Morgunblaðið - 10.01.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.01.2018, Blaðsíða 4
NFL Gunnar Valgeirsson Los Angeles Úrslitakeppnin í NFL-ruðnings- deildinni hófst um síðustu helgi, en eins og bent hefur verið á í þessum pistlum undanfarin ár er lítil ástæða til að fylgjast grannt með fyrstu um- ferðinni þar sem fjögur bestu liðin einfaldlega sitja hjá og bíða í af- slöppun eftir að slá sigurvegara fyrstu umferðarinnar út á heimavelli á annarri keppnishelginni. Í Ameríkudeildinni kom fljótlega í ljós að New England Patriots (að venju) og Pittsburgh Steelers voru bestu liðin. Þau mættust í frábærum leik rétt fyrir jólin þar sem tvenn slæm mistök Stellers á lokamínút- unni gáfu New England sigur, 27:24. Með þeim sigri náði Nýja England heimavallayfirburðunum svokölluðu í Ameríkudeildinni. Þetta ætti að gefa Patriots besta tækifærið í deild- inni til að komast í Ofurskálar- úrslitaleikinn í Minneapolis í upphafi febrúar. Í undanúrslitum Ameríkudeildar fær New England lið Tennesee Tit- ans í heimsókn og í hinum leiknum sækir Jacksonville Jaguars lið Pitts- burgh Steelers heim. Bæði heimalið- in ættu hér að rúlla auðveldlega í úr- slitaleik Ameríkudeildar. Tvísýnt í landsdeildinni Í landsdeildinni skáru fjögur lið sig úr. Minnesota Vikings og Phila- delphia Eagles voru með besta árangurinn, en Los Angeles Rams og New Orleans Saints fylgdu fast á eftir. Los Angeles var slegið út í fyrstu umferðinni af Atlanta Falc- ons, þannig að í undanúrslitum landsdeildar leikur Minnesota Vik- ings heima gegn New Orleans Saints og Atlanta ferðast til Phila- delphia í hinum leiknum. Ómögulegt er að spá um úrslitin í þessum leikjum þar sem aðalleik- stjórnandi Philadelphia er meiddur og New Orleans er nú í mikilli upp- sveiflu. Ruðningsíþróttin er ein af fáum liðsíþróttum þar sem leik- maður í einni leikstöðu hefur mun meiri áhrif á leikinn en aðrir. Staða leikstjórnanda (quarterback) er svo mikilvæg að þegar byrjunarleikmað- urinn í þessari stöðu meiðist getur allt farið úr skorðum. Því er mik- ilvægt að lið hafi góða varamenn í stöðunni. Hinn fertugi Tom Brady hjá New England er dæmi um þetta. Hann er almennt talinn besti leikstjórnand- inn í sögu deildarinnar og hefur ver- ið leikstjórnandi liðsins undanfarin átján ár. Með hann innanborðs – og kannski besta þjálfarann í sögu deildarinnar, Bill Belichick – hefur New England haft yfirburði í Ameríkudeildinni undanfarna tvo áratugi. Brady virðist ekkert vera að gefa eftir þrátt fyrir aldurinn, en sjaldgæft er að leikmenn geti verið á toppnum fertugir í þessari erfiðu íþrótt. Almennt er talið að Brady verði kosinn leikmaður ársins í deildinni í ár, en hann lék frábærlega alla deildarkeppnina. Mótmæla kynþáttamisrétti NFL-deildin hefur haft yfirburði í áhorfi og áhuga á íþróttaleikjum hér í landi um áratugi, en breyting hefur þó orðið á vinsældum deildarinnar þetta keppnistímabil. Rétt eins og á síðasta keppnistímabili tóku margir leikmenn sig til og notuðu tímann rétt fyrir leik, þegar þjóðsöngur Bandaríkjanna er leikinn, til að mót- mæla kynþáttamisrétti hér í landi með því að fara niður á hnéð meðan söngurinn er leikinn. Þessi mótmæli hófust á síðasta keppnistímabili þegar leikstjórnandi San Francisco 49ers, Colin Kapern- ick, hóf þessi mótmæli eftir að myndskeið af lögreglumönnum að drepa unga blökkumenn – að því er virtist án ástæðu – tröllriðu fjöl- miðlum hér í landi á því kosningaári. Um 85% af leikmönnum deildar- innar eru blökkumenn og án hæfi- leika þeirra væri þessi íþrótt ekki eins vinsæl. Þá mætti Donald Trump Þessi mótmæli settu marga eig- endur liðanna í erfiða stöðu þar sem flestir þeirra eru mjög íhaldssamir í stjórnmálum. Flestir ákváðu þeir þó að gera sem minnst í þessari stöðu til að storka ekki leikmönnum frekar og svo virtist sem fundist hefði ákveðinn skilningur á milli eigenda og leikmanna um alvöru málsins. Þá mætti Donald Trump til leiks og þú, lesandi góður, getur rétt ímyndað þér hvað gerðist næst. Seinnipart október, um miðja deildakeppnina, tísti forsetinn um reiði sína yfir hegðun leikmanna og stuðningsher hans fór að venju allur í uppnám. Rétt eins og í öðrum þjóðfélags- málum varð innreið forsetans í þetta mál opinberlega til þess að allar von- ir um að mótmælin myndu leiða til aukins skilnings á alvarlegum þjóð- félagsvanda enduðu í staðinn í aukn- um átökum og heift í umræðunni. Þetta er því miður enn eitt dæmið um þann þjóðfélagskostnað sem þjóðin