Morgunblaðið - 12.02.2018, Síða 6
6 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018
Olísdeild karla
Fjölnir – FH ...................................... frestað
ÍR – Selfoss........................................ frestað
Grill 66 deild kvenna
KA/Þór – ÍR.......................................... 34:20
FH – Víkingur ...................................... 27:22
Staðan:
KA/Þór 12 11 1 0 367:243 23
HK 13 10 3 0 375:252 23
ÍR 13 8 0 5 349:325 16
FH 13 7 2 4 275:264 16
Víkingur 12 5 1 6 301:317 11
Fylkir 12 4 0 8 250:288 8
Afturelding 12 3 1 8 212:270 7
Fram U 12 2 0 10 247:334 4
Valur U 11 1 0 10 223:306 2
Þýskaland
Ludwigshafen – Füchse Berlín ......... 19:25
Bjarki Már Elísson skoraði 2 mörk fyrir
Füchse.
Hüttenberg – Kiel................................ 25:37
Ragnar Jóhannsson skoraði 6 mörk fyrir
Hüttenberg.
Alfreð Gíslason þjálfar Kiel.
Staðan:
Rhein-Neckar Löwen 34 stig, Füchse Berl-
in 32, Hannover-Burgdorf 31, Flensburg
30, Kiel 29, Melsungen 28, Magdeburg 27,
Leipzig 25, Lemgo 19, Wetzlar 18, Göpp-
ingen 16, Minden 16, Erlangen 12, Gum-
mersbach 10, Lübbecke 10, Stuttgart 9,
Ludwigshafen 7, Hüttenberg 7.
B-deild:
Bergischer – Hildesheim.................... 33:22
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 8 mörk
fyrir Bergischer.
Aue – Hamm......................................... 28:29
Fannar Þór Friðgeirsson skoraði 2 mörk
fyrir Hamm.
Danmörk
Aarhus United – Esbjerg.................... 16:26
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði 2
mörk fyrir Aarhus.
Frakkland
Bikarkeppni kvenna, 16-liða úrslit:
Octeville sur Mer – Toulon ................ 18:25
Mariam Eradze skoraði ekki fyrir Toul-
on.
Noregur
Nötteröy – Elverum ........................... 25:29
Þráinn Orri Jónsson skoraði 2 mörk fyr-
ir Elverum.
Drammen – Sandnes ........................... 37:20
Óskar Ólafsson skoraði eitt mark fyrir
Drammen.
Svíþjóð
Ricoh – Ystad ....................................... 26:28
Daníel Freyr Andrésson ver mark Ric-
oh.
Meistaradeild karla
A-RIÐILL:
RN Löwen – Pick Szeged ................... 35:37
Alexander Petersson skoraði 4 mörk fyr-
ir Löwen og Guðjón Valur Sigurðsson 2.
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 4
mörk fyrir Pick Szeged.
Barcelona – Vardar Skopje ............... 29:28
Aron Pálmarsson lék ekki með Barce-
lona vegna meiðsla.
Kristianstad – Nantes ......................... 26:31
Ólafur A. Guðmundsson var markahæst-
ur í liði Kristianstad og skoraði 9 mörk,
Gunnar Steinn Jónsson 1 en Arnar Freyr
Arnarsson ekkert.
Staðan:
Vardar Skopje 18 stig, Nantes 17, Barce-
lona 14, Löwen 12, Pick Szeged 11, Wisla
Plock 6, Kristianstad 6, Zagreb 4.
EHF-bikar kvenna
C-RIÐILL:
Viborg – Byåsen ................................. 29:26
Helena Rut Örvarsdóttir skoraði eitt
mark fyrir Byåsen.
Áskorendabikar karla
16-liða úrslit, fyrri leikur:
ÍBV – Ramhat Hasharon..................... 32:25
Síðari leikur liðanna fer fram í Ísrael
næstu helgi.
HANDBOLTI
MEISTARADEILD EVRÓPU
Hjörvar Ólafsson
hjorvaro@mbl.is
Stefán Rafn Sigurmannsson og fé-
lagar hans hjá ungverska liðinu Pick
Szeged stigu stórt skref í átt að út-
sláttarkeppni Meistaradeildar Evr-
ópu með 37:35-sigri sínum gegn
Guðjóni Val Sigurðssyni, Alexander
Petersson og samherjum þeirra hjá
Rhein-Neckar Löwen í gær.
Stefán Rafn skoaraði fjögur mörk
fyrir Pick Szeged í leiknum en Alex-
ander skoraði skoraði fjögur mörk
fyrir Rhein-Neckar Löwen og Guð-
jón Valur tvö.
Pick Szeged og Rhein-Neckar
Löwen eru saman í A-riðli riðla-
keppninnar. Þar er einnig Íslend-
ingaliðið Kristianstad sem laut í
lægra haldi, 31:26, fyrir Nantes á
laugardaginn.
Stórleikur Ólafs dugði ekki til
Níu mörk Ólafs Andrésar Guð-
mundssonar dugðu ekki til fyrir
Kristianstad, en Gunnar Steinn
Jónsson skoraði tvö mörk fyrir liðið
og Arnar Freyr Arnarsson komst
ekki á blað.
Þá er Barcelona einnig í A-riðli
keppninnar, en Aron Pálmarsson
var fjarri góðu gamni vegna meiðsla
þegar liðið lagði Vardar að velli,
29:28, í toppslag í riðlinum.
Útsláttarkeppni meistaradeildar-
innar fer þannig fram að liðin sem
hafna í efsta sæti í A- og B-riðli fara
beint í átta liða úrslit keppninnar.
