Víkurfréttir - 10.05.2018, Blaðsíða 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN
fimmtudagskvöld kl. 20
á Hringbraut og vf.is
AÐAL S ÍMANÚMER 421 0000 ■ AUGLÝS INGAS ÍM INN 421 0001 ■ FRÉTTAS ÍM INN 421 0002
SAMLOKUR
& SALÖT
MIKIÐ ÚRVAL,
FÍNT Í HÁDEGISMATINN
RJÚKANDI
HEITT KAFFI
NÝMALAÐ
ILMANDI KAFFI
BAKAÐ Á
STAÐNUM
KLEINUHRINGIR,
RÚNSTYKKI OG FLEIRA
HRINGBRAUT
REYKJANESBÆ
VIRKA DAGA
HELGAR
ALLTAF OPIÐ
ALLTAF OPIÐ
AFGREIÐSLUTÍMAR:
Krossmóa 4 | Reykjanesbæ
Opnunartími
mán.–fös. frá 9–20
lau.–sun. frá 11–18
Í nýrri skýrslu KPMG eru skoðaðir fjórir
möguleikar sem Suðurnesin standi hugsan-
lega frammi fyrir árið 2040 í þróun atvinnu-
lífsins. Bent er á hvernig ferðaþjónustan og
þjónusta við flugstarfsemi hafi bjargað svæð-
inu og viðsnúningur orðið eftir árið 2010 í
kjölfar mikilla erfiðleika eftir efnahagshrun
og brotthvarf Varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli. Kostir og gallar eru dregnir fram í sviðs-
ljósið. Ljóst er að Suðurnesin með Keflavíkur-
flugvöll hafa gríðarlega framtíðar möguleika
og svæðið er nú orðið eitt helsta vaxtasvæði
landsins en starfsemin er nokkuð einsleit
og burðarásarnir eru í grunninn tvö íslensk
flugfélög. Miklar breytingar í starfsemi þeirra
gæti haft mikil áhrif á gang mála á Suður-
nesjum og landsins alls en um fjórðungur
Suðurnesjamanna starfa við ferðaþjónustu
eða starfsemi tengda henni.
Suðurnesin standa undir nafni að vera eitt
atvinnusvæði því um 80% íbúa á svæðinu
sækja atvinnu innan þess. Þá starfar rúmlega
fimmtungur Suðurnesjamanna á Keflavíkur-
flugvelli eða 22% en 39% starfar í Reykjanesbæ.
14% Suðurnesjamanna starfar á höfuðborgar-
svæðinu.
Í nýrri skýrslu KPMG eru dregnar upp fjórar
sviðsmyndir um mögulega þróun atvinnulífs á
Suðurnesjum árið 2040 og því velt upp hvort
ferðaþjónustan verði áfram burðarás í atvinnu-
lífi Suðurnesja næstu áratugina eða hvort þró-
unin muni breytast.
Eru innviðir og samfélagið á Suðurnesjum búið
undir það ef fjöldi farþega sem fer um Kefla-
víkurflugvöll verður 88 milljónir árið 2040?
Verða íbúar á Suðurnesjum þá orðnir 50 þúsund
talsins og verður meirihluti þeirra af erlendu
bergi brotin? Hvernig kemur flugborgin (e.
Aeropolis) við Keflavíkurflugvöll til með að líta
út og verða Suðurnesin miðstöð vöruflutninga
á norðurslóðum? Í skýrslu KPMG sem unnin
er fyrir Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum,
Kadedo - Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
og Isavia eru settar fram fjórar sviðsmyndir
sem hugsanlega blasi við árið 2040. Reynt er
að finna svör við þessum spurningum sem og
öðrum er snúa að þróun atvinnulífs á Suður-
nesjum til framtíðar.
Ljóst er að ferðaþjónusta og starfsemi á Kefla-
víkurflugvelli mun hafa mikil áhrif á atvinnulíf á
Suðurnesjum næstu ár og jafnvel áratugi. Fram-
tíðaruppbygging atvinnulífs á Suðurnesjum
mun að öllum líkindum ráðast að miklu leyti
af fjölda alþjóðlegra samgöngutenginga, ekki
síst beinna flugtenginga. Einnig mun skipta
máli hvort áhersla verði lögð á virðisaukandi
framleiðslu og þjónustu eða á magn og fjölda.
„Starfsemin sem drifið hefur hagkerfið áfram
á Suðurnesjum er nokkuð einsleit. Við þurfum
að fjölga eggjunum í körfunni, auka t.d. við
nýsköpun og fleira. Það er nauðsynlegt að vakta
svæðið og þessi skýrsla er gott veganesti fyrir
okkur,“ sagði Berglind Kristinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suður-
nesjum.
Er ferðaþjónustan sem bjargaði Suðurnesjum of einsleit?
Ný skýrsla KPMG skoðar þróun atvinnulífs á svæðinu til ársins 2040:
Nánar um sviðsmyndirnar á síðu 2.
Fjórði hver vinnur á Keflavíkurflugvelli
Veðurbarðar!
Veðurguðirnir hafa ekki verið okkur hliðhollir síðustu daga. Fótboltasumarið er hafið en vetrarlegir fyrstu dagar maímánaðar hafa bitið. Þessi mynd er tekin á
Njarðvíkurvelli þar sem áttust við Njarðvík og Þróttur R í Inkasso-deildinni sl. laugardag. Undir lok fyrri hálfleiks gerði myndarlegt haglél og þá dugði ekkert annað
en að dúða sig enn betur eða snúa baki við óveðrinu. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson
ALGALÍF LEIÐANDI
Í HEIMINUM Í RÆKTUN
Á ÖRÞÖRUNGUM
SJÁ SÍÐU 6
fimmtudagur 10. maí 2018 // 19. tbl. // 39. árg.