Morgunblaðið - 23.10.2017, Qupperneq 6
6 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2017
ÍSHOKKÍ
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
SA náði átta stiga forskoti á toppi
Hertz-deildar karla í íshokkí á
laugardaginn var með 4:3-sigri á
Birninum í Egilshöllinni. Norð-
anmenn eru með 20 stig eftir sjö
sigra í fyrstu átta leikjum sínum.
Björninn er enn í öðru sæti með
12 stig og Íslandsmeistarar Esju
koma þar á eftir með tíu stig. SR
rekur lestina án stiga.
Megum ekkert slaka á
SA komst í 4:0 á laugardaginn
en Björninn skoraði þrjú mörk
seint í leiknum og gerði leikinn
óvænt spennandi í blálokin. „Við
vorum með yfirburði í 55 mínútur
en svo fórum við að reyna að spila
öruggt og breyta leiknum síðustu
mínúturnar og þá hrynur þetta
hjá okkur og þeir skora þrjú
mörk. Við megum ekkert slaka á,
það er alveg á hreinu,“ sagði Sig-
urður Sigurðsson, en hann skoraði
tvö mörk fyrir SA í leiknum.
Esja hafði gríðarlega yfirburði í
deildinni á síðustu leiktíð og
margir bjuggust við svipaðri sögu
í vetur. Esjumenn hafa hins vegar
unnið þrjá og tapað þremur í
fyrstu sex leikjum sínum og virka
nokkuð frá sínu besta. „Esjumenn
eru klárlega veikari en í fyrra.
Þeir misstu tvo lykilmenn um dag-
inn og þeir hafa ekki unnið leik
síðan. Þeir eru veikari en við er-
um ekki búnir að afskrifa þá, það
er af og frá,“ sagði Sigurður um
Íslandsmeistarana.
Landsliðsmennirnir Björn Ró-
bert Sigurðarson og Steindór
Ingason féllu á lyfjaprófi í síðasta
mánuði og virðist það hafa haft
mikil áhrif á meistarana, enda um
mjög sterka landsliðsmenn að
ræða. Sigurður segir SA á sama
tíma vera með betra lið en á síð-
ustu leiktíð. „Við erum með aðeins
breiðari hóp í ár og það eru aðeins
fleiri á æfingum og þetta hefur
gengið vel hjá okkur. Okkar
styrkur hefur alltaf verið reynslan
og hefðin og svo erum við komnir
með góða stráka í bland við það.
Við fengum góða útlendinga og við
erum að treysta á unga markmenn
sem hafa verið að standa sig vel
og þetta virðist vera að smella hjá
okkur, það er meðvindur í SA
núna.“ Skautafélag Akureyrar er
langsigursælasta félagið í íshokkí
hérlendis. SA hefur orðið Íslands-
meistari sex sinnum á síðustu átta
árum og 19 sinnum alls.
Veit ekki hvað framtíðin
ber í skauti sér
Esja keppti í Evrópukeppni,
fyrst íslenskra félaga fyrr í mán-
uðinum. Sigurður segir það mjög
gott fyrir íslenskt íshokkí, en við-
urkennir að það hafi ekki komið til
tals hjá SA að fara í Evr-
ópukeppni. „Það er frábært að
þeir fóru út, það er gríðarlegur
metnaður hjá þeim og það var
gaman að fylgjast með þeim. Það
er aldrei að vita hvort við gerum
þetta einhvern tímann, þetta hefur
einfaldlega aldrei komið til tals
hjá okkur, en maður veit ekki
hvað framtíðin ber í skauti sér,“
sagði Sigurður að lokum.
Morgunblaðið/Golli
Barningur Hart barist á ísnum í leik Bjarnarins og SA Víkinga í Laugardalnum á laugardagskvöldið.
