Morgunblaðið - 22.11.2017, Side 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2017
Alfreð Gíslason, þjálfari þýska handknattleiksins Kiel, ráð-
leggur króatíska leikstjórnandanum Domagoj Duvnjak að
taka ekki þátt á Evrópumótinu í janúar sem fram fer í Króat-
íu en Íslendingar eru einmitt í riðli með Króötum á mótinu.
Duvnjak hefur verið frá keppni síðustu mánuðina, nánast
frá HM í Frakklandi í janúar, vegna meiðsla en Alfreð reikn-
ar með því að hann snúi til baka inn á völlinn í næsta mánuði.
Upphaflega stóðu vonir til að Duvnjak yrði klár í slaginn í síð-
asta mánuði.
„Það væri best fyrir alla aðila að hann tæki ekki þátt í Evr-
ópumótinu,“ sagði Alfreð í viðtali við þýska blaðið Handball
Woche en Alfreð er annt um heilsu leikmannsins, sem hefur
verið óheppinn með meiðsli á sínum ferli.
Duvnjak hefur oftar en ekki reynst íslenska landsliðinu óþægur ljár í þúfu.
Auk Króata og Íslendinga leika í riðlinum Serbar og Svíar og verður riðillinn
spilaður annaðhvort í Split eða í Osijek, eins og greint er frá á forsíðunni.
Telur best að sleppa EM
Alfreð
Gíslason
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, verður
á meðal keppenda á PGA-meistaramótinu í Ástralíu. Mótið
er hluti af Evrópumótaröðinni og fer það fram dagana 30.
nóvember til 3. desember og er leikið á Royal Pines-
vellinum. Frá þessu er greint á golf.is.
Mótið er sameiginlegt verkefni hjá Evrópumótaröðinni
og PGA-atvinnumótaröðinni í Ástralíu. PGA-meistaramótið
í Ástralíu á sér langa sögu sem nær allt aftur til ársins 1905
þegar fyrst var keppt um titilinn.
Á meðal keppenda eru margir af bestu kylfingum heims
og má þar nefna Adam Scott frá Ástralíu og Sergio Garcia
frá Spáni. Birgir Leifur gerir ráð fyrir að komast inn á 10-
15 mót í Evrópumótaröðinni samhliða því að vera með keppnisrétt á öllum
mótum næsta tímabils í Áskorendamótaröðinni. Sigur hans á Áskorendamóti í
ágúst á þessu ári styrkir stöðu hans varðandi þátttöku í Evrópumótaröðinni
sem er sú sterkasta í Evrópu. sport@mbl.is
Birgir Leifur á leið til Ástralíu
Birgir Leifur
Hafþórsson
Meistaradeild Evrópu
E-RIÐILL:
Spartak Moskva – Maribor..................... 1:1
Ze Luis 82. – Jasmin Mesanovic 90.
Sevilla – Liverpool................................... 3:3
Wissam Ben Yedder 51., 60.(víti), Guido
Pizarro 90. – Roberto Firmino 2., 30., Sadio
Mané 22.
Staðan:
Liverpool 5 2 3 0 16:6 9
Sevilla 5 2 2 1 11:11 8
Spartak Moskva 5 1 3 1 9:6 6
Maribor 5 0 2 3 2:15 2
F-RIÐILL:
Manchester City – Feyenoord................ 1:0
Raheem Sterling 88.
Napoli – Shakhtar Donetsk.................... 3:0
Lorenzo Insigne 56., Piotr Zielinski 81.,
Dries Mertens 83.
Staðan:
Manch. City 5 5 0 0 13:3 15
Shakhtar D. 5 3 0 2 7:8 9
Napoli 5 2 0 3 10:9 6
Feyenoord 5 0 0 5 3:13 0
Manchester City komið áfram.
G-RIÐILL:
Besiktas – Porto....................................... 1:1
Anderson Talisca 41. – Felipe 29.
Mónakó – RB Leipzig.............................. 1:4
Radamel Falcao 43. – Jemerson
6.(sjálfsm.), Timo Werner 9., 31.(víti), Naby
Keita 45.
Staðan:
Besiktas 5 3 2 0 9:4 11
Porto 5 2 1 2 10:8 7
RB Leipzig 5 2 1 2 9:9 7
Mónakó 5 0 2 3 4:711 2
Besiktas komið áfram.
H-RIÐILL:
APOEL Nicosia – Real Madrid .............. 0:6
Luka Modric 23., Karim Benzema 39., 45.,
Nacho Fernández 41., Cristiano Ronaldo
49., 54.
Dortmund – Tottenham.......................... 1:2
Pierre-Emerick Aubameyang 31. – Harry
Kane 49., Heung-Min Son 76.
