Morgunblaðið - 01.02.2018, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018FRÉTTIR
SVEIGJANLEGOGLIPUR
INNHEIMTUÞJÓNUSTA
Hafðu samband, við leysum málin með þér!
Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is
Við fjármögnum
innflutninginn
fyrir þitt fyrirtæki
Nánari upplýsingar
má finna á kfl.is
Mikill uppgangur hefur verið hjá
ferðaþjónustufyrirtækinu Pink Ice-
land. Eva María og félagar vinna
nú að því að koma nýju dóttur-
fyrirtæki, Propose Iceland, á lagg-
irnar í gegnum Startup Tourism.
Frá stofnun hefur Pink Iceland
skipulagt yfir 300 brúðkaup á
Íslandi.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?
Fyrirtækið okkar eins og mörg
fyrirtæki í ferðaþjónustu hefur
stækkað ört og slíkum vexti fylgja
alls konar vaxtaverkir. Annars eru
það þessar klassísku áskorarnir
eins og sveiflukenndar tekjur og
gengi íslensku krónunnar sem hafa
áhrif á flest fyrirtæki í greininni.
Hver var síðasti fyrirlesturinn
eða ráðstefnan sem þú sóttir?
Þessar vikurnar erum við hjá
dótturfélaginu Propose Iceland að
taka þátt í viðskiptahraðli hjá
Startup Tourism sem hefur verið
einstaklega gefandi og fróðlegt.
Það er svo hollt að vera í frum-
kvöðlaumhverfi og tileinka sér ný-
sköpun sem hugarástand. Hjá Pink
Iceland teljum við að velgengni
fyrirtækisins komi að miklu leyti til
vegna óbilandi trúar á þá skapandi
krafta sem búa í eigendum og
starfsmönnum fyrirtækisins, nátt-
úru Íslands og fólkinu sem hér býr.
Hvaða hugsuður hefur haft mest
áhrif á hvernig þú starfar?
Ég hef reynt að tileinka mér orð
Gandhi: Vertu breytingin sem þú
vilt sjá í heiminum. Þó þetta kunni
að hljóma klisjukennt þá erum við
svo föst í viðjum vanans en höfum
þó mikla skoðun á því sem betur
mætti fara. Þá er ágætt að byrja á
sjálfum sér.
Hver myndi leika þig í kvikmynd
um líf þitt og afrek?
Jodie Foster myndi henta ágæt-
lega. Ég hitti hana einu sinni og
fannst hún alveg eins geta verið
frænka mín. Svo myndi ég kannski
vera með svona alter-egó sem væri
þá RuPaul í fullu draggi.
Hvernig heldurðu
þekkingu þinni við?
Ég hlusta mikið á hlaðvörp (pod-
cast) um nýsköpun, sköpunargáfu,
hönnun, hinsegin málefni og fleira
sem ég hef ástríðu fyrir. Slík
hlustun er mikil hvatning fyrir mig
og fær mig oft til að hugsa út fyrir
rammann. Einnig reyni ég að vera
dugleg að fylgjast með þróun í
notkun samfélagsmiðla og neyt-
endahegðun frá ólíkum hliðum. Ég
reyni líka að vera dugleg að prófa
nýja hluti og hitta nýtt fólk, það
getur verið ansi fróðlegt.
Hugsarðu vel um líkamann?
Já, við Birna og Hannes sem eig-
um Pink Iceland eigum stefnumót
þrisvar í viku við Agnesi okkar sem
fær okkur til að púla í ræktkinni og
hafa gaman af því. Einnig er ég
byrjuð að hlaupa í alls konar veðri
og það hefur reynst mér betur en
ég þorði að vona. Frábær leið til
þess að slaka á í kollinum.
Hvert væri draumastarfið ef þú
þyrftir að finna þér nýjan starfa?
Ég er í draumastarfinu en ef ég
ætti að velja mér nýtt starf þá væri
það að taka þátt í ólíkum nýsköp-
unarverkefnum og aðstoða frum-
kvöðla í að betrumbæta reksturinn
sinn.
SVIPMYND Eva María Þórarinsdóttir Lange
Sveiflukennd króna
flækir reksturinn
Morgunblaðið/Hari
Eva segist m.a. halda þekkingunni við með því að hlsuta á hlaðvarp.
GRÆJAN
Víða um heim er fólk löngu orðið
vant því að gera matarinnkaupin á
netinu og fá matinn sendan heim að
dyrum. Þeir sem reynt hafa vita þó
að heimsending matvæla er ekki
gallalaus, og þarf viðskiptavinurinn
að sætta sig við það að einhver annar
sér um að velja fallegustu kótelett-
una eða safaríkasta tómatinn í inn-
kaupapokann, og velur iðulega öðru-
vísi en kaupandinn hefði sjálfur gert.
Bandaríska sprotafyrirtækið
Robomart vill leysa þennan vanda
með því að senda kjörbúðina heim að
dyrum hjá viðskiptavininum, þar
sem hann getur sjálfur valið þá
ferskvöru sem honum hugnast best.
Robomart hefur hannað litla sjálf-
akandi sendibíla sem matvörubúðir
eiga að geta tekið á leigu. Viðskipta-
vinurinn hóar í matvörubílinn í gegn-
um snjallsímaforrit og getur, þegar
bíllinn er kominn á áfangastað, notað
símann til að fá aðgang að kældum
og hátæknivæddum hillunum.
Robomart notar sjálfvirka skynj-
ara til að greina hvaða matvöru við-
skiptavinurinn velur sér og þarf því
ekki að vigta og skanna.
Eins og vera ber er Robomart raf-
drifinn, á að hafa um 130 km drægi
og ná allt að 40 km hraða. ai@mbl.is
Láttu matvörubúðina
koma heim til þín
Skynjarar greina hvað viðskiptavin-
urinn tekur og í hvaða magni.
NÁM: Bjó á Ítalíu frá 8 ára til 15 ára aldurs, gekk því í grunnskóla í
Napólí; Menntaskólinn við Hamrahlíð – Nýmálabraut; BS í ferða-
málafræði frá Háskóla Íslands og hálfnuð með mastersnámið –
ég stofnaði Pink Iceland á miðri leið.
STÖRF: Hef starfað í ferðaþjónustu frá unglingsaldri. Landvörður
á Hveravöllum þrjú sumur 1999-2001; sjálfstætt starfandi ferða-
ráðgjafi og þýðandi 2001-2004; markaðsstjóri hjá Eldingu/
Hvalaskoðun Reykjavík frá 2004 til 2011 og tók þátt í hröðum
vexti fyrirækisins sem var mjög lærdómsríkt. Rekstrarstjóri kaffi-
hússins Trúnó og skemmtistaðarins Barböru 2010-2012. Stofn-
andi, meðeigandi og framkvæmdastjóri Pink Iceland og Propose
Iceland.
ÁHUGAMÁL: Ferðalög; að vera huggulegur gestgjafi; búa til fal-
leg viðskipti og taka virkan þátt í að bæta réttindi hinsegin fólks.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Unnusta mín er Birna Hrönn Björnsdóttir
hjúkrunarfræðingur og hún er einn þriggja eigenda Pink Iceland.
Við eigum stóra fjölskyldu, erum svokallaðar „glimmer-frænkur“,
og erum fósturmömmur lítils hunds sem heitir Strumpur.
HIN HLIÐIN