Má ekki afskrifa Esju
SA með átta stiga forskot á toppnum Akureyringar bæta í en Esja missir
menn Af og frá að afskrifa Esju Evrópukeppnin frábær fyrir íslenskt íshokkí
Danmörk
Helsingör – Bröndby .............................. 0:1
Hjörtur Hermannsson lék allan tímann
fyrir Bröndby.
Lyngby – OB............................................. 1:1
Hallgrímur Jónasson var ekki í leik-
mannahópi Lyngby.
Silkeborg – SönderjyskE ....................... 1:0
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leik-
inn fyrir SönerjyskE.
Hobro – Nordsjælland ............................ 4:0
Rúnar Alex Rúnarsson lék allan tímann í
marki Nordsjælland.
Staða efstu liða:
Midtjylland 13 9 1 3 32:19 28
Brøndby 13 8 3 2 26:11 27
Nordsjælland 13 8 2 3 31:24 26
Hobro 13 6 4 3 22:16 22
København 13 6 3 4 25:15 21
Horsens 13 5 5 3 19:16 20
OB 13 4 6 3 13:11 18
B-deild:
Vejle – Viborg...........................................3:1
Björn Daníel Sverrisson kom inná á 86.
mínútu í liði Vejle.
Brabrand – Vendsyssel .......................... 2:1
Mikael Anderson kom inná sem vara-
maður hjá Vendsyssel.
Roskilde – Fredericia.............................. 1:1
Frederik Schram lék í marki Roskilde.
Svíþjóð
Gautaborg – Östersund .......................... 0:1
Elías Már Ómarsson sat á bekknum hjá
Gautaborg allan tímann.
Sundsvall – Norrköping ......................... 2:2
Kristinn Steindórsson fór af velli á 79.
mínútu í liði Sundsvall en Kristinn Freyr
Sigurðsson var ónotaður varamaður.
Jón Guðni Fjóluson og Guðmundur Þór-
arinsson léku allan tímann með Norrköp-
ing, Arnór Sigurðsson kom inná á 82. mín-
útu en Alfons Sampsted sat á bekknum
allan tímann.
Staðan:
Malmö 27 18 6 3 58:25 60
AIK 27 14 8 5 43:20 50
Djurgården 27 14 6 7 51:29 48
Östersund 28 12 10 6 44:31 46
Häcken 27 12 9 6 37:26 45
Norrköping 28 13 5 10 40:37 44
Elfsborg 28 10 8 10 49:52 38
Gautaborg 28 9 10 9 41:35 37
Sirius 27 10 6 11 40:43 36
Örebro 28 10 6 12 37:50 36
Hammarby 27 8 10 9 34:36 34
Kalmar 27 9 5 13 30:43 32
Sundsvall 28 6 10 12 25:42 28
Jönköping 27 5 10 12 29:46 25
Halmstad 28 4 8 16 25:43 20
Eskilstuna 28 4 7 17 26:51 19
B-deild:
Gefle – Frej .............................................. 3:0
Nói Snæhólm Ólafsson var ekki í leik-
mannahópi Frej.
Noregur
Aalesund – Kristiansund ........................ 1:1
Adam Örn Arnarson lék allan tímann
með Aalsund, Aron Elís Þrándarson fór af
velli á 69. mínútu og Daníel Leó Grétarsson
á 76. mínútu.
Brann – Rosenborg ................................. 0:3
Viðar Ari Jónsson sat allan tímann á
varamannabekk Brann.
Matthías Vilhjálmsson hjá Rosenborg er
frá keppni vegna meiðsla.
Molde – Haugesund................................. 1:0
Björn Bergmann Sigurðarson fór af velli
á 81.mínútu í liði Molde en Óttar Magnús
Karlsson var ekki í leikmannahópnum.
Sandefjord – Strömsgodset.................... 1:2
Ingvar Jónsson lék í marki Sandefjord.
Stabæk – Tromsö .................................... 1:2
Aron Sigurðarson var ónotaður vara-
maður hjá Tromsö.
