Auglýsingablað Austurlands - 01.01.1908, Qupperneq 2
jUxstvxYtatiði,
nýbyrjaða blaðið á Eskifirði, eiga sem flestir Austfirðingar að kaupa. Það virð-
ist engin ofætlun fyrir Austfirðingafjórðung að bera tvö snrá blöð, sem ekki
kosta nema 3 krónur hvort.
Austurland er kostað af nokkrum mönnum í Suðurmúlasýslu, og er
vonandi að alþýða styðji þetta fyrirtæki þeirra með því að kaupa blaðið, svo
þeir geti haldið því áfranr.
Austurland flytur myndir að öðru hverju og hefir þegar flutt þessar
myndir: af konungi vorum, af 4 íslenskum stórkaupmönnum erlendis, þeim
Jakob Gunnlögssyni, Sigurði Jóhannessyni, Thor E. Tulinius, Garðari Gíslasyni.
í næstu blöðum koma myndir af millilandanefndarmönnunum, 7 sem ætla að
sigla í næsta mánuði.
Austurland hefir og í hyggju að birta myndir af-skattanefndinni sem
á að koma saman í Reykjavík í vetur. Sem sagt, Austurland verður að öðru-
um þræði myndablað.
Seyðfirðingar, sem vilja fá Austurland, eru beðnir að kaupa það hjá
Pétri bókbindara Jóhannssyni.
Fáskrúðsfirðingar eru beðnir að kaupa Austurland hjá Jóni Davíðssyni
verzlunarstjóra.
Norðfirðingar eru beðnir að kaupa Austurland hjá Einari hreppstjóra
eða Jóni Davíðssyni á Nesi.
Ekki er lítið um að vera fyrir blaðinu Austurlandi með auglýsingarnar.
Þær eru fyrst prentaðar í blaðinu í fallegri umgerð og með skrauti eftir öllum
lystarinnar reglum fyrir venjulegt verð, og svo lætur það prenta þær líka ó-
keypis í þessu blaði fyrir þá sem óska þess, og svo flytur þetta Iitla blað aug-
lýsingarnar þangað sem gisið er um kaupendur að »Landinu«, en fer eigi
þangað sem þétt er fyrir.
Kaupið Austurland. — Auglýsið í Austurlandi fyrir borgun, en borgun-
arlaust í Auglýsingablaðinu.
Heiðruðu Austfirðingar!
Orgel Piano
af öllum stærðum útvegar undir-
ritaður frá Jóni Pálssyni í Reykjavík.
Gjörið svo vel og snúið yður til
mín. Príslisíar til sýnis, með mynd-
um. Einum mánuði eftir að þið
pantið, getið þið fengið lijóðfærin
heim til yðar, eða á næstu liöfn.
Gæði þeirra hljóðfæra er Jón Páls-
son pantar eru óviðjafnanleg.
Reynzlan sannfærir.
Eskifirði, 1907.
Bjarni Eiríksson.
Bernskan
heitir íslenzkt smásögusafn handa ung-
lingum og börnum, eftir Sigurbjörn
Sveinsson á Akureyri. 10 arkir að
stærð.
Verð: 75 aurar.
Sögurnar eru léttar og liprar og á-
gætar til lestraræfinga.
Sigurður Jónsson barnakennari á
Seyðisfirði hefir stóra útsölu.
Páll Gíslason verzlunarstjóri á Fá-
skrúðsfirði liefir og útsölu á Bernsk-
unm.