Morgunblaðið - 13.01.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 13.01.2018, Qupperneq 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2018 leikinn gegn Svíum. Óhætt er að segja að Geir og Óskar Bjarni Óskarsson hafi veðjað rétt. Sást það glögglega í fyrri hálfleik þar sem íslenska liðið virtist hafa lítið fyrir því að skora. Pressan var á Svíum Eftir velgengni Svía á HM í Frakk- landi í fyrra voru væntingarnar tals- verðar til liðsins í Svíþjóð að þessu sinni. Svíþjóð var almennt álitið sig- urstranglegra liðið gegn Íslandi. Hjá veðbönkum gátu getspakir um það bil fimmfaldað upphæðina sem lögð var undir íslenskan sigur. Svíar eiga marga mjög fram- bærilega handboltamenn en lið þeirra er hins vegar ungt og ungu mennirnir réðu ekki við mótlætið sem þeim mætti í upphafi leiks í Split í gær. Þeir fóru á taugum. Kristján Andrésson, þjálfari þeirra, hafði orð á því við Morgunblaðið á fimmtudaginn að liðið væri ungt og leikmenn þyrftu að finna ró til að útfæra áhersluatriðin. Fyrsta leik á stórmóti getur fylgt taugaveiklun. Í þessu tilfelli bjó ís- lenska liðið einfaldlega betur þegar kom að reynslu og velgengni á stór- mótum. Reynsluheimur manna eins og Björgvins, Guðjóns Vals Sigurðssonar, Aron Pálmarssonar, Ásgeir Arnar Hallgrímssonar og Arnórs Atlasonar er verðmætur. Hann er jafnframt nauðsynlegur þegar yngri mönnum er rétt keflið. Ásgeir og Arnór spiluðu til að mynda ekki mikið í þetta skiptið en geta hjálpað til við að stilla spennuna hjá mönnum sem eru á sínu fyrsta og öðru stórmóti. Svíar felldir á eigin bragði Við sem fylgjumst vel með hand- boltanum vitum fullvel að Björgvin er ekki stöðugasti handboltamaður Ís- lendinga. En hann er stuðkarl og hef- ur unnið til verðlauna á stórmótum. Sá möguleiki er alltaf fyrir hendi að hann hrökkvi í stuð og það gerðist í gær. Björgvin lék væntanlega sinn besta landsleik í nokkur ár í Split í gær og var það afskaplega vel þegið því almennt var talið að hinir frábæru markverðir Svía myndu ríða bagga- muninn en ekki sá íslenski. Með sterkum varnarleik og góðri mark- vörslu má segja að Svíar hafi verið felldir á eigin bragði. Ég gat þess í blaðinu eftir síðari leikinn gegn Þjóðverjum á dögunum að mér litist ekki á hversu lengi ís- lenska liðið hefði verið að snúa í vörn þegar það tapaði boltanum. Þótti mér sú tilhugsun ekki uppörvandi að nota margar skiptingar á milli varnar og sóknar gegn sænska liðinu. Ég var því ánægður að sjá Geir tefla fram mönn- um í upphafi leiks sem geta spilað bæði vörn og sókn. Yfirleitt var ein- ungis ein skipting notuð framan af leik, þegar Bjarki skipti við Arnar Frey Arnarsson. Þegar af mönnum var farið að draga var gott að geta skipt flinkum mönnum eins og Janusi Daða Smára- syni og Ómari Inga Magnússyni inn á. Með þeim kom ferskleiki sem þurfti til að landa sigrinum en í óefni virtist stefna um tíma þegar Svíar lokuðu vörninni. Björgvin Páll tók Svíana á taugum  Frábær byrjun íslenska liðsins á EM  Svíar lagðir á stórmóti í handbolta í þriðja sinn frá upphafi  Íslendingar höndluðu spennustigið mun betur KR-ingar hafa sagt bandaríska körfuknattleiksmanninum Ja- len Jenkins upp störfum og fengið í staðinn landa hans Brandon Penn í sínar raðir. Vefmiðillinn Karfan.is greindi frá þessu í gær. Jenkins lék 12 leiki með KR í úrvalsdeildinni, skoraði 17,4 stig og tók 9,6 fráköst að meðaltali í leik. Penn er 27 ára gamall, 2,03 cm á hæð og leikur sem fram- herji. Hann spilaði síðast með Plymouth Raiders á Englandi en lék áður í Grikklandi, Japan, Danmörku og í bandaríska háskólaboltanum. Hann er gjaldgengur með KR í bikarúrslitaleiknum gegn Tindastóli í dag en annar Bandaríkjamaður, Zaccery Alen Carter, er einnig í leikmannahópi KR-inga og þeir þurfa að skipta leiktímanum á milli sín þar sem aðeins má vera einn erlendur leikmaður inn á í senn. Þar með verða fjórir bandarískir leikmenn í úrslitaleiknum því