Morgunblaðið - 20.11.2017, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2017
JÓLASERÍUR
við Fellsmúla | 108 Reykjavík | OPIÐ ALLA DAGA
kr.275
Inni- og útiseríur.
Verð frá
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Að missa tvíburasystur mína í
bílslysi er nokkuð sem mun fylgja
mér alla ævi. Ég hef aldrei verið
samur maður á eftir; þetta er
stöðugt í huganum. Þó eru liðin
tæp þrettán ár síðan þetta gerð-
ist,“ segir Þórir Guðmundsson,
lögregluþjónnn á Ísafirði. „Á
tímabili missti ég fótanna, var
mikið úti á lífinu og hreinlega
týndi sjálfum mér. Með góðri
hjálp sálfræðings tókst mér að
komast aftur á rétta braut. Hafði
þá sem víti til varnaðar tvo stráka
sem ég þekkti sem höfðu eftir
svipaða reynslu leiðst út í vondan
félagsskap og fíkniefnaneyslu.
Sjálfur hef ég hins vegar getað
nýtt þessa lífsreynslu uppbyggi-
lega eins og ég geri nú með fyr-
irlestrum og forvörnum í umferð-
armálum.“
Leikgleðin hvarf
Í gær var alþjóðlegur minn-
ingardagur um fórnarlömb um-
ferðarslysa, það er venju sam-
kvæmt þriðja sunnudag í
nóvember ár hvert. Er þetta gert
að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna
til að vekja athygli á þeirri stað-
reynd að á ári hverju deyja um
4.000 manns á dag í umferðar-
slysum í heiminum, auk allra
þeirra sem slasast. Af þessu tilefni
var í gær athöfn við þyrlupall
bráðamóttöku Landspítalans í
Fossvogi þar sem björgunarfólk
úr ýmsum stéttum var mætt og
ávörp flutt.
Meðal þeirra sem til máls
tóku var Þórir sem missti Þóreyju
tvíburasystur sína í bílslysi 19.
janúar 2006. Þá var hún að koma
frá Hnífsdal og ók um Eyrarhlíð
inn á Ísafjörð í snjó og krapa, en
fipaðist við aksturinn með þeim
afleiðingum að hún missti stjórn á
bílnum sem fór út af veginum og
hafnaði á hvolfi úti í sjó.
„Ég kom að slysinu, sem var
hræðilegt. Þegar þetta gerðist var
ég tæplega átján ára og var efni-
legur körfuboltamaður. Leik-
gleðin hvarf við þetta og áhugalít-
ill lenti ég á varamannabekknum.
Þetta leit illa út, en sem betur fer
tókst mér að snúa taflinu við og í
starfi mínu hefur mér gefist kost-
ur á að beita mér í forvörnum og
umferðarfræðslu. Þar förum við
saman ég og félagi minn Haukur
Árni Hermannsson lögreglumað-
ur sem einnig kom að slysinu og
það situr í honum ekkert síður en
mér. Raunar var þetta reiðarslag
fyrir samfélagið á Ísafirði, því
Þórey var mjög virk til dæmis í
íþróttastarfinu, vann í matvöru-
búðinni en þangað komu flestir
bæjarbúar og svo framvegis.
Svona mál snerta alla, sérstaklega
í litlum bæ.“
Aðgæsluleysi eitt andartak
Í fræðslu sinni hafa Þórir og
Haukur Árni meðal annars hamr-
að á þeirri hættu sem fylgir því ef
ökumenn nota síma undir stýri.
Hættan sem því fylgir er flestum
ljós – og því verður að halda til
haga að notkun síma var að hluta,
hið minnsta, orsök slyssins þegar
Þórey lést. Þannig sýndi útskrift
frá símafyrirtæki að fáeinum sek-
úndum áður en en tilkynning um
að bíll Þóreyjar hefði lent í sjón-
um fékk hún send og svaraði sms-
skilaboðum úr síma sínum.
