Morgunblaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
T
S
8
78
0
5
03
/1
8
Við leitum að öflugum kerfisfræðingi til að sjá um utanumhald og rekstur viðhalds-
stýringarkerfisins (núna Maintenix) og annarra kerfa sem eru í notkun á Tæknisviði
Icelandair. Viðfangsefnin eru margvísleg: dagleg þjónusta við kerfin, uppfærslur á
kerfum, endurbætur, kennsla og gerð kennsluefnis um kerfin.
STARFSSVIÐ:
Nánari upplýsingar veita:
HÆFNISKRÖFUR:
Úrvinnsla beiðna sem tengjast tölvukerfunum,
s.s. bilanir, endurbætur eða aðstoð
Umsjón með uppfærslum á kerfunum
Samvinna við forritarateymi
Námskeið og þjálfun fyrir starfsfólk Tæknisviðs
Icelandair í helstu tölvukerfum sem þar eru notuð
Gerð kennsluefnis og uppfærslur á því
Erla Dögg Haraldsdóttir, deildarstjóri I erlaha@its.is
Sveina Berglind Jónsdóttir, mannauðsstjóri I sveinaj@icelandair.is
Umsóknir ásamt ferilskrá óskast fylltar út á vef félagsins
www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 18. mars 2018.
Góð almenn tölvufærni og áhugi á
upplýsingatækni
Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
Góðir skipulagshæfileikar
Þekking á helstu tölvukerfum Tæknisviðs
Icelandair er kostur
Vönduð og sjálfstæð vinnubrögð
Færni í almennum samskiptum og samvinnu
VILTU VERÐA SÉRFRÆÐINGUR
Í TÖLVUKERFUM TÆKNISVIÐS
ICELANDAIR?
Tannlæknastofan Glæsibæ óskar eftir
góðum starfskrafti sem verður hluti af
örtstækkandi liðsheild. Um fullt starf er
að ræða og mikilvægt að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst. Starfsstöð
yrði bæði í Glæsibæ og Faxafeni.
Starfssvið
• Aðstoða tannlækna fjórhent við stól
• Sótthreinsun
• Röntgenmyndatökur
• Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
• Viðurkennt próf sem tanntæknir, hjúkrunar-
fræðingur, leikskólakennari eða annað nám
tengt heilbrigðissviði eða börnum
• Frumkvæði og faglegur metnaður
• Góðir samskiptahæfileikar
• Rík þjónustulund og frumkvæði
Í boði er fjölbreitt starf í jákvæðu og uppbyggjandi
umhverfi. Vinnutími er frá kl. 8.00–16.00.
Upplýsingar veitir
Við tökum á móti umsóknum á netfangið
thorunn@tlg.is.
Frekari aðstoð veitir Þórunn Guðmundsdóttir
framkvæmdastjóri í síma 899-1609
eða thorunn@tlg.is.
Umsóknafrestur er til og með 19. mars nk.
Um okkur
Tannlæknastofan Glæsibær er framsækið og
ört stækkandi tannlæknastofa sem býr vel að
starfsfólki sínu.
Við bjóðum upp á tannlækningar fyrir alla aldurs-
hópa en á stofunni starfa níu tannlæknar, þar af
fimm almennir tannlæknar, þrír sérfræðingar í
barnatannlækningum og einn sérfræðingur í
munn- og tanngervalækningum. Tíu starfsmenn
til viðbótar eru til aðstoðar
tannlæknum og er sérstaklega þjálfað til að sinna
sem fjölbreyttustum hópi fólks, þar með talið
börnum og einstaklingum með sérþarfir.
Okkar markmið er að gera tannlæknaheimsóknina
að ánægjulegri upplifun fyrir alla sem að henni
koma og leggjum við okkur fram um að viðskipta-
vinir okkar fái lausn sinna mála.
Tannlæknastofan Glæsibæ
– starf í boði
Heimasíða er: puti.is
Á dögunum fengu fulltrúar
þeirra fyrirtækja sem komu
að hönnun, uppsetningu og
öðru viðvíkjandi lagnabúnaði í
hátæknisetri Alvogen í Vatns-
mýrinni í Reykjavíkur við-
urkenningu Lagnafélags Ís-
lands sem ber yfirskriftina
Lofsvert lagnaverk. Við-
urkenningin var afhent á
Bessastöðum af Guðna Th.