Viking – Vålerenga ................................ 1:7
Samúel Kári Friðjónsson kom inná á 26.
mínútu í liði Vålerenga og skoraði fimmta
markið.
Staðan:
Rosenborg 26 17 6 3 54:17 57
Molde 26 14 5 7 45:31 47
Sarpsborg 26 11 11 4 41:32 44
Strømsgodset 26 11 8 7 33:30 41
Brann 26 11 7 8 43:30 40
Haugesund 26 11 6 9 30:28 39
Vålerenga 26 10 6 10 43:37 36
Odd 25 10 5 10 23:30 35
Stabaek 26 9 7 10 40:47 34
Sandefjord 26 10 3 13 33:40 33
Lillestrøm 25 8 7 10 33:38 31
Tromsø 27 8 7 12 35:48 31
Kristiansund 26 7 9 10 35:40 30
Sogndal 26 7 7 12 31:39 28
Aalesund 26 6 8 12 32:41 26
Viking 27 4 6 17 30:53 18
B-deild:
Arendal – Start ....................................... 0:2
Kristján Flóki Finnbogason lék allan
tímann fyrir Start en Guðmundur Krist-
jánsson sat á bekknum.
Jerv – Bodö/Glimt .................................. 1:4
Oliver Sigurjónsson var ekki í leik-
mannahópi Bodö/Glimt.
Holland
PSV – Heracles ........................................ 3:0
Albert Guðmundsson kom inná á 87.
mínútu og fiskaði vítaspyrnu og mann af
velli á 90. mínútu.
Excelsior – Sparta ................................... 1:1
Ögmundur Kristinsson lék allan tímann í
marki Excelsior.
KNATTSPYRNA
Fjölnir og Grótta skildu jöfn, 22:22
þegar liðin mættust í slag tveggja
neðstu liðanna í sjöttu umferð Ol-
ísdeildar kvenna í handbolta í Dal-
húsum í Grafarvogi í gærkvöldi.
Liðin höfðu hvort um sig eitt stig
fyrir leikinn og átti sigurliðið mögu-
leika á að skilja hitt liðið eftir eitt og
yfirgefið á botni deildarinnar. Jafn-
tefli varð hins vegar niðurstaðan og
liðin sitja því áfram saman á botni
deildarinnar.
Andrea Jacobsen sem hefur feng-
ið nokkuð stórt hlutverk í leikjum A-
landsliðs kvenna í undankeppni EM
í haust var markahæst í liði Fjölnis
með sex mörk í leiknum. Guðrún
Jenný Sigurðardóttir kom næst hjá
Fjölni með fimm mörk.
Kristjana Björk Steinarsdóttir
var atkvæðamest í liði gestanna af
Seltjarnarnesinu, en hún skoraði
fjögur mörk. Lovísa Thompson, sem
hefur verið í lykilhlutverki í A-
landsliðinu í leikjunum í und-
ankeppni EM skoraði síðan þrjú
mörk líkt og Emma Harvin Sardars-
dóttir, Savica Mrkic, Unnur Ómars-
dóttir og Þóra Guðný Arnarsdóttir.
Grótta og Selfoss hafa nú tvö stig
hvort lið eftir þetta jafntefli og sitja
á botni deildarinnar. Liðin eru einu
stigi á eftir Selfossi sem situr í sjötta
sæti deildarinnar.
Deildin í ár virðist vera ansi jöfn,
en svo virðist sem Valur, Fram og
ÍBV séu í nokkrum sérflokki og eigi
sæti í úrslitakeppninni nokkuð víst.
Þá muni þau fimm lið sem eftir eru
bítast um að komast í úrslitakeppni,
sigla lygnan sjó eða sogast í fallbar-
áttu deildarinnar.
Morgunblaðið/Golli
Spenna Berglind Benediktsdóttir brýst í gegnum vörn Gróttu.
Liðin skiptu stig-
unum í botnslag