Landshagir - 01.11.2009, Blaðsíða 394
394 LANDSHAGIR 2009 STATISTICAL YEARBOOK OF ICELAND 2009
Ritröðin Hagskýrslur Íslands
The series Statistics of Iceland
eftir að Hagstofa íslands tók til starfa í ársbyrjun 1914 tók
hún við opinberri hagskýrslugerð hér á landi og hóf útgáfu
Hagskýrslna Íslands. Hagskýrslur Íslands voru framhald þeirra
hagskýrslna sem út voru gefnar á árunum 1858–1912. fyrstu
innlendu hagskýrslurnar voru gefnar út af Hinu íslenska
bók mennta félagi á árunum 1858–1875. Árin 1874–1898
voru hagskýrslur birtar í Stjórnartíðindum, í B-deildinni árin
1874–1881 en í c-deildinni árin 1882–1898. Á þessu tímabili
birt ust skýrslurnar ýmist hver undir sínu heiti eða voru
nefnd ar einu nafni Landshags skýrslur. eftir 1898 var hætt
að birta þessar skýrslur sem hluta af c-deild Stjórnartíðinda.
í stað þess voru þær gefnar út sérstaklega og þá undir heitinu
Landshagsskýrslur fyrir Ísland. Þannig var útgáfunni háttað
árin 1899–1913 en þá tóku Hagskýrslur Íslands við.
fyrsta skýrslan í ritröðinni Hagskýrslur Íslands kom út
árið 1914 og voru það verslunarskýrslur fyrir árið 1912. Með
útkomu verslunarskýrslna fyrir árið 1949, sem gefnar voru
út árið 1951, var ákveðið að hæfist nýr útgáfuflokkur, merk-
tur ii. í upphaflega útgáfuflokknum voru þá komar út 130
skýrslur, en tvær skýrslur voru óútkomnar og birtust þær
síðar sama ár og árið eftir, þ.e. 1952. alls voru því 132 skýrslur
í þessum fyrsta útgáfuflokki. við gerð Verslunar skýrslna
1988 var broti og útliti Hagskýrslna Íslands breytt. Um leið
var ákveðið að þá hæfist þriðji útgáfu flokkurinn, merktur
iii, og kom fyrsta skýrslan í þeim flokki út í ársbyrjun 1990.
í öðrum útgáfuflokki höfðu þá verið gefnar út 89 skýrslur.
Ritið Landshagir 2009 er hundraðasta og önnur skýrslan í
iii. flokki Hagskýrslna íslands og jafnframt 323. skýrslan frá
upphafi ritraðarinnar.
When Statistics Iceland was found ed in 1914 it became respon-
sible for the publication of official Icelandic statistics. Statistics
Iceland published its first issue in the series Statistics of Iceland
later that same year. This series was in effect a continuation
of a previous and more or less regular publication of Icelandic
statistics that started in 1858.
In 1951 it was decided to continue the Statistics of Iceland in
a new series, labelled II. That series was maintained until the
lay-out and format of the publications was changed in early
1990 with the issue of foreign trade statistics for 1988. That issue
marked the beginning of series III of Statistics of Iceland.
In the first series 132 statistical reports were published in
the years 1914–1952. The second series published in 1951–1988
contains 89 reports. The present publication, Statistical Year-
book of Iceland 2009, is no. 102 in the third series, and no. 323
in the combined series of Statistics of Iceland.
Eldri skýrslur
Previous publication
Árbók Hagstofu íslands 1930. Reykjavík 1930–1931
tölfræðihandbók. Hagskýrslur íslands ii, 40. Reykjavík 1967
tölfræðihandbók 1974. Hagskýrslur íslands ii, 63. Reykjavík 1976.
tölfræðihandbók 1984. Hagskýrslur íslands ii, 82. Reykjavík 1984.
landshagir 1991. Hagskýrslur íslands iii, 5
landshagir 1992. Hagskýrslur íslands iii, 8
landshagir 1993. Hagskýrslur íslands iii, 15
landshagir 1994. Hagskýrslur íslands iii, 21
landshagir 1995. Hagskýrslur íslands iii, 32
landshagir 1996. Hagskýrslur íslands iii, 39
landshagir 1997. Hagskýrslur íslands iii, 47
landshagir 1998. Hagskýrslur íslands iii, 59
landshagir 1999. Hagskýrslur íslands iii, 65
landshagir 2000. Hagskýrslur íslands iii, 77
landshagir 2001. Hagskýrslur íslands iii, 82
landshagir 2002. Hagskýrslur íslands iii, 88
landshagir 2003. Hagskýrslur íslands iii, 96
landshagir 2004. Hagskýrslur íslands iii, 97
landshagir 2005. Hagskýrslur íslands iii, 98
landshagir 2006. Hagskýrslur íslands iii, 99
landshagir 2007. Hagskýrslur íslands iii, 100
landshagir 2008. Hagskýrslur íslands iii, 101