Staðan:
Tottenham 5 4 1 0 12:4 13
Real Madrid 5 3 1 1 14:5 10
Dortmund 5 0 2 3 5:10 2
APOEL 5 0 2 3 2:14 2
Tottenham og Real Madrid komin áfram.
England
B-deild:
Aston Villa – Sunderland ....................... 2:1
Birkir Bjarnason sat á varamannabekk
Aston Villa.
Barnsley – Cardiff ................................... 0:1
Aron Einar Gunnarsson lék fyrstu 74
mínúturnar fyrir Cardiff.
Bolton – Reading ..................................... 2:2
Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem
varamaður á 66. mín., Axel Óskar Andr-
ésson var ekki í leikmannahópi Reading.
Bristol City – Preston ..............................1:2
Hörður Björgvin Magnússon sat á vara-
mannabekk Bristol City.
Brentford – Burton Albion...................... 1:1
Derby – QPR ............................................ 2:0
Millwall – Hull .......................................... 0:0
Nottingham Forest – Norwich ............... 1:0
Sheffield United – Fulham.......................4:5
Staða efstu liða: Wolves
17 12 2 3 31:15 38
Cardiff 18 11 4 3 25:13 37
Sheffield Utd 18 12 0 6 31:20 36
Aston Villa 18 9 5 4 26:17 32
Bristol City 18 8 7 3 27:18 31
Derby 17 8 5 4 26:20 29
Nottingham F. 18 9 0 9 26:27 27
Middlesbrough 17 7 5 5 22:15 26
Leeds 17 8 2 7 26:20 26
Ipswich 16 8 1 7 28:24 25
Preston 18 6 7 5 21:20 25
KNATTSPYRNA
Grill 66-deild kvenna
Valur U – ÍR ......................................... 22:30
Staðan:
HK 7 5 2 0 197:135 12
KA/Þór 6 6 0 0 182:124 12
ÍR 7 4 0 3 186:174 8
FH 6 3 2 1 129:120 8
Víkingur 6 2 1 3 144:164 5
Afturelding 6 2 1 3 105:122 5
Fylkir 6 2 0 4 124:139 4
Fram U 6 1 0 5 129:170 2
Valur U 6 0 0 6 116:164 0
Coca Cola-bikar karla
32 liða úrslit:
Valur 2 – Hvíti riddarinn ..................... 23:26
Hvíti riddarinn mætir Val.
ÍBV 2 – Afturelding.............................. 23:39
Afturelding mætir Fram.
Svíþjóð
Guif – Hammarby................................ 28:25
Örn Ingi Bjarkason var ekki í leik-
mannahópi Hammarby.
Ungverjaland
Cegledi – Pick Szeged ....................... 26:30
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði eitt
mark fyrir Pick Szeged.
Spánn
Granollers – Barcelona....................... 19:43
Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir
Barcelona.
HANDBOLTI
heldinn hópur og það hefur verið
mjög gaman að tilheyra þessu
liði síðustu ár,“ segir Pétur
Rúnar. Eins og fyrr segir var
hann í Tindastólsliðinu sem
varð í 2. sæti deildarinnar 2015
og tapaði gegn KR í úr-
slitaeinvíginu sama ár:
„Mér finnst við vera með enn
betra lið núna. Við Viðar erum
orðnir þremur árum eldri, Hann-
es Ingi hefur bæst við, Chris Ca-
ird hefur fest sig vel í sessi hérna,
Björgvin er líka mættur og svo
fengum við Arnar og Axel í sumar.
Við erum með sterkari hóp, komnir
með meiri breidd og ættum að geta
verið sterkari út tímabilið, jafnvel þó að
Kaninn okkar fengi höfuðhögg,“ segir
Pétur, og vísar til þess þegar Bandaríkja-
maðurinn Myron Dempsey missti af nán-
ast öllu úrslitaeinvíginu við KR vegna höf-
umeiðsla.
Pétur bendir á að ekki aðeins sé leik-
mannahópur Tindastóls betri en áður, held-
ur sé Israel Martin þjálfari nú með góðan að-
stoðarmann með sér, Fernando Bethencourt.
Báðir séu þeir afar vel liðnir, ekki bara af leik-
Rennur stóra
stund Stóla
upp í vor?
Allt virðist til staðar svo að leit Tindastóls að fyrsta
titlinum ljúki Tvisvar hefur liðið komist að lokahindrun
TINDASTÓLL
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Tindastóll trónir á toppi úrvalsdeildar karla í körfubolta nú á meðan á lands-
leikjahléinu stendur. Sú staða er verðskulduð og allt virðist til staðar í „Síkinu“
á Sauðárkróki til þess að liðið stígi í vetur skrefið stóra sem beðið hefur verið
eftir lengi í bænum – vinni fyrsta stóra titilinn í sögu félagsins.