verður að greiða fyrir að hafa þetta sálfræðilega sjálfselskandi barn í forsetastöðunni. Afleiðingin af orðum forsetans er að hvítir íhaldssamir karlmenn eru hættir að horfa á leikina í sjónvarpi til stuðnings forsetanum og margt kvenfólk er einnig hætt, en meira af stuðningi við leikmenn, ef skoðana- kannanir hafa rétt fyrir sér. Netið og heilaskemmdir Ómögulegt er að spá um hversu varanleg þessi minnkun í áhuga á leikjum deildarinnar er, en það er ekki aðeins þetta mál sem virðist hafa leitt til minna áhorfs á leiki. Yngra fólk hefur minni áhuga á þessum leikjum en áður og hefur meiri tilhneigingu til að horfa á þá á netvefsíðum en í sjónvarpi. Sumir eru einnig hættir að horfa vegna þeirra heilaskemmda sem íþróttin orsakar hjá leikmönnum til lang- frama. Það mál hefur verið í dags- ljósinu undanfarin ár og er tilhugs- unin um hversu slæm þessi íþrótt er fyrir langtímaheilsu leikmanna erfið mörgum áhangendum. Brady gefur ekkert eftir  Fertugur og enn besti leikstjórnandinn í NFL-deildinni og stefnir á enn einn titil með New England  Hvítir karlmenn hætta að horfa til að styðja Trump AFP Fertugur Tom Brady, leikstjórnandi New England Patriots, sannar gamla máltækið þar sem segir að allt sé fertugum fært. Hann er enn talinn sá besti. 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2018 Ég hef ákveðið að stilla væntingum mínum í hóf í garð íslenska karlalandsliðsins í hand- bolta sem eftir tvo daga hefur leik á sínu 10. Evrópumóti. Að þessu sinni fer það fram í Króat- íu þar sem andstæðingarnir í riðlakeppninni verða Svíar, gest- gjafar Króata og Serbar. Leikirnir á móti Þjóðverjum um síðustu helgi gefa kannski ekki tilefni til bjartsýni en ég vara þó fólk við að fyllast of mik- illi svartsýni. Frammistaðan í leikjunum tveimur hlýtur samt að hafa verið vakning fyrir leik- menn liðsins sem og þjálfara. Það er margt sem þarf að lagfæra í leik íslenska liðsins í vörn, sókn og markvörslu en tím- inn er naumur og eins gott að strákarnir verði klárir í slaginn þegar flautað verður til leiks í Split á föstudaginn. Ég ætla rétt að vona að Ar- on Pálmarsson hristi af sér bak- meiðslin sem hafa verið að hrjá hann síðustu daga en án hans verður svo sannarlega á bratt- ann að sækja. Fari svo að Aron spili ekki eða geti ekki beitt sér sem skyldi mun það bitna á sóknarleiknum. Hans skarð verð- ur einfaldlega ekki fyllt. Ég hefði viljað sjá Gísla Þor- geir Kristjánsson í EM-hópnum og þá sérstaklega ef Aron er tæpur. Gísli hefði getað verið ákveðið leynivopn en hans tími kemur bara síðar enda framtíðarlandsliðsmaður þar á ferð. Þá hefði mátt vera pláss fyrir Ólafur Gústafsson, stór- skytta þar á ferð og sterkur varn- armaður. Ég ætla að leyfa mér að spá því að Ísland komist í milliriðil á EM en það bíður betri tíma að velta því fyrir sér hvernig liðinu muni vegna þar. Áfram Ísland! BAKVÖRÐUR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is ///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// Ragnar Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, segir nánast öruggt að hann hafi spilað sinn síðasta leik fyrir rússneska félagið Rubin Kaz- an. Rússarnir fengu Ragnar að láni frá Fulham í ágúst og hann hefur átt fast sæti í vörn liðsins. Mikil óreiða er hinsvegar í herbúðum Rubin Kaz- an og hafa leikmenn ekki fengið greidd laun síðustu mánuðina. „Ég er svo sem ekkert stressaður yfir þeirri stöðu sem ég er í. Það er nokkuð víst að ég er að fara frá Rub- in Kazan og ég er með nokkra mögu- leika opna. Umboðsmaður minn er að ræða við þrjú félög sem stendur og til að mynda er eitt sem ég gæti þess vegna gengið til liðs við í dag ef ég vildi. Ég vil hins vegar fara vel yf- ir þetta áður en ég ákveð næsta skref og velja vel. Ég hugsa val mitt út frá landsliðinu, að halda minni stöðu þar og vera í góðu formi þegar HM skellur á. Ef ekkert lið væri bú- ið að hafa samband þá yrði ég kannski órólegur en þegar mögu- leikar eru fyrir hendi er ég alveg ró- legur,“ sagði Ragnar í samtali við mbl.is í gær en hann hefur verið heima á Íslandi yfir jól og áramót og haldið sér í formi hér heima. Hann er samningsbundinn Ful- ham til næsta sumars en segir ekki inni í myndinni að fara þangað aftur. Viðtalið við hann í heild er að finna á mbl.is/sport/fotbolti. gummih@mbl.is Ragnar ætlar að finna sér nýtt lið Morgunblaðið/Eggert Óvissa Ekki er ljóst með hvaða liði Ragnar Sigurðsson leikur næst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.