Morgunblaðið - 08.03.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 08.03.2018, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018 Þ etta var áskorun sem ég átti eftir og það er gaman að segja frá því að mig hafði einmitt langað að nálgast mannlega þáttinn meira í störfum mínum í fjölmiðlum um nokkurt skeið þegar þetta tæki- færi bauðst,“ segir Rikka um nýja útvarpsstarfið. „Það var meðvituð ákvörðun hjá mér að fjarlægjast matinn aðeins, þar sem ég og matur höfum verið býsna samtvinnuð gegnum tíðina, af því að ég var eig- inlega bara orðin svolítið södd af því að fást við hann. Undanfarin misseri hef ég sökkt mér í hlaðvörp og hljóðbækur ásamt því að lesa mikið og hlusta mikið á talmálsþætti í út- varpi, allt til að svala áhuga mínum á fólki. Mig langaði í auknum mæli að fást við eitthvað með mannlegri tengingu í útvarpi. Þá var hringt í mig og ég beðin um að leysa af í þættinum Magasínið á K100, fyrst Huldu og svo Hvata, og ég fann bara hvað ég var tilbúin í þetta í kjölfarið. Mig langaði einfaldlega mikið í útvarpið, ekki endilega til að spila músík fyrir hlustendur heldur frekar til að spjalla við fólk. Verk- efnið að halda utan um Ísland vakn- ar kom því til mín á hárréttum tíma, fullmótað og sniðið að mínum áhuga. Mér finnst ótrúlega gaman að tala við fólk því það hafa allir ein- hverja sögu að segja.“ Viðbrigði að byrja í útvarpi Meðal hinna mörgu verkefna sem Rikka hefur haldið utan um og tekið þátt í í fjölmiðlum hérlendis eru Gestgjafinn, Ísland í dag, mat- artímaritið Bistro, Wipeout- þáttaröðin sem tekin var upp í Arg- entínu, Masterchef-þáttaröðin fyrir utan að gefa út einar fimm bækur um mat og matargerð. Einnig rit- stýrði hún Lífinu, blaðhluta Frétta- blaðsins, og var einnig með þættina Hjálparhönd sem fjölluðu um sjálf- boðaliða og hjálparstarf á Íslandi. „Það er eiginlega í þeirri dag- skrárgerð sem ég áttaði mig á því að mig langaði meira í mannlega þáttinn og minna í matinn í bili,“ bendir Rikka á. „Mig var einfald- lega farið að langa í annars konar áskorun.“ Þá áskorun hefur Rikka fengið í hinum daglega morgunþætti því eins og hún útskýrir eru margs kon- ar viðbrigði fólgin í því að hefja störf í útvarpi, burtséð frá allri þeirri reynslu sem hún hefur sank- að að sér í gegnum árin í fjöl- miðlum. „Mér finnst ég tengdari sam- félaginu í útvarpinu og um leið frjálsari. Einhvern veginn finnst mér það heftandi að vera of pródú- seraður í fjölmiðlum,“ segir hún. „Eigin persónuleiki fær að skína meira í gegn. Þegar maður er til dæmis í sjónvarpi er maður miklu meira pródúseraður og þar af leið- andi tengir fólk kannski ekki eins mikið við mann. Mér finnst ég vera meira ég sjálf í útvarpinu, miklu meira. Þó að ég hafi alltaf lagt upp með að vera ég sjálf í störfum mín- um í fjölmiðlum þá ertu einfaldlega með ákveðið rými sem þú þarft að starfa innan þegar þú ert í sjón- varpi, til dæmis í matreiðsluþáttum. Þá ertu ekkert að fara að tala um hvað þú gerðir í gær, nema það tengist því sem þú ert að fást við. En í útvarpinu talar maður bara af- slappað um daginn og veginn, án þess að þurfa að flétta það endilega við dagskrána að öðru leyti.“ Hálfgert raunveruleikaútvarp Eins og landsmenn hafa séð er morgunþátturinn Ísland vaknar – sem og aðrir dagskrárliðir K100 – ekki bara sendir úr á FM heldur er dagskrá útvarpsstöðvarinnar einnig sýnd á rás 9 í sjónvarpinu. Þetta er nýlunda hér á landi og spurning hvernig Rikku fellur að vera ekki bara í útvarpinu heldur í sjónvarp- inu um leið? „Veistu það, frá því ég stóð fyrst framan við myndavél hefur mér lið- ið þar vel svo ég pæli ekki í þessu. Myndavélarnar sem senda út þætt- ina hafa engin áhrif á okkur og mestan partinn vitum við ekki af þeim. Þær eru bara þarna án þess að pródúsera dagskrána neitt frek- ar, sem gerir þetta einmitt svo skemmtilegt og spennandi. Fólk fylgist með okkur þar sem við erum einfaldlega við sjálf, næstum eins og verið sé að fylgjast með okkur inn um gluggann án þess að við vitum af því,“ bætir Rikka við og kímir. „Eiginlega er þetta hálfgert raun- veruleikaútvarp! Maður er bara eðlilegur í sínu umhverfi og leiðir hugann ekkert að myndavélunum. Við látum eins og okkur sýnist og það er ekki bannað að fá hláturs- kast, sem gengur ekki endilega í hefðbundinni sjónvarpsútsendingu í beinni. Þetta þýðir að það getur allt gerst og fyrir bragðið er spennandi að mæta í vinnuna. Maður þarf að vera viðbúinn og um leið opinn fyrir því sem kann að gerast. Það er nauðsynlegt að vera sveigjanlegur til að geta brugðist við því sem ger- ist. Í sjónvarpi hefurðu tækifæri til að taka upp aftur og aftur ef eitt- hvað kemur upp á en í útvarpinu vinnurðu af fingrum fram. Þetta eru því gerólíkir miðlar.