Morgunblaðið - 01.02.2018, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018FÓLK
SPROTAR
Landsvirkjun Stefanía G. Halldórsdóttir hefur verið ráðin
framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs
Landsvirkjunar. Hlutverk sviðsins er að hámarka tekjur
Landsvirkjunar til langs tíma. Stefanía starfaði hjá CCP
Games í átta ár, síðast sem framkvæmdastjóri CCP á
Íslandi og þar áður sem yfirþróunarstjóri CCP í Shanghai í
Kína og þróunarstjóri á Íslandi. Stefanía starfaði áður hjá Orkustofnun í
átta ár, meðal annars sem yfirverkefnisstjóri og sérfræðingur hjá vatna-
mælingum og hjá HugurAx, sem verkefnisstjóri í viðskiptagreind.
Stefanía er með MSc umhverfisfræði og BSc í landfræði frá Háskóla
Íslands. Hún er stjórnarformaður Icelandic Startups og stjórnarformaður
Almannaróms, félags um máltækni á Íslandi.
Tekur við markaðs- og viðskiptaþróunarsviði
American Century Investments Pia Michelsson hefur
verið ráðin framkvæmdastjóri yfir starfsemi eigna-
stýringarfyrirtækisins American Century Investments á
Norðurlöndum. Pia verður með aðsetur í Lundúnum.
Pia Michelsson á að baki langan feril í fjármálageiranum.
Síðast var hún framkvæmdastjóri hjá Alda Asset Manage-
ment og var ábyrg fyrir viðskiptaþróun á Íslandi og í Finnlandi. Þar áður
starfaði hún við viðskiptaþróun á Norðurlöndum fyrir eignastýringarfyr-
irtækið Aberdeen Asset Management.
American Century Investments er alþjóðlegt eignastýringarfyrirtæki
sem stýrir eignum sem nema um 180 milljörðum dollara.
Ráðin framkvæmdastjóri yfir Norðurlöndum
VISTASKIPTI
landi,“ segir Garðar. „Good Good
byggir á íslensku hugviti, hönnun
og markaðsstarfi en það er allt
annað að framleiða vöruna á meg-
inlandi Evrópu og dreifa henni
þaðan, og töluvert ódýrara en ef
við værum með verksmiðjuna á
Íslandi. Pantanir berast frá öllum
heimshornum og hægt um vik
fyrir okkur að senda vörurnar
okkar til Rotterdam þaðan sem
þær fara hratt á áfangastað. Við
getum afgreitt pantanir til
evrópskra viðskiptavina á 2-3 dög-
um en værum a.m.k. 7-10 daga að
því ef við værum á Íslandi.“
Að hafa framleiðsluna á megin-
landi Evrópu er líka nauðsynlegt í
ljósi þess hvað kaupendur gera
ríkar kröfur um að varan sé sem
ferskust. „Við verðum að stýra
framleiðslunni þannig að við sitj-
um ekki uppi með of stóran lager
en eigum samt alltaf nóg af vörum
tilbúnar til afhendingar. Maður
finnur það fljótt í þessum geira að
margir vilja ekki bara fá vöruna
strax, heldur líka að hún sé glæný.
Oft verður þetta heilmikið púslu-
spil þar sem framleiðsla, hráefnis-
öflun og flutningar þurfa að spila
fullkomlega saman,“ útskýrir
Garðar.
Vörurnar framleiðir Via Health í
samvinnu við matvælaverksmiðjur
í Vestur-Evrópu sem blanda sult-
ur, síróp og sykurlíki eftir íslensk-
um uppskriftum. Með því móti
þarf ekki eins dýra yfirbyggingu
og meiri sveigjanleiki skapast í
rekstrinum. „Fyrir svona lítið
fyrirtæki eins og okkur væri
ómögulegt að stækka vöruúrvalið
jafnhratt og við höfum gert ef við
þyrftum að fjárfesta í nýrri fram-
leiðslulínu með hverri nýrri vöru.“
Sækja inn á Bandaríkin
Vörur Good Good eru einkum
seldar í heilsubúðum og fínni mat-
vöruverslunum um alla Evrópu en
netverslun Good Good berast
pantanir frá öllum heimshornum.
Nýlega náðust samningar við
bandarísku stórmarkaðakeðjunna
TK Maxx og verður innreið á
Bandaríkjamarkað næsta stóra
skrefið í sögu Via Health.
Þó ekki hafi farið mikið fyrir ís-
lenska matvælafyrirtækinu Via
Health þá hefur það stækkað hratt
að undanförnu og selur núna vörur
undir merkjum Good Good hjá
hátt í 700 verslunum í Evrópu.
