Kosningablaðið - 26.10.1911, Page 3

Kosningablaðið - 26.10.1911, Page 3
3 stjórnarflokkurinn hafi enga stefnuskrá, og eg hefi ekki séð það í blöðunum, að þeir berjist fyrir sigri neins mál- efnis, nema helzt millilandafrumvarpsins sæla, því fjárhagssparnaður kemur ekki tiljfá þessu “þingi.j^Og það verður ekki betur séð en allur persónulegur illhreysingur og allur þessi ofsi sé ætlaður til þess eins, að vinna stjórn- arskrárbreytingunni tjón og koma þeim bita fyrir kattarnef á þinginu, og það einkanlega til þess, að leiðin sé opin fyrir sambandslagafrumvarpið til okkar þegar færi gefst. Og þá ætlun styrkja einmitt orð allra 4 þing- mannaefnanna á sunnudagsfundinum siðasta. Svo óskemtileg sem þessi samvinna er við þá af Dqnum, sem vilja okkur verst, þá er hún þó nærri þvi óskiljan- legri. Eg get ekki getið þess til um neinn af andstæðingum okkar, að hann vilji landi sínu ilt, fremur en hver af oss eða sé að vinna kauplaust fyrir Dani, þeim einum til hagnaðar. Eg imynda mér fremur að þeir hugsi sem svo, að þó vér verðum háðari Dönum, þá verði það ekki svo ilt, þeir hafi ráðið hér áður, svo við þekkjum þá og þeirra yfirráð, og þó það færi þá misjafnlega og oft illa, þá sé við engu sliku hætt framvegis, því þá ráði heimastjórnarmenn hér mestu og þá sé öllu óhætt. Þessi hugsun er skiljanleg, og margt vísar í þá átt, að hún sé rétt, en hún grundvallast beinlínis á beinu sam- bandi milli Danastjórnar og höfðingja Og valdhafa hér á landi, eins og marg bent hefir verið á i blöðunum, og sambandið sé gert í því augnamiði, að hvorir styrki aðra til yfirráðanna, eins og menn hafa áður sýnt fram á. Því verður og ekki neitað, sem marg sýnt hefir verið og allir sjá, að með danska valdinu og móti okkur standa allir æðstu embættismenn landsins i einnm huapp einmitt þeir menn allir, sem hagnaðarv ín; gætu átt af sam- vinnunni við Dani, og þó fleira ráði stefhu manna en eigm Iiagur heirra þá sy tir reynslan, að það er oft ekki svo vitlaust, að leita manna þeim megin sem hagurinn er. Og til bvers sem þessi samvinna er huguð, þá sjáum við, að hún hefir verið gerð með áhuga og farnast vel, ágæt/ega 1908 í tíð Hannesar Haf- steins, og virðist ætla að fara vel í tíð núverandi ráðgjafa, þó það sé að vísu lítt reynt ennþá. í tíð Björns Jónssonar fór hún út um þúfur reynd- ar. Hann var einhvern veginn svo skapi farinn og fór svo að ráði sínu, að þar gat ekkert bandalag orðið, enda mætti hann eindreginni óvild æðstu embættismannanna og Dana eins og verða hlaut. Við mundum margir kjósa, að ein- hver maður gæti það og gerði, að sanna okkur, að það væri hin mesta lygi, að háembættismanna hópurinn ynni að því í sambandi við Dani, að tryggja sér og þeim völdin og veg- semdina og berðust á móti okkur, þó hann eigi það á hættu, að stofna landsréttindum okkar í háska, viljandi eða óviljandi, og Heimastjórnarflokk- urinn fylgdi þessum samherjum að máli stefnuskrárlaus að öðru en því, að niða okkur persónulega. Eg býst þó við, að þið eigið óhægt með að færa fram rök móti þessu, sem sanni að þetta sé lygi, þótt þið vilduð, og væri þó mörg rök hugsan- leg, sem færa mætti, ef til væru, og eg skal taka til eitt, sem eg tæki gilt til að sýna mér að alt væri ástæðu- laust og ósatt, sem eg hefi hermt hér, og taka það svo gilt, að eg færi þegar í stað ofan af þessum palli og bæði glaður fyrirgefningar, og það er, ef þið gætuð bent mér á æðstu embætt- ismennina hér á bekkjunum hjá okk- ur í okkar