Morgunblaðið - 01.02.2018, Page 2

Morgunblaðið - 01.02.2018, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018FRÉTTIR Mesta hækkun Mesta lækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) EIM -7,82% 241,5 ORIGO +1,70% 26,95 S&P 500 NASDAQ -0,88% 7.439,944 -1,36% 2.833,94 -1,38% 7.559,81 FTSE 100 NIKKEI 225 1.8.‘17 1.8.‘1731.1.‘18 31.1.‘18 1.700 702.300 1.907.0 2.223,52 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 51,78 68,54 -2,26% 23.098,29 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 50 Nýtt, ríflega 138 metra langt gámaskip fyrirtækisins Cargow hlaut nafnið Frigg við hátíðlega at- höfn í stórskipahöfninni í Rotter- dam í gær. Er það fyrsta flutn- ingaskipið af fjórum sem fyrir- tækið tekur í notkun á þessu ári en skipin eru öll smíðuð í skipa- smíðastöðinni Taizhou Sanfu Ship Engineering Co. Ltd. í Kína. Cargow, sem er skráð í Hollandi, er í meirihlutaeigu þriggja Íslend- inga. Fyrirtækið sérhæfir sig í vöruflutningum fyrir þrjú álver Alcoa í Noregi og á Íslandi. Verk- smiðjurnar framleiða ál sem flutt er á Evrópumarkað í gegnum vöru- miðstöð fyrirtækisins í Rotterdam. Eigendur Cargow eru þeir Bjarni Ármannsson, Karl Harð- arson, Stefán H. Stefánsson og Norðmaðurinn Øyvind Sivertsen. Tímamót á langri vegferð Bjarni Ármannsson, sem er stjórnarformaður fyrirtækisins, segir athöfnina í Rotterdam mikil tímamót í starfsemi fyrirtækisins sem árið 2013 tók við öllum álflutn- ingum fyrir Alcoa frá verksmiðjum þess á Reyðarfirði og Mosjøen í Noregi. Auk þess að þjónusta þessi álver er fyrirtækið einnig með skip í förum til álvers í Farsund í Suður- Noregi, sem siglir þangað vikulega. „Þetta er fyrsta skipið af fjórum sem við látum smíða í tengslum við starfsemina. Hingað til höfum við keyrt hana á fjórum leiguskipum. Það fyrsta af þeim hverfur nú úr flotanum en á næstu mánuðum munu þrjú systurskip Friggjar leysa hin leiguskipin þrjú af hólmi.“ Bjarni bendir á að allt frá því að fyrirtækið landaði þjónustusamn- ingi við Alcoa um flutningana hafi verið unnið að nýsmíðinni sem nú líti dagsins ljós. „Það var hluti af ástæðu þess að Alcoa gekk til samninga við okkur að við lýstum okkur reiðubúin til að smíða ný skip. Þau eru sérstaklega búin til að sinna þessum flutn- ingum og búa m.a. yfir mikilli burð- argetu sem gerir okkur kleift að flytja álið bæði í gámum og án gáma. Fram til þessa hefur allt ál verið flutt frá Reyðarfirði í gám- um.“ Útblástur minnkar um 40% Stefán H. Stefánsson, sem er framkvæmdastjóri Cargow, tekur í sama streng og Bjarni og segir af- hendingu skipsins mikil tímamót. Hann bendir einnig á að nýju skip- in fjögur séu mun umhverfisvænni en þau sem fyrir eru. „Alcoa leggur, líkt og við, mikið upp úr því að lágmarka umhverfis- áhrif af starfseminni. Sú tækni sem þessi nýju skip byggjast á veldur því að kolefnisútblástur frá þeim er 40% minni á hvert tonn en frá þeim skipum sem við erum með í notkun núna.“ Spurður út kostnaðinn við smíði skipanna segir Stefán að hann nemi um 20 milljónum dollara á hvert þeirra. „Í heildina er þetta fjárfesting upp á um 80 milljónir dollara, jafn- virði ríflega 8 milljarða króna. Verkefnið er unnið í samstarfi við fjármögnunaraðila í Japan.“ Munu bera nöfn gyðja úr norrænni goðafræði Skipin fjögur munu öll bera nöfn gyðja úr norrænni goðafræði. Þannig nefnist fyrsta skipið Frigg en hún var kona Óðins. Þá Freyja og Sif og síðasta skipið sem afhent verður í lok sumars mun bera nafn- ið Sigyn. Frigg er væntanleg til Reyðarfjarðar í sinni fyrstu ferð til Íslands í byrjun þessa mánaðar. Taka fyrsta skipið af fjórum í gagnið Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Flutningafyrirtækið Cargow, sem er í meiri- hlutaeigu Íslendinga, tók í gær við nýju skipi sem er hið fyrsta í hópi fjögurra systurskipa. Kostnaður við nýsmíðina nemur 80 millj- ónum dollara. Øyvind Sivertsen, Karl Harðarson, Bjarni Ármannsson og Stefán