Fyrirtækið sérhæfir sig í vörum
sem nota stevíu sem sætugjafa og
hefur m.a. gert það gott með syk-
urlausu hnetu- og súkkulaðikremi
sem þykir ekki síðra en Nutella.
Garðar Stefánsson er fram-
kvæmdastjóri Via Health en hann
tók á sínum tíma þátt í stofnun
Saltverks Reykjaness og Norður-
salts. Þegar Garðar var ráðinn til
Via Health var það meðal hans
fyrstu verka að endurskipuleggja
reksturinn ásamt hluthöfum, færa
framleiðsluna til Evrópu og koma
upp vöruhúsi í Hollandi.
Ísland óhentugur
framleiðslustaður
„Það skiptir miklu máli fyrir
matarfrumkvöðla að stilla hlut-
unum rétt upp, og við sáum að til
að geta verið samkeppnishæf og
bæði boðið upp á vöru á góðu verði
og skamman afhendingartíma
myndum við þurfa að færa fram-
leiðsluna til Evrópu, þó svo að
vöruþróunin verði áfram á Ís-
Garðar segir tækifærin leynast
víða enda Good Good-vörurnar
sykurlausar og neytendur um all-
an heim eru að vakna til vitundar
um hversu skaðlegt það getur ver-
ið að neyta sykurs í miklu magni.
Stevían, sem Good Good notar sem
sætugjafa, þykir mun hollari val-
kostur og hefur ekki sömu áhrif á
insúlínjafnvægi líkamans og syk-
urinn. „Eftir að við tókum þátt í
sölusýningu í Köln í október fund-
um við t.d. fyrir miklum áhuga frá
Sádi-Arabíu og höfum byrjað sam-
starf við dreifingaraðila þar í landi
sem pantað hefur töluvert magn af
súkkulaði-hnetusmjörinu okkar.
Fleiri samningar eru í farvatninu í
Mið-Austurlöndum en þar er
sykurneysla mjög mikil og hlutfall
áunninnar sykusýki með því hæsta
sem gerist í heiminum. Á þeim
markaði er greinileg vöntun á
almennilegum vörum sem eru með
öllu sykurlausar.“
Snýst um bragðið
Merkilegt er að við markaðs-
setningu Good Good er lítil sem
engin áhersla lögð á tengingu vör-
unnar við Ísland. Garðar segir
Good Good frekar leggja áherslu á
að skapa sér samkeppnisforskot
með ómótstæðilegum vörum sem
eru jafngóðar eða betri á bragðið
en þær sykruðu. „Velgengni Via
Health má einnig rekja til umbúða
og ásýndar fyrirtækisins, en aug-
lýsingastofan Jónsson & Lemacks
sá um hönnun þeirra,“ segir Garð-
ar. „Umhverfisvænar, aðlaðandi og
heillandi umbúðir, ásamt hollu
næringarinnihaldi, virðast höfða
hvað best til neytenda í dag.“
Samkeppnina vantar ekki, en
Garðar er brattur: „Stóru
matvælarisarnir eru meðvitaðir
um þróunina í neyslu á sykri og
eru að auka hjá sér framboðið á
sykurlausum vörum, en hefur
gengið misvel við vöruþróunina og
eru mögulega ekki að nota eins
gott hráefni og við. Við erum vita-
skuld mun minni, en getum kynnt
okkur sem algjörlega sykurlaust
vörumerki. Neytendur geta stólað
á bragðgæðin og kaupa því vör-
urnar okkar aftur og aftur.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Good Good-vörurnar gera ekki sérstaklega út á það að vera íslenskar. Gott
bragð er lykilatriði . Garðar Stefánsson framkvæmdastjóri Via-Health.
Sigra heiminn með
sykurlausum vörum
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Miklu skipti fyrir vöxt Via
Health að færa framleiðslu
og vöruhús frá Íslandi til
Evrópu. Útrás til Bandaríkj-
anna er að bresta á og
tækifæri um allan heim.
Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is
MÁLAÐ GLER
Málað gler er falleg klæðning á veggi, innréttingar, skápa
og margt fleira innandyra.
ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI
Snögg
og góð
þjónusta
Stafrænt prentaðir
límmiðar á rúllum
Vantar þig lítið upplag?
Stafræn límmiðaprentun hentar vel fyrir minni upplög.
Pappír, hvítt plast, glært plast og fl. þú velur!
Sími 540 1818 | Skemmuvegi 4 | Kópavogi
midaprent@midaprent.is | midaprent.is