Morgunblaðið - 10.02.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.02.2018, Qupperneq 4
Í ályktun sem Fangavarða- félag Íslands sendi frá sér í vikunni er skorað á Alþingi að auka fjárveitingar til reksturs fangelsanna svo starfsemi þeirra megi byggja upp eftir niðurskurð um langt skeið. Minnt er á að á Hólmheiði of- an við Reykjavík sé nýtt fang- elsi sem ekki hafi verið hægt að nýta 100% því peninga vanti svo hægt sé að ráða alla þá starfsmenn sem þurfi. „Skjólstæðingahópur okk- ar hefur verið að þyngjast mjög mikið á undanförnum árum, en í þeim hópi eru ein- staklingar sem eru veikari, bæði líkamlega og andlega. Þrátt fyrir þetta aukna álag hafa fjárveitingar ekki verið auknar. Einnig má minna á það að niðurskurður á hverju ári frá árinu 2008 hefur gert það að verkum að aðbúnaður og tæki fangavarða hafa Vilja meira fé í fangelsin  Niðurskurð- ur  Fanga- verðir álykta Morgunblaðið/Árni Sæberg Hólmsheiði Fangelsið nýja er ennþá ekki fullnýtt. gengið úr sér og engin end- urnýjun átt sér stað. Og enn á að skera niður fé til reksturs fangelsa,“ segir í ályktun. Ekki sé einn á vakt Vakin er sérstök athygli á því í ályktuninni að það fyr- irkomulag að fangavörður sé einn á vakt eins og tíðkast til dæmis á Kvíabryggju, upp- fyllir ekki þær öryggiskröfur sem sjálfsagðar ættu að vera. Nýlegt dæmi um það sé frá 12. janúar síðastliðnum þegar fangavörður sem var einn á vakt varð alvarlega veikur og hafði það sett bæði fangavörð- inn og fjölda fanga í hættu. sbs@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018 Á Sólheimum í Grímsnesi búa að jafnaði yfir eitthundrað manns og eru starfsmenn Sólheima um fimmtíu talsins. Hlutverk Sólheima er að skapa sjálfbært samfélag, byggt á kristnum gildum og hugmyndum mannspeki, sem veitir íbúum tækifæri til að vaxa, þroskast og vera virkur þátttakandi. Starfsemi Sólheima og aðstaða er sniðin að því að þjóna fólki með þroskahömlun sem býr yfir starfsgetu. Gildi Sólheima eru; kærleikur, fagmennska, sköpunargleði og virðing. Forstöðumaður mannauðs og rekstrar Starfssvið • Stjórnun og dagleg framkvæmd mannauðsmála • Ábyrgð á mótun og framkvæmd starfsmannastefnu • Ráðgjöf og stuðningur við forstöðumenn • Ábyrgð á gæða-, ferla og fræðslumálum • Ráðningar og móttaka nýliða • Mótun og eftirfylgni launastefnu • Samskipti við stéttarfélög, þátttaka í samningagerð og túlkun kjarasamninga • Umsjón með samstarfi við þjónustuaðila og almenn skrifstofustörf Um 100% starf er að ræða. Leiguhúsnæði er í boði og æskilegt að viðkomandi hafi búsetu á staðnum eða á svæðinu. Umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi sendist á radningar@solheimar.is fyrir 19. febrúar n.k. Upplýsingar veitir Auður Finnbogadóttir, audur.finnbogadottir@solheimar.is Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf sem nýtist í starfi • Reynsla og þekking á mannauðsmálum mikilvæg • Góð samskipta- og samstarfshæfni mikilvæg • Metnaður til að ná árangri og öguð vinnubrögð • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti æskileg • Jákvæðni og áhugi á því að starfa í anda gilda Sólheima ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 8 74 6 8 02 /1 8 Icelandair leitar að öflugum liðsmanni til starfa við ráðgjöf og umsjón viðgerða á burðarvirki og innanstokksmunum flugvéla. Starfið tilheyrir Frontline-deild