hóp, raðgjafann, biskup, laudlækni, yfirdóminn, lagaskólann, háskólastjórann og aðra æðstu stór- höfðingjana. Eg sé þá ekki hér, þið getið ekki sýnt mér neinn þeirra hér i okkar hóp. Eg veit ekki hvort þeir sækja nokkra fundi, en eg get hugsað mér þá sitja í röð annarstaðar — alstaðar annarstaðar en hér. Og þetta sýnist einmitt grunsamt. Þetta, sem nú var sagt, á við bar- dagann og orustuaðferðina um landið í heild sinni, en hér í Reykjavík eru aðfarirnar dálítið einstakar síns kyns og verður að minnast á þær sér í lagi. Persónulegi rógurinn og ofsóknirnar á hendur þingmannaefnum okkar hafa verið hér sérstaklega illkynjuð og ódrengileg. A Magnús var ráðist þeg- ar sem hann var kominn svo langt burtu, að hann gat ekki varið sig, og nægði ekki minna en að gera hann að óbótamanni í augum kjósenda. En illilega afslept sýnist þetta ætla að verða hjá þeim og fara hreint út úr höndunum á þeim nú þegar hann er kominn. Anzi er nú heimastjórnarliðið vel varið, að það skuli ekki taka efiir því, að alt þetta þagnar þegar Magnús er kominn, og hvarfla ekki einu sinni í hug hvað það er látið hlaupa með, og því síður vænta þess, að Lögrétta myndi segja sinum mönnum satt frá, þótt hún fengi að vita, að það væri haugalygi alt saman. Og þið þurfið ekki að þola önn fyrir að hún geri það. A dr. Jón Þorkelsson hefir verið ráðist svo óhræsislega, að eg man ekki slíks dæmi, reynt að útflæma hann svo lúalega, álit hans og mannorð. Hvað sýnir nú þetta? Segið þið mér nokkuð. Haldið þið að andstæðingar okkar réðust sjálfir og sleptu rökkum sinum svo stjórnlaust á þessa menn, ef þeir hefði nokkra von um, að þeir sviki stjórnarskrána eða sambandsmáiið á þingi? Nei. Þeir vita einmitt, að þeir hafa báðir reynst bjargfastir sjálfstæðis- menn, og þeir hatast svona við þá einmitt af því við treystum þeim allir að berjast til þrautar í því máli og fylgjum þeim allir svo fast sem við megnum, sem beztu mönnum okkar í hví ctrífti En slíka heimskingja og hrakmenni ætla þeir okkur, andstæðingar okkar, að við virðum svo mikils auðvirðilega smámuni, hlægilegan samsetning, svo sem um atkvæðagreiðslu liðinna þinga, að við svíkjum af þeim smámunum þann mann, sem staðið hefir með þeim allra fremstu á verði fyrir sjálf- stæði okkar, í ræðu og riti, út á við, gagnvart Dönum, og á þingi. Eða Magnús BlöndahJ fyrir dylgjur og ósannaðar getsakir. Eg ætti ekki að mega koma hér fram fyrir ykkur, af því götudrengir hefðu kastað óþverra á mig. Góður liðsmaður má ekki verja sjálfstæði íslands, af því að sérstök samtök sýnast vera um, að þeyta á hann saur, einmitt af þvi að óvinir hans óttast hann og við ættum þvi að svikja hann. Slík vesalmenni erum við ekki. Antuð er dálítið sérstakt hér. Hér Bjóða sig fram tveir andbann- ingar, og VJja báðir breyta stjórnar- skránni eftir jvf, sem hér hefir verið skýrt frá, og fc-u því andstæðingar okkar í pólitikinui. Eg hefi talið þetta U4J vandræðamál frá upphafi, og mér heftiVerið illa við það og er enn, fyrst og fremst af því, að það var í öndverðu sjvfj sam- an við sjálfstæðismálið, og hefa. verið þvi til bölfunar og er enn i 4^ hversu sem síðar fer. Og í öou lagi af því, að eg hefi ekki sjón tn að sjá, hversu fer með framkvæmd þess, og eg er deigur við öll spor, sem eg veit ekki hvert liggja. En jafn viðsjárvert finst mér fyrir því, að nema lögin úr gildi nú á næsta þingi. Þá býst eg við bardag- anum áfram, og banninu að fám árum liðnum. En ef lögin reynast illa, vænti eg að þau verði