„Við höfum verið að spila mjög vel. Það er góð stígandi í þessu viku eftir viku
hjá okkur. Það var smáhiksti í þessu hjá okkur í fyrsta leik, og við vorum mjög
lengi í gang í öðrum leik, en síðan þá höfum við verið að bæta okkur nánast með
hverri æfingu. Við erum á réttri leið,“ segir Pétur Rúnar Birgisson, sem 21 árs
gamall hefur engu að síður verið lykilmaður í liði Tindastóls síðustu ár og einn
albesti ungi leikmaður landsins.
Pétur er einn af mörgum leikmönnum liðsins nú sem hafa stórt Tindastóls-
hjarta og þrá líklega fátt heitar en að færa félaginu verðlaunagrip. Æskuvinur
hans, Viðar Ágústsson, „gömlu brýnin“ Helgi Freyr Margeirsson og Helgi Rafn
Viggósson, og landliðsmennirnir sem snúnir eru heim, Sigtryggur Arnar
Björnsson og Axel Kárason, eru þar á meðal. Leikmannahópurinn er líklega
betri en nokkru sinn fyrr, og spænski þjálfarinn Israel Martin þykir afar klókur
og hefur lært vel á íslenska boltann síðan hann kom fyrst á Krókinn sumarið
2014. En þó að útlitið sé gott núna þá vita Tindastólsmenn líka að áföllin geta
dunið á þegar síst skyldi.
„Síðan að ég byrjaði í meistaraflokki í 1. deildinni hérna fyrir nokkrum árum
hafa verið talsverðar væntingar hérna um árangur. Við setjum okkur háleit
markmið og erum með lið til að berjast þarna efst uppi. Við ætlum bara að halda
áfram á þessari sömu braut og sjá hvert það leiðir okkur. Þetta er mjög sam-
Lykilmaður
Pétur Rúnar Birgisson
er í stóru hlutverki en í
vetur hefur hann skorað
12,6 stig, tekið 5,6 frá-
köst og átt 6,4 stoðsend-
ingar að meðaltali í leik.
Af 12 manna landsliðshópi Íslands sem mætir
Tékklandi í undankeppni HM á föstudag eru
tveir leikmenn, eða 17% hópsins, úr Tindastóli.
Þetta eru þeir Axel Kárason og Sigtryggur Arn-
ar Björnsson, sem báðir ákváðu að halda heim
til Sauðárkróks í sumar og ganga í raðir Tinda-
stóls að nýju. Axel kom frá Danmörku þar sem
hann hefur leikið síðustu ár en Arnar lék síðast
með Skallagrími þar sem hann var í algjöru lyk-
ilhlutverki.
Stólarnir héldu Bandaríkjamanninum Antonio
Hester í sínum röðum frá síðasta tímabili. Hann
glímir reyndar við meiðsli og gæti verið frá
keppni fram yfir áramót, en til að leysa hann af
hólmi samdi Tindastóll til þriggja mánaða við
Brandon Garrett sem leikið hefur tvo síðustu
leiki liðsins.
Annar lykilmaður, Pétur Rúnar Birgisson,
hefur verið að glíma við smávægileg meiðsli,
ökklatognun, en stefnir á að spila stórleikinn
við KR í næstu umferð, hinn 4. desember.
Israel Martin tók aftur við sem aðalþjálfari
Tindastóls eftir að José Costa var rekinn í nóv-
ember fyrir ári og er Martin áfram í brúnni í
vetur. Landi þeirra frá Spáni, Fernando Bet-
hencourt, var í sumar ráðinn aðstoðarþjálfari
Martins.
Eiga 17% landsliðshópsins
Morgunblaðið/Golli
Liðsauki Sigtryggur Arnar Björnsson kom til
Tindastólsmanna frá Skallagrími í sumar.
Leikmannahópurinn í vetur:
Antonio Hester, miðherji
Axel Kárason, framherji
Björgvin Hafþór Ríkharðsson, bakvörður
Brandon Garrett, framherji
Christopher Caird, framherji
Elvar Ingi Hjartarson, bakvörður
Finnbogi Bjarnason, bakvörður
Friðrik Þór Stefánsson, bakvörður
Hannes Ingi Másson, framherji
Helgi Freyr Margeirsson, framherji
Helgi Rafn Viggósson, miðherji
Hlynur Freyr Einarsson, bakvörður
Pétur Rúnar Birgisson, bakvörður
Þröstur Kárason, bakvörður
Sigtryggur Arnar Björnsson, bakvörður
Viðar Ágústsson, bakvörður
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Ó
fe
ig
ur