Tindastóll er líka með tvo slíka, Antonio Hester og Brandon Garrett. Nánar er fjallað um bikarúrslitaleikina á bls. 4. vs@mbl.is Með nýjan í úrslitaleiknum Jalen Jenkins Þóranna Kika Hodge-Carr mun fylgjast með liðsfélögum sín Keflavík sem áhorfandi á bikarúrslitaleiknum í körfubolta í Laugardalshöll í dag, líkt og næstu mánuðina. Í gær varð ljó við myndatöku að fremra krossband í hné hefði slitnað þega hún meiddist í leiknum við Snæfell í úrvalsdeildinni um síðus helgi. Þetta er annað áfall fyrir Keflavíkurliðið á rúmum mánuð í byrjun desember sleit landsliðskonan Emelía Ósk Gunn- arsdóttir einnig krossband í hné. Þóranna hefur skorað 6,3 s að meðaltali í leik í vetur, tekið 4,9 fráköst og átt 1,7 stoðsen ingu. Hún hefur að meðaltali verið með 9,5 framlagspunkta og Emelía 9,9. Keflavík fékk aftur á móti landsliðskonuna Emblu Kristínardóttur til sín fyr jól, í kjölfar þess að hún hætti hjá Grindavík, en hún skoraði 9 stig og tók 9 frák sigrinum á Snæfelli í undanúrslitum Maltbikarsins á fimmtudaginn þar sem Ke vík vann 83:81-sigur. sindris@mbl.is Þóranna sleit líka krossband Þóranna Kika Hodge-Carr Spánn Getafe – Málaga........................................ 1:0 B-deild: Rayo Vallecano – Real Oviedo .............. 2:2  Diego Jóhannesson spilaði allan leikinn fyrir Real Oviedo. Þýskaland Leverkusen – Bayern München ............. 1:3 England B-deild: Sheffield United – Sheffield Wed ........... 0:0 Holland B-deild: Waalwijk – Jong AZ ............................... 1:0  Viktor Karl Einarsson var í liði AZ fram á 65. mínútu. Reykjavíkurmót karla A-riðill: Valur – Fylkir ........................................... 1:3 ÍR – Fjölnir ............................................... 1:3  Fjölnir 6 stig, Fylkir 4, Fram 1, ÍR 0, Valur 0. Faxaflóamót kvenna Selfoss – Grindavík .................................. 6:0 Fótbolti.net mót karla HK – Keflavík ........................................... 2:1 KNATTSPYRNA Grill 66 deild kvenna HK – Valur U........................................ 40:21 Staðan: HK 9 6 3 0 262:181 15 KA/Þór 8 7 1 0 236:167 15 ÍR 9 6 0 3 242:222 12 FH 8 4 2 2 171:166 10 Víkingur 9 4 1 4 225:231 9 Afturelding 9 3 1 5 164:189 7 Fylkir 8 3 0 5 166:185 6 Fram U 9 2 0 7 198:246 4 Valur U 9 0 0 9 178:255 0 Grill 66 deild karla Valur U – ÍBV U................................... 24:21 Danmörk Aarhus United – Midtjylland ............. 19:25  Birna Berg Haraldsdóttir var ekki í leik- mannahópi Aarhus. Frakkland Toulon - Dijon ...................................... 26:25  Mariam Eradze var ekki í leikmanna- hópi Toulon. Ungverjaland DVSC Debreceni – Vasas ................... 32:23  Arna Sif Pálsdóttir skoraði 1 mark fyrir Debreceni. Undankeppni HM karla 2. riðill: Lettland – Georgía ............................... 24:21 Litháen – Ísrael .................................... 36:20  Litháen 2 stig, Lettland 2, Georgía 0, Ísr- ael 0. 3. riðill: Færeyjar – Rúmenía............................ 20:28 Ítalía – Úkraína .................................... 29:28  Rúmenía 4 stig, Úkraína 2, Ítalía 2, Fær- eyjar 0. 4. riðill: Pólland – Kósóvó .................................. 30:19 Portúgal – Kýpur.................................. 47:16  Portúgal 2 stig, Pólland 2, Kýpur 0, Kó- sóvó 0. HANDBOLTI Króatar undirstrikuðu það í gærkvöld að Ísland á gífurlega erfitt verkefni fyrir höndum annað kvöld þegar liðin mætast á Evrópumóti karla í hand- bolta. Króatar leika á heimavelli á mótinu og ætla sér stóra hluti, og þeir byrjuðu af miklum krafti með því að vinna granna sína frá Serbíu, 32:22. Þetta er stærsti sigur sem Króatar hafa fagnað gegn grönnum sínum, og það gerðu þeir fyrir framan 11.000 áhorfendur sem létu vel í sér heyra í Spaladium-höllinni og voru margir hverjir mættir þegar leikur Íslands og Svíþjóðar stóð enn yfir. Króatar höfðu þó ekki bara ástæðu til að fagna í gær. Það varpaði miklum skugga