Morgunblaðið - 23.10.2017, Qupperneq 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2017
England
Everton – Arsenal ................................... 2:5
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn
fyrir Everton.
Manchester City – Burnley .................... 3:0
Jóhann Berg Guðmundsson lék síðustu
20 mínúturnar fyrir Burnley.
Chelsea – Watford.................................... 4:2
Huddersfield – Manch. Utd..................... 2:1
Newcastle – Crystal Palace..................... 1:0
Stoke – Bournemouth .............................. 1:2
Swansea – Leicester ................................ 1:2
Southampton – WBA ............................... 1:0
Tottenham – Liverpool ............................ 4:1
Staðan:
Man. City 9 8 1 0 32:4 25
Man. Utd 9 6 2 1 22:4 20
Tottenham 9 6 2 1 19:6 20
Chelsea 9 5 1 3 17:10 16
Arsenal 9 5 1 3 17:12 16
Watford 9 4 3 2 15:17 15
Newcastle 9 4 2 3 10:8 14
Burnley 9 3 4 2 8:9 13
Liverpool 9 3 4 2 14:16 13
Southampton 9 3 3 3 8:9 12
Huddersfield 9 3 3 3 7:10 12
Brighton 9 3 2 4 9:10 11
WBA 9 2 4 3 7:10 10
Leicester 9 2 3 4 12:14 9
Swansea 9 2 2 5 6:10 8
West Ham 9 2 2 5 8:17 8
Stoke 9 2 2 5 10:20 8
Everton 9 2 2 5 7:18 8
Bournemouth 9 2 1 6 6:13 7
Crystal Palace 9 1 0 8 2:19 3
B-deild:
Middlesbrough – Cardiff ........................ 0:1
Aron Einar Gunnarsson lék ekki með
Cardiff vegna meiðsla.
Sheffield United – Reading.................... 2:1
Jón Daði Böðvarsson lék ekki með Read-
ing vegna meiðsla og Axel Óskar Andrés-
son var ekki í leikmannahópnum.
Bristol City – Leeds................................. 0:3
Hörður Björgvin Magnússon kom inná á
68. mínútu í liði Bristol.
Aston Villa – Fulham .............................. 2:1
Birkir Bjarnason kom inná á 86. mínútu í
liði Aston Villa.
Barnsley – Hull......................................... 0:1
Bolton – QPR............................................ 1:1
Brentford – Sunderland .......................... 3:3
Derby – Sheffield Wednesday ................ 2:0
Nottingham Forest – Burton.................. 2:0
Wolves – Preston...................................... 3:2
Millwall – Birmingham ............................ 2:0
Staða efstu liða:
Wolves 13 9 2 2 24:13 29
Cardiff 13 8 3 2 18:10 27
Sheffield Utd 13 9 0 4 18:11 27
Leeds 13 7 2 4 21:12 23
Aston Villa 13 6 4 3 19:13 22
Bristol City 13 5 6 2 20:14 21
Preston 13 5 6 2 17:11 21
Derby 12 5 4 3 17:13 19
Norwich 12 5 4 3 12:14 19
Ipswich 11 6 0 5 20:17 18
Fulham 13 4 6 3 17:14 18
Nottingham F. 13 6 0 7 17:21 18
Þýskaland
Augsburg – Hannover .............................1:2
Alfreð Finnbogason fór af velli á 72. mín-
útu í liði Hannover.
Köln – Werder Bremen .......................... 0:0
Aron Jóhannsson var ekki í leikmanna-
hópi Werder Bremen í leiknum.
Staða efstu liða:
Dortmund 9 6 2 1 25:7 20
Bayern M. 9 6 2 1 22:7 20
RB Leipzig 9 6 1 2 16:10 19
Hoffenheim 9 4 4 1 16:11 16
Schalke 9 5 1 3 12:9 16
Hannover 9 4 3 2 10:7 15
E.Frankfurt 9 4 2 3 10:9 14
Mönchengladb. 9 4 2 3 13:17 14
Leverkusen 9 3 3 3 20:14 12
Augsburg 9 3 3 3 12:10 12
B-deild:
Nürnberg – Dynamo Dresden ............... 2:1
Rúrik Gíslason var ekki í leikmannahópi
Nürnberg í leiknum.