Þau lið sem hafna í sætum tvö til sex
í riðlum fara áfram í 12 liða úrslit og
efstu liðin úr riðlum C og D fylla upp
í töluna í 12 liða úrslitunum.
Vardar trónir áfram á toppi riðils-
ins þrátt fyrir tapið gegn Barcelona,
en Vardar er með 18 og hefur eins
stigs forskot á Nantes sem er sæti
neðar. Barcelona er í þriðja sæti rið-
ilsins með 14 stig, Rhein-Neckar
Löwen er í fjórða sæti með 12 stig.
Pick Szeged færðist nær Rhein-
Neckar Löwen með sigrinum í gær,
en liðið er með 11 stig í fimmta sæti
riðilsins.
Kristianstad er svo í harðri bar-
áttu við Wisla Plock um síðasta sæt-
ið í útsláttarkeppninni úr A-riðlin-
um, en liðin eru jöfn að stigum með
sex stig í sjötta til sjöunda sæti rið-
ilsins.
Alfreð og félagar í fínni stöðu
PSG er í góðri stöðu í B-riðlinum í
baráttunni um að komast beint í átta
liða úrslit keppninnar.
PSG hefur 20 stig á toppi riðilsins
eftir 31:26-sigur sinn gegn Cejle
Lasko í gær. PSG jók forskot sitt á
Flensburg með sigrinum þar sem
Flensburg og Kielce skildu jöfn,
32:32, í æsispennandi leik síðar um
kvöldið.
Flensburg er í öðru sæti riðilsins
með 15 stig. Lærisveinar Alfreðs
Gíslasonar hjá Kiel eru jafnir Veszp-
rém í þriðja til fjórða sæti riðilsins
með 13 stig. Kielce hefur níu stig eft-
ir stigið sem liðið nældi í í Flensburg
og er í fimmta sæti riðilsins, einu
stigi á undan Meshkov Brest og fjór-
um stigum á undan Cejle Lasko eftir
leiki helgarinnar.
Þrjár umferðir eru eftir af riðla-
keppninni í A- og B-riðlum keppn-
innar og fram undan er blóðug bar-
átta um sætin í útsláttarkeppninni.
Línur farnar að skýrast
Barcelona vann þrátt fyrir fjarveru Arons Kristianstad í harðri baráttu um
sæti í útsláttarkeppni Hagur Pick Szeged vænkaðist með óvæntum sigri
Ljósmynd/Kristianstad
Góður Ólafur Guðmundsson átti mjög góðan leik og skoraði níu mörk fyrir Kristianstad gegn Nantes.
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Dalhús: Fjölnir – FH .................................18
Austurberg: ÍR – Selfoss.......................... 19
Víkin: Víkingur – Stjarnan .................. 19.30
Schenker-höll: Haukar – Afturelding. 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Mustad-höllin: Grindavík – Njarðvík . 19.15
Valshöllin: Valur – ÍR .......................... 19.15
IG-höllin: Þór Þ. – Tindastóll .............. 19.15
TM-höllin: Keflavík – Höttur .............. 19.15
Höllin Ak.: Þór Ak. – Stjarnan ................. 20
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Valsvöllur: Valur – Njarðvík .................... 18
Í KVÖLD!
Keppni hélt áfram í A-deild Lengju-
bikarkeppni karla í knattspyrnu um
helgina en fjórir leikir voru spilaðir í
gær og á laugardag.
Fylkismenn unnu góðan 2:1-sigur
gegn FH-ingum í Egilshöll í gær-
kvöld þar sem Ragnar Bragi Sveins-
son skoraði sigurmarkið á 86. mín-
útu eftir laglega sendingu frá
Hákoni Inga Jónssyni. Hákon Ingi
kom Fylki yfir í leiknum en Steven
Lennon jafnaði metin fyrir Hafnar-
fjarðarliðið.
KA-menn höfðu betur í Norður-
landsslagnum gegn Magna á Greni-
vík en liðin áttust við í Boganum á
Akureyri í gær. Sæþór Olgeirsson
og Daníel Hafsteinsson skoruðu
mörkin fyrir KA-menn og komu þau
bæði í fyrri hálfleik. Magnamenn
náðu ekki að svara en þeir leika í In-
kasso-deildinni í sumar.
Tíu Haukamenn skelltu Leikni
Haukar lögðu Leikni Breiðholti,
4:1, í Egilshöllinni í gærkvöldi þrátt
fyrir að leika manni færri síðasta
hálftíma leiksins. Arnar Aðalgeirs-
son og Indriði Áki Þorláksson komu
Haukum í 2:0 á fyrsta stundarfjórð-
ungi leiksins en Arnar Freyr Halls-
son minnkaði muninn fyrir Leikni á
19. mínútu. Haukamaðurinn Gunn-
ar Gunnarsson var rekinn af velli á
61. mínútu en það kom ekki að sök
því Daði Snær Ingason skoraði tvö
mörk með tveggja mínútna millibili
á lokakafla leiksins.
Blikar skoruðu sjö
Breiðablik tók ÍR-inga í kennslu-
stund í Fífunni en Blikarnir unnu
stórsigur, 7:0, eftir að hafa verið yfir
í hálfleik, 3:0. Gísli Eyjólfsson var á
skotskónum fyrir þá grænklæddu
en hann skoraði þrennu í leiknum,
Arnþór Ari Atlason skoraði tvö
mörk og þeir Viktor Örn Margeirs-
son og Arnór Gauti Ragnarsson,
sem kom inn á sem varamaður,
skoruðu sitt markið hvor.
gummih@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Barningur Ari Leifsson og Geoffrey Castillion í baráttu um boltann.
Ragnar var hetja
Fylkismanna
Blikar tóku ÍR-inga í kennslustund