á sigurinn að Domagoj Duvn- jak, stjörnuleikmaður Króata og einn besti leikmaður heims, meiddist und- ir lokin og var studdur af velli. Óttast er að hann komi ekki meira við sögu á mótinu og að sögn króatískra miðla í gærkvöld má slá því föstu að hann spili að minnsta kosti ekki leikinn gegn Íslandi, né líklega gegn Svíþjóð á þriðjudaginn. Luka Stepancic fór mikinn í fyrri hálfleik fyrir Króata og skoraði alls 6 mörk úr 6 skotum. Hann var marka- hæstur í liðinu ásamt Manuel Strlek. Hjá Serbum var Petar Nenadic markahæstur með 6 mörk og Nem- anja Zelenovic næst-markahæstur með 5 mörk úr jafnmörgum skotum. sindris@mbl.is Skuggi á frábærri byrjun Króata Ljósmynd/EHF Öruggur Luka Cindric skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum fyrir Króata í gær. Spaladium-höllin í Split, lokakeppni EM karla 2018, A-riðill, föstudag 12. janúar. Gangur leiksins: 0:4, 1:6, 2:8, 4:11, 5:14, 8:14, 8:15, 10:15, 11:21, 12:22, 18:22, 20:23, 21:24, 21:26, 24:26. Mörk Svíþjóðar: Jim Gottfridsson 5, Mattias Zachrisson 4, Simon Jepps- son 4, Lukas Nilsson 3, Jesper Niel- sen 2, Jerry Tollbring 2, Albin Lag- ergren 2, Niclas Ekberg 1, Johan Jakobsson 1. Varin skot: Mikael Appelgren 13/1, Andreas Palicka 3. Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Íslands: Ólafur Andrés Guð- mundsson 7, Arnór Þór Gunnarsson 5/3, Guðjón Valur Sigurðsson 5/1, Rúnar Kárason 5, Aron Pálmarsson 3, Janus Daði Smárason 1. Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 17/2. Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Gjorgji Nachevski og Slave Nikolov, Makedóníu. Áhorfendur: 8.700. Svíþjóð – Ísland 24:26 A-RIÐILL: Svíþjóð – Ísland.................................... 24:26  Kristján Andrésson þjálfar lið Svíþjóðar. Króatía – Serbía ................................... 32:22 Staðan: Króatía 1 1 0 0 32:22 2 Ísland 1 1 0 0 26:24 2 Svíþjóð 1 0 0 1 24:26 0 Serbía 1 0 0 1 22:32 0 Leikir á morgun: 17.15 Serbía – Svíþjóð 19.30 Ísland – Króatía B-RIÐILL: Hvíta-Rússland – Austurríki.............. 27:26  Patrekur Jóhannesson þjálfar lið Aust- urríkis. Frakkland – Noregur........................... 32:31 Staðan: Frakkland 1 1 0 0 32:31 2 Hvíta-Rússland 1 1 0 0 27:26 2 Noregur 1 0 0 1 31:32 0 Austurríki 1 0 0 1 26:27 0 Leikir á morgun: 17.15 Austurríki – Frakkland 19.30 Noregur – Hvíta-Rússland Leikir í C-riðli í dag: 16.15 Þýskaland – Svartfjallaland 18.30 Makedónía – Slóvenía Leikir í D-riðli í dag: 17.15 Spánn – Tékkland 19.30 Danmörk – Ungverjaland EM 2018 Í KRÓATÍU Í SPLIT Kristján Jónsson kris@mbl.is Markvörðurinn reyndi, Björgvin Páll Gústavsson, sló vopnin úr höndum Svía í fyrri hálfleik í fyrsta leik liðanna í A-riðli EM í handknattleik í Spaladi- um-höllinni í Split í gær. Björgvin varði hvað eftir annað frá Svíum í opn- um færum og til að mynda víti frá markamaskínunni Niclas Ekberg á upphafsmínútunum. Ísland vann gíf- urlega mikilvægan sigur, 26:24, og á nú fína möguleika á því að komast upp úr erfiðum riðli og í milliriðil. Fyrir framan Björgvin léku sam- herjar hans öflugan varnarleik með Bjarka Má Gunnarsson og Ólaf Guð- mundsson fyrir miðju. Rúnar Kárason og Aron Pálmarsson voru sinn hvor- um megin við þá. Þessi 6-0 vörn virk- aði mjög vel enda var staðan 15:8 fyrir Ísland að loknum fyrri hálfleik. Fyrstu sóknirnar gengu einnig vel og þar var tónninn gefinn. Ólafur Guð- mundsson skoraði fyrsta mark Íslands á EM að þessu sinni þegar hann slapp aleinn á milli hornamanns og bakvarð- ar. Kerfi sem íslenska liðið æfði undir lok síðustu æfingar fyrir leik. Íslenska liðið var afskaplega vel undirbúið og það skilaði sér í öflugri byrjun þar sem Ísland komst í 4:0 og 6:1. Daginn fyrir leik sagði landsliðs- þjálfarinn, Geir Sveinsson, við mbl.is að hann hefði ágæta tilfinningu og vonaðist eftir því að þjálfarateymið hefði veðjað á rétt áhersluatriði fyrir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.