Tækniþjónustu Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Viðhaldsstöð Icelandair þjónustar flugfélög um allan heim vegna breytinga og viðgerða. STARFSSVIÐ: I Ráðgjöf vegna viðgerða og uppsetning viðgerðargagna. I Tæknileg aðstoð og stuðningur við viðhaldsþjónustu Icelandair. I Samskipti við framleiðendur flugvéla og íhluta. I Útreikningar á styrk og burðarþoli vegna viðgerða. I Verkefnastjórnun og kostnaðareftirlit. HÆFNISKRÖFUR: I Próf í verkfræði, tæknifræði eða flugvirkjun. I Þekking og reynsla af viðhaldi flugvéla er kostur. I Mjög góð tölvukunnátta. I Góðir samskiptahæfileikar. I Frumkvæði og sjálfstæði. I Mjög góð enskukunnátta er skilyrði. + Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu Icelandair, www.icelandair.is/umsokn, eigi síðar en 18. febrúar 2018. Nánari upplýsingar veita: Sveina Berglind Jónsdóttir I mannauðsstjóri I sveinaj@icelandair.is Sveinn H. Albertsson I deildarstjóri I sveinnh@its.is SÉRFRÆÐINGUR Í BURÐARÞOLI (STRUCTURES ENGINEER) Við mönnum stöðuna www.capacent.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónu lega ráðgjöf. Uppsetning eftirlitsmynda- véla í Lindahverfi er meðal þess sem íbúar Kópavogs völdu kosningum í verkefninu Okkar Kópavogur. Meðal annars sem íbúar kusu má nefna rathlaupabraut í Foss- vogi, körfuboltavöll við Hörðuvallaskóla, hjólastæði við Smáraskóla og leiktæki á Rútstúni. Einnig að bæta að- komu og auka öryggi við Sundlaug Kópavogs, bæta göngu- og hjólaleið frá Ný- býlavegi yfir Grænatún og út- búa frisbígolfvöll í nágrenni Guðmundarlundar í Vatns- endahverfi. Metþátttaka var í kosning- unum, sem stóðu frá 25. jan- úar til 5. febrúar, eða 18% sem er mesta þátttaka sem hefur verið í sambærilegum kosn- ingum á Íslandi. Hlutfallslega flestir kusu í Linda- og Sala- hverfi eða tæplega fjórðungur atkvæðisbærra íbúa þar. 37 verkefni í framkvæmd Alls hlutu 37 hugmyndir brautargengi en 200 milljón- um króna verður varið í verk- efnin. Framkvæmd þeirra hefjast í vor en lýkur á næsta ári. Rúmlega 5.000 manns tóku þátt í kosningunni sem er 18% Kópavogsbúa 16 ára og eldri. Tæplega 60% þátt- takenda voru konur og mest var þátttakan meðal fólks á fertugsaldri. sbs@mbl.is Metþátttaka í íbúakosningum  Úrbætur fyrir 200 milljónir kr. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kópavogur Horft yfir Smárahverfið á fallegu sumarkvöldi. Nýskráningar einkahluta- félaga á fjórða fjórðungi síðasta árs voru 588 og fækkaði um 2% frá sama tíma í fyrra. Gjaldþrotum á sama tíma fjölgaði um 14% frá 2016 og voru 272 fyr- irtæki tekin til gjaldþrota- skipta á tímabilinu. Árið 2017 voru 2.577 ný einkahlutafélög skráð, að því er fram kemur í frétt frá Hagstofu Íslands. Ný- skráningum fyrirtækja fækkaði um 23% milli ára í leigustarfsemi og ýmiskon- ar sérhæfðri þjónustu um 23% og í landbúnaði, skóg- rækt og fiskveiðum um 39%. Nýskráningum fjölg- aði í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, úr 346 í 417, eða um 21% frá fyrra ári. Flest voru nýskráðu fyrirtækin með heim- ilisfesti á höfuðborgarsvæð- inu. Þar fóru nýskráningar úr 2.019 árið 2016 í 1.926 en í öðrum landshlutum voru þær 654 eða tveimur fleiri en árið áður. Gjaldþrotabeiðnum fyrir- tækja árið 2017 fækkaði um 27% frá fyrra ári en alls 747 fyrirtæki voru tek- in til skiptameðferðar á árinu. Nýskráðum fyrirtækjum fækkaði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.