H. Stefáns- son við Frigg, fyrsta gámaskipið af fjórum sem Cargow hefur látið smíða. UPPLÝSINGATÆKNI Hagnaður Origo, sem áður hét Ný- herji, á síðasta fjórðungi liðins árs dróst saman um 13% á milli ára og nam 174 milljónum króna. EBITDA- hagnaður dróst saman um 27% og var 246 milljónir króna. Rekstr- arkostnaður jókst um 5% á milli ára. Tekjur drógust saman um 7% á milli ára og voru 3,9 milljarðar króna. Munar mest um að umfangsmiklar búnaðarsölur til stærri viðskiptavina voru færri en á metfjórðungi árið áð- ur. Í tilkynningu segir að ágæt tekjuaukning hafi verið á flestum öðrum sviðum, einkum í sölu á eigin hugbúnaðarlausnum. Á síðastliðnu ári jukust tekjur fé- lagsins um 2% á milli ára. Hagnaður nam 433 milljónum króna, en hann var 383 milljónir árið 2016. „Þegar horft er til krefjandi rekstrar- aðstæðna að undanförnu, þá er niðurstaða ársins viðunandi,“ segir Finnur Oddsson forstjóri í afkomu- tilkynningu til Kauphallar. „Eins og komið hefur fram þá hefur verið unnið að því að draga úr kostnaði, annars vegar með aðhaldi í mönnun og launakostnaði og hins vegar með hagræðingu sem hlýst af samein- ingu undir nafninu Origo.“ helgivifill@mbl.is Samdráttur hjá Origo á fjórða ársfjórðungi Morgunblaðið/Þórður Niðurstaða ársins var viðunandi að mati Finns Oddssonar forstjóra Origo. FASTEIGNAMARKAÐUR Byggja þarf hátt í níu þúsund íbúðir á landinu öllu fram til ársloka 2020, ef markmiðið er að vinna á skorti sem myndast hefur á markaðnum og til að framboð haldi í við fólks- fjölgun. Þetta kemur fram í skýrslu Greiningardeildar Arion banka um húsnæðismarkaðinn, sem ber yf- irskriftina Húsnæðismarkaðurinn - frá hæli til heilsu. Samkvæmt spá greiningardeild- arinnar er ólíklegt að sá fjöldi náist. Spá 6,6% verðhækkun Spáir deildin 6,6% hækkun hús- næðisverðs á þessu ári, 4,1% á því næsta og 2,3% hækkun árið 2020. „Útlit er fyrir að undir lok spátím- ans muni raunverð húsnæðis lækka á milli ára,“ segir í skýrslunni. Ennfremur segir að húsnæðisverð hafi hækkað verulega umfram undirliggjandi þætti síðustu tvö ár. Ólíkt stöðunni fyrir rúmu ári eigi þetta við um öll hverfi, ekki bara miðsvæði Reykjavíkur. Þannig hafi verðhækkanirnar smitast út í jaðrana, sem sjáist meðal annars í lægra miðborgarálagi. „Gangi spá okkar eftir mun ákveðin leiðrétting eiga sér stað á húsnæðismarkaðnum á næstu árum, þ.e.a.s. undirliggjandi þættir, svo sem laun, munu hækka umfram húsnæðisverð.“ Verð hækkaði verulega 2017 Í skýrslunni segir að húsnæðis- verð hafi hækkað verulega árið 2017, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Mestar hafi hækk- anirnar verið í úthverfum höfuð- borgarsvæðisins og nágrannasveit- arfélögum. Einnig segir að á eftirspurnarhliðinni sé fátt sem bendi til almennra verðlækkana á næstu árum og útlit sé fyrir gott efnahagsástand áfram. tobj@mbl.is Vantar hátt í níu þúsund íbúðir Morgunblaðið/Hari Arion spáir 6,6% hækkun húsnæð- isverðs í ár og 4,1% á næsta ári. Geymsluhúsnæði óskast Leitum að ca 400-500 fm lager- eða geymsluhúsnæði helst miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu fyrir traustan aðila. Skilyrði er góð aðkoma, góð lofthæð og rúmgóðar innkeyrsludyr. Allar nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Jónsson í síma 511-1555 eða 898-9791. SJÁVARÚTVEGUR Hjalti Halldórsson og Bjartmar Pét- ursson hafa keypt hlut Sigurðar Gísla Björnssonar og Magnúsar Guð- mundssonar í Bacco Seaproducts. Eftir viðskiptin er fyrirtækið alfarið í eigu Hjalta og Bjartmars. Hjalti Halldórsson, sem er fram- kvæmdastjóri Bacco Seaproducts, segir að nauðsynlegt hafi verið að Sigurður Gísli seldi sinn hlut vegna meintra skattalagabrota sem nú eru til rannsóknar. Ákvörðunin hafi verið tekin til að vernda framtíðarhags- muni félagsins. Téð meint skattalaga- brot eiga að hafa átt sér stað hjá Sæ- marki en ekki Bacco. Keyptu Sigurð Gísla út

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.