Póstblaðið - 01.01.1914, Síða 1

Póstblaðið - 01.01.1914, Síða 1
PÓSTBLAÐIÐ Nr. 1 Janúar. 1914 Innihald: 1. Hið nýja hæjatal. 2. Hagstofa Islands. 3. Nýjar töflur til afnota við hreyting á upphæðum póstávísana tii i’rakklands og Þýzkalands. 4. Eftirrit af póstávísunum og dagstimplarnir. 5. Sérstakar hréfa- og bögglapóststofur í Eeykjavík og breyting á skráning með skipum. 6. Endursending á koffortum, pokum og frímerkjadósum. 7. Tilkynningar þegar skiftir um ,póstmenn. 8. Ný blöð, Morgunblaðið og Mjölnir. 9. Breytingar á töflunni C. 10. Utborgun póstávisana og gildi þeirra. 1. Eins og segir í Póstblaði nr. 6 f. á. hafa póstafgreiðslumönnum verið sendar skrár yfir bæi i hverjum hreppi í því skyni, að þeir endurskoðuðu þær, og sérstaklega Id þess að þeir skrifuðu við hvern bæ á hvaða bréfhirðing eða viðkoraustað hver bær sækir póstsendingar sinar, og bjóst eg við að póstafgreiðslumönnum væri það ljúft, þótt þeir auðvitað þyrftu að fá aðstoð bréfhirðingarmanna í sínu umdæmi, til þess að ákveða Þetta með fullri vissu. Þessvegna var og hver hreppur skrifaður á sérstakt blað, svo að póstafgreiðslumennirnir gætu látið það ganga til bréfhirðingastaðanna. Með því að gefa út bæjatal, sem sýndi á hvern bréfhirðingarstað hver bær sækir, þá geta þeir, sem þar búa, fengið að vita á hvern póststað þeir verða að fara, til þess að sækja sendingar til sín, ef þeir eða sendendur hafa eigi gjört aðra ráðstöfun, og þá fyrst geta sendendur blaða og bréfa skrifað póststaðinn á allar sendingar. Það mundi flvta fyrir öllum sundurlestri og gæti komið í veg fyrir missending fyrir ónákvæma utanáskrift, sem því miður hefir alt of oft átt sér stað, bæði hjá innlendum og sérstak- lega útlendum póstmönnum. Það litur svo út sem sumir póstafgreiðslumenn ætli að taka sér þetta létt, því að þeir hafa sent aftur skrárnar yfir bæina orðalaust og athugasemdalaust, enda þótt Póstblaðið nr. 6 1913 segi í hvaða skyni þær hafa verið sendar. Eg verð nú að senda þessar skrár.að nýju, því að eg get eigi snúið mér til annara en póstmnnna, til þess að fá þessar nauðsynlegu upplýsingar, og fái eg þær eigi á þann hátt, verð eg að fara fram á að fá skift um póstmenn. 2. Með þessu blaði fylgir reglugjörð um breyting á reglugjörð 21. maí 1908 uni það, að hagstofa Islands skuli vera stjórnarvald og nota þjónustufrímerki. 3. Með þessu blaði fylgja nýjar töflur um breyting á þýzkum og frönskum þeningum í íslenzka peninga til notkunar við afgreiðslu póstávísana til Þýzkalands og Frakklands, sem gilda frá 13. janúar 1914. 1 mark er þar látið jafngilda 89.30 aurum, en 1 franki 72.75 aurum. Hinar eldri töflur skal ónýta, svo að þær villi eigi fyrir póstafgreiðslumönnum, eins og oft hefir borið við áður. 4. Þeg.ir póstafgreiðslumenn gefa út eftirrit af póstávísunum skulu eftirritin auðvitað dagsett sama dag og frumritið, en þeir mega eigi stimpla slík eftirrit með dag- stimpli, heldur skal skrifa dagsetning stimpilsins, sem var á frumritinu, innan i hring- Jnn, sem ætlaður er fyrir stimpilinn. Dagstimplarnir segja til um daginn, sem þeir eru notaðir. Það má aldrei setja 1 þá falska dagsetningu. 5. Með því að búið er að skifta póststofunni í lleykjavík í bréfa-póststofu og köggla-póststofu, sem liggja langt hver frá annari, er rétt að póstafgreiðslumenn skrái Weð skipum í tvennu lagi og skrifi bréf og peningabréf á sérstaka skrá og böggla á sér-

x

Póstblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póstblaðið
https://timarit.is/publication/1288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.