Landshagir - 01.11.2012, Page 421
LANDSHAGIR 2012 STATISTICAL YEARBOOK OF ICELAND 2012 421
Eftir hverjar alþingiskosningar, sveitar-
stjórnarkosningar og forsetakjör gefur
Hagstofa Íslands út kosningaskýrslu
þar sem greint er frá fjölda kjósenda
og kosningaþátttöku, framboðum,
kosningaúrslitum og kjörnum fulltrúum.
Þá hefur Hagstofan á sama hátt unnið
skýrslur um þjóðaratkvæðagreiðslur sem
fram hafa farið.
Þátttaka í forsetakosningum 69,3%
Forsetakjör fór fram 30. júní 2012. Við
kosningarnar voru alls 235.743 á kjör-
skrá eða 73,8% landsmanna. Af þeim
greiddu 163.294 atkvæði, 69,3% kjósenda.
Kosningaþátttaka karla var 65,8% en
kvenna nokkru hærri, 72,7%. Hlutfall utan-
kjörfundaratkvæða af greiddum atkvæðum
var óvenjuhátt eða 23,4%.
Sex frambjóðendur voru í kjöri til embættis
forseta Íslands, þau Andrea Jóhanna
Ólafsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson,
Hannes Bjarnason, Herdís Þorgeirsdóttir,
Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra
Arnórsdóttir. Úrslit forsetakjörs urðu þau
að Ólafur Ragnar Grímsson hlaut flest
atkvæði, 84.036 eða 52,8% gildra atkvæða,
og var hann því endurkjörinn forseti
Íslands fyrir tímabilið frá 1. ágúst 2012 til
31. júlí 2016.
Þátttaka í alþingiskosningum 85,1%
Kosið var til Alþingis 25. apríl 2009. Við
kosningarnar voru 227.843 á kjörskrá,
71,4% landsmanna, og kosningaþátt-
taka var 85,1%. Kosningaþátttaka kvenna
var 85,8% á móti 84,5% hjá körlum. Í
kosningunum buðu sjö stjórnmálasamtök
fram lista í öllum kjördæmum. Hlutfall
kvenna meðal kjörinna þingmanna var
42,9% en kjörnar voru 27 konur og 36
karlar. Aldrei fyrr hafa svo margar konur
verið kjörnar á þing, en þeim fjölgaði um
sjö frá kosningunum 2007.
22KosningarElections