Morgunblaðið - 01.03.2018, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 01.03.2018, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 7SJÁVARÚTVEGUR Marás ehf. - Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ - Sími 555-6444 - www.maras.is Óskum áhöfn og útgerð til hamingju með nýtt og glæsilegt skip KORSØR PROPELLER A/S þ YANMAR aðalvél þ MEKANORD niðurfærslugír þ VULKAN ástengi þ KORSØR skiptiskrúfa þ SLEIPNER bógskrúfa þ SEAMECH vélstýring Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Í nýrri samantekt frá Íslenska sjávarklasanum kemur fram að frá því klasinn var settur á laggirnar árið 2012 hafa fjárfestar lagt sam- tals 5 milljarða króna í fyrirtækin sem hafa þar að- setur. Til við- bótar hafa þau hlotið styrki sem nema 600 millj- ónum króna. Athygli vekur að mikil aukning hefur orðið í fjárfestingum hjá Sjávarklasanum á þessu ári, og nam samtals 2,7 milljörðum króna fyrstu tvo mánuði ársins. Er það meira en samanlögð fjárfesting í sprotum Sjávarklasans frá 2012 til og með 2017. Stærstu einstöku fjárfesting- arnar árin 2016 og 2017 voru að fjárhæð 300-400 milljónir króna. Í 80% tilvika voru það einka- fjárfestar sem lögðu sprotunum lið og segir Sjávarklasinn að þrátt fyrir góðan vilja stofnanafjárfesta hafi sprotafyrirtækin ekki notið liðsstyrks þeirra að neinu ráði. Í kringum 20% fjárfestinga á ár- unum 2016 og 2017 komu frá erlendum fjárfestum. Bæði fjármagn og sambönd Þór Sigfússon, stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans, segir fjár- festana af ýmsum toga. „Hluti þeirra hefur mikla reynslu úr ís- lensku atvinnulífi, jafnt sjávar- útvegi sem öðrum greinnum. Að- koma þeirra hefur iðulega verið þýðingarmikil fyrir sprotafyrir- tækin, bæði vegna þess fjármagns sem þeir koma með inn í rekst- urinn og ekki síður vegna verð- mætra tengsla þeirra bæði hér heimafyrir og erlendis. Hefur hluti fjárfestanna haft aðsetur í Húsi sjávarklasans og myndast góð tengsl á milli þeirra og sprot- anna.“ Horfur eru á að fyrirtækin í Sjávarklasanum muni sækja sér enn meira fjármagn á næstu miss- erum og árum. „Þau vinna að fjár- mögnun ýmissa verkefna, og má t.d. nefna fyrirhugaða verksmiðju til úrvinnslu hliðarafurða sem kosta mun sjö milljarða króna að reisa,“ segir Þór. „Ein mikilvægasta áskorun Ís- lenska sjávarklasans hefur verið að leiða fjárfesta inn í hóp sprota- fyrirtækjanna sem þar hafa aðset- ur. Á upphafsárum klasans var margt sem torveldaði það; efna- hagslegar aðstæður í landinu voru erfiðar og höfðu fjárfestar og sjóð- ir nóg að gera við að koma að fjár- festingum og endurskipulagningu ýmissa stórfyrirtækja í íslensku atvinnulífi. Að auki voru rannsókn- arsjóðirnir með lítið svigrúm,“ út- skýrir Þór. „Grunnur að ýmsum sprotafyrirtækjum var síðan lagð- ur með eflingu rannsóknarsjóð- anna 2013 og 2014 svo þau gátu komið undir sig fótunum og orðið að álitlegri kosti fyrir fjárfesta.“ Sprotar Sjávarklasans hafa fengið fimm milljarða Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Um 20% fjárfestinga 2016 og 2017 komu frá erlend- um aðilum. Árið 2018 fer mjög vel af stað með um 2,7 milljarða króna fjárfest- ingu í janúar og febrúar. Þór Sigfússon Heildarfjárfesting í sprotafyrirtækjum og verkefnum Árleg fjárfesting í Húsi Sjávarklasans 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 milljónir kr. 2012 2013 2014 2015 2016 2017 28.2. 