Feykir


Feykir - 20.04.2016, Síða 12

Feykir - 20.04.2016, Síða 12
12 15/2016 Ari Jóhann Sigurðsson í Varmahlíð var ritstjóri Feykis á árunum 1987- 1988. Ýmsar breytingar áttu sér stað í stjórnartíð hans, meðal annars fór Feykir úr því að koma út á hálfsmánaðar fresti í vikublað. Á því tímabili var jafnframt birtur fyrsti hagyrðingaþáttur Feykis, í umsjón Guðmundar Valtýssonar, og hefur hann verið fastur liður í blaðinu alla tíð síðan en þáttur 662 var birtur í síðustu viku. Hvernig kom það til að þú varðst ritstjóri Feykis og hve lengi sinntir þú því starfi? VIÐTAL Berglind Þorsteinsdóttir -Einhvern tímann eftir miðja síðustu öld, það er svo langt síðan að maður þarf að kafa djúpt til að muna. Starfið var auglýst og ég sótti um, man nú ekki einu sinni hvort það voru einhverjir aðrir umsækjendur, en hvað um það, ég var ráðinn. Var þetta ekki 1987 eða 1988, jú held það, og vann við blaðið í tvö ár held ég. Þetta lagðist mjög vel í mig, en það voru breytingar í farvatninu. Þeim fylgdu Fyrrum ritstjórar rifja upp Feykisárin Ari Jóhann Sigurðsson ritstjóri 1987-1988 Ari Jóhann. MYND: ÚR EINKASAFNI Fingraförin ennþá ljós- lifandi á síðum blaðsins vaxtaverkir sem maður sá ekki fyrir. Þannig var að fram að þessu hafði Feykir verið gefin út hálfsmánaðarlega en fljótlega var farið að ræða um að gefa blaðið út vikulega. Vikuleg útgáfa kallaði á aukna vinnu, ekki síst við auglýsingasöfnun. Þá var einnig farið út í aukna fréttaöflun í Húnavatnssýsl- unum. Maður lagði mikla vinnu í þetta á þessum tíma, tölvur voru komnar skrifstofuna en samt var heilmikið unnið á ritvél. Þetta var oft á tímum erilsamt starf. Fjörugar umræður og pólitíkin oft ekki langt undan Fljótlega var komið að máli við mig að það vantaði vísnaþátt í blaðið. Sá sem kom með þessa hugmynd var að sjálfsögðu ráðinn til verksins. Guðmundur Valtýsson hefur síðan séð um þennan þátt til dagsins í dag. Svona geta einfaldar ákvarðanir sem teknar voru fyrir 28 árum síðan ennþá haft áhrif á mann- lífið og manns eigin fingraför ennþá ljóslifandi á síðum blaðsins. Maður kynntist mörgum einstaklingum á þessum tíma. Náið samstarf var við starfs- menn SÁST en þeir sáu um að prenta blaðið. Rétt er að geta þess að fyrir mína tíð var blaðið prentað á Akureyri en fljótlega eftir að ég tók við efldu SÁST menn vélakost sinn og tóku að sér prentun á blaðinu. Það var mikill áfangi að flytja þá vinnu á Krókinn og gerði prentsmiðj- unni auðveldara að fjármagna ný tæki til prentunar. Ég hafði ætíð aðstoðarfólk á skrifstofunni og á engan er hallað þó ég geti sérstaklega um Hauk heitinn Hafstað. Það voru sérstök forréttindi að fá að kynnast þeim merka manni. Stjórnarfundir voru haldnir reglulega í húsakynnum blaðsins og eru þeir mjög eftirminnilegir, þar kynntist maður skemmtilegum karakt- erum. Oft var pólitíkin ekki langt undan og fjörugar umræður um landsins gögn og nauðsynjar einkenndu þessa fundi. Þá voru einnig margir sem lögðu leið sína á skrifstofuna til að spjalla um málefni líðandi stundar, enda ætíð heitt á könnunni. Óskum Feyki fréttablaði á Norðurlandi vestra til hamingju með 35 ára afmælið Megi blaðið vaxa og dafna á komandi árum!

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.