Spánn
Valencia – Sevilla...................................... 4:0
Barcelona – Málaga.................................. 2:0
Celta Vigo – Atlético Madrid................... 0:1
Real Madrid – Eibar ................................ 3:0
Staða efstu liða:
Barcelona 9 8 1 0 26:3 25
Valencia 9 6 3 0 25:10 21
Real Madrid 9 6 2 1 18:7 20
Atlético Madrid 9 5 4 0 14:5 19
Leganés 9 5 2 2 8:3 17
Villarreal 9 5 1 3 15:10 16
Real Betis 9 5 1 3 19:17 16
Sevilla 9 5 1 3 9:8 16
B-deild:
Real Oviedo – Córdoba ........................... 2:0
Diego Jóhannesson kom inná á 79. mín-
útu og skoraði seinna markið á 90. mínútu.
Ítalía
Udinese – Juventus.................................. 2:6
Emil Hallfreðsson lék allan tímann með
Udinese.
Rússland
Tosno – Rostov ........................................ 1:1
Sverrir Ingi Ingason lék allan tímann
með Rostov og skoraði úr vítaspyrnu.
Rubin Kazan – Dinamo Moskva............. 0:0
Ragnar Sigurðsson lék allan tímann með
Rubin Kazan.
KNATTSPYRNA
þegar liðið lagði Gróttu að velli,
29:25, í Hertz-höllinni í gær. Liðin
höfðu hvorugt náð að vinna sigur
þegar kom að leiknum í gær og það
var ljóst frá upphafi leiks að bæði
lið ætluðu að selja sig dýrt fyrir
þeim stigum sem í boði voru.
Leikurinn var jafn á öllum tölum
og liðin skiptust á að hafa foryst-
una. Varnir beggja liða voru nokkuð
þéttar í leiknum, en hvorugt liðið
fékk þó mörg auðveld mörk úr
hraðaupphlaupum. Það var því ljóst
að úrslit leiksins myndu ráðast af
því hvort liðið næði að spila þéttari
vörn á lokakafla leiksins og leik-
menn hvors liðsins næðu að nýta
færin betur á ögurstund. Það voru
leikmenn Aftureldingar sem voru
sterkari á svellinu þegar mest á
reyndi og liðið landaði langþráðum
sigri.
Grótta mun sækja í sig veðrið
Mikk Pinnonen og Birkir Bene-
diktsson voru potturinn og pannan í
sóknarleik Aftureldingar. Góð mark-
varsla Lárusar Helga Ólafssonar á
lykilaugnablikum undir lok leiksins
átti ríkan þátt í að tryggja Aftureld-
ingu stigin tvö.
„Við spiluðum heilt yfir vel í þess-
um leik að mínu mati. Þetta var
kaflaskiptur leikur þar sem sigur-
inn hefði getað endað báðum meg-
in. Við náðum að þétta vörnina síð-
ustu tíu mínútur leiksins og Lár-us
Helgi [Ólafsson] skellti í lás í mark-
inu. Það var það sem skilaði sigr-
inum. Við fögnum þessum sigri vel,
en megum þó ekki gleyma okkur í
fagnaðarlátunum,“ sagði Einar
Andri Einarsson, þjálfari Aftureld-
ingar, í samtali við Morgunblaðið
eftir leikinn.
Grótta er að styrkjast með hverj-
um leiknum sem líður, en liðið hefur
verið að fá síðustu púslin í leik-
mannahóp sinn með því að fá Daða
Laxdal Gautason, Nökkva Dan El-
liðason og Örn Östenberg til liðs við
sig, auk þess sem Finnur Ingi Stef-
ánsson er óðum að finna sitt fyrra
form. Það er því óþarfi fyrir Seltirn-
inga að örvænta þrátt fyrir að stiga-
söfnunin hafi verið dræm það sem
af er leiktíð.
