Morgunblaðið - 20.11.2017, Side 32
MÁNUDAGUR 20. NÓVEMBER 324. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
1. Þrír í 8 fm herbergi og borga 210.000
2. Hæddist að mér fyrir að „vanmeta …
3. Strætisvagn keyrði aftan á vörubíl
4. Búið að ná ökutækjunum í sundur
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Joshua Bell og Akademía St. Mart-
in in the Fields koma fram í Eldborg
Hörpu annað kvöld, þriðjudag, kl.
19.30. Á efnisskránni eru Branden-
borgarkonsert nr. 3 eftir Johann
Sebastian Bach, Árstíðirnar fjórar í
Buenos Aires eftir Astor Piazzolla
ásamt Fiðlukonserti í D-dúr op. 61
eftir Ludwig van Beethoven.
Ljósmynd/Alan Kerr
Joshua Bell leikur í
Hörpu á morgun
Eugen Prochác,
sellóleikari frá
Bratislava, og
Peter Máté flytja
þrjú verk fyrir
selló og píanó eft-
ir austurríska tón-
skáldið Johann
Nepomuk Humm-
el (1778–1837).
Tónleikarnir verða í Hannesarholti á
miðvikudagskvöld kl. 20.
Verk Hummel hljóma
í Hannesarholti
Sætabrauðsdrengirnir Bergþór
Pálsson, Gissur Páll Gissurarson,
Hlöðver Sigurðsson og Viðar Gunn-
arsson ásamt Halldóri Smárasyni, út-
setjara og píanóleikara, verða í jóla-
stuði í Salnum á
miðvikudag og
fimmtudag kl. 20. Á
efnisskránni eru jóla-
lög og tónlist með
hátíðarbrag auk þess
sem búast má við
því að strák-
arnir bregði
á leik.
Sætabrauðsdreng-
irnir syngja í Salnum
Á þriðjudag Norðan- og norðaustan 10–18 m/s. Snjókoma eða él
um landið norðan- og austanvert, en yfirleitt þurrt og bjart suð-
vestan til. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum.
SPÁ KL. 12 Í DAG Norðan- og norðaustan 5–13 m/s. Él nyrðra, en
bjart að mestu syðra. 10–18 m/s og snjókoma norðanlands í kvöld,
en áfram bjart sunnan til. Frost 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins.
VEÐUR
Haukar léku Njarðvík grátt
þegar liðin áttust við í
Dominos-deild karla í
körfuknattleik í gær en
Haukarnir lönduðu 33
stiga sigri. Íslandsmeist-
arar KR gerðu góða ferð í
Keflavík og lögðu heima-
menn eftir að hafa tapað
tveimur leikjum í röð.
Tindastóll vann öruggan
sigur gegn nýliðum Hattar
á Króknum og heldur topp-
sæti deildarinnar. »4–5
Haukar léku sér
að Njarðvík
Kraftlyftingakappinn Júlían K.J. Jó-
hannsson gerði það gott á HM í kraft-
lyftingum sem fram fór í Pilsen í
Tékklandi um helgina. Hann vann til
gullverðlauna í réttstöðulyftu og
bronsverðlauna í samanlögðum
árangri á mótinu. »2
Gull og brons hjá Júlían
á HM í kraftlyftingum
Sundfólkið Hrafnhildur Lúthers-
dóttir og Aron Örn Stefánsson úr
Sundfélagi Hafnarfjarðar unnu til
fimm gullverðlauna í einstaklings-
greinum um helgina á Íslands-
meistaramótinu í sundi í 25 metra
laug sem fram fór í Laugardalslaug
og bæði náðu þau lágmarki fyrir
Evrópumótið sem fram fer í Dan-
mörku í næsta mánuði. »1
Hrafnhildur og Aron
voru sigursæl
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Herdís Friðriksdóttir, verkefna-
stjóri og eigandi ferðaskrifstof-
unnar Understand Iceland, fékk ný-
verið styrk til að kynna erlendum
háskólanemum sjálfbærni og um-
hverfisvernd á Suðurlandi.