numin úr gildi, og vildi eg geta stuðlað að því, og þá skilst mér, sem óhætt muni að lofa því, að þeir sem vilji, fái að hafa brennivínið óáreittir í 20 til 30 ár. Þessa stefnu og þessa hugsun finst mér mætti verja, en óverjandi finst mér með c;h 'hur/-ni’.i f bæklingi, sem .; þingmanns- efmö, - - jgason. Mér finst þar svo ,v. ,a..st ganað beint framan í Jlan jöfnuð, að eg varð hlessa. Hann er að fárast yfir v, í nú, að með bannlögunuœ sé b-otinn sá sjálfsagði mannrétur, að fá að borða og drekka það sm við viijum, ef það er ekki öðrum il meins og vel feng- ið, og við missurr. þann siðferðissignr, sem uppeldi við sj lfsafneitun og bind- indi veitir, og fdsið til að vinna sjálfir sigur á þ\í, sem oss er til meins. Auðvitað er þ;:si réttur skertur með bannlögununi Það sáum við guðmundarlaust og bæklingslaust. En hitt sjáum við ekk: hver orsök knýr manninn til að hrþa upp með þetta einmitt nú, þega að eins síðasti strengur þessa réttr er brotinn, en hafa þagað meðan \erið var að murka sundur alla hina. Það er einmitt lomið svo nú, að beinhörð neyðin, fceinn efnaskortur, hefir neytt urmul andsmanna til að hætta öllum vínftngakaupum sakir hins gifurlega tolls. þar sem brenni- vínið hefir hækkað þrefalt að verði á þeirra dögum. Aðrr kaupa tvo þriðju hluta, eða helmingeða einungis einn fjórða hluta af þvi sem þeir vildu kaupa og þráðu á kaupa, ef efni leyfðu. Af okkur, þessun mönnum, hafa tolllög undanfarima ára verið að smástela og kúga alan þann aðgang til siðferðis og tnnngöfgis þroska, sem sigur sjálfsafnetunar og bindindis gat og átti að veta okkur. Suma svifti tollurinn einun fjórðahlut, aðra helmingi og suma ilu. Að eins einn huta manna og mannrétt hans og þroskaskilyrði lét tollurinn ósnert, eði lítt snert, þá menn sem sé, sem nóg áttu efnin og fundu sama sem ki til tollsins. Nú skil eg ekkL aö Guðmundur sé svo rangsýnn eðí sá hifðstjóri, að þykja það eiít má'í skifii, að vernd- aður sé fullur mannréttur auðmann- anna einna. En þvi er hann þá að gala svo .hátt nú en þagði eins og fiskur með- an verið var að rýja okkur þessum rétti, fátæklingana, m;ira og minna og suma réttínum öllim, og þó er þetta réttarbrot, bannið, að því leyti réttlátara og sanngainara, að það gengur að tiltölu jafit yfir alla, sem eftir eru og veitir hnum eins konar uppbót, sem níðst 'ar á áður, ein- mitt sakir þess, að ieir voru fátækir. A svo miklu hugunarleysi eða ó- jöfnuði skil eg ekki að neinn sjálf- stæðismaður vilji skita fyrir réttindi landsins, og jafnvel mannrétt okkar allra. -------*»*<■--- Bardaga-aðferðin. Eftirfarandi yfirlýing, sem konsúll Kr. Þorgrímsson hefr sent Lögr. þarf engrar skýringar við. Hún sýnir sjálý hvílíkum vopnum áýllulausra ósann- inda beitt er af aidstæðinga vorra hálfu: Herra ritstjóri Lörréttu, pér hafið sagt i blaði yðar í da;, á bls. 202, 1. dálki, að konsúll Sva %ér hafi. leyjt Lögréttu að haja ejtirsér, að viðskijta- ráðunautur Islands, Eirni Jónsson frá Vogi, hafi ekki einu suni talað við hr. Reutersvird, sem sé afilmaður í Jyrir- tcekinu um samgöngui milli Islands og Svípjóðar og alls ekkvt við hann átt u' málið. Eg lýsi yfir pví, að hvorki hefi.q nein snp 1lmnaii við yður hajt, né hiaur igyjt yjur epir m^r% Mér - kunnugt um, eð Ragnar Lund- borg sa >u / ,ni v1q n■ skerra um land- sjóðsstyrki;r ■;/ pessara skibajerða og hefir veric v forgongu v*v inálið og ennjrem r, ac - ' ^ taráðunauturinn hefir staðiJ l ■ nn 0<r Reutersvird Kungi -tet. ; son. . Lúalegar