Dramatískar lokamínútur
Ungt lið Selfyssinga gerði gríð-
arlega góða ferð í Hafnarfjörðinn og
lagði Hauka, 24:23, eftir æsispenn-
andi lokamínútur. Alexander Már
Egan skoraði sigurmarkið hálfri
mínútu fyrir leikslok og Halldór
Ingi Jónasson skaut í stöng hinum
megin í blálokin og þar við sat. Sig-
HANDBOLTINN
Ívar Benediktsson
Hjörvar Ólafsson
Jóhann Ingi Hafþórsson
Kristófer Kristjánsson
FH-ingar undirstrikuðu í gærkvöldi
að þeir hafa á að skipa besta hand-
knattleiksliði landsins í karlaflokki
um þessar mundir. Þeir gerðu það
með því að taka Íslands- og bik-
armeistara Vals í kennslustund á
heimavelli Valsmanna að Hlíð-
arenda. Niðurstaðan var 12 marka
sigur Hafnarfjarðarliðsins sem hafði
öll ráð í hendi sinni frá upphafi til
enda og var sigur þeirra síst of stór.
FHvar með 10 marka forskot að
loknum fyrri hálfleik, 15:5. Varn-
arleikur liðsins, þar sem Ísak
Rafnsson var í aðahlutverki, var frá-
bær auk þess sem Ágúst Elí Björg-
vinsson var góður í markinu. Þessu
var fylgt eftir með beittum sókn-
arleik og beittum hraðaupphlaupum.
FH-liðið sló öll vopn úr höndum
Valsmanna sem voru sem felmtri
slegnir sem er afar óvenjulegt þeg-
ar Valur á hlut og það á heimavelli í
víginu sjálfu, Valshöllinni.
Eftir frammistöðu fyrri hálfleiks-
ins virtist Valsmönnum hafa fallið
allur ketill í eld. Þeir virtust sjá
sæng sína upp reidda strax í upp-
hafi síðari hálfleiks. Hvorki gekk né
rak há þeim í síðari hálfleik að snúa
við blaðinu. FH-ingar héldu þeim í
heljargreipum fyrsta stundarfjórð-
unginn.
Þar með tapaði Valsliðið sínum
fyrsta leik á yfirstandandi Íslands-
móti. FH-ingar eru hinsvegar enn
ósigraðir og haldi þeir áfram að
leika eins þeir hafa gert getur sig-
urgangan haldið áfram.
Sem fyrr segir var varnarleikur
FH til fyrirmyndar. Sóknarleik-
urinn gekk einnig snurðulaust lengi
vel þar sem Gísli Kristján Þorgeirs-
son og Óðinn Þór Ríkharðsson voru
fremstir meðal jafningja.
Valsliðið var langt frá sínu besta,
eins og nærri má geta. Allir leik-
menn geta gert betur. „Frammi-
staðan var okkur til skammar. FH-
liðið var mörgum skrefum á undan
okkur frá upphafi til enda leiksins,“
sagði Guðlaugur Arnarsson, annar
þjálfari Vals, við Morgunblaðið í
leikslok og hitti svo sannarlega
naglann á höfuðið.
Afturelding vann
fyrsta sigurinn
Afturelding innbyrti sinn fyrsta
deildarsigur á yfirstandandi leiktíð
ur gestanna var einkar sætur þar
sem Haukar voru sex mörkum yfir
snemma í síðari hálfleik. Lærisvein-
ar Patreks Jóhannessonar neituðu
hins vegar að gefast upp og tryggðu
sér sigur.
Markvarslan virtist ætla að skilja
liðin að, Björgvin Páll Gústavsson
var í banastuði í fyrri hálfleik á
meðan markmenn gestanna vörðu
varla skot. Það breyttist hins vegar
í síðari hálfleik. Selfoss fór að nýta
færin sín betur og fá auðveld mörk
eftir góðan varnarleik. Elvar Örn
Jónsson fór fyrir sínu liði, skoraði
sjö mörk og var heilinn í sóknarleik
liðsins. Haukar Þrastarson var einn-
ig gríðarlega sterkur, en hann er
fæddur árið 2001. „Ef maður horfir
á hvenær menn eru fæddir er það
frábært. Á móti reynslumiklu og
sterku liði með landsliðsmarkmann.
Að vinna hér er eitthvað sem ekki
mörg lið gera,“ sagði Patrekur Jó-
hannesson í samtali við Morg-
unblaðið eftir leik.