“ Stemningin er auðheyrilega góð og stuðið eftir því þegar þau þrjú eru í loftinu. Þekkti Rikka þá fé- lagana, Rúnar Frey og Loga, áður en þau hófu störf saman á K100? „Já, ég þekkti þá báða,“ segir Rikka. „Við Logi vorum saman á skrifstofu hjá 365 miðlum, Rúnar Frey þekkti ég bæði frá fornu fari og í gegnum fólkið í kringum mig.“ Aðspurð hvort Logi – sem er ann- álaður, ef ekki alræmdur hrekkja- lómur – sé búinn að gera henni eða Rúnari Frey grikk síðan þau hófu störf í upphafi mánaðar segir hún svo ekki vera „Hann er nú búinn að vera nokkuð hrekklaus hingað til en það veit sjálfsagt ekki á gott. Ætli hann sé ekki tifandi tímasprengja sem gerir út af við mann þegar minnst varir?“ Rikka segist aftur á móti hafa lúmskt gaman af því að ná skapinu í Loga upp, eldsnemma á morgnana, þegar hann er ekki alveg vaknaður til lífsins. „Ef ég hef til dæmis á orði hversu mikill ökuníðingur hann er, eða fer að tala um einstefnur og annað úr umferðinni, þá kveikir það oftast upp í elementinu í honum. Bara að segja orðið „einstefna“ dug- ar oftast,“ segir Rikka og hlær við. Aðspurð hvort þau þrjú virki vel saman af því að þau séu á sinn hátt lík, eða af því að þau séu ólík, segir hún hið síðarnefnda vera tilfellið. „Klárlega af því við erum ólík. Mjög ólík. Það held ég að sé styrk- leiki og það gerir þetta allt saman líka áhugavert. Værum við öll eins þá þyrftum við væntanlega ekki að vera öll þrjú,“ bætir hún kankvís við. „Þeir tveir hafa unnið talsvert saman áður svo ég er svolítið eins og einstaklingur sem er að fara með eldri hjónum í sólarlandaferð!“ Hér er ekki lítið hlegið. En þarf hún að standa uppi í hárinu á þeim gaurunum sem „stelpan í hópnum“ – þeir eru jú helmingi fleiri en hún? Rikka hugsar sig um. „Jú, ég þarf þess alveg stundum,“ segir hún og brosir út í annað. „Áskorun sem ég átti eftir“ Friðrika Hjördís Geirsdóttir – Rikka – er komin til starfa á K100 og sér um morgunþáttinn Ísland vaknar ásamt þeim Loga Bergmann og Rúnari Frey. Þó að hún hafi víða komið við í fjölmiðlum hérlendis er K100 fyrsta útvarpsstöðin sem hún vinnur hjá og því fylgja kostir jafnt sem áskoranir, eins og hún segir frá. Morgunblaðið/Árni Sæberg Útvarpið „Mér finnst ég tengdari samfélaginu í útvarpinu og um leið frjálsari,“ segir Rikka. „Eigin persónuleiki fær að skína meira í gegn. Þegar maður er til dæmis í sjónvarpi er maður miklu meira pródúseraður og þar af leiðandi tengir fólk kannski ekki eins mikið við mann. Mér finnst ég vera meira ég sjálf í útvarpinu, miklu meira.“ „Hérna koma nokkrar tillögur að skemmtilegum pod- köstum og bókum sem ég er að hlusta á þessa dagana: Hlaðvörp:  Í ljósi sögunnar – Vera Illugadóttir  Frjálsar hendur – Illugi Jökulsson  Mum says my memoir is a lie – Rosie Waterland  Ted Talks daily  Ted-Ed: Lessons worth sharing  Ted Talks health  Missing Richard Simmons – Dan Taberski  Gastropod  The Doctor’s kitchen  Happier – Gretchen Rubin  The British History Podcast Hljóðbækur:  How to win friends and influence people/Digital age – Dale Carnegie  What I know for sure – Oprah Winfrey  Bossypants – Tina Fey  Syndafallið – Mikael Torfason  Dalalífsserían – Guðrún frá Lundi Rikka mælir með hlaðvörpum og hljóðbókum Rikka var beðin að nefna eitthvað af því sem hún hefur haft í eyrunum síðustu daga og vikur og haft gaman af. Það reyndist auðsótt mál. Morgunblaðið/Hari Sælkeri Rikka hefur í seinni tíð talsvert meiri áhuga á mannlega þættinum í fjöl- miðlum að sinni en er sama áhugamanneskjan um góðan mat.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.