dylgjur. Það bar til sumarið 1910, að sím- þjónn einn í Reykjavík var rekinn frá stöðu sinni fyrir óknytti og í stöðuna settur kvenmaður, er gegndi öðru starfi áður við þá símastöð. Nokkurum mánuðum síðar gerði þáverandi ráðherra, B. J., laun þessa kvenmanns, ungfrú Guðrúnar Aðal- stein, jafnhá því sem hinn frárekni símaþjónn hafði haft í kaup — þau voru töluvert :lægri áður —, þó að símastjóri (Forberg) legði á móti því. Ráðherra taldi ranglátt að láta hana gjalda þess eins, að hún var ekki karlmaður, er símastjóri viðurkendi, að hún hefði sama starf og sömu skyldur sem fyrirrennari hennar, er reka varð úr stöðunni fyrir óknytti, og að hún væri mjög dugleg. Frá þessu er skýrt í svonefndri skýrslu meiri hluta rannsóknarnefndar efri deildar alþingis síðasta um gerðir landsstjórnarinnar í Landsbankamálinu m. m., i þeim kafla, þar sem verið er að rekast í orðróm um uppljóstun símaleyndarmáls; og getur það ekki eftir sambandinu verið gert í öðru skyni en að reyna að koma þeim bletti á mannorð áminstrar göfugrar yngismeyjar, er hefir á sér eindregið almenningsorð fyrir hið vandaðasta framferði, auk dugnaðarins, að hún hafi látið kaupa sig með umgetinni launahækkun til að rjúfa simaþagn- arskyldu sína í þágu þess valdsmanns, er launabótina veitti henni, hvað sem simastjóri sagði. Frásögnin um hana væri sett þarna alveg út i bláinn að öðrum kosti. Aðalmaður (formaður) í þessari »rannsóknarnefndc var LHB nokkur, hinn sami sem nú býður sig á þing hér í höfuðstaðnum. Er nú trúlegt, að kvenþjóð þessa bæjar láti um sig spyrjast, að hún fari að hlynna að kosningu manns, sem gert hefir jafn-lúalega tilraun til að rýra mannorð einnar hinnar vönd- uðustu og heiðvirðustu systur sinnar, ofan á það sem forsprakkar heiman- stjornariiösins hala gert á síðasta þingi og siðan til að spilla fyrir því, að kvenlýður þessa lands hljóti sjálf- sögð stjórnréttindi — kosningarrétt og kjörgengi til alþingis m. m. ? Mér finst þær ættu að biðja kjós- endur að muna eftir pessu tilviki um- getins dánumanns núna á laugardag- inn, auk annarra afreksverka hans. Kvenréttindavinur. Halldór D., Uppkastið og bannlögin. Með óskiljanlegum óskapa-ósanninda-aðdróttana-blæstri hellir bannfjendablaðið og skrifstofa óháðra(l !)kjósenda sér yfir Isajold út af frásögninni í síðasta bl. hennar um að Halldór Daníelsson hefði sagst bjóða sig fram »aðallega setn Uppkasts- maðurc og ekki mundu gangast fyrir því að bannlögin verði úr gildi num- in á næsta þingi. Læti blaðsins og skrifstofu hinna óháðu(!!) eru svo óstýrilát, svo sem skrökvað hefði verið einhverjum stór- glæp upp á álrúnaðargoðið í bili, hr. H. D. Um hið fyrra atriði segir tíðinda- maður ísaf., að H. D. hafi byrjað ræðu sína með lofi miklu um Upp- kastið og ekki hægt öðruvísi hans orð að skilja, eins og þau féllu, en að það væri honum aðalmálið. Ritstj. Isafoldar heyrði ekki þenna kafla ræðu H. D. fremur en flestir aðrir — svo lágt talaði hann — og getur því eigi um dæmt hver réttara hefir fyrir sér, en úr því að bannfjendabl. — líklega að undirlagi H. D. — lætur svona, er líklegt, að H. D. hafi ekki viljað láta skilja orð sín svo sem tíðindam. ísafoldar gerði. Um síðara atriðið heldur ísafold því fast fram, að H. D. hafi einmitt sagt þetta: að hann mundi ekkigangast fyrir þvi, (»eiga frumkvæði að«, voru víst hans eigin orð) að bannlögin yrðu úr gildi numin á næsta þingi. Að þessu er hægt að leiða nóg jvitni, óefað ekki fæst úr bannfjendaflokki, svo