Ferðaskrifstofa Herdísar hefur
um árabil sérhæft sig í fræðsluferð-
um og snýst nýja verkefnið um að fá
bandaríska háskólanema til Íslands
og tengja þá við einstaklinga, fyrir-
tæki, stofnanir og sveitarfélög á
Suðurlandi sem starfa í eða að sjálf-
bærni. „Eins og heimurinn er orð-
inn í dag hafa margir áhyggjur af
loftslagsbreytingum og fólk er að
spyrja hvað er hægt að gera til að
snúa þessu við? Og það er fullt af
svörum þarna úti,“ segir Herdís.
Hún stefnir á að kynna nemendur
fyrir grænum og endurnýjanlegum
orkugjafa ásamt því að opna gagn-
rýnið samtal um sjálfbærni.
Í mörg horn að
líta á Suðurlandi
Herdís segir að Suðurland hafi
orðið fyrir valinu vegna þess að þar
eru hennar heimkynni en bendir á
að þar séu einnig margir staðir sem
eru áhugaverðir að heimsækja og
sækja fræðslu.
„Hveragerðisbær er til dæmis að
byrja með verkefni sem heitir Sjálf-
bært Ísland og þau eru opin fyrir
samstarfi. Í Skaftholti er sjálfbært
samfélag og svo er Náttúrustofan á
Höfn, sem sér um mælingar á jökl-
unum. Svo má nefna vindmylluverk-
efnið hjá Landsvirkjun ásamt
Hellisheiðarvirkjun. Á sama tíma
þarf líka að skoða hversu mikið við
ætlum að virkja, þetta er græn
orka, en hversu græn er hún ef hún
er notuð öll í álver?“
Herdís hefur nú þegar sett sig í
samband við nokkra háskóla vest-
anhafs og er markmiðið að bjóða
upp á fyrstu ferðina næstkomandi
vor.
„Við erum aðallega að tala við
skóla frá Michigan, Wisconsin,
Minnesota, við tengjumst helst
austurströnd Bandaríkjanna,“ segir
Herdís en fræðsluferðir eru hluti af
náminu í mörgum bandarískum há-
skólum. „Markmiðið er að skólarnir
komi með hópa til okkar og við tök-
um við þeim. Þetta verða allt frá
þriggja mánaða kúrsum niður í viku
kúrsa. Erlendis heitir þetta „study
abroad“ og er í raun bara fræðslu-
ferð sem hluti af náminu þeirra.“
Í þeim fræðsluferðum sem hún
hefur nú þegar farið með ferðamenn
frá Bandaríkjunum hefur hún feng-
ið gríðarlega góð viðbrögð.
„Fólk bara elskar Ísland, það er
pínu vandræðalegt,“ segir Herdís
og hlær við.
Kynnir háskólanemum landið
„Fólk bara elskar
Ísland,“ segir Herdís
Morgunblaðið/Eggert
Náttúrubarn Herdís Friðriksdóttir er í leiðsöguskólanum og stefnir einnig að því að taka meiraprófið til að geta séð
um akstur með ferðamenn um Suðurlandið. Hún stefnir að því að fá fyrsta hópinn af háskólanemum til Íslands í vor.
Herdís segir að verk-
efnið bjóði upp á
marga möguleika en
meðal annars sé
hægt að bjóða háskólahópunum
að taka þátt í þeim umhverfisrann-
sóknum sem verið er að vinna að á
Suðurlandi. „Þetta yrði þá meiri
samvinna á milli Understand Ice-
land og þeirra aðila sem vilja
starfa með okkur, nemarnir læra af
þeim og þeir leggja fram vinnu til
rannsókna. Nemarnir
og kennarar þeirra
búa oft yfir þekkingu
sem myndi nýtast
samstarfsaðilanum einnig,“ segir
Herdís.
Hún vonar einnig að þeir há-
skólanemar sem koma hingað nýti
sér þekkinguna í heimalandi sínu,
enda umhverfisvernd og loftslags-
breytingar eitthvað sem hefur
áhrif á alla.
Þekkingin nýtist á marga vegu
ERLENDIR HÁSKÓLANEMAR GETA AÐSTOÐAÐ VIÐ
SJÁLFBÆRNIS- OG UMHVERFISRANNSÓKNIR Á ÍSLANDI