Morgunblaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
KONUKVÖLD
20% AFSLÁTTUR
AFÖLLUM VÖRUM!
FACEBOOK.COM/COMMAICELAND INSTAGRAM.COM/COMMAICELAND
E
va byrjaði að snappa fyrir
um þremur árum og við-
urkennir að hafa ekki
haft hugmynd um hverjir
möguleikar miðilsins voru
í upphafi. „Það vissi í raun enginn
hvernig snappið virkaði þegar
maður var að byrja, maður gerði
bara eitthvað. Maður elti hjörðina,
hlóð niður appinu og fór að fikta
með þetta,“ segir hún.
Það var því lítið um markvisst
snapp hjá Evu til að byrja með en
fyrr en varði fann hún taktinn.
„Fyrir mér hefur snappið alltaf
verið vettvangur fyrir minn húm-
or,“ útskýrir hún. „og ég hef gert
mér far um að halda í það alla tíð.
Húmorinn virðist svo aftur á móti
vera að falla í kramið hjá fólki. Ég
gerði mér hins vegar enga grein
fyrir því að maður gæti safnað
meira en tíu þúsund fylgjendum.
Það áttaði sig enginn í upphafi á
þeim mætti sem býr í þessu litla
appi.“
Stemningin þarf að vera
til staðar fyrir snappið
Tíu þúsund fylgjendur er óneit-
anlega talsverður fjöldi en Eva
segist hugsa sem allra minnst um
það.
„Maður einbeitir sér bara að því
að halda sínu striki og vera maður
sjálfur, það er það eina sem blífur
í snappinu sem og í lífinu sjálfu.“
Aðspurð segist hún ekki hafa
neina vinnureglu í því hve oft hún
snappar á degi hverjum, en reyni
þó að senda eitthvað frá sér dag-
lega.
„Stundum er maður í meira
stuði þennan daginn heldur en
hinn, eins og gengur, en það kem-
ur nú yfirleitt alltaf frá mér eitt-
hvert efni á hverjum degi. Ég var
náttúrlega óþolandi þegar ég var
að byrja, alltaf með símann á lofti,
en í dag er þetta aðeins rólegra.
Ég held líka einkalífinu meira utan
við snappið mitt og það vita það til
dæmis alls ekki allir að ég er
mamma,“ bætir hún við. „Ég set
börnin mín tvö einfaldlega ekki í
story [snapp sem allir geta séð]
síðan fylgjendahópurinn varð
svona stór. Hér áður var ég stans-
laust að snappa en núna þarf að
vera tilefni eða ástæða til. Ef
stemningin er til staðar, þá snapp-
ar maður.“
Snappið er persónulegra
Íslendingar hafa, rétt eins og flest-
ar aðrar þjóðir, tekið samfélags-
miðlum höndum tveim og mjög
margir eru jöfnum höndum á Fa-
cebook, Twitter, Instagram og
Snapchat. Hver miðill hefur sína
eiginleika og sína stemningu, ef
svo má segja, en hvað er það sem
gerir Snapchat frábrugðið hinum, í
huga Evu?
„Mér finnst snappið persónu-
legri miðill en til dæmis story-
hlutinn af Instagram. Mér finnst
fólk einhvern veginn ópersónu-
legra á Insta-stories, mér þykja
innslögin þar vera meira lífs-
stílstengd, meira uppstillt og ekki
eins blátt áfram. Mér finnst
snappið aftur á móti vera í fyrsta
lagi þægilegri miðill – ég er miklu
fljótari að koma frá mér efni þar
en á Instagram, og finnst snappið
einhvern veginn persónulegri og
meira lifandi miðill.“
Eva bætir því við að hún sé
reyndar ekkert alltof hress með
nýjustu uppfærsluna á Snapchat
en lætur það þó ekki stoppa sig og
hyggst halda sínu striki. Tíu þús-
und fylgjendur varpa þar með
öndinni vafalaust léttar!
Eva bætir því við að oftast séu
snöppin hennar leikin af fingrum
fram og mestan partinn séu þau
tekin upp „spontant“. Hins vegar
taki hún stundum upp stutta
sketsa, oftar en ekki sem karakter
að nafni Sigfús Þór gröfustjóri. Þá
sé snappið tekið upp samkvæmt
fyrirfram ákveðnu skipulagi og
handriti.
„Hann er eiginlega orðinn sjálf-
stæður persónuleiki á snappinu og
hefur meira að segja lent í viðtali
á bleikt.is,“ segir Eva og hlær.
„Þegar hann kemur á snappið er
ég búin að pródúsera innslagið í
hausnum, og það finnst mér
skemmtileg tilbreyting frá því sem
ég snappa venjulega. Þessi karakt-
er er einmitt liður í því að hafa
nóg af húmor á snappinu mínu, og
þá kemur Tinna systir mín sterk
inn sem tökumaður,“ bætir Eva
við.
Deili augnablikum
með fylgjendunum
Snappið hefur í gegnum síðustu
þrjú ár fært Evu ýmis tækifæri
sem hún býst ekki við að hafa
fengið annars, eins og hún bendir
á. „Ég hef fengið að upplifa fullt af
hlutum, meðal annars í samstarfi
mínu við Gamanferðir síðasta árið,
en þau hafa sent mig í ferðir hing-
að og þangað um heiminn. Þetta
er þannig að gefa mér fullt af
skemmtilegum tækifærum sem ég
hefði líklegast ekki fengið annars.“
Í þessu sambandi kemur henni í
hug tónleikaferð á Bruno Mars í
London á síðasta ári. „Það var eig-
inlega bara tryllingur lífs míns því
ég er svo rosalegur aðdáandi hans
og hef verið frá því hann kom
fyrst fram á sjónarsviðið. Þegar ég
fór á þá tónleika var ég bara við
hliðina á sjálfri mér af gleði, varð
eiginlega fimmtán ára aftur,
öskrandi og gargandi, og næstum
því grátandi,“ bætir hún við og
hlær við minninguna. „Það eru
augnablik og upplifanir eins og
þetta sem ég deili með fylgjendum
mínum á Snapchat.“
Hver kemur á Konukvöldið?
Að endingu verður ekki hjá því
komist að spyrja Evu hvort það er
hún eða Sigfús Þór gröfustjóri
sem mætir í snapp-ham á Konu-
kvöld K100 í Smáralind í kvöld?
Eva er fljót til svars.
„Ætli það verði ekki húmorist-
inn Eva Ruza. Ég reikna með að
það verði ég sem mæti galvösk
með símann á lofti.“
Snapchat: evaruza
Með húmorinn að leiðarljósi
Af öllum samfélagsmiðlunum sem landinn skoðar á degi hverjum er gróskan
líklega einna mest á hinu svokallaða snappi – eða Snapchat. Meðal þeirra
„snappara“ sem eiga hvað stærstan fylgjendahóp hérlendis er Eva Ruza sem
á sér meira að segja hliðarsjálf sem stundum tekur völdin.
Hliðarsjálfið
Eva á það til að bregða
á leik sem hinn óborg-
anlegi Sigfús Þór
gröfustjóri.
Snappstjarna
Eva Ruza er í hópi
vinsælustu
snappara Íslands.