Sóknarleikur Hauka var allt of
einhæfur. Ef Daníel Þór Ingasyni
tókst ekki að skora eða leggja upp á
liðsfélaga sína, var enginn til að
taka við keflinu af honum. Hákon
Daði Styrmisson skoraði góð mörk
úr hraðaupphlaupum og vítum, en
úr opnu spili var Daníel sá eini með
lífsmarki. Hann skoraði níu mörk og
lagði upp nokkur auk þess. Í fyrsta
skipti á tímabilinu virtust Hauk-
arnir virkilega sakna Adams Hauks
Baumruk sem hefur verið frá alla
leiktíðina vegna veikinda. Atli Már
Báruson var óvenju slakur og að-
eins fimm Haukamenn komust á
blað.
Selfoss á mikið hrós skilið, mörg
mun reynslumeiri lið hefðu hengt
haus, sex mörkum undir á útivelli
gegn einu sterkasta liði landsins.
Reynsla og færni Patreks sem þjálf-
ara er akkúrat það sem efnilegir
FH-ingar
rassskelltu
meistarana
FH komið á toppinn eftir sigurinn
gegn Val Selfoss vann Haukana
Gegnumbrot Gísli Þorgeir Kristjánsson brýst í gegnum vörn Vals en til varnar er
Mark Maximilian Jonsson er hér að skora
Hertz-höllin, úrvalsdeild karla, Ol-
ísdeildin, sunnudaginn 22. október
2017.
Gangur leiksins: 0:1, 3:4, 5:6, 8:8,
11:10, 14:12, 16:14, 19:17, 21:20,
22:22, 24:25, 25:29.
Mörk Gróttu: Maximilian Jonsson
7/3, Finnur Stefánsson 4, Júlíus
Þórir Stefánsson 4, Þórir Bjarni
Traustason 3, Nökkvi Dan Elliðason
2, Daði Laxdal Gautason 2, Bjarni
Ófeigur Valdimarsson 2, Hannes
Grimm 1.
Grótta – Afture
Valshöllin, úrvalsdeild karla, Olísdeildin,
sunnudaginn 22. október 2017.
Gangur leiksins: 0:1, 1:3, 4:6, 5:11, 5:12,
5:15, 6:16, 8:20, 11:23, 14:25, 18:28,
21:33.
Mörk Vals: Orri Freyr Gíslason 5, Árni Þór
Sigtryggsson 5, Sveinn Jose Rivera 3, Ant-
on Rúnarsson 3/1, Stiven Tobar Valencia
2, Alexander Örn Júlíusson 1, Magnús Óli
Magnússon 1, Ásgeir Snær Vignisson 1.
Varin skot: Sigurður Ingiberg Ólafsson 6,
Einar Baldvin Baldvinsson 2.
Utan vallar: 14 mínútur.
Mörk FH: Óðinn Þór Ríkharðsson 9, Ágúst
Birgisson 5, Arnar Freyr Ársælsson 4, Ás-
björn Friðriksson 4/2, Gísli Þorgeir Krist-
jánsson 3, Einar Rafn Eiðsson 3, Jóhann
Birgir Ingvarsson 2, Jón Bjarni Ólafsson 2,
Þorgeir Björnsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 14.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Jónas
Elíasson.
Áhorfendur: 398.
Valur – FH 21:33
Austurberg, úrvalsdeild karla, Ol-
ísdeildin, sunnudaginn 22. október
2017.
Gangur leiksins: 2:1, 6:3, 8:3, 9:6,
11:8, 13:11, 15:13, 18:15, 21:19, 22:20,
24:23, 25:27.
Mörk ÍR: Daníel Ingi Guðmundsson
8/3, Bergvin Þór Gíslason 7, Elías
Bóasson 4, Kristján Orri Jóhannsson
2, Sveinn Andri Sveinsson 2, Grétar
Ari Guðjónsson 1, Eggert Jóhannsson
1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 13.
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk ÍBV: Agnar Smári Jónsson 6,
Grétar Þór Eyþórsson 5, Sigurbergur
Sveinsson 5/2, Kári Kristján Krist-
jánsson 3, Elliði Snær Viðarsson 2,
Róbert Aron Hostert 2, Daníel Griffin
2, Magnús Stefánsson 1, Dagur Arn-
arsson 1.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 6,
Stephen Nielsen 4.
Utan vallar: 10 mínútur.
ÍR – ÍBV 25:27