Barnablaðið - 11.11.2017, Blaðsíða 4
BARNABLAÐIÐ4
Snillismiðja, hvað er það?
Róbert: Þetta er herbergi þar sem maður fær
að prófa alls konar tæknilega hluti. Hér eru
geymdar alls konar græjur sem við lærum
á. Hér eru tölvur, vélmenni, drónar, sýndar-
veruleikagleraugu, þrívíddarprentari og ýmislegt
fleira. Það má segja að þetta sé fyrsta árið
sem Snillismiðjan er starfrækt hér í
skólanum eins og hún er í dag.
Margrét: Við erum hérna 1-2
daga í viku. Bekkirnir velja sér
einn snilling úr hverjum bekk til
að prófa tæki og tól í smiðjunni.
Mikael: Eiginlega nokkurs konar
tilraunadýr. En annars mega auð-
vitað allir prófa.
Margrét: Það er fínt að sleppa við
dönsku og fá kannski að vera í Snillismiðj-
unni frekar.
Og er þetta þá ekki skemmtilegasta
herbergið í skólanum?
Mikael: Jú, klárlega.
Margrét: Kennararnir okkar, Engilbert og Anna
María, úthluta okkur verkefnum. Þá byrjum við
að fikta og í rauninni að prófa á okkur hversu
auðvelt er að læra á græjurnar og fyrir hvaða
aldurshóp.
Mikael: Þetta snýst mikið um forritun.
Róbert: Nú erum við að vinna með Sphero og
Dash.
Við forritum þessi tæki í gegnum spjaldtölvuna.
Síðan gera þau það sem maður er búinn að
ákveða fyrir fram.
Mikael: T.d. að syngja, dansa, segja eitthvað
skrýtið, afturábak og áfram og margt fleira.
Róbert: Við setjum upp þrautir til að
æfa okkur.
Margrét: Í fyrra lærðum við líka
dálítið á Microbit. En þá vorum
við bara í tölvustofunni, áður en
Snillismiðjan kom til sögunnar.
Róbert: Microbit er örtölva sem
þú tengir við venjulega tölvu.
Mikael: Síðan forritar maður eitt-
hvað inn á hana. Hún getur t.d. farið í
leikinn skæri, blað, steinn.
Eru krakkar á ykkar aldri fljótari að læra
á svona tæknileg tæki en fullorðnir?
Róbert: Já, það segir sig eiginlega sjálft.
Margrét: Það er erfitt að kenna gömlum hundi
að sitja.
Mikael: Það er gaman að lifa á tækniöld og
læra á allar þessar nýju græjur um leið og þær
verða til.
Margrét: Þetta snýst um að vera forvitin og
fikta sig áfram.
Myndir: Kristinn Magnússon
„Tækn-
in á eftir
að
halda áfr
am að
þróast m
jög
hratt.“
GAMAN AÐ LIFA
Á TÆKNIÖLD
MARGRÉT MIKAEL RÓBERT
FLINK er félag sem vill efla nýsköpun í
skólum en nýsköpun mætti líka kalla nýja
hugmynd eða uppfinningu. Í félaginu er
hugmyndaríkt fólk sem langar að gera
skólana skemmtilegri, með nýsköpunar-
menntun fyrir börn og kennara. Í nýsköp-
unarmennt fá börn fá tækifæri til að
vinna að hugmyndum sínum með
aðstoð kennara.
Dagurinn 9. nóvember er alþjóðlegur
dagur uppfinningamannsins. FLINK hefur
ákveðið að hampa honum og hugvitsfólki
á Íslandi og hófst sú vegferð í fyrra.
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna er
árleg keppni fyrir nemendur í 5., 6. og
7. bekk. Mismunandi hefur verið hverjir
styrkja hana og/eða standa að henni
undanfarin ár en meira er hægt að lesa
um sögu keppninnar á www.nkg.is
Margrét Þórhallsdóttir, Mikael Aron Viðarsson og Róbert Máni Gunnarsson
eru öll í 9. bekk Hólabrekkuskóla. Þau elska Snillismiðjuna í skólanum, þar
sem þau fá að ljóta ljós sitt skína í gegnum nýjustu tækni og vísindi.