Morgunblaðið - 15.03.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.03.2018, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018SJÓNARHÓLL ÓMAR Menntamálin eru í brennidepli þessa dagana.Ótrúlegt klúður í nýloknum – eða öllu helduróloknum – samræmdum prófum í grunn- skólum landsins virðist hafi verið dropinn sem fyllti mælinn hjá mörgum. Það er smám saman að renna upp fyrir Íslendingum að full ástæða er til þess að hafa áhyggjur af stöðu skólakerfisins og menntunar hér á landi. Íslendingar eru neðstir allra Norðurlandabúa í hinu umtalaða PISA-prófi og við eigum færri afburðanem- endur samanborið við hin löndin á Norðurlöndum. Brotthvarf úr námi er mun meira hér en annars stað- ar á Norðurlöndunum sem þýðir að stór hluti ungmenna finnur sér ekki farveg við hæfi innan íslenska skólakerf- isins. En það eru ekki bara nem- endurnir sem hrökklast úr skóla, heldur er brotthvarf hæfra kennara úr stéttinni einnig mikið áhyggjuefni. Við þetta bætist að endurnýjun í stéttina er ófullnægjandi. Eft- ir að nám til kennararéttinda var lengt í fimm ár hefur um- sóknum fækkað, innritunar- hlutfall lækkað og brottfall aukist. Aðsókn í grunnnám fyrir kennsluréttindi í grunnskóla hefur hrunið um 70% á 10 árum eða úr 395 umsóknum árið 2007 í 134 árið 2017. Menntamálráðherra hefur brugðist við umræðunni og lofar að nú verði málin tekin föstum tökum. Hún hefur lagt til að Íslendingar líti sérstaklega til Finn- lands. Þar voru menntamál sett í algjöran forgang á árunum eftir seinni heimsstyrjöldina þegar staða þjóð- arinnar var bág vegna hárra stríðsskaðabóta og mikils mannfalls. Finnar réðust í allsherjar endurskipulagn- ingu á menntakerfinu og státa nú af einu besta menntakerfi heims. Íslendingar stóðu á miklum krossgötum fyrir áratug í kjölfar efnahagshrunsins. Þá upphófst mikil nafla- skoðun og margir sáu í erfiðleikunum tækifæri til þess að gera grundvallarbreytingar á ýmsum sviðum. Efna- hagserfiðleikar Íslendingar stóðu hins vegar stutt og á örfáum árum urðu batahorfur þjóðarinnar bjartar. Auknar gjaldeyristekjur, skuldaniðurgreiðslur, aukinn kaupmáttur og sterkari króna gerðu Ísland að einu mesta hagvaxtarríki í heimi á aðeins 10 árum. Stolt yfir skjótum umskiptum horfir þjóðin nú með samviskubiti á þann hornstein sem byrjað er að molna úr. Höfum við vanrækt þá grundvallarstoð sem mestu skiptir um framtíðarhorfur þjóðarinnar? Báðir foreldrar mínir eru kennarar og ég hef ekki orðið vör við annað en að um þau gildi sömu lögmál og aðra í þjóðfélaginu. Þegar kennarar ákveða starfsvettvang skipta kaup og kjör miklu máli, en einnig ýmsir aðrir þættir eins og sjálfstæði, virðing fyrir starfinu, álag og vinnutilhögun. Kenn- arastarfið í núverandi umhverfi er því miður ekki nægilega að- laðandi og spennandi til þess að við getum snúið þessari þróun við. Kennarastarfið á að vera frum- kvöðla- og leiðtogastarf þar sem kennarar fá að leggja metnað sinn í að kveikja neista í huga nemenda og hjálpa þeim að feta þann menntaveg sem verður þeim farsæll til framtíðar. Til þess þurfa kennarar aukið svigrúm og frelsi í sínum störfum. Það þarf ekki að stafa ofan í góðan kennara hvernig kennslustundum er háttað frá degi til dags, heldur eiga þeir að hafa frelsi til þess að beita dómgreind sinni og reynslu til þess að aðlaga skipulag og forgangsröðun eftir þörfum nemendanna. Til þess að koma í veg fyrir að áfram molni úr þessari mikilvægu grunnstoð þarf að skoða allt kerfið með opnum og frjóum hug. Má auka fjar- kennslu? Ætti að bjóða fleiri leiðir til þess að kom- ast inn í kennarastéttina? Væri rétt að draga úr vægi miðlægra kjarasamninga og veita skólastjórn- endum meira svigrúm í launamálum? Er óhætt að draga úr miðstýringu ráðuneyta og stofnana og gefa kennurum og skólastjórnendum aukið frelsi og sjálfstæði? Eitt er víst – afturhaldssemi og stofnanakreddur eru ekki þær vörður sem við eigum að fylgja. VIÐSKIPTALÍF Ásta Sigríður Fjeldsted framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Molnar úr grunnstoðinni ” Kennarastarfið á að vera frumkvöðla- og leið- togastarf þar sem kenn- arar fá að leggja metnað sinn í að kveikja neista í huga nemenda og hjálpa þeim að feta þann menntaveg sem verður þeim farsæll til framtíðar. FORRITIÐ Það sama gildir um snjallsímana og gildir um tölvurnar, að stundum þarf að taka til á harða diskinum; henda burtu forritum sem gera græjuna þunglamalega, og fjar- lægja skrár sem taka of mikið pláss. Brakandi hreinn sími er þægi- legri í notkun, hefur pláss fyrir þær skrár sem máli skipta, og sóar ekki orkunni á rafhlöðunni. En að gera hreingerningu á snjallsíma er hægara sagt en gert, og fáir símar koma með góðum for- ritum sem einfalda tiltektina og hreinsa úr öllum þeim glufum þar sem óþarfa gögn og forrit gætu leynst. Falcon Mobi Cleaner er forrit fyrir Android-síma sem gæti hjálp- að. Um er að ræða alhliða lausn sem bæði skimar eftir skrám og forritum sem má eyða, hreinsar burtu gögn sem samfélagsmiðla- forrit hafa safnað upp á símanum, og vinsar burtu óþarfa afrit af myndum sem síminn geymir í tví- eða þríriti. Falcon Mobi Cleaner getur líka stöðvað forrit sem hægja á síman- um og hámarkað rafhlöðuend- inguna með því að stýra orkunotk- un símans, auk þess að forritið getur leitað að tölvuvírusum og annarri óværu sem gæti hafa hreiðrað um sig í tækinu. ai@mbl.is Til að gera vorhrein- gerningu á símanum • Gamli lykillinn virkar áfram • Vatns- og vindvarinn Verð: 45.880 kr. LYKILLINN ER Í SÍMANUM Lockitron Bolt gerir snjallsímann þinn að öruggum lykli til að opna fyrir fjölskyldu, vinum eða öðrum gestum þegar þér hentar og hvaðan sem er. Þægilegt og öruggt. Þú stjórnar lásnum og fylgist með umgengni í símanum. Hægt er til dæmis að opna fyrir börnunum eða iðnaðarmönnum tímabundið án þess að fara heim eða lána lykil. Lockitron Bolt snjalllásinn fæst í Vélum og verkfærum. Sölumenn okkar taka vel á móti þér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.