„Það er hafið yfir allan vafa
að aðgæsluleysi eitt andartak
vegna símanotkunar er helsta
ástæða slyssins. Og þetta gerðist
vel að merkja áður en snjallsímar
með aðgang að netinu komu til
sögunnar. Því höfum við í fyrir-
lestrum okkar í framhaldsskól-
anum á Ísafirði hamrað mjög á því
hve notkun farsíma við akstur er
hættuleg. Þetta er hættuspil, ekk-
ert síður en hraðakstur eða ef fólk
sest undir stýri ölvað eða undir
áhrifum fíkniefna. Því er mín heit-
asta ósk að fræðsla okkar lög-
reglumanna fái krakkana til að
hugsa, þannig að hegðun þeirra í
umferðinni sé alltaf til fyrir-
myndar.“
Stöðug sjálfshjálp
Nú í byrjun nóvember höfðu
alls 1.545 manns látist í umferð-
inni á Íslandi frá því að skipt var
yfir í hægri umferð 26. maí 1968.
Hefur umferðarslysum fækkað
mikið undanfarna áratugi, sér-
staklega banaslysum. Árin 2007-
2016 létust að jafnaði 12,3 á
hverju ári í umferðinni, en árin tíu
þar á undan 24,4. Er það þakkað
því meðal annars að bílar og vegir
eru betri og ökumenn gætnari. En
nú eru blikur á lofti. Árið 2015 var
fjöldi látinna 18, árið 2016 létust
16 og 12 hafa látist í umferðinni
það sem af er þessu ári.
„Fjölgun slysa í umferðinni á
síðustu árum helgast af mörgu –
en veigamikil skýring er auðvitað
að erlendum ökumönnum sem eru
óvanir og reynslulausir í íslensk-
um aðstæðum hefur fjölgað mjög.
Þar bætist við að vegna fjárskorts
getur lögreglan ekki sinnt öllu því
sem þarf, svo sem frumkvæðis-
vinnu eins og umferðareftirlit er.
En þótt í litlu sé reynum við að
sinna forvörnum og fræðslu og
svo hef ég með fjölskyldunni með-
al annars unnið með Samgöngu-
stofu að gerð fræðsluefnis þar
sem slysið þar sem Þórey lést er
útgangspunkturinn. Fyrir mér er
þetta starf líka sjálfshjálp, því
slysið þar sem ég missti tvíbura-
systur mína, sem var mér mjög
náin, var áfall og ég þarf stöðugt
að vera að vinna í sjálfum mér til
að líða vel.“
Missti tvíburasystur sína í umferðarslysi og lætur nú til sín taka í forvarnamálum og fræðslu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Feðgin Þórir Guðmundsson, nú lögregluþjónn á Ísafirði, og dóttir hans,
Sigrún Þórey, sem heitir eftir föðursystur sinni, Þóreyju Guðmundsdóttur.
Nýti reynsluna uppbyggilega
Þórir Guðmundsson er
fæddur árið 1988. Húsasmíða-
meistari og byggingaiðnfræð-
ingur að mennt. Hóf störf við
afleysingar í lögreglunni á Ísa-
firði árið 2010. Er nú fastráð-
inn og hefur lokið námi í lög-
regluskóla.
Kona Þóris er Guðrún Krist-
ín Bjarnadóttir og eiga þau tvö
börn.
Hver er hann?
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Banaslys Þórey missti stjórn á bílnum sem hafnaði úti í sjó milli Ísafjarð-
arkaupstaðar og Hnífsdals. Þetta gerðist 19. janúar 2006.
Höskuldur Daði Magnússon
Erla María Markúsdóttir
Stjórnarmyndunarviðræður Fram-
sóknarflokks, Vinstri-grænna og
Sjálfstæðisflokks halda áfram í dag.
Formenn flokkanna, þau Sigurður
Ingi Jóhannsson, Katrín Jakobs-
dóttir og Bjarni Benediktsson, munu
hittast á fundi í Ráðherrabústaðnum
klukkan 9.30.
Vinna við málefnasamning flokk-
anna hefur reynst tímafrekari en
gert var ráð fyrir í síðustu viku. Við-
mælendur blaðsins eru sammála um
að þeim miði vel. Gert er ráð fyrir að
við bætist frekari fundir með sér-
fróðum aðilum nú í byrjun vikunnar.
