :: www.fnv.is :: fnv@fnv.is
Hver stúdentsprófsbraut um sig er 200 nýjar námseiningar þar sem fullt nám telst vera 30
einingar á önn. Á hverri braut er 120 eininga kjarni, 45 einingar í sérgreinum brautar og 35
einingar í frjálsu vali. Á fjölgreinabraut eru þó 120 einingar í kjarna og 80 einingar í frjálsu vali.
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir / söngkona
Syngur gömul íslensk
dægurlög í sturtunni
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir býr í
Skógargötunni á Sauðárkróki en alin upp
í Sunnuhvoli í Hofsósi. Silla er ljómandi
góð söngkona sem hefur víða komið við
en er kannski þekktust fyrir frammistöðu
sína með eðalbandinu Contalgen Funeral.
Auk þess að syngja grípur hún í skeiðar,
greiður og jafnvel bein til gamans. Nú
í Sæluvikunni er Sigurlaug Vordís í
fylkingarbrjósti hópsins sem stendur fyrir
uppsetningu á tónlistarveislunni Árið er í
Íþróttahúsinu á Sauðárkróki.
Helstu tónlistarafrek? Já, ég veit ekki alveg
hvernig maður mælir það. Ég hef sungið
nokkrum sinnum fyrir forsetann, stigið á svið
með frábærum hljómsveitum og stórkostlegum
flytjendum, spilað á yndislegum íslenskum
tónlistarhátíðum eins og Aldrei fór ég suður,
Bræðslunni, Gærunni, Rauðasandi, Blúshátíð í
Reykjavík, V.S.O.T. og Iceland Airwaves. Það var
heldur ekkert leiðinlegt að spila með Of Monsters
and Men á Græna hattinum, Emiliönu Torrini á
Drangeyjar festivalinu og svona gæti maður talið
upp endalaust. En það að gefa út tvær plötur,
sem eiga eftir að lifa lengur en ég, er sennilega
það sem telst til afreka.
Hvaða lag varstu að hlusta á: Syngjandi
Stelpurokk með Todmobil. Aðeins að hita upp
nostalgíuna fyrir Árið er í Sæluviku.
Uppáhalds tónlistartímabil? Tímabilið þegar
DROTTNINGARNAR - GYÐJURNAR voru og hétu;
Ella Fitzgerald, Aretha Franklin, Billy Holiday og
Nina Simone.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa
dagana? Tónlist sem er ekki mjög mainstream
og ekki produceruð í drasl. Hráleiki og fílingurinn
„reherse more – edit less.“ Agent Fresco gaf út
æðislega plötu fyrir stuttu, eyrun
sperrtust næst-um því af við
fyrstu hlustun.
Hvers konar tónlist var hlust-
að á á þínu heimili? Foreldrar
mínir hlustuðu á mjög fjölbreytta
tónlist; Queen, Sinead O'Connor,
Megas, ýmsa karlakóra og
klassíska tónlist. Bróðir minn ól
mig upp á Pink Floyd, Bubba
Morthens, Iron Maiden og
Metallica. Mágkona mín kom
mér upp á Janis Joplin og Björk
og önnur systir mín var með
Wham! æði. Þannig að þetta var
afar fjölbreytt.
Hver var fyrsta platan/diskur-
inn/kasettan/niðurhalið sem
þú keyptir þér? Bigger,
Better, Faster, More
með 4 Non
Blondes.
Hvaða græjur varstu þá með? Heyrðu, Pana-
sonic sem gat spilað útvarp, vínil, kasettur og
geisladiska – aðal trendið þegar ég fermdist. En
vasadiskóið var látið hafa það óþvegið þangað til
ég fékk dýrgripinn. Ekki langt síðan að græjurnar
dóu.
Hvað syngur þú helst í sturtunni? Gömul íslensk
dægurlög eða æfi þau lög sem ég er að fara að
performa.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn?
SMS tónninn hans Vignis Kjartanssonar ;o) ...
Nei, það er ekkert lag sem eyðileggur fyrir mér
daginn. Maður bara slekkur eða lækkar svona
rétt á meðan.
Uppáhalds Júróvisjónlagið? Gleðibankinn er
algjör perla, en ég er samt glöðust með þá sem
hafa reynt að hrista aðeins upp í Júróvision eins
og Pál Óskar, Sylvíu Nótt, Lordy og finnska lagið
núna síðast.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu
hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð?
Earth, Wind and Fire.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni,
hvað viltu helst heyra? Á sunnudögum er
vínilspilarinn alltaf brúkaður. Þá hljóma Carol
King, Aretha Franklin, Memfis Mafían, Gunnar
Þórðar með fyrsta og öðrum kaffibollanum –
ótrúlega notalegt – en þegar líður á kaffibolla nr. 3
og nr. 4, þá er Sound City yfirleitt komin á fóninn.
Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heim-
inum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu,
á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér?
Shiiiiiii, svo agalega margir tónleikar sem kæmu
til greina en Foo Fighters með Fúsa hljómar
stórkostlega eða Tom Waits tónleikar með
meðlimum (rosalegt orð meðlimir)... allavega
meðlimum hljómsveitarinnar Contalgen Funeral.
Hvaða músík var blastað í bílnum þegar þú
varst kominn með bílprófið ?
Led Zeppelin, Weezer, Nirvana,
Eva Cassidy, Emiliana Torrini.
Nú er öllu bara blastað, finnst
best að hlusta á tónlist í bíl og
hlusta sennilega mest á tónlist í
bíl, mjög hátt stillt, sama hvaða
tónlist það er og sama hverjir eru
með mér í bílnum.
Hvaða tónlistarmaður hefur
þig dreymt um að vera? Þegar
ég var lítil þá var Ragga Gísla
my girl og er það enn. Svo hefði
verið gaman að vera uppi hérna
í denn og vera Ella Fitzgerald og
svo hefði ekkert verið verra að
vera Cyndi Lauper þegar hún
seldi 40 þús milljón diska...
Hver er að þínu mati besta
plata sem gefin hefur verið út? Heart
of Saturday Night með Tom Waits /
Nevermind með Nirvana. En ég fæ samt
líka alveg gæsahúð að hugsa til nýjustu
David Bowie plötunnar Black Star.
toppurinn
Vinsælustu lögin á
Playlistanum:
Life on Marz
DAVID BOWIE
Far away
EYVÖR PÁLS
Brennum allt
ÚLFUR ÚLFUR
Old man
NEIL YOUNG
Trouble
BELLSTOP
Paradísarfuglinn
MEGAS