mikið orð gerðu þeir á því, hversu flatt þessi yfirlýsing hefði komið upp á þá. Rógur Ingólfs. í blaðsneplinum Ingólfi, sem út kom í dag, stendur meðal margs annars góðgætis greinarkorn með yfirskrift- inni: Magnús Blöndahl og sjómannastéttin. Róggrein þessi, sem er undirrituð: »Jónatan« (hefir líklega átt að vera: prófessor Jónatan), er svo aumlega sam- ansett — eins og reyndar flest annað úr þeirri átt — að óþarfi væri að svara henni nokkuru. Eg skal þó með nokkurum orðum taka þetta fram: Jónatan kveðst hafa athugað hvað eg hafi gert fyrir fiskiveiðarnar og sjó- menn og komist að þeirri niðurstöðu, sem nú skal greina: 1, að eg hafi verið eitt ár fram- kvæmdarstjóri »íslendings« félagsins. 2, að eg á því ári hafi unnið sam- vinnufélagsskap sjómanna stórtjón. Hvað fyrra atriðið snertir — þá er það að eins hálfur sannleikur. Eg var frá stofnun íslendingsfélagsins og til aðalfundar í ár ávalt kosinn for- maður þess, og það þrátt fyrir það, að eg hafði þegar að fyrsta starfsári félagsins loknu beðist undan endur- kosningn í stjórn þess. Samt sem áður vareg endurkosinn formaður þess hvert árið eftir annað, bæði 1909 og 1910. Að annar maður var kosinn formaður þess á aðalfundi i ár, átti rót sína að rekja til alls annars en Jónatan vill gefa í skyn og mun létt verk fyrir mig að sanna með fjölda vottorða, að Jónatan fer þar með staðlausar að- dróttanir. Um hitt atriðið, að eg hafi unnið þessum félagsskap sjómanna stórtjón, er það að segja, að það er sannanlegt með fjölda vottorða, ef á þarf að halda. að »Jónatanc litli hefir þar sem oftar endaskifti á sannleikanum. Því það var einmitt eg, sem með aðstoð Islandsbanka bjargaði fyrir félagsmenn öllu hlutafé þeirra yfir 40 púsundum, sem þeir að öðrum kosti hefðu tapað gersamlega. Þetta veit Jónatan ofurvel að er satt, en það lítur helzt út fyrir, að honum sé meinilla við að herma það ciu, sem saiL er og rett. Að cg p.l hafi unnið áðurnefndum félagsskap stórtjón, lýsi eg tilhœjulaus ósannindi. Jónatan þarf ekki heldur að ætla sér þá dul, að hann með lygum sin- um geti ráðið yfir atkvæðum sjó- manna; þeir eru flestir honum skyn- samari og gætnari, og vita vel, að á þeim tveimur þingum, sem eg hefi setið, hefi eg leitast við, eftir megni, að hlynna að sjávarútveginum og sjó- mönnum og eg get öruggur vísað á þingtíðindin máli minu til sönnunar. Reykjavík 26. okt. 1911. Magnús Blöndahl. ----- „Bauditpar tiet“. Hjá dönsku mömmu eru innlim- unarmennirnir nú búnir að velja þeim mönnum, sem standa fastast á verði fyrir sjálfstæði þessa lands — þetta nafn: Banditpartiet, þ. e. þorparaflokk- urinn. Hvað hefðu þessir sömu menn kallað Jón Sigurðsson — hjá dönsku mömmu: Banditjöreren — þorpara- höfðingjann. Alpýðan er það bjarg, sem Sjálf- stæðismenn byggja á og mestan styrk- inn veitir sjálfstæðishugsjóninni. Hún er það því, sem innlimunarmenn — hjá dönsku mömmu — velja þetta virðulega heiti! Alpýðan mun kunna að svara fyrir sig á laugardaginn — cf hún þekkir sinn vitjunartíma. Euginu sjálfstæðismaður má glæpast á að kjósa dr. G. F. á iaugardaginn, því að það er hið sama og að styðja að kosningu LHB og Jóns sagnfræðings. Leiðr. íjnokkrum eint. þessa blaðs hefir misprentast á 1. síðu, 5. dálki í enda greinarinnar Engan bitling: afstýrt, á auðvitað að vera ráðið.

x

Kosningablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kosningablaðið
https://timarit.is/publication/1289

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.