Morgunblaðið - 15.03.2018, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018SJÓNARHÓLL
ÓMAR
Menntamálin eru í brennidepli þessa dagana.Ótrúlegt klúður í nýloknum – eða öllu helduróloknum – samræmdum prófum í grunn-
skólum landsins virðist hafi verið dropinn sem fyllti
mælinn hjá mörgum. Það er smám saman að renna
upp fyrir Íslendingum að full ástæða er til þess að
hafa áhyggjur af stöðu skólakerfisins og menntunar
hér á landi.
Íslendingar eru neðstir allra Norðurlandabúa í hinu
umtalaða PISA-prófi og við eigum færri afburðanem-
endur samanborið við hin löndin á Norðurlöndum.
Brotthvarf úr námi er mun meira hér en annars stað-
ar á Norðurlöndunum sem
þýðir að stór hluti ungmenna
finnur sér ekki farveg við
hæfi innan íslenska skólakerf-
isins.
En það eru ekki bara nem-
endurnir sem hrökklast úr
skóla, heldur er brotthvarf
hæfra kennara úr stéttinni
einnig mikið áhyggjuefni. Við
þetta bætist að endurnýjun í
stéttina er ófullnægjandi. Eft-
ir að nám til kennararéttinda
var lengt í fimm ár hefur um-
sóknum fækkað, innritunar-
hlutfall lækkað og brottfall
aukist. Aðsókn í grunnnám fyrir kennsluréttindi í
grunnskóla hefur hrunið um 70% á 10 árum eða úr
395 umsóknum árið 2007 í 134 árið 2017.
Menntamálráðherra hefur brugðist við umræðunni
og lofar að nú verði málin tekin föstum tökum. Hún
hefur lagt til að Íslendingar líti sérstaklega til Finn-
lands. Þar voru menntamál sett í algjöran forgang á
árunum eftir seinni heimsstyrjöldina þegar staða þjóð-
arinnar var bág vegna hárra stríðsskaðabóta og mikils
mannfalls. Finnar réðust í allsherjar endurskipulagn-
ingu á menntakerfinu og státa nú af einu besta
menntakerfi heims.
Íslendingar stóðu á miklum krossgötum fyrir áratug
í kjölfar efnahagshrunsins. Þá upphófst mikil nafla-
skoðun og margir sáu í erfiðleikunum tækifæri til þess
að gera grundvallarbreytingar á ýmsum sviðum. Efna-
hagserfiðleikar Íslendingar stóðu hins vegar stutt og á
örfáum árum urðu batahorfur þjóðarinnar bjartar.
Auknar gjaldeyristekjur, skuldaniðurgreiðslur, aukinn
kaupmáttur og sterkari króna gerðu Ísland að einu
mesta hagvaxtarríki í heimi á aðeins 10 árum.
Stolt yfir skjótum umskiptum horfir þjóðin nú
með samviskubiti á þann hornstein sem byrjað er að
molna úr. Höfum við vanrækt þá grundvallarstoð
sem mestu skiptir um framtíðarhorfur þjóðarinnar?
Báðir foreldrar mínir eru kennarar og ég hef ekki
orðið vör við annað en að um þau gildi sömu lögmál
og aðra í þjóðfélaginu. Þegar kennarar ákveða
starfsvettvang skipta kaup og kjör miklu máli, en
einnig ýmsir aðrir þættir eins og
sjálfstæði, virðing fyrir starfinu,
álag og vinnutilhögun. Kenn-
arastarfið í núverandi umhverfi
er því miður ekki nægilega að-
laðandi og spennandi til þess að
við getum snúið þessari þróun
við.
Kennarastarfið á að vera frum-
kvöðla- og leiðtogastarf þar sem
kennarar fá að leggja metnað
sinn í að kveikja neista í huga
nemenda og hjálpa þeim að feta
þann menntaveg sem verður þeim
farsæll til framtíðar. Til þess
þurfa kennarar aukið svigrúm og
frelsi í sínum störfum. Það þarf ekki að stafa ofan í
góðan kennara hvernig kennslustundum er háttað frá
degi til dags, heldur eiga þeir að hafa frelsi til þess að
beita dómgreind sinni og reynslu til þess að aðlaga
skipulag og forgangsröðun eftir þörfum nemendanna.
Til þess að koma í veg fyrir að áfram molni úr
þessari mikilvægu grunnstoð þarf að skoða allt
kerfið með opnum og frjóum hug. Má auka fjar-
kennslu? Ætti að bjóða fleiri leiðir til þess að kom-
ast inn í kennarastéttina? Væri rétt að draga úr
vægi miðlægra kjarasamninga og veita skólastjórn-
endum meira svigrúm í launamálum? Er óhætt að
draga úr miðstýringu ráðuneyta og stofnana og gefa
kennurum og skólastjórnendum aukið frelsi og
sjálfstæði?
Eitt er víst – afturhaldssemi og stofnanakreddur
eru ekki þær vörður sem við eigum að fylgja.
VIÐSKIPTALÍF
Ásta Sigríður Fjeldsted
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Molnar úr grunnstoðinni
”
Kennarastarfið á að vera
frumkvöðla- og leið-
togastarf þar sem kenn-
arar fá að leggja metnað
sinn í að kveikja neista í
huga nemenda og
hjálpa þeim að feta þann
menntaveg sem verður
þeim farsæll til framtíðar.
FORRITIÐ
Það sama gildir um snjallsímana og
gildir um tölvurnar, að stundum
þarf að taka til á harða diskinum;
henda burtu forritum sem gera
græjuna þunglamalega, og fjar-
lægja skrár sem taka of mikið pláss.
Brakandi hreinn sími er þægi-
legri í notkun, hefur pláss fyrir þær
skrár sem máli skipta, og sóar ekki
orkunni á rafhlöðunni.
En að gera hreingerningu á
snjallsíma er hægara sagt en gert,
og fáir símar koma með góðum for-
ritum sem einfalda tiltektina og
hreinsa úr öllum þeim glufum þar
sem óþarfa gögn og forrit gætu
leynst.
Falcon Mobi Cleaner er forrit
fyrir Android-síma sem gæti hjálp-
að. Um er að ræða alhliða lausn
sem bæði skimar eftir skrám og
forritum sem má eyða, hreinsar
burtu gögn sem samfélagsmiðla-
forrit hafa safnað upp á símanum,
og vinsar burtu óþarfa afrit af
myndum sem síminn geymir í tví-
eða þríriti.
Falcon Mobi Cleaner getur líka
stöðvað forrit sem hægja á síman-
um og hámarkað rafhlöðuend-
inguna með því að stýra orkunotk-
un símans, auk þess að forritið
getur leitað að tölvuvírusum og
annarri óværu sem gæti hafa
hreiðrað um sig í tækinu.
ai@mbl.is
Til að gera vorhrein-
gerningu á símanum
• Gamli lykillinn
virkar áfram
• Vatns- og
vindvarinn
Verð: 45.880 kr.
LYKILLINN ER Í SÍMANUM
Lockitron Bolt gerir snjallsímann þinn að öruggum lykli
til að opna fyrir fjölskyldu, vinum eða öðrum gestum
þegar þér hentar og hvaðan sem er.
Þægilegt og öruggt. Þú stjórnar lásnum og fylgist með
umgengni í símanum. Hægt er til dæmis að opna fyrir
börnunum eða iðnaðarmönnum tímabundið án þess að
fara heim eða lána lykil.
Lockitron Bolt snjalllásinn fæst í Vélum og verkfærum.
Sölumenn okkar taka vel á móti þér.