Jóhannessyni, forseta Ís-
lands, en tilgangurinn með
henni er að hvetja starfandi
lagnamenn til góðra verka.
Hátæknisetur Alvogegn er
13.000 fermetra bygging þar
sem þróuð eru flókin líf-
tæknilyf. „Heildarnið-
urstaðan er í rauninni árang-
ur af allt að tuttugu ára
samstarfi eigenda, ráðgjafa
og iðnaðarmanna og er öllum,
sem að verkinu hafa komið, til
sóma. Þeir einstaklingar, sem
hér fá viðurkenningar eru
frábærir, fagmenn, hver á
sínu sviði. Hátæknisetrið og
allt sem í því er, hið vand-
aðasta og hefur þegar vakið
athygli á háskólasvæðinu.
Það gefur tilefni til heillaóska
og ástæðu til að samgleðjast
þeim, sem þar hafa unnið
saman,“ segir í frétt frá
Lagnafélagi Íslands.
Þeir sem fengu viðurkenn-
inguna Lofsvert lagnaverk
voru fulltrúar Lagnatækni,
Verkíss, Eflu, Rafmiðlunar
hf., Blikksmiðju Einars hf.,
Blikksmiðsins hf., Íslofts, GH
lagna ehf. og Karl Magnússon
blikksmíðameistari.
Hátæknisetrið
til fyrirmyndar
Lofsvert lagnaverk hjá Alvo-
gen Hvatning til góðra verka
Lagnafólk Forseti Íslands afhenti verðlaun Lagnafélags Ís-
lands sem hugsuð eru sem hvatning til góðra verka.
Breytingar standa nú fyrir
dyrum þjónustuneti Arion-
banka. Starfrænir möguleikar
sem viðskiptavinir hafa til að
sinna sínum málum verða
efldir og starfsemi ýmissa úti-
búa sem áfram starfa verður
efld. Gildir það til dæmis um
útibúin í Borgartúni og á
Bíldshöfða í Reykjavík og á
Smáratorgi í Kópavogi. Öll
eru þau, segir í tilkynningu,
þjónustukjarnar líkt og útibú-
in í Borgarnesi, á Selfossi og á
Akureyri. Í kjörnum býðst al-
menn fjármálaþjónusta og
ráðgjöf sérfræðinga.
Þjónustukjarnar styrktir
Jafnframt verður þjónusta í
þjónustuveri efld. Bankinn
horfir til sveigjanlegri af-
greiðslutíma og fjölbreyttra
samskiptaleiða en í dag er
veitt þjónusta og ráðgjöf í
gegnum síma, samfélags-
miðla, netspjall og tölvupóst.
Starfsemi útibúa Arion
banka í Garðabæ og Hafnar-
firði verður í sumar að hluta
sameinuð þjónustukjarna á
Smáratorgi í Kópavogi. Á
sama tíma verður opnað útibú
í alfaraleið sem þjóna á
Garðabæ og Hafnarfirði. Í
maí verður útibúi Arion banka
í Mosfellsbæ lokað og tekur
þjónustukjarninn á Bílds-
höfða í Reykjavík við hlut-
verki þess. Þá verður útibúinu
á Ólafsfirði lokað og öll starf-
semi Arion í Fjallabyggð
verður á Siglufirði. Áfram
verða hraðbankar í Mos-
fellsbæ, Firði í Hafnarfirði og
á Ólafsfirði.
Í ný húsakynni
Útibú Arion banka á Akur-
eyri, Blönduósi, Hellu og í Vík
í Mýrdal verða öll flutt í ný
húsakynni. Unnið er að því að
velja nýtt húsnæði en við val á
nýjum staðsetningum verður
einkum horft til góðs aðgeng-
is, möguleika á sveigjanlegri
afgreiðslutíma og aðgengi að
sjálfsafgreiðslu. Þá tekur
útibú Arion banka við Haga-
torg í Vesturbæ Reykjavíkur
breytingum og verður því lok-
að um tíma. sbs@mbl.is
Breytingar hjá
Arion banka
Útibú víða verða sameinuð
Banki Starfsemi Arion og fyrirrennara hans á Akureyri hefur
lengi verið í Geislagötu, en nú standa flutningar fyrir dyrum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson