Morgunblaðið - 20.03.2018, Side 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018
Í GARÐABÆ
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Stjarnan vann torsóttan en sætan sig-
ur á ÍR, 64:57, í öðrum leik liðanna í
átta liða úrslitum Dominos-deildar
karla í körfuknattleik í gærkvöldi. ÍR-
ingar höfðu betur í fyrsta einvíginu í
Seljaskóla og virtust á tíma ætla að
taka stórt skref í einvígi liðanna í Ás-
garði í gær en seigir Stjörnumenn
gerðu nóg á kvöldi þar sem bæði lið
voru langt frá sínu besta.
Stjörnumenn mættu grimmir til
leiks og unnu fyrsta leikhlutann með
14 stigum en gestirnir sneru taflinu við
í þeim næsta og unnu hann með 19
stigum. Saga leiksins var þó afleit
skotnýting beggja liða, aðeins 24 stig
voru skoruð í þriðja leikhluta og tókst
ÍR-ingum ekki að rjúfa tíu stiga múr-
inn í tveimur leikhlutum.
Maður leiksins var án nokkurs vafa
kempan Hlynur Elías Bæringsson,
hann var stigahæstur heimamanna
með 17 stig og tók einnig 18 frákost.
Ryan Taylor týndist
Lykillinn að því að halda ÍR-ingum í
skefjum var að loka á einn besta leik-
mann Íslandsmótsins, Ryan Taylor.
Það hefur þó reynst hægara sagt en
gert og var Bandaríkjamaðurinn til að
mynda með 32 stig í fyrri leiknum. Í
gær sá hann þó aldrei til sólar, skoraði
aðeins sex stig og var með 16% skot-
nýtingu. Hin stjarnan í ÍR-liðinu,
Matthías Orri Sigurðarson, var sömu-
leiðis langt frá sínu besta, misnotaði öll
vítaköstin sín og skoraði aðeins 13 stig.
Hlynur kjöldró ÍR-inga
Enn og aftur var skotnýting
Stjörnumanna afleit en þegar liðið
spilar svona varnarleik þarf það varla
að skora. Collin Anthony Pryor sýndi
góðan leik en of oft hafa Bandaríkja-
menn Stjörnunnar verið týndir þegar
á reynir. Það fór þó ekkert á milli mála
hver lykilmaður liðsins er. Hlynur
sýndi enn eina ferðina hvers hann er
megnugur og var algjör klettur í vörn
heimamanna. Það er erfitt að ímynda
sér hvar þetta Stjörnulið væri án hans
en ljóst er að þeir munu þurfa á öllum
hans kröftum að halda ætli þeir sér
áframhaldandi þátttöku í úr-
slitakeppninni.
Garðbæingar sýndu í gær að þeir
eiga fullt erindi í þessa rimmu. Stóra
spurningin er hvort þeir hafi fundið
uppskriftina að því að halda sóknarliði
ÍR í skefjum eða hvort Breiðhyltingar
hafi einfaldlega átt slæman dag. Leik-
urinn í gær spurði fleiri spurninga en
hann svaraði og mikil spenna verður
fyrir þriðja leikinn á fimmtudaginn
kemur.
Stjarnan
jafnaði með
varnarleik
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sterkur Hlynur Bæringsson hefur betur gegn Ryan Taylor, einu sinni sem oft-
ar, í leiknum í Ásgarði í gærkvöld. Hann skoraði 17 stig og tók 18 fráköst.
Eru Garðbæingar komnir með
uppskriftina gegn Ryan Taylor?
Ásgarður, 8-liða úrslit karla, annar
leikur, mánudag 19. mars 2018.
Gangur leiksins: 4:3, 11:5, 15:5, 21:7,
23:14, 25:20, 27:27, 31:36, 33:38,
35:42, 37:44, 43:48, 45:51, 47:52,
59:52, 59:55, 61:57, 64:57.
Stjarnan: Hlynur Elías Bæringsson
17/18 fráköst, Collin Anthony Pryor
17/5 fráköst, Róbert Sigurðsson 13,
Eysteinn Bjarni Ævarsson 6/6 fráköst,
Darrell Devonte Combs 5, Arnþór
Freyr Guðmundsson 5, Tómas Þórður
Hilmarsson 1/10 fráköst.
Fráköst: 33 í vörn, 14 í sókn.
ÍR: Matthías Orri Sigurðarson 13, Da-
nero Thomas 11/3 varin skot, Hákon
Örn Hjálmarsson 11/5 fráköst, Kristinn
Marinósson 9/4 fráköst, Ryan Taylor
6/14 fráköst, Sæþór Elmar Krist-
jánsson 5/5 fráköst, Sigurkarl Róbert
Jóhannesson 2.
Fráköst: 28 í vörn, 8 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herberts-
son, Kristinn Óskarsson, Georgia Olga
Kristiansen.
Áhorfendur: 813
Staðan er 1:1 og þriðji leikur í Breið-
holtinu á fimmtudagskvöld.
Stjarnan – ÍR 64:57
Hörður Björgvin Magnússon,
landsliðsmaður í knattspyrnu, varð
ekki fyrir alvarlegum meiðslum í leik
Bristol City og Ipswich í ensku B-
deildinni á laugardaginn, eins og ótt-
ast var. Hörður fór í skanna í gær-
morgun og þar kom í ljós að bein við
hnéð, svokallað dálkshöfuð, hefði farið
úr liði en hrokkið aftur á sinn stað.