Alltaf dálítið tímafrekt
„Þetta hefur gengið ágætlega,“
sagði Bjarni Benediktsson við Morg-
unblaðið í gærkvöld.
„Ætli það verði ekki að segja eins
og er að maður hefur tilhneigingu til
að vanmeta þann tíma sem þarf til að
ræða sig að niðurtöðu um slík mál-
efni. Það er ekkert sérstakt sem hef-
ur tafið eða komið upp á. Það vilja
allir vanda til verka. Þegar það eru
þrír flokkar við borðið er þetta alltaf
dálítið tímafrekt. Ég vonast enn til
að vera á undan Þjóðverjunum en
þetta gæti kostað einhverja daga í
viðbót.“
Undir þetta tekur Sigurður Ingi
Jóhannsson, formaður Framsókn-
arflokksins: „Við viljum gera þetta
vel og við erum að vanda okkur.“
Katrín Jakobsdóttir, formaður
VG, segir að helgin hafi meðal ann-
ars nýst í að fara yfir stöðu viðræðn-
anna með flokksmönnum. „Síðan fer
væntanlega að líða að því að við för-
um að ræða við þingmenn í okkar
flokkum um einstaka þætti áður en
við reynum að setjast aftur niður yf-
ir þetta sameiginlega.“
Það vilja
allir vanda
til verka
Formennirnir
funda áfram í dag og
hitta fleiri sérfræðinga
Morgunblaðið/Eggert
Fundað Formennirnir hittast á
fundi fyrir hádegi í dag.
Trúnaðarmannaráðstefna Rafiðn-
aðarsambands Íslands var haldin
fyrir helgi og krefst þess í ályktun,
rétt eins og hún gerði í fyrra, að
kjararáð breyti fyrri úrskurðum sín-
um, þar sem laun alþingismanna
hafi hækkað langt umfram aðra í
samfélaginu. Nauðsynlegt sé að
tengja kjararáð við raunveruleik-
ann.
„Við erum bara að benda á það að
það er ekkert hægt að halda áfram
með SALEK-samstarfið, þetta
rammasamkomulag, nema þá að úr-
skurðum kjararáðs verði breytt,
þannig að laun alþingismanna hækki
ekki um 45% eins og þeir voru að
njóta,“ segir Kristján Þórður Snæ-
bjarnarson, formaður Rafiðnaðar-
sambandsins, í samtali við Morgun-
blaðið. 5.500
félagsmenn eru
innan aðildar-
félaga Rafiðn-
aðarsam-
bandsins.
Allir þurfi að
dansa í takt
„Það hefur
áhrif á stöðuna á
vinnumarkaði að
úrskurðirnir eru algjörlega úr takt
við þennan raunveruleika og menn
vilja sjá þessa breytingu.“
Í ályktun trúnaðarmannaráð-
stefnunnar segir að öllum ætti að
vera ljóst að launafólk sé ekki
reiðubúið til þess að fylgja afmark-
aðri línu launahækkana á meðan
hópar sem heyri undir kjararáð
njóti launahækkana umfram það
sem almennt gerist.
Kristján segist ætla að reyna að
vera jákvæður og bjartsýnn á að
næsta ríkisstjórn grípi til aðgerða í
þessum efnum. Allir þurfi að dansa í
takt til að möguleiki sé á að SA-
LEK-samkomulagið gangi upp.
Annars verði óstöðugleiki
„Þeir hafa fengið fjölmörg tæki-
færi til þess en ekki nýtt þau ennþá.
Þeir verða að gera þetta, nema þeir
vilji mikinn óstöðugleika á vinnu-
markaði á næstu mánuðum,“ segir
Kristján Þórður, sem telur að launa-
liðurinn muni vega töluvert þungt í
þeim kjaraviðræðum sem fram und-
an eru. athi@mbl.is
Kristján Þórður
Snæbjarnarson
Rafiðnaðarmenn vilja tengja
kjararáð við raunveruleikann
Krefjast þess í annað sinn að fyrri úrskurðum verði breytt