2018 2.700 1.560 620 40150100 Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Búist er við mikilli verðmætasköpun hjá sprotunum. Mynd úr safni. Eldisráðstefnan Strandbúnaður verð- ur haldin í annað skipti þann 19. – 20. mars nk. en ráðstefnan er eins og seg- ir á dagskrárblaði „Stærsti árlegi vettvangur allra sem starfa í strandbúnaði“. Arnljótur Bjarki Bentsson formaður stjórnar Strandbúnaðar, segir í samtali við ViðskiptaMogg- ann að aðstand- endur reikni með að ráðstefnan hafi nú sannað sig, hún sé komin til að vera og verði árleg héðan í frá. „Með nafngift félagsins viljum við benda á að það er fleira en bara fiskur sem er alið og nytjað. Nafnið Strandbúnaður bendir til þeirra auðlinda sem ræktaðar eru við strendur landsins,“ segir Arnljótur. Hann segir að boðið verði upp á 10 málstofur á ráðstefnunni í ár, fjöl- mörg erindi og erlenda fyrirlesara. „Dagskráin er mjög fjölbreytt. Við viljum auka umræðu um þennan geira og gefa fólki tækifæri til að stíga á stokk og segja frá sínum hug- myndum. Í fyrra vorum við með skipulagsmálin í kastljósinu en í ár er- um við að horfa til heilbrigðis og sið- ferðis meðal annars.“ Hann nefnir sem dæmi að rætt verði um hvort laxalús sé upprenn- andi vandamál í íslensku laxeldi. Einnig verði tekin staðan á skelrækt- inni. Hann segir að í einu erindi komi fyrir hugtakið Bláa byltingin. „Það hugtak er farið að nota þegar rætt er um fiskeldi, og á við það hvernig vatn nýtist til að auka matvælaframleiðslu. Það er áskorun að metta sífellt vax- andi fjölda jarðarbúa. Matvæli eru að langmestu leyti framleidd á landi, en með breytingum í loftslagi m.a. horfa fleiri til hafsins og vatnsins hvað mat- vælaframleiðslu varðar, og það er þessi bláa bylting.“ Arnljótur bendir á í þessu tilliti að í dag séu 5% allra matvæla og fóðurs framleidd í vatni, en þó þeki vatn 70% af yfirborði jarðar. Orkufyrirtæki í þörungarækt Annað sem Arnljótur nefnir er möguleg bylting í framleiðslu líf- rænna efna með þörungarækt. „Er- indi Haraldar Hallgrímssonar frá Landsvirkjun, „Íslensk orka og ör- þörungar – Er ræktun örþörunga framtíðartækifæri fyrir íslenskan orkuiðnað“, snýr að því hvort Ísland sem orkuframleiðsluland, geti haslað sér völl inni í þörungarækt, hvort að- gangur að orku og því sem fellur til við orkuframleiðslu nýtist í slíka ræktun. Þá mun Rannveig Björns- dóttir hjá Háskólanum á Akureyri fjalla um Virk efni úr þörungum í snyrtivörur.“ Arnljótur segir aðspurður að skel- rækt sé nokkur áskorun hér á landi og hafi ekki enn náð flugi, en það mál- efni verði rætt á ráðstefnunni. Hann segir einnig aðspurður að vel hafi gengið að finna fyrirlesara til að tala á ráðstefnunni. Þó félagið hafi ekki digra sjóði þá hafi fengist erlend- ir fyrirlesarar til að halda erindi, auk þess sem Íslendingar sem vinna við strandbúnað erlendis mæti og segi frá reynslu sinni af ræktun, hverju sé hægt að læra af og hvað beri að var- ast. „Ráðstefnan í fyrra gekk framar vonum og lítur vel út núna í ár. Fyrst og síðast er þetta vettvangur til að skapa umræðu og tengsl, og til að miðla upplýsingum. Hún hjálpar fólki að átta sig á stöðu greinarinnar, og taka ákvarðanir um þróun hennar til framtíðar.“ tobj@mbl.is Bláa byltingin rædd á Strand- búnaði 2018 Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Horft til heilbrigðis og sið- ferðis á ráðstefnu um auð- lindir við strendur landsins. Morgunblaðið/Ásdís Sæeyra er dæmi um þá ræktun sem fram fer við strendur landsins. Arnljótur Bjarki Bergsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.