Hörður staðfesti þetta við mbl.is í gær
og þá var hann að leggja af stað frá
Englandi til San Francisco til móts við
íslenska landsliðið, sem kom saman
þar í gærkvöld vegna leiksins við
Mexíkó aðfaranótt næsta laugardags.
Hörður sagði við mbl.is að hann
gæti líklega byrjað að æfa á ný í vik-
unni og ætti að geta náð landsleikj-
unum gegn Mexíkó og Perú.
Giorgio Chiellini, varnarmaðurinn
reyndi í liði Juventus og ítalska lands-
liðsins í knattspyrnu, á það á hættu að
missa af fyrri leik Juventus og Real
Madrid í átta liða úrslitum Meist-
aradeildarinnar þriðjudaginn 3. apríl.
Chiellini varð fyrir meiðslum í marka-
lausu jafntefli Juventus gegn SPAL í
ítölsku A-deildinni og af þeim sökum
hefur hann dregið sig út úr landsliðs-
hópnum fyrir vináttuleikina gegn Arg-
entínumönnum og Englendingum sem
fram fara í kringum næstu helgi.
Knattspyrnudeild Fram hefur gert
tveggja ára samning við 23 ára gamlan
varnarmann frá Brasilíu, Marcus
Vieira. Er hann kallaður Marcáo og
hefur spilað með EC Bahia og Juven-
tude í heimalandinu og Zaria Balti í
Moldóvu. Marcáo lék á sínum tíma
fjóra leiki með yngri landsliðum Bras-
ilíu. Hann er annar Brasilíumaðurinn
sem Fram fær til sín fyrir sumarið. Á
heimasíðu Fram kemur fram að
Marcáo sé sterkur í loftinu og með
mikla sendingargetu. Hann er stór og
stæðilegur, 193 cm og 90 kg.
Tyronn Lue, þjálfari Cleveland Ca-
valiers í NBA-deildinni í körfubolta,
mun ekki stýra liði sínu í næstu leikj-
um. Hann hefur verið að glíma við
verki í brjósti og svefnleysi í allan vet-
ur. Hann þurfti t.a.m að vera í búnings-
klefa liðsins í seinni hálfleik í leiknum
gegn Chicago Bulls aðfaranótt sunnu-
dags, vegna vanlíðanar.
Aron Jóhannsson, leikmaður þýska
knattspyrnuliðsins Werder Bre-
men, hefur þurft að
draga sig út úr
bandaríska
landsliðs-
hópnum
fyrir vináttuleik
gegn Paragvæ síðar í
þessum mánuði,
vegna meiðsla. Aron
hefur ekki leikið
með bandaríska
landsliðinu síðan
í september árið
2015.
Eitt
ogannað
halda spilunum þétt að sér en orðróm-
ur hefur verið uppi um að Aron Krist-
jánsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari,
sé meðal þeirra sem Stjörnumenn hafa
í sigtinu vegna þjálfunar karlaliðsins.
Eins og sakir standa er ekki útlit
fyrir miklar breytingar á þjálf-
aramálum liðanna 20 sem leika í Olís-
deildum karla og kvenna. Fjögur efstu
lið Olís-deildar kvenna, Valur, Fram,
ÍBV og Haukar eru ekki líkleg til þess
að gera breytingar. Eyjamenn hafa
ráðið Erling Richardsson í stað Arn-
ars Péturssonar frá og með sumrinu.
Selfoss, Valur, FH, Haukar og Aftur-
elding eru öll með ráðningarsamninga
við þjálfara sína að minnsta kosti í eitt
ár til viðbótar. Sömu sögu er að segja
um Guðmund Helga Pálsson, þjálfara
Fram, sem samdi nýverið við Safa-
mýrarliðið fram á næsta áratug.
Kristján í Val og Sveinn í Hauka?
Úr herbúðum Fjölnis heyrist að rík-
ur áhugi sé fyrir því hjá nýkjörinni
stjórn handknattleikdeildar að ráða
Arnar Gunnarsson áfram þrátt fyrir
að liðið sé fallið úr Olís-deildinni. Arn-
ar hefur þjálfað Fjölni síðustu fjögur
ár með ágætum árangri. Eins mun
vera vilji til að Árni Stefánsson verði
Arnari til halds og trausts áfram eins
og síðustu mánuði.
Hinsvegar þykir ljóst að hið
minnsta tveir leikmenn yfirgefi Fjölni
í sumar og þeir freisti gæfunnar hjá
liðum í Olís-deildinni á næstu leiktíð.
Heimildir Morgunblaðsins herma að
Valur hafi örvhentu stórskyttuna
Kristján Örn Kristjánsson undir smá-
sjánni og að Haukar renni hýru auga
til línumannsins efnilega Sveins Jó-
hannssonar.
Orðrómur hefur verið uppi um að
Sverre Jakobsson hætti þjálfun Ak-
ureyrar handboltafélags eftir keppnis-
tímabilið. Eftir því sem næst verður
komist er enginn fótur fyrir þeim orð-
rómi. Akureyrarliðið er komið með
annan fótinn upp í Olís-deildina og get-
ur gulltryggt sér sæti þar á laugardag-
inn.
Ljósmynd/Foto Olimpik
Stjarnan Aron Kristjánsson kemur heim frá Álaborg í vor. Tekur hann við liði
Stjörnunnar af Einari Jónssyni? Möguleikarnir eru allavega ekki margir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölnir Kristján Örn Kristjánsson er
líklega á leiðinni til Vals.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölnir Sveinn Jóhannsson er líklega
á leiðinni til Hauka.